Morgunblaðið - 28.11.1961, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.11.1961, Blaðsíða 22
22 MORGVNBL AÐIÐ Þriðjudagur 28. név. 1961 Norömenn og Fær eyingar í heimsók / athugun hvort isl. landsliðið faki þátt i keppni landsliða Evróp TVEIR landsleikir í knattspyrnu veröa hér á landi næsta sumar, en óráðiff cr hvort ísl. landsliðið ferðast utan. Leikirnir sem hér verða er landsleikur A-liðs við A-)iðs Noregs, en leikdagur hefur enn ekki verið endanlega ákveff- inn. Þá kemur landslið Færeyinga hingað í boffi KSÍ og leikur við B-landslið Islendinga. ® Blökkumannalið hingað? Hugsanlegt er að fleiri leikir verði hér. Hefur KSÍ nýlega bor- izt bréf frá hollenzka knattspyrnu sambandinu, þar sem spurzt er fyrir um hvort KSÍ myndi hafa áhuga á landsleik við hollenzku Antille-eyjarnar, en það lið (blökkumenn) verður á ferð í Evrópu í september 1962. Frá öllu þessu segir í ársskýrsla KSÍ sem lögð var fram á þingi sambandsins um helgina. Segir ennfremur að i athugun sé hverja afgreiðslu fyrirspurnin um leik við blökkumannaliðið fái. Landsliðakeppni Evrópu í skýrslunni er ennfremur skýrt frá því að komið hafi til tals að KSÍ tilkynni þátt- töku fslands í knattspyrnu- keppni landsliða Evrópu. Keppnin hefst í ágúst 1962 en lýkur í júlí 1964. Keppnin er útsláttarkeppni þanoiig, að þau tvö lönd sem dregin eru sam- an, leika tvo leiki (heima og heiman). Það land sem fyrr er dregið leikur fyrst á heima- velli, nema um annað semjist. Það lið sem ferðast, greiðir sinn ferðakostnað, en f»r ókeypis uppihald þar sem keppt er. Endanleg tilkynning um þátttöku þarf að senda knattspyrnusambandi Evrópu fyrir 10. des. n.k. Mikil verkefni Það eru því allstór verkefni framundan hjá KSÍ einkum ef tvennt hið síðast talda verður sam þykkt. Þátttakan í keppni lands- liða Evrópu gæti verið hagkvæm ara fyrir KSI. Erfitt hefur reynzt fyrir KSÍ að semja um landsleiki á jafnréttisgrndvelli. Með þátt- töku þar er jafnréttið tryggt. Hver borgar fyrir sig. En það gæti verið langt og erfitt ferða- Ing, og svo gæti farið að si vonm ýrði lítil ef sterkur and ingur drægist á móti okkar 1; liði. En þar á móti kemur a< iengju ísi. knattspyrnuunnei að sjá sterkt lið og gott. KR sigraöi Fram og Víkingur vann ÍR Þrjú lið jöfn er lokabaráttan hefst ÞAÐ er óhætt að fullyrða, að sjaldan eða aldrei hafi ríkt eins mikil óvissa um .úrslit í Meistara móti Reykjavíkur í handknatt- lei'k sem nú. Eftir leikina um síðustu helgi eru þrjú lið jöfn að stigum, hafa öll tapað einum leik hVert og eiga eftir að leika tvo leiki. Líkur eru þó á að aðal baráttan standi milli Fram og KR, en þó getur hið unga lið Víkings sett strik í reikninginn. KR sýndi tennurnar Loksins náði KR leik, sem menn vissu, að í liðinu bjó. Ösig urinn gegn Armanni hefur þann- Enska knattspyrnan 1T. UMFERÐ ensku bikarkeppninnar fór einnig fram í fyrradag og urðu Úrslit. þessi: Aldershot — Brentford .....'... 2:2 Ashford — Q.P.R............. 0:3 Barnsley — Carlisle ........... 1:2 Bridgewater — Chrystal Palace .... 0:3 Bristol City — Darford ........ 8:2 Chester — Morecambe......... 0:1 Chesterfield — Oldham ...... 2:2 Coventry — King’s Lynn ......... 1:2 Crewe — Port Vale .............. 