Morgunblaðið - 17.11.1961, Qupperneq 2
2
1UORCV1SBL AÐIÐ
Föstudagur 17. nóv. 1961
Talið frá vinstri Jónas Thoroddsen, fulltrúi borg-arfógeta, er annaðist útdráttinn, Sigríður Gúst-
j afsdóttir, Bjórg Ingólfsdóttir, Kristín Jónsdóttir, skrifstofustúlkur hjá Sjálfstæðisflokknum og
\ Fétur Hafsteinn, er dró út vinningsnúmerin.
Þakkir frá Sjálfstæðisflokknum
SJALFSTÆÐISFLOKKURINN
efndi til happdrættis þann 15.
október s.l. til eflingar starfsemi
sinni. Þessu happdrætti lauk á
tilsettum tíma í fyrrakvöld og
höfðu þá selzt allir útgefnir mið-
ar. Dráttur fór fram fyrir mið-
nætti og komu upp núir.sr 9658
og númer 10437 en vinningar
voru tveir — tvær Taunus „sta-
tion“-fjölskyIdubifreiðir. Vinn-
ingsmiða ber að framvísa í skrif
stofu Sjálfstæðisflokksins í Sjálf-
stæðishúsinu í Reykjavík.
Múrarar greiða
atkvæði um upp-
sögn samninga
I DAG og á morgun fer fram
ailsherjaratkvæðagreiðsla í Múr-
arafélagi Reykjavíkur um upp-
sögn samninga.
Atkvæði eru greidd í skrifstofu
féiagsinis að Freyjugötu 27, í dag
kl. 5—9 e.h. og á morgun frá
kl. 10 f.h. til kl. 8 e.h
Samsæti til
heiðurs Jóhöimu
Egilsdóttur
Verkakvennafélagið Framsókn
gengst fyrir samsæti til heiðurs
Jóhönnu Egilsdóttur, formans fé-
lagsins, í tilefni áttatíu ára af-
mælis hennar laugardaginn 25.
•nóvember.
Samsætið verður í Iðnó og
hefst klukkan 7 síðdegis með
sameiginlegu borðhaldi. Allir
vinir og velunnarar Jóhönnu eru
velkomnir.
Allar upplýsingar viðvíkjandi
hófinu eru gefnar á skrifstofu
Verkakvennafélagsins, — sími
12931, og hjá Pálínu Þorfinnsdótt
lr, Urðarstíg 10, sími 13243.
Vinsamlegast tilkynnið þátt-
tökuna fyrir 24. þ.m.
Fjáröflun Sjálfstæðisflokksins
hefir jafnan mætt fyllsta skiln-
ingi stuðningsmanna flokksins og
happdrætti hans jafnframt notið
almennra vinsælda.
Engu happdrætti flokksins hef
ir þó verið jafn vel tekið og þessu
síðasta. sem lokið var á örskömm
um tíma.
Sjálfstæðisflokkurinn færir
fyllstu þakkir öllum þeim víðs
vegar um land, sem veittu flokkn
Stórhríðar
í Bandaríkjumim
DALLAS, Texas, 16. nóv. (AP) —
Mikil hríðarveður hafa undan-
farna þrjá daga gengið yfir
Nýja-Mexikc Og Texas. I dag
gerði enn mjög mikið hvassveð-
ur, sem einnig náði til Colorado,
Oklahoma og Kansas. Því fylgdi
ekki snjókoma, en hins vegar er
mikill skafrenningur og kuldinn
mjög bitur. — Vitað er um
a. m. k. átta menn, sem orðið
hafa úti í óveðrum þessum.
^yt^acfáhru.
ALÞINGIS
Efri deild Alþingis föstudaginn 17.
nóv. 1961, kl. 1:30 miðdegis.
Haestiréttur, frv. — 1. umr.
Neðrideild Alþingis föstudaginn 17.
nóv. 1961, kl. 1:30 miðdegis:
1. Almannatryggingar, frv. — 1.
umr. — 2. Lækkun aðflutningsgjalda,
frv. — 1. umr. — 3. Byggingar íbúðar-
húsa í kaupstöðum og kauptúnum, frv.
— 1. umr. 4. Húsnæðismálastofnun,
frv. — 1. umr.
— Beria
Framh. af bls. 1.
sögitna af vörum Krúsjeffs sjálfs
í veizlu, sem haldin var í sam-
bandi við kommúnistaþingið í
Moskvu nýlega. — Hefði hann
sagt þar svo frá, að Beria hefði
á fundinum verið spurður um
afdrif manns nokkurs, sem hann
hafði látið handtaka, en ekkert
hafði frétzt til síðan — og sömu-
leiðis höfðu miðstjómarmenn
krafið hann um útskýringar
vegna orðróms um, að hann
hefði staríað sem njósnari Breta
á dögum rússnesku byltingar-
innar. Spunnust af þessu hörð
orðaskipti, og lét Krúsjeff m. a.
svo um mælt, að Beria væri
ekki sannur kommúnisti — hann
hefði „jafnvel aldrei starfað í
neinum deildum eða stofnunum
flokksins".
