Morgunblaðið - 06.12.1961, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 6. des. 1961
MORCVNBLAÐIÐ
17
Eru skipatryggingar dýrari
á íslandi en annars staðar?
ÚR ÞINGSÖLUNUM berast þær
fregnir að tryggingar fiskiskipa
é fslandi væru 200% dýrari en
samskonar tryggingar í Noregi.
Dagblöðin hafa síðan tekið upp
þessar fréttir og lagt út af þeim
á þann hátt, sem hverju er tam-
ast.
í einu dag'blaðanna stendur
þessi klausa:
„9ú staðreynd, sem hinn norski
sérfræðingur hefur ljóstrað upp,
að tryggingar íslenzkra fiski-
skipa skuli vera um 200% dýrari
en í Noregi, er í raun réttri stór
hneyksli. Hún gefur til kynna, að
þeir menn, sem stjórna höfuðat-
vinnuvegi þjóðarinnar, og þeir
sem tryggja atvinnutæki þessa
sama atvinnuvegar, annaðhvort
kunni ekki sín störf eða hafi af
einhiverjum ástæðum ekki haft
áhuga á hagkvæmum trygging
um skipanna. Hvort sem er verð
ur að stinga á þessu kýli“. (ALþbl.
14. nóvember).
Undir það vil ég taka, að þar
sem kýli er að finna skuli stung
ið á því. En hinu skal neitað, að
tryggingafélög yfirleitt hafi ekki
áhuga á hagkvæmum tryggingum
skipanna.
Fyrst er þó að finna kýlin, en
jþað verður ?>kki gert með þeim
handahófskenndu vinnubrögðum,
sem virðast vera notuð í þessu al
varlega máli.
' Fiskiskipaflofi landsins er ein
stór fjölskylda, og það verður að
greina meðlimi hennar í sundur,
sjúkdómsgreina þá og lækna
hvern í sínu lagi. Annað er vita-
skuld kák.
■ Nú vita kunnir, þótt blaðið geri
engan greinarmun, að hinn
norski dómur á við fiskibátaflot-
ann, og þó ekki óskorað hvar sem
er í landinu. En með þetta mikil
vœga atriði er farið á þann veg,
að öll fiskiskip landsins eru tek-
in undir sama hattinn.
Þar sem ég hefi bæði aðstöðu
og skyldu gagnvart því trygg-
ingafélagi, sem ég hef með hönd
Um, að upplýsa um tryggingakjör
allmargra botnvörpuskipa, sem
eru ein sér í félagsskap, hefi ég
óskað eftir að fá birta eftir-
farandi greinargerð.
Botnvörpuskip landsins eru
elzt og flest frá 1947—1948, næsti
hópur frá 1951—1952 og þau
yngstu frá 1960.
Á vegum Samtryggingar ís-
lenzkra botnvörpunga eru nú vá-
tryggð 17 skip, meðal elztu og
næstelztu skipanna, en ekkert
hinna stærstu og yngstu.
Á línuriti, sem fylgir greinar-
gerð þessari, eru settar hlið við
hlið upplýsingar um heildarið-
gjöld (nettó) og heildartjón.
Grunnlínan markar tímabilið frá
1947, ár fyrir ár, og eru skyggðu
súlurnar iðgjöldin en hinar ská-
strikuðu tjónin, hvorttveggja í
jþúsundum sterlingspunda.
Af þessu línuriti má lesa, að
tímabilið skiftist í tvö fimm ára
tímabil, fyrst og síðast, sem tjón
og iðgjöld haldast nokkurn veg
inn í hendur, en 1952 varð gífur
legt brunatjón á skipi, og alger
Skipstapi 1954.
Línuritið tekur aðeins til húf
trygginga (kaskó) skipanna.
Heildariðgjöldin allt tímabilið,
13 ár, námu 697 þús. sterlings-
pundum, en heildartjónin (með
endurgreiðslu vegna hafnarlegu)
874 þús. sterlingspundum. Tap
vátryggjenda á húftryggingunum
var því 177 þús. sterlingspund.
Fyrra fimm ára tímabilið, 1947
til 1951, voru meðaltjónsbætur á
skipi á'ari 2000 sterlingspund, en
hið síðara 1955 til 1959 4200 sterl
ingspund. Hækkun tjónsbóta því
rúmlega 100%.
Meðal-ársiðgjöld voru 1947 til
1951 2,76%, en 19^5 til ’59 3,52%.
Hækkun þeirra því aðeins 27%%.
Aukatryggingar fyrir hækkuð
skipsverðmæti, afla, veiðarfæri
og muni skipverja kostuðu alls
118 þús. sterlingspund í iðgjöld
13 árin, en tjónsbætur slíkra skír
teina urðu 62 þús sterlingspund,
og hagnaður því 56 þús. £.
Færir hann heildartjp vátryggj
enda af viðskiptunum niður í
121 þús. £, eða um 15 millj. kr.
á genginu í dag.
Iðgjöldin sem talin eru fram
eru þau, sem endurtryggjendur
bera úr býtum. Nettóiðgjaldið er
80% af brúttóiðgjaldinu, sem boð
ið er og samið um hverju sinni
(árlega), en mismunurinn skift-
ist þannig, að skipseigandi fær
10% afsíátt, til skrifstofuhalds
félagsins renna 5%, og erlendir
miðlarar fá 5^>, sem er fastur lið
ur.
