Morgunblaðið - 10.01.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.01.1962, Blaðsíða 2
2 MORGVHBLAÐIÐ Miðvikudagur 10. jan. 1962 Laxness er að semja tvö ný leikrit ÞANN 30. desember birti franska blaðið Le Monde við- tal við Nóbelsverðlaunaskáld- ið Halldór Kiljan Laxness. í formála að við'.alinu furðar blaðið sig á því hve lítt kunn- ur Laxness sé í Frakklandi, þar sem verk hans séu þýdd og útgefin í stórum upplögum í löndum eins og Bandaríkj- unum, Spáni, Þýzkalandi og Grikklandi. En í Frakklandi hefur aðeins ein af bókum hans verið þýdd, Salka Valka, og það ekki öll. Hvers vegna er Frakkland imdantekning í þessum efnum? spyr blaða- maðurinn, og svarar: „Lax- ness veit það ekki, en freist- ast til að kenna áhugaleysi franskra lesenda á norrænum bókmenntum um, ekki sízt þar sem norski rithöfundur- iinn Hamsun deili þessu hlut- skipti með honum“. Laxness er vingjarnlegur, hlédrægur og kyikur á fæti, þrátt fyrir sextugsaldurinn, en hefur ekki yfirbragð hins hámenntaða rithöfundar. Mað urinn endurspeglar í öllu list- iðnaðarmanninn, sem forðast almennar hugmyndir um bók- menntir og telur það að skrifa vera fólgið í tímafrekri vinnu í einuveru. ' Mesta bókmenntaþjóð í í heimi „Ég er ekki prófessor og það er ekki mitt starf að tala um bókmenntir", segir hann hægt og leitar eftir frönsku orðunum, sem hann lærði fyrir löngu þegar hann bjó í París, á tímum súrrealismans. .,Ég skrifa, það er allt og sumt. Annars hefi ég ekki áhuga fyrir bókmenntum. Ég les lítið og það er* tilviljun- arkennt og ég tel mig ekki vera undir áhrifum sérstakr- ar hefðar eða rithöfundar. Vafalaust á ég eina hlið á skáldverkum mínum, þá þjóð félagslegu, að þakka vissum amerískum rithöfundum og aðra hlið íslenzkum bók- menntum. En það er engin skýring. Á Islandi, þessari eyju með 200 þús. íbúa, sem er mesta bókmenntaþjóð í heimi, skrifa allir eða hafa skrifað. Hvar á þá að skipa mér á bekk? Það er ekki mitt að dæma um það. Á fjörutíu árum hefi ég skrifað 12 epískar skáldsög- ur ,eins og sagt er. Mitt eina áhugaefni hefur verið að láta mér takast það sem er erfið- ast í heimi: að segja sögu. Bókmenntirnar í dag, með sínum losaralega stíl og með áherzlu sinni á taugaveiklun og áfengisvímu, eru ekki fær ar um að segja einfalda sögu. Hún týnist i öllum þessum auðveldu ástarórum og flækj um, sem annars eiga ekkert skylt við sálarfræði. Ég hefi eytt 32 árum í að gera síðustu skáldsögu mína, „Paradísarheimt", sem kom út á síðasta ári og ger- ist í mormónaumhverfi. Kenn ingar, ég veit því ekki hvað þær eiga að þýða, skiljið þér. Að segja sögu felst að mínum skilningi í því að hafa alla þræði í hendi sér. Annars er ég orðinn þreyttur á skáldsögunum, ég er þreytt- ur á því að eiga alltaf í skipt- um við sömu persónuna, að- alpersónuna, sem er rithöf- undurinn, þar sem allt er séð með hans augum og fer í gegnum hans penna. Ég hefi ekki lengur áhuga á öðru en ,leikritun. Án efa er rithöf- undurinn alltaf til staðar, en hann er — hvernig á ég að orða það? _____ fjarlægarí og' aldrei einn. «•& Ég hefi nýlega komið mér fyrir. í Vínarborg, leikhús- borginni, þar sem ég er að vinna að tveimur „ógnvæn- legum“ gamanleikjum. Ég hefi þegar skrifað 5 leikrit og eitt minu. Ég hefi alltaf verið á valdi sögunnar. Þar sem ég er mótmælandi eins og allir íslendingar, lað- aðist ég að