Morgunblaðið - 13.01.1962, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 13. jan. 1962
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda vmsemd á sjötugs
afmæli mínu 1. janúar sl.
Sigrún Júlíusdóttir
Innilegt þakklæti og kveðjur sendi ég börnum mínum,
tengdabörnum. sveitungum og öðrum vmum er glöddu
mig með kveðjum, heimsóknum og gjöfum á sextugs-
afmæli mínu, 9. þ.m.
Oddur Guðmundsson, Andakílsárvirkjun
Ég þakka hjartanlega Ungmennafélagi Njarðvíkur og
öllum þeim sem tóku þátt í þeirri höfðinglegu gjöf, sem
mér var færð. — Guð blessi ykkur öll.
Bjarney Guðjónsdóttir,
Borgarveg 19 Ytri-Njarðvík
Faðir okkar
GUÐMUNDITR ÍSLEIFSSON
trésmiður, Skipasundi 23,
lézt að heimill sínu fimmtudaginn 11. janúar.
Börnin.
Bróðir minn
ÞORFINNUR KRISTJÁNSSON
prentari
andaðist í Kaupmannahöfn 12. janúar.
Axel Kristjánsson
Maðurinn minn og faðir okkar
ÞÓRARINN SÖEBECH
andaðist í Bæjarsjúkrahúsinu 12. þ.m.
Emilía Söebech og synir
Faðir okkar og tengdafaðir
BJÖRN BJÖRNSSON
Ásvallagötu 39
andaðist í Landakotsspítala 12. janúar.
Börn og tengdabörn
Móðir okkar
SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR
andafHst að Elliheimilinu Grund 11. þ.m.
Fyrir hönd okkar systkinanna.
Andrés Andrésson
Konan mín, móðir og dóttir
FANNEY BREIDFJÖRÐ BENEDIKTSDÓTTIR
andaðist aðfaianótt 6. janúar á Landakotsspítala. Jarða-
förin hefur farið fraro. — Kristjáni Sveinssyni augn-
lækni, læknum, hjúkrunarliði og öðrum þeim, sem
r^ t henni vel, þökkum við hjartanlega. Ennfremur
okkur sýnda samúð.
Halldór D. Halldórsson, Helga Jónsdóttir,
Dagfríður H. Halldórsdóttir, Benedikt Halldórsson
Hinzta kveðja til míns hjartkæra eiginmanns og föður
KJARTANS EIRÍKSSONAR
fer fram í Fossvogskirkju kl. 10,30 f. h. á mánudaginn
15. þ.m. — Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Athöfninni verður útvarpað.
Guðrún Elliðadóttir,
Guðríður Birna Kjartansdóttir.
Innilegt þakklæti til allra þeirra sem auðsýndu okkur
samúð við andlát og jarðarför sonar okkar
PÉTURSLEÓSSONAR
Sérstaklega þökkum við heimilisfólkinu að Rauðskriðu
Svanlaugi Ólafssyni Jóni Sigurbjörnssyni og Gesti Páls-
syni.
Fyrir hönd vandamanna,-
Gyða Jóhannesdóttir, Leó Guðmundsson
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför
ÓLAFS SIGUEÐSSONAR
veggfóðrara, Mávahlíð 29
Aðstandendur
Þökkum innilega sýnda samúð og vinarhug við and-
lát og jarðarför
HALLDÓRS J. JÓNASSONAR
símamanns
Systurnar
Halldóra Halldórsdóttir
frá Valdastöðum minning
HALLDÓRA andaðist í sjúkra-
húsinu a Landakoti 5. þ. m.
eftir stutta legu. Hún var fædd
á Akranesi 25. apríl 1879. Voru
foreldrar hennar þau hjónin
Guðrún Hákonardóttir og Hall-
dór Ámason. Halldóra missti
föður sinn þegar hún var ung
að aldri. Ólst hún upp með
móður sinni þar til hún sjálf
gat farið að vinna fyrir sér, er
hún var vart fullþroska. Meðal
margra sem hún vann hjá,
minntist hún sérstaklega þeirra
mætu hjóna, Björgu og Finn-
boga Lárussonar frá Gerðum í
Garði, (síðar Búðum). Á meðan
hún dvaldist hjá þeim hjónum,
reyndust þau henni sem beztu
foreldrar, en þá var Halldóra
ung að árum eins og áður get-
ur. Halldóra átti þrjú systkin,
tvo bræður og eina systur.
Á þeim árum var oft erfitt
í ári, og svo mun hafa verið
um hag móður þeirra, að hver
varð að duga sem hann mátti,
enda brugðust þau ekki undan
skyldum sínum að hjálpa móð-
ur sinni. Og að sjálfsögðu lagði
hún sinn óskipta hlut fram til
þess að koma börnum sínum
sem bezt til þroska, enda af-
burða dugleg til allra verka.
