Morgunblaðið - 29.12.1961, Qupperneq 1
20 siður
48. árgangur
295. tbl. — Föstudagur 29. desember 1961
Prentsmiðja MorgunWaðsins
Alitshnekkir
fyrir SÞ
segir uíanríkisráðherra Brefa um
innrásina i Gaa
Newcastle, 28. des. (NTB)
HOME lávarður utanríkisráð
herra Breta sagði í ræðu í
kvöld að Sameinuðu þjóðirn-
ar hefðu beðið mikinn álits-
hnekki vegna þess að ýms
lönd hefðu gripið til vald-
heitinga til að koma fram
kröfum sínum. Benti lávarð-
urinn á að fjögur ríki, sem
eiga fulltrúa í Öryggisráðinu
hafi blygðunarlaust greitt
atkvæði með tillögu um að
láta óátalda valdbeitingu
Indverja gegn Goa.
BROT A ÞJÓÐARRÉTTI
Hefði umræðan farið fram í
Allsherjarþinginu, hefðu mörg
lönd, ef til vill meirihluti, greitt
atkvæði á sama hátt, sagði
Home lávarður. Það, sem gerzt
hefur er þetta: Án tillits til
þeirra ögrana, sem Indverjar
hafa orðið fyrir og án tillits til
afsakana, sem bornar hafa verið
fram á árásinni, getur ekki ríkt
nokkur vafi á því að framferði
Indverja var beint brot á þjóð-
arréttinum. Þegar SÞ láta þetta
afskiptalaust getur það, eins og
Adlai Stevenson aðalfulltrúi
Bandaríkjanna hjá SÞ orðaði
það, þýtt upphafið á endinum.
HÆTTULEGAR TILLÖGUR
Margir okkar sáu þennan
álitshnekki fyrir, sagði ráðherr-
ann. í mörg ár hafa Sovétríkin
Hákarl
rœðst á
sundfólk
Brisbane, Ástralíu,
28. des. (AP).
HÁKARL réðis í dag á unga
konu og mann, sem voru á
sundi skammt frá ströndinni
við Mackay á Queenslandi.
Réðist hákarlinn á konuna
og sleit af heani hægri hand
legg við öxl og vinstri hönd-
ina fyrir ofan úlnlið.
Maðurinn réðist gegn há-
karlinum og reyndi að fæla
hann a burt, en hákarlinn
réðst gegn manninum og
slasaðist hann illa á hægri
handlegg.
Grunnt var á þessum slóð
um og náði sjórinn sund-
fólkinu aðeins í mitti. Annar
sundmaður, sem þarna var
nærstaddur, sá hákarlinn
ráðast að sundfólkinu og
flýtti sér því til hjálpar.
Tókst honum að fæla hákarl
inn burt og bjarga hinum
særðu á land. Liggja þau
bæði í sjúkrahúsi þungt
haldinn.
hindrað starf samtakanna, en nú
er komin fram ný og hættuleg
venja. Allsherjarþingið hefur
oft samþykkt tillögur, sérstak-
lega varðandi nýlendurnar, sem
verður að telja hættulegar friði
og öryggi. Allir höfum við ver-
ið vitni að öngþveitinu í Kongó
og állir vissum við að það staf-
Frh. á bls. 19
Þota hrapar í
Padua, ftalíu, 28 des. (AP).
ORUSTUÞOTA úr ítalska fíug-
Samníifgafundi
fresfað
FYRSTI fundur samninganefnda
þeirra sjómanna, sem sagt -hafa
upp samningum frá áramótum,
og útvegsmanna átti að fara
fram í gær, en var þá frestað
fram til 3. eða 4. janúar.
hernum hrapaði í dag til jarðar
í nánd við Padua. Lenti hún í
Este, sem er þéttbýlt úthverfi
borgarinnar, og varð sprenging
í þotunni er hún kom niður. Lét-
ust tvö nærstödd börn í spreng-
ingunni og 17 önnur særðust.