kaþólskri trú um tveggja ára skeið á unglings- árum mínum, ekki fyrst og fremst vegna kenninganna, guðfræðinnar, heldur af sögu legum ástæðum, vegna fag- urfræði og menningarverð- mæta hennar. Því næst kom sósíalisminn. Árið 1938, þeg- ar kommúnistaflokkurinn var leystur upp, tók ég mjög óbeinan þátt í störfum Sósíal istaflokksins, sem hafði nokkra kommúnista innan Viðtalið í 99Le IVfonde46 Halldór Kiljan Laxness Kveðst hafa misst ahugann á stjórnmalum þeirra, Strompleikur, er nú leikið á hverju kvöldi á leik- sviði í Reykjavík. Ég er sjálf stæður leikritahöfundur, laus við erfðavenjur og fylgi engu fordæmi. Ég hefi t. d. enga leikræna fagurfræði eins og Brecht, sem ég hefi kynnzt og er einhver mesti vit- maður sem ég hefi fyrir hitt. En ég hefi ekki getað til- einkað mér kenningar hans eða þennan kerfisbimdna þátt sem félagsmálin eru í verk- um hans. Félagsmálin hjá mér miðast við fátæklingana. 'Brecht er kommúnisti ekki ég. Ég hefi ekki iengur áhuga á stjórnmálum — Þér hafið samt sem áð- ur staðið mjög nálægt komm únisma. Eruð þér ekki frið- arverðlaunahafi? — Stjómmálin eru ekki nema óverulegur þáttur í lífi sinna vébanda. Að visu fékk ég aðild að Heimsfriðarhreyf ingunni og vom veitt Heirns- friðar-/erðlaunin. En mjög fljótlega varð ég þreyttur á að heyra sífellt sömu slag- orðin og hafði mig á brott. Tvisvar sinnum hefi ég sótt Sovétríkin heim. 1933 sá ég hræðilega eymd, en í augum mannanna sem ég hitti eygði ég einhverja vonarglætu. Ár- ið 1938, meðan ég dvaldist í Moskvu, var ég viðstaddur hreinsunarréttarhöld Stalins og einkum Búkharin-rétt- arhöldin. Þá vissi ég ekki það sem ég fékk síðar að vita frá 20. flokksþinginu og af skýrslu Krúsjeffs um Stalín 1956. Þessar uppljóstranir ollu mér stórkostlegum von- brigðum. Ég hefi ekki áhuga á stjóm málum lengur. Hlutverk mitt er að skrifa og ég held því áfram.“ í gær kl. 11 var mjög djúp lægð milli Færeyja og íslands. Á Vestfjörðum og þó einkum út af þeim var NA rok. í Æð ey var t.d. 68 hnúta viradur eða 12 vindstig með snjókomu og 3ja st. frosti. Á Austfjörðum er töluvert hlýrra, mest 5 st. hiti á Hornafirði. Víðast var hitinn 0—3 stig. Fyrir austan fjall var snjómugga í allan gærdag, en það er fremur sjaldgæft, þegar vindur er norðanstæður. Endurvarpsstöð Á Sandi er nú rekin lítil endur varpsstöð, því að lóran-stöðin truflaði viðtöku útvarps í nokkr um viðtækjum þar. Sjálfstæðisfélag Keflavíkur Sjálfstæffisfélag Keflavíkur heldur affalfund sinn í kvöld kl. 9 í Sjálfstæðishúsinu. Á dagskrá eru venjuleg affalfund arstörf. ~ Bv Úranus siglir áleiffis t*i Þýzkalands í gær meff síldarfarm. ~<s> Slæmt veður á Akureyri AKUREYRI, 9. jan. — 1 dag hef- ur verið hér leiðindaveður, norð- anstormur, slydda og snjókoma, en frostlítið. Mikill krapaelgur er hér um allar götur, en vegir hafa ekki teppzt svo vitað sé. Bifreiðar hafa átt í einhverjum örðugleikum, og var hér árekstur í dag á mótum Glerárgötu og Gránufélagsgötu. —• Bílarnir skemmdust eitthvað, en menn sakaði ekki. Alllt flug til Norður- lands hefur legið niðri í dag. — St. E. Sig. Fimm togoiai með síldarfarm í GÆRDAG og kvöld fóru 5 togarar úr Reykjavíkurhöfn áleiðis til Þýzkalands með síld arfarm. Allir nema einn höfðu þeir einnig fiskafla meðferð- is. Úranus fór fyrstur um kl. 14. Hann flytur 220—230 lestir af síld. Um kl. 19 fór