Morgunblaðið - 28.11.1961, Side 12
12
MORGVNBL4ÐIÐ
Þriðjudagur 28. nóv. 1961
CTtgeíandi: H.í Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (áfem.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjóífur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: A.ðalstræti 6.
Auglýsingar og avgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
NIÐHÖGGARNIR VIÐ SAMA
HEYGARÐSHORNIÐ
TVTíðhöggarnir við Moskvu-'®'
’ málgagnið á íslandi halda
áfram Göbbels-aðferðum sín-
um til þess að þjóna hús-
bændunum í Kreml. — í
sunnudagsblaðí Kremlvilj-
ans er bæði forsíðan og rit-
stjórnargrein undirlögð til
að fullyrða að . ósanninda-
fregnin um þýzkar herstöðv-
ar á íslandi sé sönn, þrátt
fyrir skýlausar og eindregn-
ar yfirlýsingar ríkisstjórnar-
innar um, að hún sé upp-
spuni frá rótum.
I ritstjórnargreininni seg-
ir m. a.:
„Fyrir því er löng reynsla,
að Þjóðviljanum tekst að
afla sér vitneskju um þau
myrkraverk, sem hafa átt að
vera leyndust, og reynslan
sannar einnig, að vitneskja
Þjóðviljans er örugg“.
Moskvuþjónarnir á fslandi
nota þannig Göbbels-aðferð-
ina. Þeir endurtaka lygina
ae ofan í æ í von um að ein-
hverjir fáist til að trúa
henni. Þeir gera sér líka
fulla grein fyrir því, hverj-
um tilgangi þessar endur-
teknu fullyrðingar eigi að
þjóna. í forsíðugrein blaðs-
ins segir:
„Hér í blaðinu hefur verið
bent á það margsinnis, að
vandi Finna stafaði In.a. af
því, að Norðurlönd væru að-
ilar að hernaðarbandalagi,
þar sem Vestur-Þjóðverjar
vaða nú uppi í vaxandi
mæli og herstöðvar á íslandi
væru svik við Finna“.
Hin endurteknu ósannindi
eiga ekki að þjóna þeim til-
gangi að auka fylgi heims-
kommúnismans á íslandi. —
Þvert á móti hljóta skriffinn
arnir að gera sér grein fyr-
Ir andstyggð þeirri, sem all-
ir góðir íslendingar hafa á
slíkri framkomu. Engu að
síður er' baráttunni haldið
áfram. Það á vísvitandi að
reyna að gera aðstöðu Finna
gagnvart Rússum sem versta
tii þess að húsbændurnir í
Kreml geti sannfærzt um,
hve dygga þjóna þeir eiga á
íslandi.
Þetta níðingsbragð er sem
betur fer nær einstætt í
stjórnmálasögu landsins, og
auðvitað dytti engum í hug
að beita því öðrum en blind-
um ofstækismönnum og til-
biðjendum einræðisstefnu,
enda mundu hinum andlegu
tvíburabræðrum, Stalin og
Göbbels, líka vel frammi-
staða lærisveinanna, ef þeir
mættu rísa upp úr gröfum
sínum og líta yfir Kremlvilj
ann. —
„SIÐFERÐILEGT
HLUTLEYSr
TVTixon, fyrrum varaforseti
-*•’ Bandaríkjanna, skrifaði
merkilega grein í blöð í
Bandaríkjunum nú fyrir
skömmu, sem hann kallar
„Siðferðilegt hlutleysi er ó-
hugsandi". Er greinin skrif-
uð í tilefni af komu Nehrus
til Bandaríkjanna og er hin
merkasta. Hún varpar ljósi
á kúgunarstefnu kommún-
ismans, hún sýnir að allt tal
leiðtoga hans um það, að
þeir hafi frelsað þjóðirnar og
séu málsvarar frelsisins, á
enga stoð í veruleikanum.
Þvert á móti hafa kommún-
istar fjötrað hverja þjóðina
á fætur annarri og eru nú
mesta og svívirðilegasta ný-
lenduveldið.
Þá bendir Nixon á þá
staðreynd, að siðferðilegt
hlutleysi er ekki til. Engin
þjóð, sem býr við sjálfstæði,
hefur leyfi til að draga sig í
hlé og vera hlutlaus gagn-
vart undirokunar- og út-
þennslustefnu kommúnism-
ans. Engin þjóð hefur leyfi
til að gagnrýna Vesturveld-
in hástöfum í skjóli þess, að
þau muni aldrei sína klærn-
ar, en nota hvert tækifæri
til að bera blak af ofbeldi
kommúnismans af ótta við
styrk hans. Eða eins og séra
Árni Þórarinsson sagði á sín-
um tíma um suma íslend-
inga, að þeir þegðu við ljót-
um sannleik. Engin þjóð hef
ur leyfi til að þegja við ljót-
um sannleik.
í grein Nixons, sem Morg-
unblaðið birti á sunnudag-
inn, segir hann m.a., að
grundvallarkenning hins sið-
ferðilega hlutleysis, þess
hlutleysis sem svo oft er
stagazt á, ekki sízt af íslenzk
um hernámsandstæðingum
svokölluðum, sé þessi:
Að lítill munur sé á Sov-
étríkjunum og Bandaríkjun-
um. Bæði búi yfir geysilegum
hernaðarmætti, bæði ógni
heimsfriðnum, bæði gætu
gerzt árásaraðilar gegn sjálf-
stæði og frelsi annarra þjóða.