Systkin Halldóru voru þessi,
sem nú eru öll látin, Sigurborg,
bjó á Veiðilæk í Þverárhlíð í
Borgarfirði, Sigurður, sjómaður,
búsettur í Akbraut á Akranesi,
velþekktur dugnaðarmaður, Há-
kon, búsettur fyrst á Akranesi,
en fluttist síðar til Reykjavík-
ur. Mikill dugnaðar og aflamað-
ur. Hann gerðist formaður á
opnu skipi aðeins á átjánda ári,
síðar varð hann skipstjóri á vél-
bátum, fyrst á litla Svan, sem
var tæpar 9 lestir, en síðar á
stærri Svan, sem þó ekki var
nema 28 lestir, og myndi það
ekki þykja stórir farkostir nú
til dags. En eigi að síður aflaði
Hókon mikið á báðum þessum
bátum og farnaðist alltaf vel
og kom ávallt öllu heilu í höfn.
Árið 1907 giftist Halldóra Þor-
keli Guðmundssyni frá Valda-
stöðum og hófu þau búskap þar
á jörðinni árið eftir, eða 1907.
En árið 1918 missti Halldóra
mann sinn eftir aðeins ellefu
ára sambúð. Þau eignuðust sjö
börn, en tvö þeirra dóu ung og
eitt fæddist eftir að Þorkell féll
frá. Halldóra hélt áfram bú-
skap á Valdastöðum eftir frá-
fall manns síns, með börnum
sínum og aðstoð góðra manna.
Fyrst eftir fráfall Þorkels voru
tveir drengimir um stund hjá
föðurfrændum sínum, en komu
svo aftur til móður sinnar þeg-
ar þeir stálpuðust. Árið 1933
hætti Halldóra búskap á Valda-
stöðum og fluttist til Reykja-
víkur og hélt sitt eigið heimili
með yngri bömunum, þar til
þau mynduðu sín eigin heimili.
En síðustu árin dvaldist hún á
heimilum barna sinna. Böm
Halldóru og Þorkels eru þessi:
Guðmundur verkamaður í Rvík,
Hákon verkstjóri í Rvík, Guðrún
húsfrú, Sindra á Seltjamarnesi,
Þorkell frkvstj. Bæjarleiða í
Rvík og Björg húsfrú, Rvík og
hjá henni átti Halldóra heimili
til hins síðasta dags.
Lengst af stundaði Halldóra
saumaskap hjá ýmsum fjöl-
skyldum og í sambandi við það
starf hennar eignaðist hún
marga góða vini. Meðal annarra
í þeim hópi voru þau mætu
hjón Sigþrúður og Ólafur Jóns-
son, framkvstj. Alliance. Einnig
minntist hún með hlýleik þeirra
góðu hjóna sem hún bjó hjá
um nokkurt skeið/ Jörínar og
Sigurvins Einarssonar alþingis-
manns og taldi sig alltaf í mik-
lli þakkarskuld við þau.
Þá var henni ljúft og tíðrætt
um æskuvinkonu sína, Vigdísi
Ámadóttur frá Akranesi, konu
Ingólfs Lórussonar skipstjóra,
en þær voru alla tíð óaðskiljan-
'legar eins og systur væru. Eftir
að Halldóra fluttist til Rvíkur
saknaði hún mjög sveitakyrrð-
arinnar sælu og heimilis síns
þar, en úr því bætti mikið
hennar kæra mágkona, Halldóra
í Miðengi í Grímsnesi og
hennar góða fólk, en þar
dvaldist hún oft á sumrin um
langan eða skamman tíma,
svo og einnig hjá systurdóttur
sinni, Hólmfríði húsfrú á Lax-
fossum í Borgarfirði. Hún minnt
ist ávallt þessara heimila með
hugljúfu þakklæti og vorhug
þeirra sólbjörtu stunda.
Eins og ráða má af því sem
að framan er sagt, var fjár-
hagur Halldóru frekar þröngur
eftir fráfall manns hennar og
er það eins og að líkum lætur
eftir svo skamma sambúð, en
með dugnaði og ráðdeild bless-
aðist það allt og lifði hún það
að sjá böm sín og barnaböm
verða að nýtum mönnum og
þá fannst henni að hún hafa
fengið að fullu goldið hinn
langa og stranga starfsdag.
Má segja að starfskraftar henn
ar entust vonum framar og svo
var hún alla tið létt á fæti að
hinir yngri máttu hafa sig alla
við að fylgja henni eftir. Hall-
dóra var fróðleiksfús kona og
átti töluvert góðra bóka, og
ekki er mér grunlaust um að í
henni hafi búið listeðli, sem
nýtzt hefði, ef hún hefði notið
menntunar nútímans, því svo
mikið er víst að það gera ekki
allar að setja út saumaskap sem
hún gerði.
Frændur og vinir kveðja
hana með þökk og virðingu fyr-
ir samfylgdina og biðja henni
blessunar.
Þegar mig síðast klukkur kalla
heim
kom þú ó Guð og mig í faðmi
geym.