1:1 Gateshead — Workington ..... 0:2 Hartlepools — Aecrington ....... 2:1 Hull — Bradford City ...... 0:2 Margate — Notts County ..... 1:1 Northampton — Kettering .... 3:0 Rochdale — Wrexham ....... 1:2 Romford — Watford .......... 1:3 Shrewsbury — Brierley HiII . 3:0 Southport — Mansfield .... 4:2 Torquay — Peterbprough ........ 1:4 iWeymouth — Newport ....:... 1:0 < Heinz skorar eftir glæsilega sendingu frá Reyni. ig orðið KR góð ráðning og virk- að sem hressandi kinnhestur. Þeir léku prýðisvel þennan leik gegn Fram, héldu alltaf forust- unni og voru greinilega betra lið ið, bæði í sókn og vörn. Framar- ar fundu aftur á móti aldrei neina festur í leiknum og sókn þeirra jafnt sem vörn var sund- urlaus og illa útfærð. Samleikur og gegnumbrot á línu, sem færðu liðínu flesta sigraria í fyrrá, sást nu Varla, en tilgangslaust skot áf löngu færi einkenndu sóknina. Að vísu Iéku KR-ingar eirífalda vörn, mjög sterka og vel útfærða og lokuðu þar með fyrir linu- sendingar Framarana, en hæpið getur talizt og lítt vænlegt til árangurs að svara slíku með skot um af löngu færi. Einfalda vörn- in gefur þvert á móti tilefni til að langskytturnar komi sem næst markinu og geri vörninni þar með sem erfiðast um vik. Aðeins Hilmar Ölafsson hafði lag á að leika þannig þétt inn að vörn KR og skoraði þannig 3 ágæt mörk. Guðjón, Agúst og Ingólfur nýtt- ust illa og héldu sig yfirleitt of langt frá. Til dæmis skoraði Guðjón nú ekkert mark, en skaut mikið. Vörn KR stóðst skorhríð- ina með prýði og áberandi góður var leikur tveggja manna, Sig- urðar Öskarssonar og Guðjóns Olafssonar, markvarðar. Karl beztur — skoraði ekkert mark En beztan og gagnlegastan leik fyrir liðið í heild átti Karl Jó- hannsson. I þetta sin fórnaði hann skotum sinum og mörkum fyrir samleikinn og fyrir bragðið varð sóknin hættulegri og fékk betur ruglað vörn Framara. Með þessu opnuðust möguleikar fyrir annan hættulegan skotmann, Reyni Olafsson, sem naut sín mjög vel og fékk góð tækifæri, er hann nýtti vel. Strax í byrjun leiksins varð Ijóst, að mikil spenna ríkti í báð- um liðum. KR komst 2 : 0 yfir Reynir naut sín mjög vel og nýtti flest sín tækifæri. með mörikum frá Reyni (víti) og Heinz, en Agúst minnkaði bilið. Þannig hélzt gangurinn út hálf- leikinn, KR hafði ýmist 1 eða 2 mörk yfir. I síðari hálfleik jókst hraðinn og var hann mjög mikill út leik- inn. Reynir bætti við marki er skammt var liðið og stóð nú 7 :4. Virtist KR þar með hafa leikinn í hendi sér. En tvö ágæt mörk frá Agúst og Hilmari komu áhorf- endum aftur í ham. Og enn bæta KR-ingar tveim við (Sigurður og Reynir), en Framarar svara í sömu mynnt (Ingólfur og Hilm- ar). Ellefu mín. liðnar og stað- an 9:8 fyrir KR. Næsta mark var því mjög þýðingarmikið, en það skoraði Reynir úr vítakasti fyrir KR. Þar með var sýnt, hvernig fara myndi; of lítill tími var eftir, til að Fram gæti rétt hlut sinn. Rétt fyrir lokin var skorað sérstætt mark, sem sjaldséð er fyrir komi að Hálogalandi. Guð- jón, markvörður KR hafði varið skot á mark sitt og sendi knött- inn yfir þveran völlinn í autt mark Fram, en Sigurjón mark- vörður var kominn út á völlinn í ákafa lokabaiáttunnar. Guðjón undirstrikaði þar