Morgunblaðið - 10.01.1962, Blaðsíða 1
20 siður með Barnalesbolt
49. árgangur
7. tbl. — Miðvikudagur 10. janúar 1962
Prentsmiðja Morgunblaðsins
SjjSíjSjP
Hann vnr
kki forínn
Sovétstjórnin segir að för Molotovs
til Vínar hati verið frestað
Moskvu, 9. jan. — (NTB-AP)
UTANRÍKISRÁÐUNEYTI
Sovétríkjanna skýrði frá því
í gær að Molotov fyrrver-
andi utanríkisráðherra hefði
lagt af stað til Vínar á laug-
ardag og væri væntanlegur
þangað á þriðjudags. Var
fregn þessi staðfest í utanrík-
isráðuneytinu í morgun og
fylgdi það þá fréttinni að eig
inkona Molotovs væri í för
með manni sínum. Sagði
ráðuneytið að Molotov tæki
aftur við fyrra embætti sínu
sem aðalfulltrúi Rússa hjá
Alþjóða kjarnorkumálastofn-
Uninni.
Seinna í dag tilkynnti tals-
maður Sovétstjórnarinnar að
þetta væri misskilningur,
Molotov hefði aldrei lagt af
stað til Vínar og væri enn í
Moskvu.
MÓTTAKA í VÍN
Áður en fregnin um ferð Molo-
tovs var borin til baka kom hrað
lestin frá Moskvu til Vínar og
var mikill fjöldi fréttamanna á
járnbrautarstöðinni til að taka
á móti Molotov, «em ekki kom.
Talsmaður Sovétstjórnarinnar í
Moskvu sagði að fyrirhugað hafi
verið að Molotov héldi til Vínar
Frh. á bls. 19
JARNBRAUTARSLYSIÐ I HOLLANDI
I
Sprengja
hjá Sartre
UM HEUGINA komu leynisam,
tök öfgamanna í Alsírska hern
um (OAS) fyrir sprengju í
húsi því, er franski rithöfnud
urinn Jean-Paul Sartre býr í
París.
Sartre býr á fimmtu haeð í
fjölbýlishúsi og eftir að
sprengjan, sem OAS-menn
höfðu komið fyrir þar, sprakk,
varð að flytja álla íbúana úrl
húsinu. Sprengingin olli mikl
um skemmduTÓ á húsinu, vegg
ir sprungu, dyr rifnuðu af
hjörum og stiginn eyðilagðist.
Slökkviliðsmenn urðu að reisa
stiga upp á þakið til áð komast
inn í húsið.
f>að er eklki liðið nema háJft
ár frá því að önnur sprengja
spra'kk í bústað Sartre.
Meffan veriff var aff reyna aff bjarga farþegum úr jám-
brautarslysinu í Hollandi kveiknaffi i einum vagnanna út
frá logsuðutæki. Fljótiega tókst aff slökkva eldinn.
Neffri myndin sýnir slysstafflnn í Hollandi. Fremstu vagn-
ar hrafflestarinnár til Utrecht gengu inn í og undir vagna
farþegalestar frá Utrecht. Allt björgunarstarf var mjög
erfitt og voru notuff logsuffutæki til aff skera göt á vagn-
ana svo unnt væri aff komast aff særffum og látnum far-
þegum. AUs fórst 91 farþegi í árekstrinum.
Alls fórust 91
í járnbrautarslysinu í Hollandi
Utrecht, Hollandi, 9. jan.
— (AP
NTB)
í DAG var tilkynnt í Ut-
recht að alls hafi 91 farþegi
látizt í jránbrautarslysinu
við Woerden í Hollandi á
mánudag og um 75 særzt, þar
af þrír hættulega. Tekizt hef-
ur að þekkja aftur öll líkin
nema tvö, mann og konu.
