Morgunblaðið - 10.01.1962, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.01.1962, Blaðsíða 20
Fréttasímar Mbl. — eftir lokun — Innlendar fréttir: 2-24-84 Erleiular fréttir: 2-24-85 ttttStfftfrtfr I fáum orðum sagf Sjá bls. 8. 7. tbl — Miðvikudagur 10. janúar 1962 Báðir bátarnir eyðilögð- ust og gúmmíbát tók út Brotsj'ór reið yfir Karlsefni og skildi eftir einn 20 manna bát SNEMMA á sunnudagsmorgun-1 vindur um fimm vindstig, en inn varð togarinn Karlsefni fyrir ■ skyndilega kom upp straumihnút' brotsjó um 120 sjómílur suðaust- ur af Vestmannaeyjum. Skall sjórinn yfir bátadekkið, gjör^yði lagði báða björgunarbátana og sópaði á brott gúmmíbát, sem einnig var á bátadekkinu. Mbl. átti tal við Halldór Ingi- marsson skipstjóra í gær, og sagð ist honum svo frá: — Þetta gerðist klukkan fjögur á sunnudagsmorguninn, um 120 sjómílur suðai'stur af Vest- mannaeyjum. Bezta veður var, ux alveg við skipið bakborðsmeg in og skall yfir bátadekkið. Sjór inn skemmdi bóða bátana þannig að þeir eru gjörónýtir og enn- fremur misstunt við út 20 manna gúmmíbát, sem var á bátadekk- inu. Var þá aðeins eftir einn 20 manna gúmmiíbátur á brúarþak- inu. — Við vorum 22 talsins í þess- ari ferð, en venjulega erum við 30. Ég var sofandi er þetta gerð- ist og vaknaði ekki fyrr en kallað fy Fleiri bólar róa rir norðan en áður AKUREYRI, 9. jan. — Undan- farna daga hafa bátar á Eyja- fjarðarhöfntlm verið að búa- sig til suðurferðar. Að þessu ■ sinni er mikill hluti bátanna heima í vetur, og rær þaðan. Það er nú æ meira að færast í vöxt, að Sjómannadeilan FUNDUR VAR haldinn í gær með aðiljum að deilunni um kjör sjómanna. Samkomulag náð ist ekki, og var ekki boðað til annars fundar. Mikil sprenging á Akranesi AKRANESI, 9 jan. — Kl. langt gengin tíu í gærkvöldi kvað við ein ógurleg sprenging. Sprengja var sprengd innan við geymslu- hús bæjarins á Kambinum. Herma fregnir, að dýnamíti hafi verið komið fyrir í olíudunki, og sprengjan þannig tilbúin. Spreng ingin var svo mikil, að nærliggj- andi hús nötruðu eins og í snörp- um jarðskjálftakipp, og bóllar og glös riðuðu til og skulfu í eld hússkápum á Vesturgötu. Hvell- urinn heyrðist um allan bæ. Gíf- urdegur blossi, blár og rauðleitur gaus upp sem snöggvast. Upp af honum gaus reykjarmökkur, þykkur og ljósleitur. Ekki er vit- að, hverjir voru þarna að verki. — Oddur. bátar rói frá heimahöfnum nyrðra, og því er margt af því fólki, sem áður leitaði á vetrar- vertíð syðra, kyrrt hér fyrir norð an. Þetta veldur mikilli breytingu til hins betra í atvinnumálum í smáþorpum hér um slóðir, þar eð obbinn af vinnandi mönnum er nú heima allan ársins hring. Þetta skapar aftur aukið félags- Mf. I>að má einnig teljast óeðli- legt, að meirihluti vinnandi manna sé fjarrvésandi frá heim- ilum sínum allan seinni hluta vetrar. — St. E. Sig. 35.562 síma- notendur á Isl. UM Síðustu áramót voru 35.562 símnotendur á fslandi, skv. fréttatilkynningu frá póst- og símamálastjórninni. Á árinu 1961 fjölgaði þeim um 2.607, en um 2600 eru á bið- lista. Áætlað er, að á