Morgunblaðið - 06.12.1961, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.12.1961, Blaðsíða 14
14 MORGUNnLADlB Miðvikudagur 6. des. 1961 Innilegustu þakkir tU allra, sem glöddu mig með blómum, skeytum og gjöfum á áttatíu ára afmæli mínu 2. desember. Magnús Jónssón, Bíldudal. Hjartanlega þakka ég öllum þeim er heiðruðu mig á sextugsafmæli með heimsóknum, gjöfum og skeytum Lifið öll heil. Kurt Eyvindsson. Beztu þakkir til vina og vandamanna fyrir heim- sóknir, gjafir, blóm ög heillaskeyti á 85 ára afmæli mínu 23. nóv. s.l. Chr. Berndsen. Fegurð ó heimilinu í heimahúsum PORMICA Plastplötur gera öll herbergi heimilisins fallegri. Þér getið valið úr 100 mismunandi litum, mynstr- um og fallegum litasamsetningum. FORMICA er ódýrt þegar tillit er tekið til endingar. Það er endingarbetra en nokkuð annað efni af líkri gerð. Til að halda FORMICA hreinu þarf aðeins að strjúka yfir það með rökum klút, þá er það aftur sem nýtt. Biðjið um lita-sýnishom. FORMICA IAMINATIO f L ASTtC G. Þorsteinsson & Johnson hf. Grjótagötu 7 — Sími 24250 Móðursystir mín SIGURVEIG JÓNSDÓTTIR er andaðist að Landakotsspítala 4. des., verður jarð- sungin laugardaginn 9 des. frá Fossvogskirkju kl. 10,30 fyrir hádegi. Arnbjörg Sigtryggsdóttir. Eiginkona mín KRISTÍN ÞÓRÐARDÓTTIR er andaðist 26. f.m. verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 7. þ.m. kl. 1,30 e.h. Þeim, 'sem vildu minnast íiennar er vinsamlegast bent á Krabba- meinsfélagið. Einar Arason. Forðist ódýrari eftirlíkingar. Látið ekki bjóða yður önnur efni í stað FORMICA, þótt stælingin líti sæmilega út. — Ath. að nafnið FORMICA er á hverri plötu. UETTVANGUR Frh. af bls. 13. segjast verða að hlusta á það allan liðlangan daginn á vinnu- stað, aðrir segjast nálega aldrei á það hlusta. Um það verður ekki deilt að Utvarpið er mikið þjóðþrifafyrirtæki, en það er þegar komið undir lögrr.il Háva- mála, að ljúfur verður leiður, ef lengi situr. Fyrrum ltiu menn á Utvarpið eins og heimilisvin, en nú líta margir á það senrf farg, sem dreifir þrýstingi sínum gegn um steinloft og steinveggi. Tekst sumum að komast undan þvi, en öðrum ekki. Sérstaklega virðist „fargið“ leggjast á þá, sem vinna vaktavinnu. Menningarnauðung (kultur- determination) nútímans er ekki lengur neitt nöldursefni, heldur visindalegt viðfangsefni. Eina orsökina er að fmna í þeim of- vexti (ihypertrophi), sem hleyp- ur í ýmsar greinar menningar- innar, einkum þar sem auðið er að koma vélrænni tækni við. Um leið og ofvöxtur hleypur í sumt, eins og t. d. skrifstofuvinnuna, verður rýrnun eða visnun í öðru (atrophi), eins og t. d. heimilis- lífinu. Láta heimilin sér þá oft nægja að verða svefns- og mat- arstaðir. Sem dæmi um hvernig menn- ingarfarganið þjarmar að mönn- um með þunga sínum má nefna kunnan brezkan blaðamann, er telur að það væri verðugt verk- efni að berjast gegn auglýsing- um, sem valda „ákveðinni mann fyrirlitningu og spillingu, bæði meðal auglýsenda og hlustenda, sökum sífelldrar samblöndunar sannleiks og lygi“. Auglýsingarn ar valda græðgi og gerfi-þörfum — og þessar ímynduðu þarfir draga mæðurnar út af heimil- unum, burt frá börnunum. Sam- bandsleysi við móðurina veldur taugaveiklun og kvíðni hjá ung- um börnum og síðar margvís- legum vandræðum í lífinu. — Vér sjáum að öll kvikmyndahús Oslóar þurfa minna en einn dáik í blöðunum til þess að auglýsa allar sínar myndir. Hinn gífur- legi kostnaður við ómálefnaleg- ar og óhóflegar auglýsingar er tekinn úr vasa neytenda — menn og fé dragast frá nauðsynlegri þjónustu í þjóðfélögunum, eink- um við hina bágstöddu. Þessu fargani er stefnt gegn heimilun- um, svo að þau skuli Iáta til leið- ast að meta hina auglýstu hluti meir en börnin og unalingana. Norskur læknir hélt nýlega erindi, sem mikla athygli vakti. Hann nefnir erindi þetta: „Eru dagar heimilisins taldir?