Morgunblaðið - 17.01.1962, Síða 3
Miðvikudagur 17. jan. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
3
i
■
SEX sjúklingar hafa látizt úr
bólusótt í Englandi og er nú
veikin einnig komin til Otley,
sem er um 15 km frá Brad-
ford og til Birmingham.
t fyrradag voru hafnar um-
fangsmiklar ráðstafanir í
Bradford og nágrenni til þess
að komast fyrir veikina og
þann dag 100 þúsund manns
bólusettir.
Brezku blöðin skrifa mikið
um veikina. The Daily Teie-
graph segir m. a., að einn af
þingmönnum íhaldsflokksins
brezka Dr. Donald Johnson
frá Carlisle hafi ákveðið að
leggja til við þingið, að bolu-
setning við kúabólu verði aft-
ur lögleidd í Bretlandi, en hún
var numin úr lögum árið 1948.
Skyldubólusetning var fyrst
lögboðin í Bretlandi árið 1853,
en var ekki að fullu komin til
framkvaemda fyrr en 1858.
Árið 1947 var svo komið, að
minna en 40% brezkra bama
voru bólusett, sökum mótþróa
foreldranna. í>á var ákveðið
að nema skyldi bólusetningu
úr lögum, en menn gátu eftir
sem áður fengið bólusetningu
endurgjaldslaust ef þeir ósk-
uðu. Þá þegar fjölgaði bólu-
setningum og á árinu 1960
voru um 41,3% barna á fyrsta
ári bólusett.
★ - ★
Þegar á laugardag var haf-
izt handa um bólusetningu í
Bradford. Eftir helgina var
einangrað svæði sem tók yfir
bæi og þorp í 80 km fjarlægð
frá Bradford. Innan þess
svæðis var hjúkrunatikonum
og læknum skipað niður með
birgðir bóluefnis. í fyrradag
voru 100 þúsundir manna
bólusettar. Menn hafa staðið
í löngum biðröðum og beðið
eftir bólusetningu og í kirkj-
um var beðið sérstaklega fyr-
ir sjúkum.
í gær lézt fimmtugur mað-
ur í Otley, 15 km frá Brad-
Fólk flykkist þúsundum sairan til bólusetningar i Bradford.
Sex látnir úr bólu í Englandi
Bradford og nágrenni einangraðar
ford, að öllum líkindum af
bólu. í Oakwell-sjúkrahúsinu
í Birstall eru átta sjúklingar,
sem taldir eru með bólu —
þeirra á meðal hjúkrunarkon-
ur, forstöðukona sjúkrahúss-
ins og tveir læknar. Annar
læknirinn hafði gert krufn-
ingu á líki lítillar telpu, er
lézt úr bólu.
í Glascow var gerð ítarleg
rannsókn á þrjú þúsund Pak-
istönum, sem búa 1 borginni
og fannst ekkert. sem benti
til bólusóttar. Veikin hefur
heldur ekki borizt til Skot-
lands en í Edinborg eru menn
vel á verði.
Á sunnudag kom flugvél frá
BEA-flugfélaginu frá Amster-
dam með 48 farþega. Þar á
meðal voru átta Pakistanar
er kvörtuðu um lasleika. Var
farþegum haldið í klukku-
stund um borð í vélinni. með-
an þeir gengust undir læknis-
skoðun. Farþegum öllum var
boðin bólusetning, en aðeins
tveir þáðu.
í Birmingham eru 27 menn
undir ströngu eftirliti, þar á
meðal læknir, Dr. W. A.
McLennan, sem kaldaður var
til Pakistansbúans, sem fyrst-
ur kom með veikina.
Tveir Pakistanar komu
þangað frá Frankfurt á föstu-
dag, en annar þeirra er sagð-
ur á leið til Cardiff í Wales.
Víðast um heim hefur verið
ráðið niðurlögum þessa skæða
veirusjúkdóms — en þó hefur
bólusóttin lengst af haldist
við líði í Indlandi Síam, Mal-
aya og í Kína og af og til
stungið sér niður í Panama.
Sóttin hefur geysað í Pakistan
undanfarnar vikur og mánuði
og hafa þar látizt 260 manns.
SCOTTISH
n aii v vr v im ir cc
M
Enn er leitað
án árangurs
Átta flugvélar leifuðu að Neptunevél-
inni á Crœnlandi í gœr
LEITINNI aS hinni týndu
bandarísku flugvél var enn hald-
ið áfram í gær. Leituðu þá átta
flugvélar, en án árangurs. Leit-
in beindist nú einkum að austur-
atrönd Grænlands, frá Scoresby-
•undi að Angmagssalik, og leit-
uðu flugvélarnar um 100 kíló-
metra inn í landið. Flogið var
umhverfis fjallatinda, og leitað,
•n ekkert kom í ljós, enda erfitt
um vik að sjá nokkuð á jörðunni
vegna þess hve mikill snjór er
nú með ströndinni. Blandast þar
saman klettar og snjór þannig að
erfitt er að sjá nokkuð greini-
lega úr lofti. Veðurskiiyrði til
leitar voru fremur hagstæð. í
birtingu í dag ieggja flugvélar
enn af stað að leita hinnar týndu
Neptuneflugvélar, sem hvarf sl.
föstudag, svo sem kunnugt er.