Flestum líkanna var komið fyr
ir í 17. aldar kirkju í, Utreeht
Buur Kerk, þar sem kisturnar
lágu í margfaldri röð. Þangað
komu ættingjar í leit að ástvin
iim sínum, en lögregluvörður var
við hverja kistu. Gengu ættingj
arnir á milli kistanna, en lögreglu
verðirnir lyftu lokunum. Koimu
syrgjendur í smá hópum í fylgd
með prestum og í kvöld höfðu
þekkst aftur 89 lík, en tvö eru
enn óþekkt.
' Júlíana Hollandsdrottning var
á ferð í Austurríki er slysið vildi
til. Hefur hún nú snúið heim og
er væntanleg til Utrecht á morg
un. í dag var lokið við að hreinsa
brakið af teinunum á slystaðnum
og var búizt við að umferð gæti
hafizt í kvöld.
Sukarno gefur
Jakarta. Indónesíu, 9. jan.
(NTB-AP).
SUKARNO forseti hefur lýst því
yfir aff hann muni bíða í 7—10
daga með aff taka ákvörðun um
þaff hvort fara skuli með hernaff
gegn Hollenzku Nýju Guineu. Er
þessi frestur veittur tU að gerá
úrslitatilraun til aff koma á við-
ræffum milli fulltrúa Hollands og
Indónesíu um framtíð Nýju
Guineu, að því er haft er eftir
opinberum aðilum í Jákarta.
En Subandrio utanríkisráðherra
sagði við fréttamenn í dag að litil
von vær! um samkomulag því [
stefna Hollendinga væri allt of
óljós og óákveðin.
AUKINN LIÐSSAFNAÐUR
Sukarno skipaði í dag nýjan
hershöfðingja til að stjórna hugs
anlegri innrás indónesíska hers-
ins í Hollenzku Nýju Guineu.
Einnig bárust í dag fréttir um
aukinn liðssafnað á Austur Indó
nesíu og hafa hermenn og sjó-
liðar frá flotastöðinni í Surabaya,
sem verið hafa í leyfum, verið
kvaddir aftur til herþjónustu.
Bandaríski sendiherrann í
Jakarta, Howard P. Jones, hefur
ferðazt með Sukarno forseta um
Indónesíu undánfarna daga og
átti í dag viðræður við forsetann
í Jakarta. Ekki er vitað hvað
þeim fór á milli, en Jones sagði
að viðræðunum loknum að þær
hafi snúizt um Nýju Guineu og að
hann byggist við áframhaldandi
viðræðum þegar tilefni er til.
EKKI BJARTSÝNIR
Yfirleitt eru vestrænir stjórn-
Frh. á bls. 19
Rússar sleppa
belgísku þotunni
Moskva, ,9. jan. — (AP) —
SOVÉTSTJÓRNIN féllst á
það í dag að láta lausa far-
þegaþotuna frá belgíska flug
félaginu Sabena, sem neydd
var til að lenda í gær í
Grozny skammt fyrir norð-
an Kákasusfjöll.
Aðstoðarutanríkisráðherra Sov
étríkjanna, V. Kuznetsov, til-
kynnti sendiherra Belga þar í
landi í dag, að allir farþegar
þotunnar, 19 að tölu ogx áhöfn
hennar, 8 menn, væru í góðu
yfirlæti á gistihúsi í Grozny.
Sleppt á morgun
Kuznetsov bar fram mótmæli
vegna þess að sovézk lofthelgi
hefði verið rofin, en sagði, að
fyrirmæli hefðu verið send til
Grozny unj að láta flugvélina
lausa. Verður það gert strax og
rannsókn varðandi tæknileg
atriði hefur farið fram. Er bú-
izt við að það verði á morgun.
Fulltrúar frá Sabena og
sovézka flugfélaginu Aeroflot
framkvæma rannsóknina og er
einn af fulltrúum Aeroflot vænt
anlegur til Grozny í kvöld.
Ekki tilkynnt nánar
Ekki var tilkynnt nánar um
það, hvernig þotan, sem var á
leið frá Teheran til Istambul,
villtist svona langt af leið og
ekki var skýrt frá því hvernig
hún hefði verið neydd til að
nauðlenda.