Morgunblaðið - 28.11.1961, Page 6

Morgunblaðið - 28.11.1961, Page 6
« MORGVISBLAÐIÐ Þriðjudagur 28. nóv. 196J Lögregfan tekur nýja fangageymslu í notkun w V. r" ' Trrrrrrf -r. ■. TrrfnjrflCC i r rr\‘ • vrr ri r. f.r ^ / r., .-ot| Timamót i loggæzlumálum höfuðborgarinnar SIGURJÓN Siffurðsson, lögreglu- stjóri, boðaði blaðamenn á fund í gær í tilefni af því að í vikulok- in tekur lögreglan í notkun hina nýju fangageymslu við Síðumúla, ®g verður þá „kjallarinn“ í lög- reglustöðinni lagður niður. en nokkrum hluta hans verður þó haldið við svo hægt sé til að grípa ef mikið liggur við. Hin nýja fangageymsla markar tímamót í lögreglu- og fangageymslumálum höfuðborgarinnar. Lögreglustjóri, fulltrúar hans Agnar Biering og Ólafur Jónsson, svo og Erlingur Pálssón yfirlög regluþjónn sýndu blaðamönnum hina nýju fangageymslu í gær. Er hún björt Og rúmgóð, og að staða öll eins og bezt verður á kiosið. Lögreglustjóri gerði eftirfar- andi grein fyrir hinni nýju fanga geymslu: „Um mánaðamótin olkt.-nóv. 1960 var hafizt handa uim bygg ingu nýrrar fangageymslu í Reykjavík og er sú bygging nú íullbúin. Byggingarframikvaemdir hafa þannig staðið yfir í rúmt ár. Fangageymislan stendur við Síðumúla, en þar hefir lögreglan rúmgóða lóð til umráða. Á lóðinni hefir þegar verið byggt fullkom ið bifreiðaverkstæði til viðgerð ar á lögreglubifréiðum og í fram tíðinni mun rísa þar úthverfis- lögreglustöð fyrir austurhluta bæjarins. Frá því á árinu 1940 hefir lög- reglan orðið að notast við ótfull komna fangageymslu í kjallara lögreglustöðvarinnar við Pósthús stræti. Aðstæður eru þar, eins og kunnugt er, mjög slæmar, en fangageymslan var byggð á sín- um tíma til þess að leysa í bili að kallandi þörf á auknu húsnæði til geymslu ölvaðra manna um stundarsakir. Ýmsar endurbætur hafa verið gerðar á fangageymsl unni, en vegna þrengsla og ann- Jólapóstur til útlanda POSTSTOFAN bað blaðið að vekja athygli almennings á skipa ferðum til útlanda í desember- mánuði. Goðafoss fer frá Reykjavík til New York seint í þessari viku og er það sennilega hagkvæmasta ferðin fyrir jólabögla. Selfoss fer einnig 1. des., en með viðkomu i Irlandi. Aðalferðin til Norðurlanda með póst verður Drottningin 11. des. — Aðrar skipaferðir eru ekki öruggar. Sama er að segja um annan Evrópupóst. Hann fer með Drotningunni. arra aðstæðna, var útilokað að gera hana þannig úr garði, að við hlítandi sé. Af þeim sökum, svo og vegna mikillar þarfar á auknu húsrými til fangageymslu, hefir bygging nýprar fangageypislu lengi verið aðkallandi verkefni. Gert er ráð fyrir allmörgum fangaklefum í aðallögreglustöð- inni, sem mun rísa við Hlemm- torg, en bygging hennar mun ó- Skúli Sveinsson varðstjóri. hjákvæmilega taka nokkur ár. Var því horfið að því ráði að byggja fangageymslu á lóð lög- reglustöðvarinnar á meðan á á byggingu aðallögreglustöðvar- innar stendur. Er fangageymslan við Síðumúla þannig byggð, að auðvelt er að taka húsnæðið til’ annarra nota síðar, ef hentugt þykir. Eins og áður segir, er mikil þörf á auknu húsrými til geymsiu manna um stundarsakir vegna ölvunar og óspekta. Á síðustu 5 árum hefir tala varðhaldstiltfella á lögreglustöðinni verið ytfir 4000 á ári. Á árinu 1960 var tal- an 4976 eða rúmlega 13.6 á sólar- hring. í gömlu fangageymslunni eru aðeins 10 einsmannsklefar