“ Meðal dæma, sem hann nefndi úr dag- legu lifi, var eitt frá Hollywood. Lítil stúlka var spurð hve mörg systkini hún ætti. ,,Eg á engin systkini“ sagði hún, „en ég á tvo feður með móður minni og þrjár mæður með föður mín- um“. Bragð er að þá barnið finn- ur. Og mikið af -sálarfæðu þjóð- anna kemur einmitt frá þessaii borg. Rithöfundurinn C. S. Lewis, sem kunnur er einnig hér á landi fyrir bókina „Rétt og Rangt“, er Andrés Björnsson þýddi á sínum tíma. nefndir í annarri bók nokkur af áhrifum sálkönnunarinnar á öld vora. Þau áhrif, se mhér um ræðir, hafa leitt til þess að menn álíta að það sé skaðlegt að blygðast sín fyrir nokkurn hlut eða nokk- urn verknað. Það sem náttúran sjálf eða menningarlegur arfur hefir kennt nálega öllu mann- kyni að sé skammarlegt, svo sem ragmennska, lauslæti, svik og öfund, það höfum vér lært að sé eðlilegt — og ástæðulaust að blygðast sín fyrir. Til þess að losna við blygðunartilfinning- una, höfum vér brotið niður varnarvirki mannsandans og dregið Trojuhest blygðunarleys- isins inn í menninguna. Frjáls- mannleiki þeirra manna, sem sokknir eru niður fyrir það stig að kunna að skammast sin. er ekki mikils virði, segir hann. (Efnisl. á bls. 45 í The Problem of Pain, 1959). Vér fáum það staðfest í bók- menntum primitivismans og per versismans að höfundur fer með rétt mál. Engin von er til þess að kynslóð sem glatað hefir blygðunar- og sæmdartilfinn- ingu, muni ala upp föðurbetr- unga. Eða umbúðalaust sagt: Vér verðum að sætta oss við að meira eða minna af þeim börn- um og ungmennum, sem oss er trúað fyrir, fari í hundana. Það er aðeins uppskera af því, sem áður er sáð, og enn er verið að sá. En hjá oss kemur þessi uop- skera nokkru siðar en með öðr- um þjóðum. Þess vegna hef ég bent á þann dýrmæta frest, sem enn er fyrir hendi að mínum dómi. Það er ástæðulaust að van rækja að hjálpa þeim, sem vér höfum afvegaleitt eða látum við gangast að afvegaleiddir séu. Vanrækslur á þessu sviði eru ekki blygðunarleysi. heldur mannúðarleysi, og þjóðfélagslega séð, hin mesta heimska. Þess vegna ber löggjöfum vorum að nota vel bæði vald sitt og hinn dýrmæta frest. I nóvember 1961. Jóhann Hannesson. Hnetur Blandaðar nýkomar Eggert Kristjánsson & Co. hf. símar 1-14-00. er stórbrotin os: spennandi frásögn af mestu framfaraskrefum í þessari mikilvæ^u grein læknavísindanna. 1. O. G. T. St. Einingin nr. 14. Fundur í kvöld kl. 8Vi. — 2. flokkur sér. um fræðslu- og skemmtiatriði. M. a. verður viðtalsþáttur og gamanþátturinn Á kosningaskrifstofunni, þar sem ýmsir Einingarfélagar koma við sögu! — Félagar, sláum nú öll met í fundarsókn! Æt. VINM A Heimilishjálp Yfir 18 ára óskast á nýtízku heimili með tvö börn. Eigið herbergi með sjónvarpi. Einhver enskukunnátta nauðsynleg. Syst- ir eða vinkona óskast á heimili í nágrenninu. Skrifið Mrs. Loofe, 99 Alwoodley Lane. Leeds 17, England. Heimilishjálp Yfir 18 ára óskast á gott heimili í nýtízku húsi með öllum þægindum. Miklir frítímar. —. Nokkur enskukunnátta nauðsyn- leg. Skrifið Mrs. Carvis, 9, Lidgett Park Road, Leeds, 8, England. Ung stúlka um 18 ára óskast til að vera hjá fjölskyldu með eitt barn og til hjálpar við léttari húsverk. Dagleg hjálp fyrir hendi. Lítið nýtízku heimili. Skrifið til Mrs. Singre, 72 Sandhill Oval, Leeds, England. Ms. Skjaldbreið fer vestur um land til Akur- eyrar 7. þ. m. — Vörumóttaka í dag til Tálknafjarðar, Húna- flóa- og Skagafjarðarhafna og Ólafsfjarðar. — Farseðlar seldir í dag. Ms. ESJA fer vestur um land í hringferð 8. þ. m. — Vörumóttaka í dag til Patreksfjarðar, Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrar, Súganda- fjarðar, ísafjarðar, Siglufjarðar, Akureyrar, Húsavikur, Kópa- skers, Ráufarhafnar og Þórshafn- ar. — Farseðlar seldir á fimmtu- dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.