Morgunblaðið - 06.12.1961, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.12.1961, Blaðsíða 24
18 DAGAR TIL JÓLA 18 DAGAR TIL JÓLA 277. tbl. — Miðvikudagur 6. desember 1961 Það var mikið mn að vera við höfnina i gær; en þá landaði þar fjöldi síldarbáta, sem fengið höfðu góða veiði í fyrrinótt. Ljós- myndari Mbl. Ól. K. M. tók þessa mynd um borð í einum. bát- anna í gærdag. Mikil síldveiöi í Faxaflóa í fyrrindtt MIKIL síldveiði var í fyrrinótt og fengu þá 26 skip samtals um 21400 tunnur af síld. Mikil og góð síld veiddist út af Jökli, en þeir bátar, sem voru út af Garðs- skaga fengu rýrari síld. — Bárust rúmlega 7800 tunnur af síld til Akraness, og í Reykjavík landaði fjöldi báta. Var líflegt við höfnina í gær. ***• AKRANESX, 5. des. — Hellings síldveiði var hjá bátunum vestur í Kolluál í nótt. 7802 tunnur bár- ust hér á land í dag af 12 bátum. Gæðamunur er á síldinni, þótt bátarnir hafi verið á svipuðum slóðum. Þótt mikið af síldinni af sumu.r, bátunum reynist sölt- unarhæf, er hún blandaðri af öðrum.. Veðrið var sæmilegt á uuðunum. Aflahæstur var Haraldur með 1700 tunnur, þá Sigrún 900, Sig- urfari 700, Sigurður AK 650, Anna 620, Sæfari, Skírnir, Sig- urður SI, Heimaskagi Og Höfr- ungur II, hver þeirra 500 tunnur, Skipaskagi 450, Böðvar. 82. Sagt er að þetta sé síðasti söltunar- dagurinn, en eitthvað má þó syk- ursalta að auki handa Svíum. Megnið af síldinni af Haraldi fór í salt og hraðfrystingu, en eitt- hvað í bræðslu. Fyrsta desember mældist fitumagn síldarinnar 14—16%. — Oddur. SANDGERÐI, 5. des. — Hingað hafa komið í dag 4 bátar með samtals 1995 tunnur af síld og sá fimmti, Víðir II., er á leið- inn með um 1000 tunnur. Þeir sem eru komnir eru Jón Garðar með 800 funnur, Jón Gunnlaugs 600, Guðbjörg 525 Og Grundfirð- ingur II. með 70 tunnur. Samtals verða þetta um 2995 tunnur. Jón Gunnlaugs, Jón Garðar og Víðir fengu síldina norð-vestur af Garðsskaga, og er hún unnin í frystingu og salt, en síld af hin- um tvéimur fór beint í bræðslu. Fjórir línubátar komu að landi í gærkvöldi með frá 5,7 til 7 lestir, eða samtals 26,2 lestir. Afl- inn var mestmegnis ýsa, en einn ig töluvert ax þorski. — Páll. HAFNARFIRÐI, 5. des. — Til Hafnarfjarðar bárust í gær um 4100 tunnur síldar af sjö bátum. Aflahæst var Eldborg með 1200 tunnur. Síldin var fremur góð Og var öll söltuð og fryst nema af einum bát, Þórkötlu, sem' land- aði i gúano. — Fjarðaklettur kom til Hafnaifjarðar í gær með rifna nót og Gísli lóðs með bilað spil og nótina litiisháttar.rifna. Snjóbíll færði leitarmönn- um vistir til Péturskirkju Hofðu rekið allmargt fé samon og graf- ið samtals 23 kindur úr fonn í gær FYRIR átta dögum fóru tíu menn t úr Mývatnssveit austur fyrir Nýjahraun til aS smala fé, sem þar er. Hefur smölunán gengið erfiSlega vegna stöðugra stór- hríða og ófyrirsjáanlegt er hve lengi leitarmenn kunna að þurfa að dveljast þarna, en þeir hafa bækistöð í Péturskirkju, í jaðri Nýjahrauns. Snjóbíll var send- ur tii þeirra síðdegis á mánu- dagin<n mcð vistir, en leitarmenn voru orðnir matarlitlir. Höfðu þeir grafið nokkuð af fé úr fönn og var sumt af því dautt, en leit- aimenn hafa lítið sem ekkert gevað smalað vegna illviðra. Þá flutti snjobiilinn einnig mokkuð af heyi handa kindum, sem þyrftu hjúkrunar við. Talið er að á annað þúsund fjár sé á svæð- inu austan Nýjahraunis. Snjóbíllinn, sem er frá Húsa- vík, lagði upp um fjögurleytið síðdegis á mánudag, og tók fimm klukkustundir að Jcomast að Pét- urskirkju, en þangað eru 26 kílómetrar frá Reynihlíð. Hríð og þung færð tafði fyrir snjóbíln- um og var Námaskarð hvað erf- iðast yfirferðar. Hafa grafið upp 17 kindur Leitarmennirnir tíu höfðu graf ið 17 kindur úr fönn umhverfis Péturskirkju og voru sex af þeim dauðar er að var komið. Sumt af því fé ,sem þeir grófu úr fönn á mánudag hafði fennt á sunnu- daginn. Þær kindur, sem náðust lifandi, eru geymdar í hesthúsinu við Péturskirkju. Eins og fyrr getur hafa leitar- menn ekki getað athafnað sig vegna veðurs og ófærðar þá átta daga, sem þeir hafa legið við í Péturskirkju. Erfitt er að segja um hversu ástatt er fyrir fé því, sem er á svæðinu, en talið er að það sé á annað þúsund. Leitar- menn héldu út til leitar snemma í gærmorgun. Snjóbíllinn