og varð því oft að sleppa mönnum úr haldi, fyrr en efni stóðu til, til þess að rýma fyrir öðrum, sem enn nauðsynlegra var að geyma um stundarsakir. Hin nýja fanga geymsla við Síðumiúla mun að nokkru leyti leysa úr þessum vanda, en þó ekki til fullnustu, enda gert ráð fyrir auknu fanga- rúmi í hinni nýju lögreglustöð. Fangageymslan við Síðumúla er teiknuð á teiiknistotfu húsa- meisara ríkisins og undir hans umsjá. Uppdráttinn gerði Ragnar Emilsson. Stærð hússins er 350 ferm. að flatar máli, en rúmmál þess er um 1340 rúm metrar. í húsinu eru 18 rúmgóðir fangaklefar, þar af 17 eins manns klefar, en einn tveggja manna klefi. Auk þess eru þar herbergi fyrir dóntf ara, varðstjóra, og fangaverði. Enn- fremur biðstofa, geymsla fyrir eig ur þeirra, er gista fangaklefana, 5 snyrtiherbergi, steypiböð, ræstingar- tækjageymsla og kyndiklefi. Gangar allir eru rúmgóðir og bjartir. Hver einmenningsklefi er 2.12x2.60 m að gólflleti, en lofthæð í þeim er 2.70 m. Séð eftir gangi í hinni nýju fangageymslu Klefarnir eru beggja vegna gangsins (Ljósm.. Sveinn Þormóðsson). Húsið er byggt úr járnbentri stein steypu með skáþaki úr timbri. Full komið kyndingar- og loftræstingar- kerfi er í húsinu, svo og sérstakt eld varnarkerfi. Eftirtaldir aðilar hafa lagt hönd að verki í sambandi við bygginguna: l’ór hallur Jónsson, húsasmíðameistari, hefur staðið fyrir trésmíðavinnu, mótavinnu og innréttingum. Sigurður Helgason, múrarameistari, hefir ann azt alla múrsmíði. Benóný Kristjáns- son, pípulagningameistari, annaðist pípulagningar. Magnús Kristjánsson, rafvirkjameistari, sá um rafiögn og uppsetningu bjöllukerfis. Ólafur Jóns son, málarameistari, annaðist máln- ingu utan húss og innan. Benedikt Ólafseon sá um uppsetningu hitunar- og loftrásarkerfis. Rafmagnsteikningu gerði Jón Á. Bjarnason, verkfræðing- ur. Almenna bygginganfélagið h Ji. annaðist uppdrætti að hitunar- og loftrásarkerfi. Landsmiðjan smíðaði dyraumbúnað, rúm o.fl. Verklegar Kvikmyndir í sjónvarpi Vegna ummæla í samtals- þætti Sig. Magnússonar hringdi maður einn til Velvak anda. Sagðist hann hafa höggvið eftir því, að einn við- ræðandinn hefði talið sjón- varpið vera böðul kvikmynda húsanna, því að þar eð kvik- myndir væru sýndar í því, nennti enginn lengur að fara í bíó. Þetta væri hin mesta' fjarstæða, því að kvikmyndir, sem þar væru sýndar, eru aldrei undir 15—20 ára gaml’ ar. Þetta er fastbundið í samn ingum erlendis, og eins er það í Keflavíkurmyndvarpinu. Mætti það vera sparsamt og þolinmótt fól'k, sem legði það á sig að biða tuttugu ár eða lengur eftir að sjá kvikmynd- ir, sem það gæti séð nýjar af nálinni í bíóhúsum. — Þess má og geta, að mynd — eða sjónvarpið veitir mikilvæga menningarþjónustu með því að draga fram gamlar kvik- myndir úr söfnum og sýna al- menningi, sem annars ætti þess engan kost að sjá þær. Þetta er e. k. Filmía heimil- anna. • Sjúkrahjálp Kona kom að máli við Vel- vakanda og vildi koma þeirri hugmynd á framfæri, hvort ekki væri tímabært að taka upp kennslu hér í sjúkrahjálp. Hér er átt við sams konar kennslu og veitt er í sérskól- um í Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og sjálfsagt víðar, og gefið mjög góða raun. Þessi menntun er ætluð ungum stúlkum, sem hafa t. d. lokið gagnfræðastigsnámi og langar til þess að læra