Jón Þor- láksson með tun 130 lestir af síld, kl. 21 Hvalfellið með 100 lestir og kl. um 22 fór Freyr með um 300 lestir. Skúli Magn ússon átti að fara um miðnætti í nótt. Herflutningar til Laos Vientiane, Laos, 9. jan. RÍKISSTJÓRNIN í Laos gaf í dag út tilkyniningu þar sem hún segir aff Pathet Lao kommúnistum hafi borizt liðsauki frá Norður Vietnam. Bandarískir sérfræffing- ar í Laos halda þvi fram aff fréttir þessar séu mjög ýktar. Hægri stjórnin í Laos, undir for sæti Boun Oums prins, hefur und anfarna daga birt hverja tilkynn inguna á fætur annari um her- flutninga kommúnista til Laos. Segir stjórnin að hermenn, vopn og vistir streymi til Xieng Khouang frá Norður Vietnam. Einnig segir stjórnin að hersveit kommúnistá sé við landamæri Laos og Norður Vietnam. 1500 ný símanúmer í marzmlánuði n.k. verða 500 ný símanúmer tekin i notkun í Hafnarfirði. Um miánaðamátin marz-apríl verða 1000 ný síma- númer tekin í notkun í Reykj- vík. Nýr viðbætir við símaskrána mun þá koma út. Nýir símstjórar EINS og áður hefur verið greint frá í Morgunblaðinu, hefur Magn ús Eyjólfsson verið settur stöðv- arstjóri p>ósts og síma í Hafnar- firði frá og með 1. jan. sl. Síma- afgreiðslan í Hafnarfirði flytzt 14. þm. í hið nýja póst- og síma- hús á Strandgötu 26. Þá var Guðmundi Ingvarssyni veitt staða stöðvarstjóra pósts og síma á Þingeyri frá srðustu ára- mótum. fslendingar taka við lóran-stöðinni við Sand Á SÍÐUSTU áramótum tók póst- og símamálastjórnin við rekstri lóran-stöðvarinnar við Sand á Snæfellsnesi samkvæmt samningi við bandaríska strandgæzluliðið (U.S. Coast Guard). Þar starfa nú alls 12 fastir starfsmenn Landssíma íslands. Ekki er enn ákveðið hvort Boun Oum prins fer til Genf þar sem viðræður eiga að fara fram um væntanlega myndun sam- steypustjórnar hægrisinna, hlut- lausra og kommúnista i Laos. j Hrakningar ferðamanna í [íerlingarskarði Stykkishólmi, 9. jan. iHVASSVIÐRI hefur geisaff viff Breiðafjörð í dag. 1 Stykkis- Jhólmi var rok og éljahragl- andi, en á fjallvegum hefur veriff glórulaus stórhríff. Fróff- árheiði var ófær í kvöld, og .áætlunarbíll á leið til Reykja- ivikur varð að snúa viff. Vöru flutningabifreið fór úr Stykk- lishólmi kl. rúml. 9 í morgun. Íí honum eru Sigurður Ágústs-! son, alþingismaður, og kona1 hans, auk bílstjórans. Hún Varff föst i Kerlingarskarffi í svokallaffri Efri-Sneiff. Voru 'þá komnir þar stórir skafla _og keffjur bílsins slitnar. Bíl- stjórinn gat komizt í sæluhús- iff kl. 6 i kvóld og náffi í hjálp ’frá Stykkishólmi, era um þær mundir var áætlunarbíllinn ;frá Reykjavik á leiff til Stykk- .ishólms. Mættust bílarnir í' Sneiffinni, en áætlunarbíllinni ,komst ekki áleiffis fyrir flutn-1 ingabílnum. Rétt á eftir barsf .hjálp frá Stykkishólmi og itókst aff koma vörubílnum áfram. Hélt hann áleiffis til Reykjavíkur kl. hálfníu. Áætf unarbíllinn kom til Stykkis- hólms kil. hálftíu. Síðari fréttir: Seinit I gærkvöldi varff vöru' ÍbSfreiffin, sem var á suffur- leiff, aff snúa viff í Seljabrekku.' Var veffriff þá orffiff afskaplegt og kolófært. Sigurffur alþing-' m ismaffur, kona hans og bílstjór' Íinn komust í sæluhúsið í Kerl- ingarskarði og láta þar fyrir- berast, en hjálp verffur send' héffan úr Stykkishólmi, svo aff Ifólkiff komist hingaff í nótt. — FréttaritarL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.