Og Nixon segir:
„Þetta er bjálfalegt.
Við erum ekki hvítþvegn-
ir á sviði utanríkismála. Við
höfum gert skyssur. Við og
bandamenn okkar í Evrópu
höfum átt nýlendur. En við
skulum líta um öxl og at-
huga hvað gerðist á styrj-
aldarárunum og eftir þau.
Leitinni haldiö áfram
Michael
Rockefeller
ófundinn enn
Michael Rockefeller.
ENN er haldið áfram leit-
inni að Michaél Rockefell-
er, 23 ára gömlum syni
Nelsons A. Rockefellers
ríkisstjóra í New York.
Eins og skýrt hefur verið
frá hér í blaðinu var
Michael á ferð í Nýju
Guineu með vísindaleið-
angri er hann týndist fyr-
ir rúmri viku. Hvarf hans
bar að með þeim hætti að
hann var laugardagskvöld
ið 18. þ. m. á siglingu
meðfram suðvesturströnd
Nýju Guineu, ásamt hol-
lenzkum vísindamanni, dr.
R. W. Wassing. Farartæki
þeirra félaga var fleki,
sem innfæddir nefna pra-
hu. Þessir flekar eru bún-
ir til úr tveim eintrján-
ingum, sem bundnir eru
saman.
Prahu fléki eins og sá sem«Michael var á er slysið vildi til.
Dr. R. W. Wassing
Þeir voru um 4 km. frá
ströndinni er fleka þeirra
hvolfdi. Dr. Wassing tók það
1 ráð að halda sér á flekanum,
en Michael synti áleiðis til
lands með tvo tóma benzín-
brúsa til að hvílast við á
leiðinni. Síðan hefur ekkert
til hans spurzt. Hollenzkt eft-
irlitsskip bjargaði dr. Wass-
ing daginn eftir.
•
Fréttum ber ekki saman
Leiðangurinn, sem Michael
var með, var farinn á veg-
um Harvard Peabody safns-
ins í Boston og leiðangurs-
menn flestir kennarar og
nemendur frá Harvard há-
skóla. Tilgangurinn var að
rannsaka líf frumbyggja
Nýju Guineu og aðalverkefni
Michaels var að taka upp á
segulband tónlist frumbyggj-
anna, söng og málfar.
Fréttum ber ekki saman
um aðstæður á svæði því,
þar sem hugsanlegt er að
Framhald á bls. 15.
Bandaríkin, Bretland,
Frakkland og önnur frjáls
ríki hafa af fúsum vilja veitt
42 þjóðum frelsi — og síðan
höfum við fúslega hjálpað
þeim að leysa stjórnmála-
og efnahagsvandamál sín.
Hinsvegar hafa Ráðstjórn-
arríkin hneppt í þrældóm
þjóðir í Vestur-Evrópu, sem
áður voru frjálsar.
Er rétt að segja, að eng-
inn munur sé á Bandaríkj-
unum og kommúnistaríkjun-
um, svo sem Rússlandi og
Rauða-Kína?“
OF MARGIR
ÁNETJAST
Og enn má spyrja: er
hægt að segja að Vest-
urveldin séu jafnhættulegir
árásaraðilar og Sovétríkin?
Hvað segir sagan um það.
Þegar ógnartímabil Stalins
stóð sem hæst og hann lét
enga þjóð í friði og ekkert
tækifæri ganga sér úr greip-
Um- til að sýna klærnar,
höfðu Bandaríkin ein kjarn-
orkuvopn og því betri tafl-
stöðu til árása en nokkur
stórþjóð önnur hefur nokk-
urn tíma haft. Notuðu Vest-
urveldin þessa aðstöðu sína
með því að hefja styrjöld við
Sovétríkin og önnur komm-
únistísk ríki? Nei, þau héldu
að sér höndum og veittu
fjölda þjóða frelsi. Þau
treystu því, að þær þjóðir,
sem höfðu unnið styrjöldina,
bæru enn gæfu til að vinna
friðinn.
En kommúnistar hafa ekki
látið sér segjast. Þeir hafa
haldið áfram á braut ógn-
ar og ofbeldis og átt góða
liðsmenn, bæði hér og ann-
ars staðar. Það ber að harma,
hve mjög Stalin-Krúsjeffist-
unum hér á landi hefur tek-
izt að villa um fyrir mörg-
um íslendingum, og mun
fleiri en hægt væri að trúa
að óreyndu. Ástæðurnar eru
vafalaust margar, m. a. þær
að við eigum ekki landamæri
að Sovétríkjunum og höfum
ekki rússneskan ofbeldisher x
landi okkar, eins og Þjóð-
verjar og Ungverjar. Að
okkur hafa snúið rússnesk
blóm og bros, en of margir
íslendingar hafa látið sér
sæma að sjá í gegnum fing-
ur við vinahót kommúnistci.
Þetta fólk vill ekki af ein-
hverjum ástæðum gera sér
grein fyrir því, að án her-
styrks NATO-ríkjanna væri
engin þjóð hlutlaus í dag.
Þær væru allar með tölu
orðnar fórnarlömb heims-
kommúnismans.
Morgunblaðið mun halda
áfram eins og það hefur afl
til að koma í veg fyrir að
„hin siðferðilega hlutleysis-
stefna“ nokkurra fínna
spekúlanta, sem hyggjast
hágnast á því að selja þenn-
an lúxusvarning sinn, geti
orðið íslenzku þjóðinni að
því fjörtjóni, sem að er
stefnt.