meira, en treystast ekki út í langt nám, eins og t. d. hjúkrunarnám. Námið tekur 7 mánuði, er bæði bóklegt og verklegt, og lýkur með prófi. Fá stúlkurn- ar þá prófskírteini, sem veit- ir þeim rétt til þess að vinna á sjúkrahúsum og hælum. Starf ið er e.k. millibilsverk ganga- stúlkna og hjúkrunarkvenna. Þær hafa mikið samband við sjúklinga og sjá um hluti, sem hvorki hjúkrunarkonur né gangastúlkur mega vera að því að gera, og þær síðar- nefndu hafa e.t.v. ekki þekk- ingu á. Hér er sífellt talað um hörgul á hjúkrunarkonum, og bæði þær og gangastúlkur vilja tolla illa í starfi, gifta sig oft og stofna bú, þegar þær hafa nýhafið starf. Hjálparstúlkurnar gerðu það sjálfsagt líka, en myndun slíkrar stéttar myndi samt bæta úr brýnni þörf, og ekki er að efa, að margar ungar stúlkur hefðu hug á þessari menntun. Dýr bíóferð G. G. skrifar: „Við hjónin bregðum okkur *>£^~-**----- ---- ----------' -T— 1 framkvæmdir h.f. sáu um útvegun og uppsetningu eldvarnarkerfis. Af hálfu lögreglunnar hefir Skúli Sveins- son, varðstjóri, haft umsjón og fram kvæmdir í sambandi við byggingu fangageymslunnar, en af hálfu húsa- meistara ríkisins Magnús Jóhannes- son, eftirlitsmaður með ríkisbygging- um. Samkvæmt lögum skiptist kostnað ur af byggingu fangageymslunnar að jöfnu á milli ríkissjóðs og bæjarsjóðs Reykjavíkur. Fullnaðarreikningur yfir byggingarkostnaðinn liggur enn ekki fyrir, en líkur benda til, að hann muni verða um 1.9 millj. kr., auk kostnaðar vegna lagfæringar á lóð, brottflutnings grjóts o.s.frv. Fangageymslunni er einungis ætlað það hlutverk að hýsa þá, sem lögregl an neyðist til að geyma um stundar sakir vegna ölvunar eða af öðrum á- stæðum. Þar eru hinsvegar ekki að- stæður til að geyma menn um lengri tíma“. stundum í Laugarásbíó. Þar eru oft sýndar stórfenglegar , myndir, húsið er skemmtilegt og sætin ágæt. — En það er slanga í þessari paradís, og hún gerði mér ljótan grikk hérna um daginn, svo mér finnst ástæða til að biðja Vel- vakanda að vara menn við henni. — Eg skildi sem sé bílinn minn eftir á bílastæð- inu norðan undir húsinu, með an á sýningu stóð, og þar var vitanlega fjöldi annarra bíla. Svo þegar sýningu er lokið og við komum að bílnum, þá er búið að stela tveim hjólkopp- um af honum, og þeir kosta hvorki meira né minna en þúsund krónur. — Ég hef heyrt um fleiri, sem hafa orð ið fyrir svona óskunda á þess- um stað. Finnst þér ekki, Velvak- andi góður, að forráðamenn þessa staðar ættu að hafa eftir litsmann á bílastæðinu, með- an sýningar standa yfir til þess að koma í veg fyrir þetta? Laugarásbíó er dálítið afskekkt, og bæjarmenn koma þangað flestir á einkabílum. Það er hætt við, að þeir hvekk ist, ef þjófar geta leikið laus- um hala í bílaþvögunni." — Velvakándi vill taka und- ir þessi tilmæli. Þótt þjófar eigi sennilega bezt með að at- bafna sig á bílastæði Laugar- ássbíós, þá eru þess einnig dæmi, að þeir hafa látið greip ar sópa um önnur bílastæði, svo sem við Stjörnubíó og lík- lega enn fremur við Trípólí- bíó. Einnig mun eitthvað hafa borið á því, að strákar taki bíla traustataki á stæðunum og a'ki í þeim um bæinn, með- an á bíósýningu stendur, en skili þeim svo aftur, áður en sýningin er úti. Eru bifreið- arnar þá stundum skítugar og illa farnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.