Morgunblaðið - 26.10.1961, Page 22

Morgunblaðið - 26.10.1961, Page 22
22 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 26. okt. 1961 Milljónastríð um Greaves \Chelsea bauð 11 millj. isl. kr. — Real Madrid hækkaði boðið i 13 millj. ENSKI knattspyrnumaðurinn Jimmy Greaves, sem í vor var seldur til Mílanó fyrir hæstu upphæð, er gefin hef- ur verið fyrir knattspyrnu- mann, er nú til sölu í Míl- anó. ítalirnir gerðu við kaup- in samning við hann til tveggja ára, en hann hefur verið ódæll „prins“ í ítalskri knattspyrnu, og þeir vilja nú losna við hann. ★ Margir kaupcndur En Jimmy er ekki á flæði- skeri staddur, það eru margir, sem vilja kaupa hann. Chelsea, félagið, sem seldi hann í vor, vill nú mjög gjarnan kaupa hann. Félagið er nú neðst í 1. deild ensku keppninnar og Sér sitt óvænna. Hækkar um 2 millj. kr. Chelsea seldi Greaves fyrir sem svarar 9 millj. ísl. kr., en býður nú í hann, 6 mánuðum síðar, 11 millj. kr. Tottenham hefur látið í Ijós vilja sinn til að kaupa þennan frækna knatt- spyrnumann, og kveðst fram- kvæmdastjóri félagsins reiðubú- inn að fara til ítalíu og semja um verðið. Tottenham, sem sigr- aði í ensku deildakeppninni í fyrra, er nú í þriðja neðsta sæti og vill bæta hag sinn. ★ Yfirboð En þegar málin stóðu svona, komu óvæntar fréttir. Spænska liðið Real Madrid bauð 13 millj. kr. í kappann. Spánverjarnir vilja fá nýjan mann í miðherjastöðu. I síð- ustu leikum hefur komið í ljós, að di Stefano og einnig Fuskas eru ekki lengur þeir sömu og þeir voru. Þeir eru báðir orðnir 35 ára gamlir og farið að haila undan fæti fyr- ir þeim. Mílanó vill selja Greaves hæstbjóðanda. Það kann því að verða „milljón.astríð“ milli Real Madrid, Chelsea og Tottenham um þennan „misheppnaða marka kóng“. Eng'and til Chile ENGLAND vann Portúgal í knattspyrnu í dag. — Leikurinn var liður í undankeppni heims- meistarakeppninnar. Með sigri sínum hafa Englendingar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni í Chile næsta sumar. sem er vinningnur í hinu glæsilega SKYNDIHAPPDRÆTTI SJÁLfc’STÆÐISFLOKKSINS heldur O TAUNUS 17 M IMYJUSTU OG FULLKOMNUSTU BÍLAR, SEM ÞÝZKU FORD-VERKSMIÐJURNAR HAFA FRAMLEITT Station VERDMÆTI 360 ÞÚS. KRÓNUR ÐREGIÐ 15. NÓVEMBER MIÐINN KOSTAR 100 KRÓNUR KAUPIÐ MIÐA STRAX í DAG! • SKYNDIHAPPDRÆTTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Real Madrid óttast Dani DANSKA liðið B-1913 er nú kom- ið til Madrid á Spáni. 1 gærkvöldi átti að fara fram leikur þess gegn Real Madrid, en það er síðari leikur liðanna. 1 annarri umferð í keppninni um Evrópu-bikarinn. Fyrri leikurinn fór fram í Oðins- véum og unnu þá Spánverjarnir með 3:0. Frammistaða Dananna var þá mjög rómuð. Þegar 10 mín.. voru til leiksloka var staðan 1:0, en þá var úthaldi Dananna lokið. Síðan þá hafa Spánverjarnir leikið einn leik i spænsku deilda keppninni — gegn Oviedo — og töpuðu 0:1. Þetta er fyrsta tap Real Maörid í deildakeppninni og segja þeir að orsökin sé mikil þreyta í liðsmönnum eftir leik- inn við