Morgunblaðið - 10.01.1962, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 10. jan. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
11
„Til sjós og lands"
NÝLEGA var mér bent á, að
Þjóðviljinn hefði verið að
zninnast á mig, en ég hef alla
tíð gert lítið af því að lesa það
blað. Og í Þjóðviljanum, sem
kom út 31. des sl. stendur þessi
klausa:
Íl „Til sjós og lands.
'F Sæmundur (hreppstjóri) Jóns
son, skrifari hjá Eimskip, kaus
nýlega við stjórnarkjör í Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur. —
Sæmundur hefur ekki verið til
sjós síðan 1927, en árin 1926 og
1927 var hann á vetrarvertíð
hjá Kveldúlfi. Það er öll hans
sjómennska. Er nú eðlilegt að
Slíkir menn velji forystu fyrir
samtök sjómanna í dag?“
Svo mörg eru þau orð.
Leiðinlegt tíðarf ar
VALDASTÖÐUM, 8, jan. —
Fyrir og um jólin var hér all-
mikið frost og kuldi. En milli
hátíðanna skipti um og hlýnaði í
veðri. Síðan hefur verið heldur
leiðinlegt tíðarfar, ýmist snjóað
eða rignt, og það stundum sama
daginn.
Heimtur á fé virðist ætla að
verða heldur með lakara móti í
þetta sinn. Enn vantar nokkrar
kindur á einstöku bæjum hér í
sveitinni, frá 3 upp í 6 kindur
á bæ. Þó hafa sumir heimt allt
sitt. Ekki er utilokað nema eitt-
hvað af því fé, sem vantar,
kunni að hafa lent undir fönn
í austan hrynunni, sem gekk hér
í nóvember sl. Stuttu fyrir jól-
in fannst ein kind, sem fullvíst
þótti að verið hefði í fönn í 26
daga. Var hún illa haldin, og
búin að missa jórtrið.
Nú er hér snjólaust á lág-
lendi og allir vegir færir.
— St. G.
- Utan úr heimi
Framh. af bls. 10.
i inum af tilreiddum mat og
af nvítum sængurfatnaði
hótelanna, sem hengdur var
út til þerris og viðrunar. Og
nú verður þarna ekki annað
eftir >_n vinstofa, kaffihús og
smurbrauðsstofa. Ágætar
stofnanir út af fyrir sig —
en þær vantar bara alla
„tradisjón".
Vkr Balle og Bögh
Margir veitingamenn
hafa ráðið húsum í Cosmo-
polite þá rúmlega hálfa öld,
sem hótelið hefur starfað.
En nú, þegar saga þess er
brátt á enda, minnumst við
þó fyrst og fremst Balle-
ættarinnar. Fjölhæf og
framkvæmdasöm ætt, sem
setti ekki aðeins mark sitt á
Hotel Cosmopolite, heldur
einnig Hotel Dagmar og
Hotel Savoy. — Hotel Dag-
mar var flestum harmdauði,
þegar það hvarf af sjónar-
sviðinu á sinum tíma, ásamt
öllum „Dagmar“-fyrirtækj-
unum. Nú lokar Casmopolite
-— og eftir er þá aðeins Hotel
Savoy. Hér er ein af sönn-
ununum fyrir því, hve duttl-
ungafull — og að ýmsu leyti
skipulagslaus —. þróunin í
Kaupmannahöfn oft er. —
En þegar áður en Balle-ætt-
in hvarf „frá völdum'* kom
fram nýr, mjög ötull maður:
Landsréttarmálflutningsmað-
tirinn Sören Bögh keypti
eignir hótelsins, en lét hinn
yngsta Balle reka það áfram.
Þegar hann svo — allt of
fljótt — hætti störfum, ákvað
Bögh að gerast sjálfur gest-
gjafi í Cosmopolite og hætti
því málfærslustörfum.