árinu 1968 verði þeir orðnir um 58.000. I var á mig. Það voru allir sofandi , um borð nema vakt í brú og vél, | og enginn maður á bátadekkinu. — Þetta var, ekki hættulegt, við höfðum fengið á okkur stærri sjóa án þess að nokkuð gerðist. En þessi kom aftarlega, bakborðs megin, það hittist þannig á, sagði Halldór skipstjóri að lokum. Dróst með lyftu milli sjö hœða KLUKKAN rúmlega 3 í gær- hann þá fastur á milli. en dag varð það slys i húsinu á manni, sem kom að, tókst að Sólheimum 23, að fimm ára spenna hurðina upp með já.rni. drengur dróst m.eð lyftu milli „. . „••• Steinar var fluttur í Slysa- sjo hæða og slasaðist a fotum „ “ en þo minna, en astæða hefði . ... < ... , _ ... verið til að ætla. bandlð' * ljos kom- að vlnstrl Drengurinn, sem heitir Steinar Björgvinsson, var staddur inni í Iyftunni á sjöttu hæð um nónbilið á.samt öðrum fótur var lítið sem. ekki meiddur, en hægri fótur húð- flettur og marinn. Þykir dreng urinn hafa sloppið vel frá litlum dreng. Mun þá einhver S,IyS1-0f^ðl fað,r hans hafa beðið um lyftuna á 13. * v*ðta>‘v*ð Mbl. ! gærkvoldi, hæð, því að hurðin lokaðist aðxÞað yæM elglnleea hreln á fætur Steinars litla, og lyft- ffuðsm,ldl- an fór allt upp á 13. hæð. Foreldrar Steinars eru hjón- Xveggja sentimetra bil er in Björgvin Lúthersson síma- milli lyftuhurðarinnar og maður og Eydís Júlíusdóttir. veggjar. Steinar kallaði á Steinar er yngstur fjögurra hjálp, er upp var komið. Var sona þeirra. Myndin sýnir hvernig annar björgunarbáta Karlsefnis leit út eftir að brotsjórinn hafði gengið yfir bátadekkið. (Ljósm. Mbl.:Ól. K. M.) Vertíð hafin GRINDAVÍK, 9. jan. — Vertíð hófst hér í Grindavík í dag. —- Sjö bátar reru með línu, en alls munu rúmlega 30 bátar róa meS línu héðan í vetur. Bátarnir komu að í kvöld og höfðu sam- tals fengið 36.3 lestir. Aflahæst- ur var Vonin með rúmar 7 lestir, þá Máni með 6.8 lestir og Guðjón Einarsson með tæp- ar 6 lestir. Helmingur aflans var ýsa. — Fréttaritari. ----------------- Stolið úr bát í FYRRADAG var rannsóknar- lögreglunni til/kynnt að þjófur hefði lagt leið sína niður í lúkar bátsins mb. Þórðar Ólafssonar. Hafði þjófurinn á brott með sér hettustakk, stígvél og sjópoka. ÆGIR farinn í síldarleit ÆGIR fór út í gærkvöldi í síldar- rannsókn aleiðangur, og verður Jakob Jakobsson, fiskifræðingur, með í förj.nni. Eins og Morgun- bláðið hefur áður skýrt frá, verð ur svæðið undan Jökli kannað fyrst og síðan miðin vestur af Reykjanesi. Þá er ætlunjn að kanna svæðið allt austur til Hornafjarðar, en það fer eftir veðurfari, hvort af því getur orð- ið. Lá við sfórslysi á Patreksfirói, er „sprengjubror þaut inn í stofu Óveðui vestro Togorar í vari MIKIÐ ROK og hálfgert óveður var fyrir vestan í gær. T.d. voru 12 vindstig (68 hnúta vindur) í Æðey með snjókomu og 3ja st. frosti. Fjöldi togara lá í vari bæði inni í Djúpi og á syðri fjörðum. Togarasala í gær TOGARINN Röðull seldi í Grims by í gær 134 lestir fyrir 7.952 sterlingispund. Fleiri togarar munu ekki selja afla erlendis í vikunnL Nýi sæsíminn opnaður 22. jan. NÝI