Krúsjeff sterkari
Við þessi orð á Beria að
hafa þrifið upp skammbyssu og
miðað henni á Krúsjeff. En sögu
menn hafa það eftir Krúsjeff,
að hann hafi samstundis ráðizt
á Beria — og tekizt að afvopna
hann eftir harðar ryskingar.
Beria hafi síðan orðið að gef-
ast upp frammi fyrir byssukjafti
maáskálksins, sem fyrr getur, og
verið leiddur burt í fjötrum. —
Hann var síðan tekinn af lífi í
Azerbadjan á Þorláksmessu 1953
—• svo sem opinberlega var til-
kynnt á sínum tíma.
★
Brezk biöð, sem fluttu svip-
aða fregn í morgun, sögðu hana
þannig, að Moskalenko marskálk
ur hefði skotið Beria á umrædd-
um miðstjórnarfundi. | -
utn. ómetanlegan stuðning í sam-
bandi við þetta happdrætti.
Fjármálaráðið.
Biskupinn
vísiterar Arnes-
prófastsdæmi
BISKUPINN yfir Islandi vísiter
ar Árnessprófastsdæmi. Verður
vísitazíunni þannig hagað:
Föstudaginn 17. nóv. kl. 2,
Hraungerðiskirkja. Laugardagur
inn 18. nóv. kl. 2 Selfosskirkja.
Sunnudaginn 19. nóv. kl. 1 Vill-
ingaholtskirk j a.
I hverri kirkju hefst visitazían
með guðsþjónustu. Að henni lok
inni fara fram viðræður við söfn
uðina og skoðun á kirkjunum.
(Biskupsstof a).
Spilakvöld
á Akureyri
Sjálfstæðisfélögin á Akureyri
halda spilakvöld að Hótel KEA
kl. 21 n.k. laugardagskvöld. —
Þetta er síðasta kvöldið af þrem
ur sem spilað verður að þessu
sinnL
Ný hafnarreglugerð
fyrir bæjarstjórn
Skipagjöld verðo samkvæmt henni
miÖuó við brúttó-rúmlestir i stað
nettó áður
SAMKVÆMT frumvarpi að
nýrri hafnarreglugerð fyrir
Reykjavikurhöfn, sem var til 1.
umræðu í bæjarstjórn Reykja-
víkur í gær, er gert ráð fyrir, að
öll skipagjöld verði eftirleiðis
miðuð við brúttó-rúmlestir í stað
nettó-rúmlestir, eins og nú er. Ef
ekki hefðu verið gerðar aðrar
breytingar en að miða við brúttó
stærð í stað nettóstærðar, myndu
skipagjöld hafa hækkað um 100%
að meðaltali, en í reglugerðarfrv.
er gert ráð fyrir niðurfærslu
taxta, þannig að hækkun gjald-
anna verður mun minni.
— x—■
Þegar Geir Hallgrímsson borg
arstjóri fylgdi frumvarpinu úr
hlaði á bæjarstjórnarfundinum í
gær gerði hann grein fyrir því,
að ástæðan til þess, að rétt er
talið að miða við brúttómálið
væri sú, að brúttóanjálið sé nær
að vera mælikvarði á stærð skips
og þess rúms, er það þarfnast í
höfn.
I greinargerð hafnarstjóra kem
ur það fram, að víða, þar sem
hingað til hefur verið miðað við
Úranus hættur
við siglingu
I GÆR var skipað upp þeirri síld,
sem búið var að setja í togarann
Uranus og er hann hættur við
siglingu með síldina á erlendan
markað, en hún mun verða unn
in hér héima. Þessu nnun hafa
valdið m.a. það, að ekki fétokst
næg síld í skipið, en bræla hefir
verið á miðunum síðustu daga
og síldiveiðiskipin legið í höfn
þar til síðari hluta dags í gær að
þau fóru út á ný.
Kroll aftur
til Moskvu
BONN, 16. nðv. — Adenauer
kansliari sagði í dag, að Moskvu-
sendiherra V.-Þýztoalands, Hans
Kroll, hefði ekki farið út fyrir
verkisvið sitt í viðræðum sínum
við Krúsjeff nýlega — ag að
sendiherrarm mundi hverfa aft-
ur til Moskvu næstu dagia. —
nettómál, sé nú tilhneiging til
þess að hverfa frá því að miða
við brúttómál. T.d. hefur í Nor-
egi fyrir nokkrum árum verið
tekin upp sú regla að miða öll
skipagjöld við brúttómál, og má
búast við, að hin Norðurlöndin
fylgi á eftir.