Bögh hafði uppi miklar á-
ætlanir um framtíð hótels-
ins. Fyrst lét hann epdur-
nýja það að innan allt frá
Ég hef verið í Sjómannafélagi
Reykjavíkur frá árinu 1925,
stundum tekið þar þátt í stjórn-
arkjöri, stundum ekki, og án
þess að viðkomandi kjörstjóm
hafi neitt haft við það að at-
huga. En um sjómennsku mína
skal þetta tekið fram:
Meðan ég átti heimili í Skafta
fellssýslu, fór ég venjulega til
sjós á vetrarvertíðinni, stund-
um fram eftir vori, mismun-
andi langan tíma, svona 2—7
mánuði árlega. Byrjaði á ára-
bátum frá Vík i Mýrdal og
Höfnum í Gullbringusýslu árið
1921. Árin 1925, ’26, ’27 og ’28
var ég á bv. Earl Haig, Lord
Ficher og Otur, skipstjóri Niku-
lás K. Jónsson. Árin 1929—37
var ég á bv. Þórólfi, skipstjóri
Kolbeinn Sigurðsson og síðar á
bv/C Hilmi árin 1938—44, skip-
stjóri Jón Sigurðsson.
Sannarlega er þetta ekki í
frásögur færandi. En það er
tæplega hægt að láta svona ó-
sannindaþvælu ómótmælt, þó í
Þjóðviljanum sé.
Læt þetta nægja í bili.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
I Sæmundur Jónsson.
Eldur í báti
UM 7 leytið í fyrrad. kom upp
eldur í vélarrúmi vélbátsins Guð
mundar Ólafssonar frá Ólafsfirði,
sem er 22 lestir að stærð, þar sem
hann lá í Akureyrarhöfn.
Slökkviliðinu var þegar gert að-
vart og kom það á vettvang, en
þá höfðu skipsmenn af nærliggj-
andi bátum ráðið niðurlögum
eldsins með handslökkvitækjum.
Nokkrar skemmdir urðu þó í vél-
arrúmi Guðmundar. — St. E. Sig.
kjallara til rissins — og sið-
an hugðist hann stækka það.
Hann tryggði sér miklar fast-
eignir í næsta nágrenni hótels
ins í þessu skyni — og var
það ætlun hans, sem aldrei
'komst þó í framkvæmd, að
stækka hótelið um 150 her-
bergi. En jafnvel nú, með
sín 150 herbergi og 225 gesta
rúm, er Cosmopolite eitt af
helztu og álitlegustu hótel-
um borgarinnar — já, meira
að segja var það hið stærsta
fram yfir heimsstyrjöldina.
Sérhvert gott hótel hefur
sína sérgrein eða sérgreinar.
Svo var og um Cosmopolite.
Ætti ég að nefna tvær af
sérgreinum þess, myndi ég
segja: Móttaka hópa, sem
ferðuðust í langferðavögnum
— og íþróttaflokka. Það var
oft gaman að fylgjast með
íþróttamönnunum — og þá
ekki sízt knattspyrnuflokkun
um. Þeir voru svo kátir og
sigurvissir, þessir ungu
menn, þegar þeir klöngruð-
ust úr úr vagninum í morg-
unsárið. Þegar svo íþrótta-
hetjurnar, að enduðum kapp-
leik, sneru aftur til hótels-
ins, þurfti maður hvorki út-
varp né sjónvarp — heldur
aðeins andlit þeirra — til
þess að sannfrétta úrslitin.
Kaupmannahafnarbúi verður
þó að viðurkenna, að þegar
um Svía var að ræða, reynd-
ust þeir oftast kátari að
kvöldi en morgni.
— ★ —
Það er laðandi, iðandi líf
og fjör kringum stórt og vel
rekið gistihús. Ég skal ekki
þræta fyrir, að það geti einn
ig verið líflegt í stjórnar-
byggingu. En það er allt
annað, vinir mínir — verður
aldrei hið sama. Og því segi
ég: Kaupmannahöfn hefur
enn misst spón úr aski sínum
— verður nú dálítið leiðin-
legri en áður.
\ . • •
Framkvæmdir í NorBurhöfum
(SKÝRING við landabréfið:
Syðri takmörk hins þéttstrik-
aða hafsvæðis sýna mest»>út-
breiðslu íss í Norðurhöfum,
en nyrðri mörkin sýna, hver
minnsta útbreiðsla íss getur
orðið, þannig að hvíta svæðið
umhverfis norðurheimsskautið
er ávallt isi hulið).