Þetta er tryggingasaga botrj-
vörpuskipanna, sem eru meðlimir
í gagnkvæma tryggingafélaginu
Samtryggingu íslenzkra botn-
vörpunga. Það blandast væntan
lega engum hugur um það, að
FIMMTUGUR er í dag Ólafur Kr.
Magnússon, skólastjóri á Klébergi
í Kjalarneshreppi.
Ólafur er fæddur á Völlum í
Kjalarnesnreppi, sonur Magnús-
at Jónassonar bónda þar og konu
hans Jórunnar Ólafsdóttur.
Hann lauk prófi frá Kennara-
skóla íslands 1934. Var kennari í
Svínavatnsskólahverfi, A-Hún. á
árunum 1934—’37. Kennari næstu
þrjú ár í forföllum -við Austur-
bæjarbarnaskólann, bárnaskól-
ann að Þingborg í Hraungerðis-
hreppi og unglingaskólann í
Stykkishólmi. Kennari í Haga-
nesskólahverfi í Skagafirði 1940
—’45, en varð þá kennari og skóla
stjóri við heimvistarbarnaskólann
að Klébergi.
Olafur er kvæntur Björgu Jó-
hannsdóttur, bónda í Holti í
Svínadal, Guðmundssonar og
konu hans Fannýjar Jónsdóttur. [
viðskifti hafa ekki verið skips-
eigendum óhagstæð. Ekki er þvi
kýlisins að leita í þeim viðskipt-
um.
Hinu munu væntanlega margir
velta fyrir sér, hvernig standi á
hinni miklu aukningu tjónanna
úr 2000 í 4200 £ á ári, að meðal-
tali á skip og eru þá ekki með-
taldin stórtjón né skipstapi. Einn
ig því, hvort jafnvel 2000 pund-
in séu óhjákvæmilegur útgjalda
liður.
Hér er á ferðinni kýli, og máske
fleiri en eitt, og væntanlega leggj
ast allir á eitt, sem mál þessi
varða, að reyna að finna þau kýli
og lækna. Það mun ekki standa á
samvinnu af hálfu tryggingafélag
anna sé hennar óskað af þeim,
sem hafa nú forustuna í þessum
málum.
Ásgeir Þorsteinsson.
Eiga þau tvö mannvænleg börn:
Jóhann, er lýkur stúdentsprófi
við Menntaskólann á Akureyri
næsta vor og Sigrúnu um ferm-
ingu.
Ólafur skólastjóri er greindur
maður, vel lesinn og heldur vel
á málum sínum. Hann er frábær
reglumaður, samvizkusamur og
góður barnafræðari, sem lætur
sér annt um uppfræðslu nemenda
sinna.
Þá verður þeim, sem honum
og starfi nans kynnist, fljótlega
ljóst, hve kært honum er að
vinna starf sitt í heimasveit sinni.
Ólafur skólastjóri gegnir fleiri
störfum og hefur með höndum
margskonar fyrirgreiðslu fyrir
sveit sína, ma nefna gjaldkera-
starf sjúkrasamlags, bókavörzlu
við bókasafn Lestrarfélagsins og
póstafgreiðslu. Hann á og sæti í
hreppsnefnd.
Vegna þessara margvíslegu
starfa ber oft gesti að garði hjá
þeim hjónum, sem njóta rómaðr-
ar gestrisni þeirra.
Því senda margir Ólafi skóla-
stjóra og fjölskyldu hans heilla-
óskir í dag. J. Ó.
Ingi Ingimundarson
héraðsdómslögmaður
málflutningur — lögfraeðistörf
Tjarnargötu 30 — Sími 24753.
VALGARÐUR KRISTJÁNSSON
héraðsdómslögmaður
Eskihlið 20.
Öll venjuleg lögfræðistörf —
Fasteignasala.
Viðtalstími kl- 18—19 alla daga
nema laugardaga kl. 14—17.
Sími 3-84-81.
NÝJA LJÓSPRENTUNAR-
STOFAN, Brautarholti 22 (geng
ið inn frá Nóatúni) Sími 19222.
, Góð bílastæði.
Olafur Kr. Magnússon
Skólasfjóri — Fimmtugur
UIMGLIIMG
vantar til að bera blaðið í eftirtalið hverfi
KJARTANSGÖTU
Vinnuvélar til sölu
Stór jarðýta og vélskófla einnig tveir bíl-
kranar. Hagstætt verð. Góðir greiðsluskil-
málar. Sími 34333 næstu daga.
- LAMIB
Nýkomið:
KANTLAMIR
BLAÐLAMIR
STANGALAMIR
INNIHURÐALAMIR
ÚTIHURÐALAMIR
ALTANHURÐALAMIR
SKÁPALAMIR nr. 333—34
UÚMKRKÆJUR 5” — 6” — 7”
TEVAGNAHJÓL
S KÁP ARENNIBRAUTIR
SKOTHURÐALAMIR
Einkaumboðsmenn:
LUDVIG STORR & CO.
sími 1-3333.
Ódýr leikföng
Miklatorgi við hliðina á ísborg.
MONROE klakaleysir
Fyrirliggjandi í 45 kg dúnkum.
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO.
Borgartúni 7 — Sími 22235
Hörpusilki
Nú er rétti tíminn til þess að mála fyrir
jólin.
HELGI
HÖRPU-SILKI
HÖRPU LAKK
PENSLAR
MÁLNINGARRÚLLUR
Lága verðið.
*
Hafnarstræti 19 — Sími 13184 og 12772.