Þegar borgarstjóri hafði gert
grein fyrir þeirri meginbreyt-
ingu, sem frumvarpið gerir ráð
fyrir, var málinu vísað umæðu
laust til 2. umræðu.
Kristófer Eggerts-
son látinn
KRISTÖFER Eggertsson stoip-
stjóri lézt í gærmorgun á Lands-
spítalanum eftir nokkra sjúto-
dómslegu hátt á sjötugs aldri.
Kristófer hafði starfað við síld
arútveg frá því 1913 og verið skip
stjóri á síldarskipum um langt
árabil. Um tíma var hann veit-
ingamaður á Hótel Tindastódi á
Sauðárkróki.
Nobkur undanfarin ár hafði
Kristófer verið síldarleitarstjóri
á Norðurlandssíldveiðum á sumr
um, en fengist við ýmis störC á
vetrum m.a. var hann gæzlu-
maður vélskipaflotans í Reykja
víkurhöfn f.h. Samábyrgðar ís-
lands. . --
Kristófer var tvíkvæntur og lif
ir síðari kona hans Fríða Ingólfs
dóttir, mann sinn.
Þessa mæta manns verður get
ið nánar hér í blaðinu.
Sendimaðurinn miður sín
Guðmundur Vigfússon, sá
sem sendur var af íslenzku
kommúnLstadeildinni á flokks
þingið í Moskvu, mætti nú í
fyrsta skipti í bæjarstjórn eft
ir heimkomuna. Var augljóst,
að Guðmundur var miður sin.
Ætlaði hann nokkuð að Iáta
til sín taka á fundinum, en allt
fór gjörsamlega í handaskol
um, eins og hann væri annars
hugar.
Beindi Guðmundur fyrir-
spum til borgarstjóra um
„vanskilaskuldir“ bæjarins
við Atvinnuleysistrygginga-
sjóð og fleiri stofnanir. Borg-
arstjóri upplýsti þegar, að
skuldir þessar væru alls ekki
í vanskilum, þótt þær væru
færðar til skuldar, einfaldlega
vegna þess að gjalddagi þeirra
væri ekki kominn- Þannig
benti bor,.arstjóri á, að álíka
fráleitt væri að tala um þetta
sem vanskilaskuldir eins og
það, ef Guðmundur Vigfússon
tæki lán. sem hann ætti að
greiða eftir 10 ár, þá væri
það ekki í vanskilum fyrr en
að þeim tíma liðnum, þótt
hann skuldað: féð.
Hvernig sem málið var út-
skýrt fyrir Guðmundi, virtist
hann alls ekki skilja það og
hélt fast við að bærinn ætti
að greiða skuldir sínar löngu
fyrir gjalddaga, þótt hann
yrði þá fyrir vaxtatjóni, sem
næmi hundruðum þúsunda
króna. Óskar Hallgrímsson,
sem er stjómarmaður í
Atvinnuleysistryggingarsjóði,
kvaddi sér hljóðs og benti á
að honum væri kunnugt um
það að Guðmundur Vigfússon
hefði ekki verið beðinn að inn
heimta féð hjá Reykjavíkur-
bæ, enda hefði bærinn frá
fyrstu tíð staðið í skilum við
sjóðinn og gerði enn. Ef Guð-
mundur Vigfússon hefði verið
ráðinn innheimtumaður, hefði
honum verið falið að inn-
heimta fé hjá öðrum bæjarfé-
lögum en Reykjavík. Sendi-
manninn setti þá hljóðan og
dreyrrauðan, en ekki tók hann
samt aftur tillögu, sem hann
hafði flutt um, að skora á bæj
aryfirvöld að greiða þessa
„vanskilaskuld“ sína.
Borgarstjóri bar fram frá-
vísunartillögu við þessa fárán
legu tillögu GuSmundar og
greiddu allir bæjarfulltrúar,
að kommúnistum einum und-
anskildum, henni atkvæði sitt.
Er sérstaklega athyglisvert að
fulltrúi Framsóknarflokksins
skyldi þannig vísa á bug full
yrðingum kommúnista um að
f járhagur bæjarins væri slæm
ur. Hefði hann þó getað setið
hjá við atkvæðagreiðsluna.
Flokksbræður Guðmundar
voru líka ruglaðir í ríminu,
og þegar tillaga borgarstjóra
hafði verið samþykkt, þá ósk-
aði einn fulltrúa þeirra eftir
þvi að hún væri lesin upp,
svo hann gæti kynnzt efni
hennar!