Mikilvægi Norðurhafa og
landa, sem að þeim liggja,
hefur aukizt gífurlega hin síð-
ari ár, jaínhliða framförum í
tækni og samgöngum. Maður-
inn hefur i æ rikara mæli lært
að sigrast á óblíðum náttúru-
öflum, þannig að mikil svæði
norður i Tröllabotnum og
Dumbshafi, sem engir gátu
áður kannað nema harðfengnir
ferðalangar Og með ærnum til
kostnaði, eru nú aðgangileg,
flestum þeim, er þangað vilja
sækja. Bæði Sovétríkin og
Vesturveldin hafa lengi gert
sér ljóst hernaðarlegt gildi
þessa svæðis, en báðir aðiljar
hafa einnig lagt áherzlu á að
koma á fót hvers kýns at-
vinnurekstn í heimsskauts-
, löndunum. Frá því að banda-
ríski kjarnorkuknúni kafbát-
urinn Nautilus fór árið 1958
í kafi um Norðurhöf og komst
m. a. á norðurheimskautið
(undir ísnum), hefur verið
unnið að nýtingu ýmissa nátt-
úrugæða á þessum slóðum.
Námugröftur og framleiðsla á
ýmsum efnum, sem fást á norð
urslóðum. hefur stóraukizt.
Sovétríkin hafa unnið að þess
um málum mun lengur en
Vesturveldin. Þau ráða ein
yfir hér um bil helmingi þessa
svæðis og hafa unnið af kappi
að því að nýta lönd sín, við
Norðuríshafið. Þar hefur verið
stofnað tii margs konar fram-
kvæmda og atvinnurekstrar.
Vinnuaflið, sem þar er notað,
er að langmestu leyti fengíð
úr stórkostlegum nauðungar-
vinnubúðum og fangabúðum,
sem þar eru. Mikill hluti fang
anna eru pólitískir fangar, og
er það kostur í augum Rússa
að hafa fangabúðirnar þarna,
þar eð flótti er nær óhugsandi
á þessum slóðum. Fjölmörg
sovézk skip sigla til hafna á Sí
beríuströnd þá tvo mánuði á
ári, sem þær eru íslausar. Á
þeim árstíma verður að flytja
burtu alla framleiðslu undan-
farins árs Bæði Rússar og
Bandaríkjamenn hafa gert ný-
tízkulegar stórborgir undir
jökulbreiðunum. Þar er unnið
allan veturinn í upphituðum,
hlýjum vistarverum og við nú-
tíma þægindi. Bandaríkja-
menn hafa miklar ráðagerðir á
prjónunum í Alaska, ekki sízt
eftir að iandið varð 49. ríki
í Bandaríkjunum. Á Norður-
löndum eykst áhuginn á fram
kvæmdum í Norðurhöfum
stöðugt. Norðmenn hyggjast
ráðast í ýmiss konar fram-
kvæmdir á Spitsbergen. Eyja-
klasinn Spitzbergen ernorskt
land, en auk Norðmanna hafa
Rússar, Hollendingar, Danir,
Bandaríkjamenn, Englending-
ar, Frakkar og ítalir rétt til 1
að hafa þar hvers konar at- 1
vinnurekstur. Norðmenn Og B
Rússar starfrækja þar kola- S
námur. Munu Sóvétríkin hafa (
rúmlega 2000 námumenn þar
árið um kring, en Norðmenn
rúmlega 1000. Norðmenn eiga
einnig Bjarnarey (Björnöya), 1
sem liggur mitt í hafinu milli
Spitsbergen og Knöskaness
(Nordkap), nyrzta Odda
Noregs. Norðmenn hafa Spits-
bergen og Bjarnarey undir
sameiginlegri stjórn og hafa
gefið þeim samheitið Sval-
barða (Svalbard). Þá eiga
Norðmenn einnig eyna Jan
Mayen, sem er milli Græn-
lands og Noregs. Þar er mikil
væg veðurathuganastöð. Á
eynni er hið útkulnaða eld-
fjall Beerenberg, sem er 2340
metra hátt, eða hærra en
öræfajökull. Á Grænlandi
hafa Bandaríkjamenn mikil-
vægar herstöðvar og viðvör-
unarstöðvar, sem eru ómiss
andi liður í varnarkerfi hins
vestræna heiflns. Skandína-
víska flugfélagið SAS varð
fyrst til þess að taka upp
venjulegt farþegaflug yfir
norðurheimskautssvæðið. Þeg-
ar árið 1954 var farið að fljúga
um Grænland til Vestur-
Ameríku og Kanada, og síðar
um Alaska til Japans.