Fel mína sál við föðurhjartað
þitt
— fegursta og hinzta það er
* athvarf mitt.
Hún verður nú lögð við hlið
eiginmannsins þar sem þau
hvíla í friði og grafarró, og þar
sem vorblómin eiga eftir að
skjóta frjóöngum en fölna svo
aftur á komanda hausti. Minn-
ingin lifir um þá sem horfnir
eru og starfað hafa hér á með-
an lífið entist" til hins síðasta
dags.
Far þú í friði góða mágkona.
St. G.
I. O. G. T.
Svava.
Fundur á morgun.
Kosning embættismanna.
Inntaka — margt fleira.
Gæzlumenn.
AÐSTOÐ við skattaframtöl
Jón Eiríksson hdl. og
Þórður F. Ólafsson lögfr.
Austurstræti 9. — Sími 16462.
— Aldarminning
Framh. af bls. 11.
inn bækur. Hann las mikið, áttl
mikið bákasafn og lét sig stjórn-
mál og önnur framfara- og menn
ingarmál miklu varða. Nokkuð
skrifaði hann af blaðagreinum á
efri árum og oft undir dulnefn-
inu „Gamli Hreinn". Hann and-
aðist eftir stutta legu 21. desem-
ber 1951 nærri níræður að aldri
og hélt heilsu og starfsorku til
æviloka.
Þorsteinn Þorsteinsson, sýlu-
maður, skrifaði u*i hann eftir-
mæli, og segir m. a.: „Jóhann
var maður mjög vel greindur,
skáldmæltur og skjótur til svars,
hreinlyndur og hiklaus í fram-
göngu, einarður *g höfðingja-
djarfur ©g lét ógjarna hlut sinn
við hvern sem skeytt var.“
Það er merkileg tilviljun að
það skyldi vera harka hins ís-
lenzka blágrýtis sem varð til
þess að Jóhann lagði út á nýja
og áhættúsama braut í byggingu
sinni. Mér virðist eftir sögu hans
að hann hafi oftar orðið að klífa
þrítugan hamarinn, sem öðrum
sýndist ókleyfur, til að ná settu
marki. en flestir aðrir samtíma-
menn hans og að í honum sjálf-
um hafi verið allmikið af hörku
þess bergs sem hann var brot-
inn af. Hitt er víst að sú þjóð
sem lifir og á eftir að lifa vel og
lengi í hinum traustbyggðu
steinsteypuhúsum um land allt
mun vel og lengi minnast með
þakklæti og virðingu afdalabónd
ans. sem fyrstur lét byggja stein-
steypt íhúðarhús á fslandi.
Guðmundur lllugason.
Félagslíf
Unglingamótið sem halda átti á
nýjársdag verður haldið á sunnu
daginn kl. 10.30. Skráning á<
mótið í Skíðaskálanum. —
Drengir og stúlkur mætið tíman-
lega.
Firmakeppni skíðaráðs Reykja-
víkur, sem átti að halda um þessa
helgi verður frestað til unnudags
ins 21. janúar 1962.
Skíðafélögin í Reykjavík.
Knattspyrnufélagið Fram
Knattspymudeild
Mfl., 1., 2., 3. og 4. flokkur
Æfing hjá mfl. og 1. fL í dag
(laugardag) kl. 4.30 í KR-heim-
ilinu.
Æfing hjá 2. fl. Jd. 2.40 á sunnu-
dag í Valsheimilinu.
Æfing hjá 3. fl. fellur niður á
sunnudag.
Æfing hjá 4. fl. sunnudag kl. 3.30
í Valsheimilinu. — 4. fl. ath. að
hverfakeppnin byrjar á sunnu-
daginn, áríðandi að allir þeir
sem ætla að vera með mæti
stundvíslega.
Nefndin.
Samkomui
K.F.U.M.
Á morgun kl. 10.30 f. h.
Sunnudagaskólinn kl. 1.30 e. h,
drengjadeildirnar á Amtmanns-
stíg og Langagerði. Barnadeildin
í Kársnes. Kl. 8.30 e. h. almenn
samkoma. iBenedikt Arnkelsson
guðfræðingur talar.
Allir velkomnir.
Kristnibeðshúsið Betanía, ,
Laufásvegi 13.
Á morgun:
Sunnudagaskólinn kl. 2 e. h. —
Öll börn velkomin.
Samkomuhúsið Zion, Óðinsg. 6A
Á morgun:
Almenn samkoma kl. 20.30. —«
Allir velkomnir.
Heimatrúboð leikmanna.
Samkoma í Breiðfirðingahúð
sunnudagskvöld kL 9. Öllum
heimill aðgangur.
Eggert Laxdal
Stefán Runólfsson.
Aimennar samkomur
Boðun faignaðarerindisins
A morgun, sunnudag Austurg.
6 Hafnarf. kl. 10 fh. Hörgshlíð 12
Rvik kL 4 eh. Barnasartikoma lit-
sikuggamyndir. Kl. 8 eh. Almenn
samkoma.