Þotan hafði komið lágt yfir
verksmiðjuhverfi skammt frá
slysstaðnum og strokizt við burn
dómkirkjunnar þar. Skömmu
seinna varpaði flugmaðurinn sér
út í fallhlíf og kom óskaddaður
1 niður á fjölfarna götu. Flugvélin
lenti á húsi og komu slökkviliðs-
. menn og sjálfiboðaliðar fljótt á
1 vettvang til að leita í rústunum
að líkum barnanna tveggja. En
meðan verið var að grafa í rúst-
unum mun eldur hafia komizt í
eldsneyti þotunnar og varð þá
önnur sprenging. Særðust þá
fjórir slökbviliðsmenn og fimm
sjálfiboðaliðanna.
Franco einvaldur á Spáni fór á fuglaveiðar á Aðfangadag
og varð fyrir því óhappi að haglabyssa hans sprakk í hönd-
unum á honum. Ekki varð honum þó mikið meint af og sést
hann hér á heimleið af sjúkrahúsinu eftir tveggja daga legu.
i FLUGSLYS varð við flugvöll-
í inn í Ankara í Tyrklandi 21.
des. s. 1. Brezk Cometþota;
hrapaði skömmu eftir flugtak
og fórust 26 af 34, sem í flug-
.vélinni voru.
Aukin samvinna
BERLÍN, 28. des. (NTB) Fulltrú-
ar Sovétríkjanna og Austur-
Þýzkalands undirrituðu í dag
samning um aukna samvinnu um
friðsamlega notkun kjamorkunn
ar. Samningurinn var undirritað
ur í Austur-Berlín.
Kennedy vill kaupa
Wasihington, 28. des.
(AP-NTB).
KENNEDY forseti mun fara fram
á 100 milljón dollara fjárveitingu
frá þinginu til að kaupa skulda-
bréf Sameinuðu þjóðanna að því
er Harlan Cleveland aðstoðarut-
anríkisráðherra skýrði frá í dag.
Er þetta helmingur þeirrar upp-
hæðar, sem SÞ fara fram á að
aðildarríkin kaupi fyrir skulda-
bréf vegna fjárhagsörðugleika
samtakanna. En aðallega stafa
þessir örðugleikar af herkostnaði
í Kongó og af því að ýms aðildar-
ríki hafa ekki greitt framlög sín
til samtakanna.
IKennedy forseti mun fara fram
á fjárveitingu þessa við fjárlaga-
; umræður í þinginu í næsta mán-
, uði. Cleveland sagði að Bandarík
j in greiddu um 47—48% af öllum
j kostnaði í sambandi við Öryggis-
ráð SÞ og væri því eðlilegt að
Bandaríkjamenn keyptu helming
skuldabréfanna. Fjárfesting þessi
væri heldur ekki stór liður í fjár-
I lögunum í heild. Engu að síður
kvaðst Cleveland búast við
nokkrum deilum um þetta atriði
: í þinginu, því það gæti gefið til-
efni til umræðna um afskipti
‘ Bandaríkjanna að SÞ í heild.
rak kærir Breta
Bagdad og London,
28. des. — (AP-NTB) —
ÍRAK hefur sent Öryggisráði
kæru vegna aðgerða Breta
við Persaflóa, en þangað hafa
Bretar sent sex herskip
vegna ótta við innrás íraks-
hers í Kuwait. Segir íraks-
stjórn að þessar hernaðar-
aðgerðir séu ógnun gegn
friði og öryggi í írak.
Brezka stjórnin hefur ekkert
ratið uppi um það hvers vegna
hún hafi talið nauðsýnlegt að
senda þennan filota til Persaflóa.
Fulltrúi Kuwait í Arababandalag
inu, Abdel Hussein, sagði í
Kairó í kvöld að aðrar og meiri
ástæður laegj-u fyrir viðbúnaði
Breta en ástandið í Kuwait.
Sagði Hussein að engar hættur
steðjuðu að sjálfstæði Kuwait og
að furstinn þar hefði ekki beðið
um neina astoð frá Bretum. Her-
lið Arababandalagsins. sem er
í Kuwait, væri nægilega öflugt
til að verjr sjáifstæði fursta-
dæmisins.