(Einkaréttur: Nordisk
Pressebureau og Mbl.).
TempSurum í Hafnarfirði
afhent 25 þús. kr. gjöf
SUNNUDAGINN 17. desember
var haldinn sameiginlegur fund-
ur á vegum stúknanna í Hafnar-
firði. Tilefnið var, að þann dag
voru liðin 75 ár frá því að Góð-
templarahúsið í Hafnarfirði var
tekið í notkun. Hús þetta var
byggt fyrir ötula forgöngu með-
lima stúkunnar Morgunstjörn-
unnar, en hún var þá eins árs,
stofnuð árið 1885. Síðan var stúk-
an Danielsher stofnuð 1888, Og
Kærleiksbandið síðar. Þessi bind
indisfélög hafa unnið saman af
mikilli einingu um áratugi.
Á þennan afmælisfund, var
boðið sérstaklega bæjarstjórn
Hafnarfjarðar. Það var hlýleg Og
virðuleg stund, þegar bæjarstjórn
in gekk í skreyttan lundarsal
templara bæjarins. hjá þeirri fé-
lagshreyfingu sem hefir það að
markmiði að skapa hamingju hjá
þeim, sem Bakkus hefir hernum-
ið. Stefán Gunnlaugsson bæjar-
stjóri, hafði orð fyrir hönd bæj-
arstjórnar, flutti ræðu og heilla-
óskir og tilkynnti að bæjarstjórn
hefði á fundi sínum samþykkt að
gefa starfsemi templara 25 þús-
und krónur í tilefni þessara tíma
móta, einnig fyrir þau menningar
áhrif stúknanna í bænum um ára
tugi. Þá flutti fulltrúi Sjálfstæð-
ismanna, Páll Daníelsson, ávarp,
óskir og þakkir fyrir hönd áfeng-
isvarnanefndar. Páll er kunnur
góðtemplari.
Góðtemplarahúsið í Hafnar-
firði, á mikia meriningarlega og
göfuga sögu að baki sér, sem
ekki verður rakin hér, þó það sé
ærið tilefni; þess má þó geta að
bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafði
þa; fundi sína um 20 ár. Og er
þar vagga og upphaf þróunnar-
sögu bæjarmála Hafnfirðinga.
Ennfremur hefir fjöldi annarra
félagssamtaka haft þar starfsemi
sína milli 40 og 50 ár. Góðtempl-
arahúsið hefur því verið sannköll
uð menningarstöð bæjarlífsins
um áratugi. Það hefur verið mik
ið átak að koma þessu húsi upp
fyrir 75 árum af fáeinum mönn-
um. En einhugur og samtaka mátt
ur gerði þetta mögulegt. Þegar
húsið var byggt rúmaði það alla
Hafnfirðinga og meðan verið var
að grafa fyrir því var tví-
vegis tekin ákvörðun um að
lengja það nokkrar álnir eins og
það var kallað. Snemma hafa
forystumenn reglunnar í Hafnar-
firði verið bjartsýnir og eru enn.
Templarar í Hafnarfirði endur
taka þakklæti sitt til bæjarstjórn-
ar. Óska stúkurnar þess að bjarmi
af þeirri hugsjón sem Góðtempl-
arareglan hefur af markmiði,
megi ávallt lýsa Hafnfirðingum
og hinni íslenzku þjóð.
Guðm. Guðgeirsson,
rakaram. Hafnarfirði
Vetrarvertíð
VESTMANNAEYJUM, 8.vjan. —
Fyrsti róður vetrarvertíðarinnar
var farinn á þrettándanum. Voru
þá 5 bátar á sjó. En þá rauk
hann strax upp, svo lítið var
hægt að athafna sig og var afl-
inn heldur rýr. Má nú búast við
að bátarnir fari að róa ef tíð
skánar. — Björn.