Morgunblaðið - 17.01.1962, Side 9

Morgunblaðið - 17.01.1962, Side 9
Miðvikudagur 17. jan. 1962 MORCVNBLAÐIÐ 9 Aramdtahugleiðingar úr Austur-Skagafirði EF við látum hugann reika yfir viðburði ársins 1961, verður manni á að staldra við og hug- ieiða, hvað hefir merkilegt skeð sem vert er að rifja upp. Tíðar- far er ofarlega í huga, þar sem það er snar þáttur í afkomu og iíðan fólksins. Veturinn 1960— 1961 var snjóléttur og bsendum yfirleitt hagstæður, en vorhret síðast 1 maí gerði strik í reikn- inginn þar sem þá snjóaði víða niður að sjó. Eitthvað af fé fennti hjá þeim bændum, sem þá voru búnir að sleppa í fjöll og í haust heimtist af fjalli margt af lamb- iausum ám. Víða þurfti að beita sauðfé á tún fram eftir vori. Af því leiddi að sláttur byrjaði víða mjög síðla, sérstaklega í Fljótum og dölum fram, jafnvel var sums staðar ekki byrjað fyir en uixdir mánaðamót júlí—ágúst. Hjá þeim bændum varð heyskapur líti'll og lélegur og náðu sumir ekki síðustu heyjum fyrr en í öktóber. Heir, sem fyrr byrjuðu fengu meðalheyfeng og sumt af því sæmilega verkað. Góð tíð var í haust þar til síð- ast í nóvember að gerði aftaka veður með einu mesta stórbrimi, eem menn muna. Skemmdir urðu þá miklar og fjártjón nokkurt. Mun allvíða vanta 2—10 kindur é bæ eftir þetta áfelli. Framkvæmdir Verklegar framkvæmdir voru frekar litlar, og þá aðallega úti- húsabygging. Víða er aðkallandi ©rðið að stækka eða endurbæta, því að smátt og smátt stækka menn bú sýn samhliða aukinni ræktun. Búnaðarsamband Skag- firðinga leigði út 5 jarðýtur og eina skurðgröfu. Vélar þessar eru mjög afkastamiklar en dýrt þykir sumum drottins orðið eða um og yfir 300 kr. á vinnustund og leggja bændur til allt brenni. Vegagerð Vegagerð skilar hægt áfram finnst okkur. Var aðallega unnið í Siglufjarðarvegi í Stýfluhólum ©g á Almenningum. Á leið til Haganesvíkur eir ennþá ófull- gerður kafli á hreppamörkum Fells og Haganeshrepps, en um leið og nokkur snjór kemur er þarna mjög torfært. Annars eegja Fljótamenn nú að þó alls staðar sé bilfært þá sé illfært eða ófært að fara um veginn hjá Ketilási. Sá vegur, sem nú er fullgerður á Siglufjarðarleið er kominn að Sandósi við Haganesvlk. Er ágæt- ur og reynist öruggari vetrar- vegur en jafnvel fram í héraðinu þó þar sé stórum snjóléttara. Ef nokkuð getur bjargað byggð í Fljótum er það góður vegur samfara aukinni ræktun og bú- stofni til aukinnar framleiðslu, en nú eyðist byggð í þessari sveit svo að til vandræða horfir. Varzla við veginn Góðir vegir eru vitanlega fyrsta sporið til bættrar afkomu og velmegunar fólksins hvar sem er á landinu, en þó ekki sízt í strjálbýlinu og í útsveitum. Með hverju ári eykst þörfin, enda er umferð stærri og minni farar- tækja orðin mjög mikil. í viðtali við brúarvörð við Austur-Hér- aðsvatnabrú, Þorstein Björnsson, sem er mörgum kimnur að góðu og sjálfsagt einn af samvizkusömustu starfsmönnum þessa lands, segir hann að frá maí fram í október hafi 12717 bíl- ar farið yfir brúna á móti 12235 árið 1960. Þorsteinn byrjar þarna vörzlu um sumarmál eða þegar fé fer eitthvað að ganga um, því alltaf leitar það mikið austur yf- ir og höfum við til varúðar girð- ingarhólf austan við brúna. Vakt- in er dag hvern á sumrin frá 7% til miðnættis. Um nætur þarf að athuga við hvern bíl, sem fer um hvort hliðinu sé lokað. Um helgar, þegar samkomur eru, og ævinlega þegar eitthvað er um að vera, sem eykur næturum- ferð, þarf að vakta við að hleypa bílunum í gegn. Varzlan hefir gengið vel, aldrei nein óhöpp hent, og vegfarendur allir prúð- ir og kurteisir. Skemmtanalíf 1 beinu framhaidi af umferð- inni um vegina vii ég lítillega minnast á böllin og skemmtana- lífið, sem er allmikið breytt frá því sem áður var. Bílarnir skapa þá