Danina, sem þeim þótti allerfiður. Spánverjarnir reiknuðu með sigri sínum í gær, en voru þó áhyggjufullir vegna góðrar frammistöðu Dana í fyrri leikn- ÞESSI skemmtilega mynd var unnin af Jóni Kaldal Ijósmyndara. — Hún er af Friðriki Ólafssyni stór- meistara og hugsar ljós- myndarinn sér, að hún tákni hrók á skákborði. — Skemmtileg hugmynd. um, vegna þess að bæði Gento og de Stefano gátu ekki verið með sökum meiðsla. Osigurinn, sem Real Madrid beið gegn Oviedo, var fyrsta tap þess í 18 leikjum í röð. Og það eru morg ár síðan að Real Madrid hefir farið til leiks án þess að skora mark. Svo eitthvað hafa Danirnir þreytt þá. Madrid, 25. okt. REAL Madrid vann danska fé- lagið B-1913 í dag með 9:0 í Evrópubikarkeppninni. Þetta var síðari Ieikur félaganna í keppninini. Fyrri leikinn, sem háður var í Danmörku, unnu Spánverjarnir með 3:0. — Real Madrid hefur unnið Evrópukeppnina alls fimm sinnum. — NTB. Læknisaðgerðir hafnar á Ríkharði I GÆR barst bréf frá Ríkharði Jónssyni knattspyrnumanni, það- an sem hann dvelst á sjúkrahúsi í Hellersen í Þýzkalandi. í bréf- inu segist Ríkharður vera búinn að undirgangast læknisrannsókn og að læknisaðgerðir séu hafnar. Samkvæmt úrskurði sérfræð- inganna, sem framkvæmdu rann- sóknina, er ekki gert ráð fyrir þriðja uppskurðinum vegna meiðslanna í baki, sem svo orsök- uðu lömun í fæti. Læknisaðferðir þær sem beitt er við Ríkharð, eru að mestu framkvæmdar með ýmiskonar raxmagnstækjum og segir hann í bréfinu að allt sé þetta nýtt. Sjúkrahúsið, sem Ríkharður dve^st á er nýtt og kostaði bygg- ing þess yfir 10 millj. marka. Ríkharður segir að sér líði vel og biður fyrir kveðjur til allra viiid siiina og velunnara hér heima. Enn haía borizt fjárframlög í Ríkharossöfnunina. Sveini Sæm- undssym hafa verið afhentar frá tveim einstaklingum og sjö starfs hópum samtals 10,073 krónur. * Enska knattspyrnan *> MARKAHÆSTU leikmennirnir í ensku knattspyrnunni eru nú þessid: 1. deild: Crawford (Ipswich) .......... 15 mörk I%illips (Ipswich ........... 15 _ Charnley (Blackpool) ........ 13 —- Pointer (Burriley) ............ 12 Tambling (Chelsea) ............ 12 — Ward (Cardiff) ................ 12 — Charles (Arsenal) ............ 10 —. Pace (Sheffield U.) ......... 10 — Dik (West Ham) ............... 9 —. 2. deild: Hunt (Liverpool) ............ 16 mörk Thomas (Scunthorpe) ......... 15 — Clough (Sunderland) .......... 14 — O’Brien (Southampton) 14 — Peacock (Middlesbrough) .... 13 w Turner (Luton) ............. 12 — Thomas (Preston) ......... 11 — Stokes (Huddersfield) ...... ll w Curry (Derby) .............. 10 Kirkman (Rotherham) ........ 10 w 3. deild: Holton (Northamton) ........ 17 mör> Hunt (Swindon) ............. 14 — Dowsett (Bournemouth) ..... 13 Emery (Petersborough) ...... 13 Rowley (Shrewsbury) ........ 13 — Bedford (Q.P.R.) ........... 12 — Bly (Petersborough) ....... 12 McLaughlin (Shrewsbury) .... 12 — Allan (Reading) ............ 10 —

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.