með réttmætan sigur KR, 11:8. Gangur leiksin§: 2 : 0, 2 : 1, 3 : 1, 3:2 4:2 4:3, 5:3, 5:5, 6:4’ — Hálfleikur: 7:4, 7:6, 9:6, 9:8, 11:8. Mörk KR: Reynir 5, Heinz 2, Bergur, Herbert, Sigurður, og Guðjón Olafsson, markvörður, 1 hver. Mörk Fram: Hílmar 3. Agúst 2, Ingólfur, Karl Ben., og Sigurður 1 hver. Lifnar yfir Þrótti. Lið þróttar virðist vera að ná sér eitthvað á strik ef dæma má af leik þeirra gegn Armanni. en hið létta og skemmtilega lið Ar- manns átti fullt í fangi með Þrótt og náði ekki forustunni fyrr en liðið var á síðari hálfleik. Lengst af- léku Þróttarar nú með meiri hraða en áður. enda lét árangur- inn ekki standa á sér. Fyrri hálf- leik skiluðu beir ágætlega af sér og höfðu gott forskot í hálfleik (6:3). En strax í byriun síðari hálf- leiks var sýnt, að Þróttarar gátu ekki haldið út hraðann og nú var það Armann. sem öllu réði. Ut- hald Þróttar brást og Armann hafði leikinn í hendi sér, er líða tók á. Siðari hálfleikur endaði 9 :3 fyrir Armann. A þessu geta Þróttarar lært. Þeir verða að æfa það vel, að þeir geti haldið uppi hröðum leik ALLAN leikinn, annars er allt unnið fyrir gíg. Lið þeirra kann mikið fyrir ser i hand'knattleik og með góðri æf- Gunnar kemst í gegn og skorar fyrir ÍR. — Myndir: Sveinn Þormóðsson. ingu getur það orðið hvaða liði sem er hættulegt. Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 3:3, 3:6. — Hálfleikur: 4 :6, 4 :7, 7:7, 9:7, 9:8, 10 :9, 12 : 9. Mörk Armanns: Arni 6, Hörður og Davíð 2 hvor, Kristinn oj Hans 1 hvor. Mörk Þróttar: Þórður Asgeirs. son 4, Guðmundur Axelsson 3, Helgí 2. Daufur leikur — öruggur sigur Víkings Síðasti lerkur kvöldsins vai milli Víkings og IR. Eftir hinn ný skeða sigur KR mátti búast við hressilegum leik IR, sem hefði tekið forustuna í mótinu með því að sigra Víking. En það fór á annan veg. Lið IR var fram úr hófi dauft og lék hreint og beint illa. Þetta er lítt skiljanlegt þar sem í þessu liði eru 3 menn á landsliðsmælikvarða. Þeim virð- ist illa aftur farið, Gunnlaugi, Matthíasi og Hermanni, sem undanfarin ár hafa .skelft alla mrkverði með föstum og hættu- legum skotum. Víkingar réðu öllu um leikian og komust aldrei í hættu. Vörn þeirra lék í þetta sinn prýðisvel og fékk á sig að- eins 3 mörk, en auk þess skoraði Gunnlaugur úr tveim vítaköst- um. Með þessum sigrj er Víkingur kominn í eldlínuna og berst til úrslita í mótinu ásamt KR og Fram. Verður gaman að fylgjast með leikjunum um næstu tvær Framhald á bls. 23. Þórólfur ekki með? EINS og skýrt var frá í blaff- inu á sunnudaginn vann St. Mirren leik sinn gegn St. Johnston í 1. deild skozku knattspyrnukeppninnar á laug ardaginn með 3 gegn 0. Enn hafa ekki borizt ítarleg ar fréttir af þessum leik, en nú lék nýr maður Mirren Fernie (nýkeyptur frá Celtic) í stöðu h. innherja hjá Mirr- en, stöðu Þórólfs Beck: Þór- ólfur var ekki meðal þeirra sem skoruðu og hvergi hefur hans verið getið í þvi umtali •lem hingað hefir spurzt um leikinn. Er það því trú margra hér, að hann hafi ekki veriff með i leiknum. Um þetta er þó engan veginn vitað meff vissu. Verið gæti að hann hefði ver ið settur í aðra' stöðu. En þetta ætti að upplýsast í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.