möguleika á að fólkið ferðist til fjarlægra staða til að skemmta sér, já, fer jafnvel síður á sam- komur, sem haldnar eru í þeirra byggðarlagi. ölvun er náttúrlega mikil á þessum samkomum ali- flestum, en óspektir ékki að jafn aði mjög miklar, þó virðist vera undantekning, sem næstum er orðin venja, að á gamlaárskvöld, sjómannadaginn og á sumarmóti á Vallabökkum er svo mikil ölv- un að illkleift reynist fyrir lög- regluna að halda uppi reglu. Hef- ir jafnvel borið á að ölvaðir menn hafa gert aðsúg að lög- gæzlumönnum, sem hefir svo komið þeim illilega í koll aftur. Illt er að mér finnst að margt af aðstandendum þessara uppvöðslu manna draga þeirra taum og telja óþarfa að lögregla sé að skipta sér af brjálæði þeirra, sem hæglega gæti af hlotizt limlestun eða jafnvel verra. Sæmlleg afkoma Afkoma alls almennings hygg ég að sé sæmileg. Munu þó sjó- menn og verkafólk í Hofsósi standa betur að vígi en bændur þar sem fiskafli á Hofsósi hefir verið mjög sæmilegur og atvinna verkafólks nægileg. Frá kaup- túninu eru eingöngu gerðir út trillubátar að undanteknum ein- um dekkbáti. Fyrir ekkj meira e 300 sálna þorp munar nokkru að á annað hundrað tonn af fiski hefir verið lagt þar upp meira e 1960. Inniegg bænda mun einn- ig vera nokkuð meira þar sem á annað þúsund fjár fleira var slátrað í haust en 1960. Meðal- þungi dilka var þó lítið eitt lak- ari í haust. En yfirleitt held ég að fólkinu liði vel og neiti sér ekki um nauðsynjar. Hitt er ann- að mál að lítið má út af bera hjá öllum fjöldanum svo ekki verði erfiðleikar. Nokkuð er um fjárfestingu í vélum og jafnvel bílum en víðast aukast þá skuld- ir sem því svarar. Heilsufar í héraðinu má heita gott, hettusótt hefir þó stungið sér niður en ekki alvarleg að sögn héraðs- læknis. Alltaf eru nokkur brögð að fjárpestum, t. d. hefir gam*» veiki komið upp í Hofshreppi 4 þessu ári en fram hefir hún kom- ið undanfarin ár í Akrahreppi. Kúafaraldur er líka mjög víða sem oft kemur illa við margan bóndann þar sem oftast vilja veikjast beztu kýrnar, sem lík- legast eru viðkvæmastar. Síðastliðið vor misstum við héraðslækni okkar, Guðmund H. Þórðarson sem fluttist í Stykkishólm. í sumar var hér Lárus Helgason Ingvarssonar frá Vífilsstöðum, efnilegur ungur maður, sem nú er við framhalds- nám í Svíþjóð. 1. okt. fengum við svo annan ungan efnilegan lækni Ólaf örn Arnarson, sem ráðinn er hér í eitt ár. Ef til vill má segja að þetta hérað sé ekki með beztu héruðum, en efnalega hafa læknar komizt hér vel af og svo heppin höfum við verið að alltaf höfum við haft afbragðs lækna — ágæta menn, sem alltaf hefir verið eftirsjá að. Og nú er 1962 að byrja. öll erum við blind á það, sem fram- undan er, sem betur fer er bezt að segja. En hver er sinnar gæfu smiður, og ef við reynum öll að gera okkur bezta, reynum að vera góðir og nýtir borgarar okk- ar kæra lands þá held ég að við getum vonað hið bezta. Gott og farsælt nýjár. Vélritun Viljum ráða strax vana stúlku til vélritunar og ann- arra skritstofustarfa, enskukunnátta nauðsynleg. SÖLUMIÐSTÖÐ HRAÐFRYSTIHÚSANNA SÍMI 2-22-80. Stúlka vön afgreiðslus törfum óskast á veitingastofu hér í bæ (sjálfsafgreiðsla) Tilboð ásamt uppl. um fyrri störf og kaupkröfu sendist Mbl. fyrir 20. þ.m. merkt: „Dugleg — 7154“. Bjöm í Bæ. Volkswagen 1961 ekinn 4.500 km. til sólu. Upplýsingar í síma 10895 til kl. 13 og eftir kl. 18 í dag. Til solu Sælgætis og tóbaksverzlun. Tilboðum sé skilað fyrlr mánudaginn 21. jan. merkt: „Góður staður — 7772“. Unglinga vantar til að bera blaðið út í eftirfarandi hverfi: FJÓLUGÖTU KLEPPSVEG TJARNARGÖTU Vörugeymslur okkar eru fluttar að Suðurlandsbraut 4 Sími 38300 eftir lokun 38304 og 38305 Benediktsson f

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.