SÆSÍMINN milli íslands, Færeyja og Skotlands verður tekinn í notkun mánudaginn 22. þ. m. ef allt fer skv. áætlun. Hér er um mjög mikilvæga framför að ræða í fjarskipta- málum íslendinga að ræða, því að hingað til hefur allt tal- símasamband við útlönd verið þráðlausrt og því mjög jháð loft skilyrðum. Ritsímasamband hefur hins vegar verið um gamla sæsímann. ífyrstunni verða 3 talsíma rásir opnar til Lundúna allan sólarhringinn Og sömúleiðis 2 til Kaupmannahafnar. Skeyts- sambandið batnar mjög, þrí að alls verða í nýja strengnum 24 talrásír, en hverri þeirri má aftur skipta í 20 skeytarasir, ef svo mætti að orði kveða. Þess má geta, að það var Gunnlaugur Briem, póst- og símamálastjóri, sem fyrstur kom fram með hugmyndina um hinn nýja sæsíma. Á næstunni opnast sæsíma- samband við Nýfundnaland. Næsta skrefið í framfaramál- um fjarskiptanna verður sjálf virkt símasamband vii út- lönd. PATREKSFIRÐI, 3. jan. —- Um kl. 24 á gamlárskvöld varð óhugnanlegur atburður hér á staðnum, er hluti úr heimatilbú- inni sprengju þeyttist inn um glugga hjá Gísla Péturssyni, s-em býr í Aðalstræti 45. „Sprengjubrpt“ þetta, sem er tappi úr lVé járnpípu, um 80 grömm að þyngd, þaut gegnum gluggarúðu og þvert yfir stofuna. Þcu: skall það í loftbita, gerði í hann djúpt far og sprengdi hann frá lofti og vegg. Síðan þeyttist tappinn til baka yfir stofuna og staðnæmdiist í karmi sama glugga og hann kom inn um. Litlu munaði, að stórslys hlyt- ist af, því að maður stóð við ó- byrgðan gluggan og horfði út til að skoða flugelda, sem á lofti voru. Sú tilviljun, að maðurinn beygði sig í sömu andrá og hlut- ur þessi þaut inn, um gluggan, réð því, að hann stórslasaðist ekki eða beið bana. Húsráðandi, Gísli Pétursson telur, að skotið hafi verið frá Strandgötunni, sem er u.þ.b. 100 Þyrstur þjófur BROTIZT var inn í verksmiðju hús Vals hf. í Kársnesi aðfaranótf þriðjudags. Farið var inn um glugga, en engu stolið hema fá- einum flöskum af ávaxtasaft. metra fyrir neðan hús hans. — Hann kvaðst enn fremur hafa kært. atbuxð þennan til sýslu- manns. —■ Trausfi. Síldveiðarnar HBLDUR treg síldveiði var i fyrrinótt. Bæði var veður frem- ur óhagstætt og illa gekk að ná síldinni. Þó komu um 7000 tunn- ur tiil Reykjavíkur. Aflahæstur var Pétur Sigurðsson með 900 tunnur, þá Leifur með 7Ö0 og Víðir II. með 700. í gærkvöldi voru fáir úti, og veiðiútlit var ekki gott síðast þegar fréttist. AKRANESI, 9. jan. — I nótt héldu síldveiðibátarnir sig á mið unum 17 sjómíiur NV frá Garð- skaga Þriggja vindstiga kaldi af norðaustan var á og talsvert mik ill sjór Hér. lönduðu í dag sex bátar síld, samtals 3.600 tunnum. Megnið af því fer í bræðslu, en sumt er flakað. Aflahæstur var Haraldur 1350, þá Höfrungur II. 1100, Sæfari 500, Skímir 250, Keilir og Sigurður AK 200 tunn- ur hvor. Sveinn Guðmundsson er kominn upp í Slipp. Þegar þeir byrjuðu að mála hann, upp- götvuðu þeir, að stýrisstamminn var orðinn svo slitinn, að sjóða þarf í hann og renna upp að nýju. — Oddur,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.