Morgunblaðið - 28.11.1961, Page 14
14
MORGVNRLAÐIÐ
Þriðjudagur 28. nóv. 1961
Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem heiðruðu okk-
ur og heimsóttu okkur hiónin 50 ára hjúskapardegi okkar
23. þ.m. Ennfremur þókkum við fyrir allar gjafirnar,
blómin og skeytin, sem blessað fólkið færði okkur.
Sigurbjörg Jónsdóttir, Markús Guðmundsson,
Klapparstíg 9.
Innilega þakka ég öllum þeim sem glöddu mig á 85 ára
afmæli mínu 23. þ.m, með heimsóknum gjöfum og
heillaóskum.
Guðrún Jónsdóttir,
Ölduslóð 7, Hafnarfirði.
■V' --- 1 ■■^■■■■■■1WKM
Móðir min
SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR
frá Sómastaðagerði, Reyðarfirði,
andaðist í Landsspítalanum 26. þessa mánaðar.
Fyrir hönd aðstandenda.
Rósa Friðjónsdóttir.
Eiginkona mín
KKISTÍN ÞÓRÐARDÓTTIR
Miðtúni 28,
Fulltrúarnir á aukaþingi B.S.R.B. Myndin var tekin i fundarlok á sunnudagskv. Ljósm. Sv. Þorm,
lézt í Landakotsspítala sunnudaginn 26. þ.m.
Einar Arason.
Hjartkær eiginkona mín og föðursystir
GRÓA STEINUNN SVEINBJÖRNSDÓTTIR
andaðist að heimili sínu Hverfisgötu 23 laugardaginn
25. nóvember.
Þórður Jónsson, Gíslína Sigurðardóttir.
Jarðarför
GUÐMUNDAR HANSSONAR
sem andaðist 21. þ.m fer fram fimmtud. 30. nóv. og
hefst athöfnin með húskveðju að heimili hans Akur-
gerði 19. Akranesi kl. 1,30.
, Börn og tengdabörn.
I '
Þakka innilega sýnda samúð og vináttu við fráfall
eiginmanns míns
KRISTÓFERS EGGERTSSONAR
skipstjóra.
Oddfríður Ingólfsdóttir.
Alúðar þakkir til alira er auðsýndu samúð og vináttu
við andlát og útför
ÁGÚSTAR ÓLAFSSONAR
Sérstaklega þökkum við Lúðrasveitinni Svan.
Fyrir hönd vandamanna.
Hreiðarsína Hreiðarsdóttir.
Við þökkum innilega öllum þeim er auðsýndu samúð
og vináttu við andlát og jarðarför
MAGNÚSAR VERNHARÐSSONAR
Guðfinna Vernharðsdóttir,
Pálína Vernharðsdóttir, Grímur Guðmundsson.
Við þökkum aí alhug öllum þeim f jölmörgu, sem sýndu
okkur hluttekningu við andlát og jarðarför sonar okkar
BALDURS JÓNSSONÁR
biíreiðarstjóra.
Sérstaklega þökkum við stjórn og starfsfélögum hans
á Bifreiðastöðinm Bæjarleiðum, sem heiðruðu minningu
hans með því að sjá um útförina á hinn virðulegasta hátt.
Fyrir hönd vandamanna.
Jónína Snorradóttir, Jón Guðmundsson.
SamkomuSag ndð-
ist á þingi B.S.R.B.
LAUST fyrir miðnætti aðfara-
nótt mónudags lauk aukaþmgi
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja. Náðist samkomulag varð-
andi frumvarp til laga i*m samn
ingsrétt opinberra starfsmanna,
sem fyrir þinginu lá, en bæjar-
starfsmenn voru mjög óánægðir
með að það yrði afgreitt á þessu
þingi, eins Og áður hefur verið
frá skýrt.
Var samþykkt einróma álykt-
un á þá leið að þar sem hér væri
um að ræða svo víðtæk mál, sem
snertu svo marga starfsmenn rik
is og bæja og væri algerlega ó-
kynnt félögum bandalagsins,
væri talið óhjákvæmilegt að
senda frumvarpið til umsagnar
allra félaga innan bandalagsins
og þeim gefinn kostur á að segja
álit sitt á því fyrir 10. jan. n.k.