_____Famlfe qttctte up
HK vaccinations ■
'RING ROUND FÉAR CITY
flfliii
ffiCh
'_____
Hehind : SBH§W,bv twedv ‘
Forsíðufregn The Scottish Daily Express á þriðjudag.
Rok á Vesturiandi og
landlega á Akranesl
AKRANESI, 16. jan. Gríðar-
rok á norðaustan var inni á Hval-
fjarðarströnd í nótt, vafalaust
11—12 vindstig, og raunar í báða
firði, því að í birtingu sóst, að
Borgarfjörð skóf eins og lausa-
mjöll. Hér er á milli vinda í þess-
ari átt.
Hér er þriðji landlegudagurinn
í dag. — Oddur.
STAKSTEIMR
Verklcgar
franikvæmdir
m
Af greinargerð þeirri, sem
Morgunblaðið birti í gær, kemur
það greinilega i ljós, að árið 1962
mun stærri hluti heildarútgjalda
ríkisins ganga til verklegTa fram
kvæmda en árið 1958, er var síð-
asta valdaár vinstri stjórnarinn-
ar. Samtals munu 40.5% af heild
arútgjöldunum ganga til verk-
legra framkvæmda á þessu ári í
stað 39,4 % árið 1958. Framlög
til verklegra framkvæmda hafa
hækkað um tæp 65% en rekstrar
útgjöldin um rúm 60%.
Það er af þessu auðsætt, að
framkvæmdir ríkisins hafa síður
en svo dregizt saman, eins og
Framsóknarmenn og kommúnist
ar staglast sifellt á. Hinsvegar
hefur nokkur árangur orðið af
ráðstöfunum, sem miða að spana
aði í rekstri ríkisstofnana.
Sjáifstæðismenn hafa fullan
skilning á nauðsyn verklegra
framkvæmda, svo sem samgöngu
bóta og hafnarbóta. Fyrir sjávar
siðuna er það mjög þýðingarmik
ið að haldið sé áfram að bæta
hafnar- og lendingarskilyrði þar
sem sjór er sóttur. Á sama hátt
er það mikilvægt fyrir sveitimar
að vegakerfið sé sem fullkomn-
ast, en góðir vegir eru einnig mik
ið hagsmunamál kaupstaða og
þorpa, sem fá mjólk og ýmis önn
ur nauðsynlegustu matvæli sin
frá fólkinu í sveitinni.
Kommúnistar
styðja árásaröíUn
„Friðarsinnarnir“ í kommúnisfa-
flokknum styðja allsstaðar árásar
öflin. Þeir voru feikiglaðir, þeg-
ar Indverjar hófu styrjöld gegn
Portúgölum í Góa og nú gleðjast
þeir ákaflega við tilhugsunina
um væntanlega innrás Indónesíu
manna í Nýju Guineu. 1 Suður-
Víetnam og Laos halda kommún-
istar sjálfir uppi blóðugum
skæruhernaði og fjöldamorðura.
Umboðsmenn hins alþjóðlega
kommúnisma hér á íslandi eru
svo einfaldir að þeir halda að
þeir geti talið íslenzku þjóðinnl
trú um þad að kommúnisminn sé
friðarstefna. Þeir draga fána
hlutleysis við hún og marka dúf
ur á skjöld sinn. Síðan halda
þeir að íslenzkur almenningur
þurfi ekki frekar vitnanna við
um friðarvilja þeirra!
En þetta er hinn mesti mis-
skilningur. Yfirgnæfandi meiri-
hluti íslendinga sér ailsstaðar
glitta í úlfshárin undir þeirrl
sauðargæru, sem kommúmstar
hafa breitt yfir sig,
Aðfarirnar
gagnvart Finnum
Aðfarir Rússa gagnvart Finn-
um eru ein gleggst sönnunm um
það, hvernig kommúnistar haga
sé. gagnvart smaþjóðum. Nikita
Krúsjeff hikar ekki við að hóta
Finnum hörðu, ef þeir leyfi sér
að kjósa forseta öðru vísi en Rúss
um fellur í geð. Hann lætur Kekk
onen Finnlandsforseta elta sig
austur í Síberíu til þess að gTát-
biðja sig um að krefjast ckkj að
nýju herstöðva í Finnlandi. Krú-
sjeff reynir á alla lund að hafa
áhrif á finnsk stjórnmál og hikar
jafnvel ekki við að hóta Norð-
mönnum og Dönum harðræði, ef
þeir halda áfram varnarsam-
vinnu sinni við aðrar vestræuar
lýðræðisþjóðir.