tróð slóð Búið var að smala fé, sem var á svæðinu vestan Nýjahrauns og koma því vestur að Búrfelli en þar strandaði sá rekstur vegna ófærðar. í gærmorgun fór snjg- bíllinn til að troða slóð fyrir féð til byggða og gekk sú för ágáetlega. Var búizt við rekstrar- mönnum og fénu til byggða í gærkvöldi eða nótt. Mikið fannfergi er nú í Mý- vatnssveit og Mývatnsöræfum, en þar hefur verið sleitulaus bylur í hartnær hálfan mánuð. Geir Hallgrímsson Síðustu fréttir: Leitarmenn höfðu samband við byggð í gærkvöldi. Höfðu þeir þá náð allmiklu fé saman á þrjá staði, en ekki vissu þeir hversu margt fjár það var, né heldur nákvæmlega hve mikið fé er á svæðinu. Grófu þeir um sex kindur úr fönn, og voru þær ekki mjög illa, á sig komn- ar. Ekki eru leitarmenn komnir með neitt af því sem þeir fundu til Péturskirkju og bjuggust þeir við að þurfa allan daginn í dag til að ná saman fénu, og síðan yrði lagt af stað til byggða með- reksturinn á fimmtudag, ef veð- ur leyfir. í gær gekk á með hríðaréljum og miklu frosti, og sögðu leitarmenn að erfitt væri að reka féð vegna ófærðar og að það væri orðið nokkuð mátt- farið af volkinu. f gærkvöldi kom reksturinn frá Búrfellshrauni vestan Nýja- hrauns til byggða. Gekik hann ágætlega og fundu leitarmenn þar 40 kindur til viðbótar og komu með alls um 200 til bygigðá. Létu rekstrarmenn vel af því að reka féð eftir snjóbílsslóð- inni og eru leitarmenn í Péturs- kirkju að íhuga að taka sama ráð og fá snjóbílinn til að troða slóð, ef unnt reynist að fá hann til Mývatnssveitar aftur. Borgarstjóri ræðir fjármál og fram- kvæmdir bæjar- ins i 1 kvöld LANDSMÁLAFELAGIÐ Vörður heldur almennan fé- lagsfund í Sjálfstæðishúsinu Athuganir varðandi orkuírekan iðnað Á SUNNUD AGSK V ÖLD komu til landsins fjórir norskir verk- fnæðingar frá tveimur stórfyrir- tækjum í Noregi, sem hafa orku- Vörubíll féll niður ■ vélbát U M sexleytiff sl. Iaugardags- kvöld lá viff slysi í Keflavíkur- höfn er vörubill féll út af bryggju og hafnaffi ofan á vél- báti, sem þar lá. Verið var að skipa upp fiski úr mb. Ólafi, sem lá fyrir bryggjuendanum, en stór vöru- bíll stóð á endanum og námu hjól hans við planka þar. Var skipstjórinn á pallinum að taka á móti fiski. í þeim svifum bar að annan vörubíl, sem ekið var afturábak út á bryggjuna, og mun bilstjór inn ekki hafa haft nægilegt skyggni, og lenti bíll hans á þeim, sem fyrir var með þeim afleiðingum að sá síðarnefndi kastaðist yfir plankann og ofan í bátinn, en þar gátu menn á þilfari með naumindum forðað sér. Skipstjórinn, Þórður Jó- hannesson, féll af pallinum og lenti á línuvindunni. Meiddist hann furðu lítið, og má telja furðulegt að ekki skyldi verra hljótast af þessu óhappi. frekan iðnað, alhminiumiðnað, köfnunarefnisframleiðslu o. fl. Komu þeir hingað að beiðni ríkis stjórnarinnar, til að gera athug- anir og vera til ráðuneytis í sam- bandi við framkvæmdaáætlun- ina. Svo sem fyrr hefur verið getið í blaðinu fóru Jóhannes Nordal, bankastjóri og Eiríkur Briem, rafmagnsvéitustjóri . nýlega til Sviss, ásamt bandarískum verk- fræðingi sem hér hefur unnið að raforkumálum, og ræddu þeir við fyrirtæki það, sem áhuga hefur haft á aluminiumiðnaði á íslandi. Eru þeir nú komnir heim frá þeim viðræðum. TILKYNNT var í Washington í dag að Kennedy forseti og frú hans færu í opinbera heimsókn til Venezuela og Colombíu 16. og 17. desember n.k. í kvöld kl. 20,30. Þar mun Geir Hallgrímsson, borgar- stjóri, flytja framsögu um fjármál og framkvæmdir Reykjavíkurborgar. Fjárhagsáætlun Reykjavík- ur fyrir 1962 mun verða lögð fyrir bæjarstjórn næst komandi fimmtudag og mun borgarstjórinn gera grein fyrir henni á Varðarfundin- um. Hann mun ræða um fyrirhugaðar framkvæmdir bæjarins, útsvarsmál og fjárhagsafkomu. Að lokinni ræðu Geirs Hallgrímssonar, borgarstjóra, verða frjálsar umræður og er öllu Sjálfstæðisfólki heimil fundarseta. Bílvelta í Kjós AKRANESI 5. des. — Sl. föstu- dag fyrsta desember fór fólksbíll af Akranesi eina veltu á hlið út af veginum hjá Kiðabergi í Kjós. Bíllinn var af gerðinni Ford Consul, árgerð 1955. Aðeins ek- illinn var í bílnum og slapp hann við meiðsl. Skemmdir urðu á bílþekjunni og framrúðan fór í mola. — Oddur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.