Morgunblaðið - 17.01.1962, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 17.01.1962, Qupperneq 13
Miftvikudagur 17. jan. 1962 MORGVNBLAÐIÐ 13 Húsið var rang- íega staðsett N Ý L E G A var kveðinn upp í Hæstarétti dómur í máli, er þeir Sigurður Ármann Magnús- son og Stefán Einarsson, báðir í Reykj avík, höfðuðu gegn Reykjavíkurbæ til greiðslu skaðabóta að upphæð kr. 67.- 700.00 auk vaxta, matskostnaðar og málskostnaðar. Stefndu reistu dómkröfur sín- ar á því, að við byggingu húss þeirra nr. 90 við Miklubraut hafi þau mistök orðið, að húsið reyndist ranglega staðsett, þannig að það sé 58 cm neðar en vera ber, miðað við götu- hæð. Töldu stefnendur, að mis- tök þessi væru að kenna starfs- mönnum Reykjavíkurbæjar og beri stefndi því fébótaábyrgð á tjóni því, sem þeir hafa beðið yegna mistakanna. Tjónið hafi í fyrsta lagi verið í því fólgið, að sprengja hafi þurft mikla klöpp í grunni hússins, til þess að koma því niður í þá hæð, sem mælinga- menn bæjarins hafi gefið upp. Jafnframt hafi komið í ljós, þegar langt var komið að grafa fyrir húsinu, að mjög erfitt myndi vera að fá nægan halla á skolprörum í gólfplötunni út í holræsið í götunni. Hafi því ver ið farið fram á það við bæjar- yfirvöld að fá að hækka húsið um a. m. k. 15 cm, en þeirri málaleitun hafi verið synjað. í öðru lagi töldu stefnendur, að hin ranga staðsetning húss- ins hafi haft mikinn aukakostn- að í för með sér í sambandi við frágang á lóð og girðingu um hana. Kveðast þeir hafa þurft að grafa lóðina mikið niður, til þess að ná henni niður fyrir kjallaraglugga að sunnanverðu. Lóðin sé einnig miklu lægri en göturnar í kring, hlaða hafi þurft snyddukant meðfram Stakkahlíðinni, sem sé á annan meter á hæð, og ennfremur sé mikil hætta á því að vatn Standi á lóðinni mikinn hluta vetrar, þannig að illmögulegt verði að rækta hana upp. Bentu stefnendur á, að í stórrigning- um hafi vatn flætt inn um kjall arainnganginn og jafnvel inn rnn kjallaraglugga. Loks töldu stefnendur, að hús ið hefði rýrnað allverulega í verði vegna hinnar röngu stað- setningar. Yfirmatsmenn framkvæmdu mat og virtu framangreind at- riði til peningaverðs á kr. 67,- 700.00. Reykjavíkurbær vefengdi, að umrætt hús væri of lágt stað- sett og krafðist sýknu af kröf- um stefnenda. Jafnframt hélt stefndi því fram, að jafnvel þótt mistök hefðu orðið á staðsetn- ingu hússins, þá verði starfs- mönnum bæjarins ekki um þau kennt og því bæri Reykjavíkur- bær ekki fébótaábyrgð á þeim. Húsið nr. 90 við Miklubraut var byggt í samstæðu við hús- in nr. 88 og 86 við sömu götu og með grunnfleti húsanna allra í sömu hæð. Undir rekstri máls þessa fyrir héraðsdómi var leit- að áhts sérfræðinga á staðsetn- ingu húss þessa auk þess, sem dómendur fóru sjálfir á vett- vang. Með tilliti til þess kom- ust dómarar að þeirri niður- stöðu, að sannað þætti, að hús- ið nr. 90 við Miklubraut væri 58 eða 59 cm of lágt staðsett miðað við götuhæð. Komst dóm- urinn ennfremur að þeirri nið- urstöðu, að mistök hefðu orðið af hálfu starfsmanna bæjarins um eftirlit með hæðaafsetningu hússins. Stefndi ætti því að bera fébótaábyrgð vegna þeirra mistaka. Lyktir málsins urðu því þær í héraðsdómi, að Reykjavíkur- bær var dæmdur til að greiða stefnendum kr. 63.200.00 í skaða bætur og kr. 13.200.00 í máls- kostnað, þar með talinn mats- kostnaður. Reykjavíkurbær áfrýjaði máli þessu til Hæstaréttar, en þar urðu niðurstöður á sömu leið og áfrýjandi dæmdur til að greiða kr. 12.000.00 í málskostn- að fyrir Hæstarétti. Hafnarfjitrður Til sölu íbúðir. 