Var stjórn bandalagsins heimil
að að vinna að framgangi máisins
skv. niðurstöðu þeirri er fæst af
álitsgjörðum félaganna. Ef starfs
mannafélög bæja óska ekki eftir
aðild að löggjöf um samningsrétt,
þá er gert ráð fyrir að stjórn
BSRB beiti sér fyrir því að i
væntanleg lög verði sett ákvæði
er tryggi þeim valfrelsi í þessu
efni. ,
Á fundinum var einniig sam-
þykkt ályktun um launamál þar
sem fyrri kröfur voru ítrekaðar.
Lítið flogið
síðustu viku
SL. VIKU var mjög slæmt flug-
veður og gat Flugfélagið aðeins
farið tvær ferðír á miðvikudag,
til Akureyrar og til Vestmanna-
eyja. A sunnudag var svo flogið
til Akureyrar eina ferð, en flug-
völlurinn þar er nýbúinn að fá
blásara og kom það sér vel núna,
til að hreinsa völlinn. Aður var
völlurinn á Akureyri hreinsaður
með bíl með snjóplóg, en hann
hefur nú verið fluttur til Egils-
staða. 1 gær var flogið til Akur-
eyrar, Vestmannaeyja og tvær
ferðir á Hornafjörð. A aðra staði
var ekki fært.
Björn Pálsson fór á laugardag
í flugvél sinni til Sauðáráróks og
sótti 5 farþega.
— Alþingi
Framh. af bls. 8.
stjórnarinnar að hamla á móti
því, að einstaklingum gefist kost
ur á að eignast þak yfir höfuðið.
Ekki kvöddu fleiri sér hljóðs
og var samþykkt að vísa frum-
varpinu til 2. umræðu og heil-
'brigðis- og félagsmálanefndar.
Efri deild.
I efri deild var' eitt mál á dag-
skrá, Iðnaðarmálastofnun Is-
lands, til 1. umræðu,' en frum-
varpið hafði veTið samþykkt i
neðri deild. Samþykkt var um-
ræðulaust að vísa því til 2. um-
ræðu og Iðnaðarnefndar.
Afgreiðslustarf
Röskan pilt eða stúlku vantar til afgreiðslustarfa.
Þarf helzt að vera vant afgreiðslu.
TEIGABÚÐIN — Sími 32655.
Hreinlœtistœki
Sambyggð Vestur-þýzk W.C. tæki, handlaugar
margar gerðir með tilheyrandi fittings.
A. Jóhannsson & Smilh hf.
Brautarholti 4 — Sími 24244.
TILKYNNING
Félag íslenzkra bifreiðaeigenda efnir til kvikmynda-
sýningar í Tjarnarcafé niðri í dag kl. 17. — Sýnd
verður dönsk kvikmynd með íslenzkum skýringum
um akstur í hálku og slæmu færi. Þá verða sýndar
tvær aðrar stuttar kvikmyndir um umferð og um-
ferðamál.
Öllum félagsmönnum er heimill ókeypis aðgangur
og öðrum áhugamönnum, meðan húsrúm leyfir.
Skrifstofa félagsins Austurstræti 14 er opin frá
kl. 11—12 og 1—5 alla virka daga nema laugardaga
frá kl. 11—12.
Hjartans þakkir fynr auðsýnda samúð við fráfall og
jarðarför sonar okkar
INGVARS
Guðnv. Þórólfur Jónsson og systkinin.
Hjartans þakkir til allra fyrir mér auðsýnda samúð
og kærleika við fráfall mannsins míns
KRISTJÁNS HANNESSONAR
Drottinn blessi ykkui öll í Jesú nafni.
Þordís Símonardóttir.
M I Ék
i
Sím/ 35936
hljómsveit
svavars gests
leikur og syngur
borðið í lidó
skemmtið ykkur í lidó