1 inbýlishús við Selvpgsgötu. 4ra herb. ný hæð við Álfa- skeið. 3ja herb. kjallaraíbúð við Tjarnarbraut. 3ja herb. einbýlishús við Norð urbraut. Útb. kr. 50 þús. Hef kaupanda að 3ja til 4ra herb. íbúð. Útb. kr. 100 þús. Árni Grétar Finnsson, lögfr. Strandagötu 25, Hafnarfirði. Sími 50771. Viðtalstími kl. 5—7 síðdegis. Dodge-Weapon Nýkomið transkt ullargarn margar tegundir og litir. Skrifstofuhiisnæði 1—2. herb., 20—30 fermetrar samlals, óskast strax í Austur bænum. Tilboð með ölliun uppl. sendist Mbl. fyrir viku- lok, merkt: „7782“. íbúð til sölu Þriggja herbergja íbúðir til sölu. íbúðirnar seljast til- búnar undir tréverk og af- hendast í júní-júM. Upplýs- ir.gar k3. 8—10 á kvöldin í sima 36070. Góður Dodge Weapon af nýrri gerðinni óskast til kaups. — Upplýsingax í síma 17990 eftir kl. 6. Úfgerðarmenn Skipasmíðastöðin NÖKKVI, Arnarvogi Garðahreppi tekur að sér smiði á öllum stærðum fiskiskipa. Erum að hefja smíði á 30 smálesta fiskibát. Allar upplysingar í simum 15753 og 35286. 2 herb. og eldhus óskast strax. Upplýsingar í síma 19111. Vil kaupa verzlunarhúsnæði a góðum stað, hentugt fyrir kvöld verzlun. Góð útborgun. Tilboð sendist Mbl. merkt: „7771“. á gluggatjaldaefnum í dag og á morgun. Gluggar hf. Hafnarstræti 1. Caboon nýkomið. 16—19—22 mm 4x8‘. Kristjára Siggeirsson hf. Laugavegi 13 — Sími 13879. manna bíll! Hann er 6dýr f rekstrl og með loftkældri vél. Hann hedt- ir sjálfstæða fjöðrun á hverju hjóii og lætur vel að stjórn við erfið skilyrði. Volkswag- en-útlitið er alltaf eins og varahlutaþjónustan góð og 6- dýr og þvi era endursölu- möguleikar betri. — VKRÐ FRÁ KR. 1» ÞÚSUND. ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN Heildverzlunin H E K L A hf, Hverfisgötu 103 Sími 11375. (Teiknari: Árni G-) Tilboð óskast í Skipsflaldð M.s. Sæfara G.K. 224, þar sem það er í skipasmíðastöð Daniels Þorsteinssonar & Co. h.f., Reykjavík og selzt skipsflakið í núverandi ástandi. Tilboðum sé skilað fyrir hádegi á finimtudag 18. þ.m. Vélbátaábyrgðafélagið Grótta Báfur til sölu Bátur 8^ tonn með 48 ha. lister dieselvél og Atlas dýptarmæli til sölu strax. Báturinn er tilbúinn á vertíð. Linu- og netjaveiðarfæri geta fylgt. Upplýsingar gefur JL.ÁUUS JÓNSSON Ólafsfirði. Sími 4. Ferðafélag íslands heldur kvöldvöku í Sjálfstæðis húsinu fimmtudaginn 18. janúar 1962. Húsið opnað kl. 8. * i< Fundarefni: 1. Sýnd verður litkvikmynd af íslenzku fuglalífi tekin af dr. O. S. Pettingill, dr. Finnur Guðmundsson skýrir myndina. 2. Myndagetraun, verðlaun veitt. 3. Dans til kl. 24.00. * i< Aðgöngumiðar seldir { Bóka- verzlunum Sigfúsar Eymunds- sonar og ísafoldar. Verð kr. 35.00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.