Morgunblaðið - 25.03.1962, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.03.1962, Blaðsíða 8
8 MORGUNBJ 4ÐI» Sunnudagur 25. marz 1962 Prófessor Sigurður Nordal: Stofnun Jdns Sigurðssonar AL.L.AR horfur eru á >ví, að á þessum áruim sé ýmislegt að ger- ast í senn, sem um langan aldur verði talið marka tímamót í ástundun þjóðiegra fræða á ís- landi. Má þar fyrst nefna Vís- indasjóð, sc-m smám saman er að íá meiri fjárráð með tillaginu frá Seðlabankanum og mun geta Mynnt drjúgum að þessum fræð- um, þótt hann hafi í mörg horn að líta. Þá má telja, að nú sé iryggS endurfheimt isienzkra handrita frá Danmöriku, sem vel mlá við una, og mun heimflutn- ingur þeirra verða einn af stór- viðburðum í þjóðarsögunni. Á 50 ára afmæli Háskóla íslands tilkynnti núverandi menntamála- ráðherra fyrirætlun ríkissjórn- arinnar um að koma upp sér- sialkri stofnun til þess að annast útgáfustarfsemi og rannsóknir á sviði íslenzkrar tungu, sögu og menningar, og er frumvarp urn þá stöfnun nú á leiðinni gegnum þingið. Loks hefur ríkisstjórnin nú hafizt handa um undirbúning þess að reisa nýtt bókasafnshús, sem er liið mesta nauðsynjamál. Og ekki er minnst um það vert, að um allt þetta virðist nú meiri samlhugur en flest önnur mál, sem á dagskrá eru. í samanburði við þessar að- gerðir mun mörgum finnasf, að sá ágreiningur, sem er uim nafn áður nefndrar útgáfu- og rann- sóknarstofnunar, skipti ekki milklu máli. Þess er þó að gæta, að þar sem t. a. m. fjárveitingar til hennar má alltaf auka og ýmsu í skipulagi hennar breyta, þá mun hún áfram bera það nafn, sem hún hlýtur nú í upp- hafi. Það nafn mun ósjálfrátt ráða nökkru um stefnumark hennar og starfsemi, virðingu hennar og. vinsældir. Eins og kunnugt er af þing- fréttum, hefur stofnun þessi í frumvarpi ríkisstjórnarinnar ver- ið nefnd Handritastofnun íslands, og var það nafn upphaflega ein af uppástungum heimspekideild- ar til bráðabirgða. Síðan hafa bæði stjórn Félags islenzkra fræða og heimspekideild mælt eindregið með öðru því nafni, sem þegar áður hafði komið til greina: Stofnun Jóns Sigurðsson- ar. Óhætt er að fuUyrða, að þetta nafn hefur eignazt því meiri ítök í yfirgnæfandi meiri hluta þeirra, er íslenzk fræði stunda, sem þeir hafa rætt það og hugs- að betur, — Og ekki sízt hinum yngri mönnum. í bréfi því, sem stjórn Félags íslenzkra fræða hefur sent menntamálanefnd neðri deildar Og síðan öllum þingmönnum, eru færð. fleiri rök fyrir þessu nafni en hér er rúm eða ástæða til þess að telja. En lauslega skal minnt á þessi atriði: 1) Þessari stófnun er ætlað miklu víðtækara starfsvið en nafnið Handritastofnun mundi gefa til kynna. Þetta sést m. a. af því, að þjóðminjavörður er einn þeirra manna, sem sjálf- kjörnir eru í stjórn hennar. Það mun líka einsætt, að svo mikil þörf sem er á nýjum útgáfum og rannsóknum handrita, þá eru ýmsar aðrar rannsóknir ís- lenzkrar sögu, menningar og tungu ekki síður aðkallandi. 2) Eins og kunnugt er, verður það skilyrði af hálfu þjóðþings Danmerkur, er handritunum verð ur skilað, að hér verði komið á V ornámskeiÖin hefjast mánudaginn 9. apríl og standa yfir til 30. maí. Kennt verður þrisvar í viku, og verða 20 kennslustuniir í hverju námskeiði. Lögð verður áherzla á þá þætti tungumálanna, sem koma að mestu gagni við utanferðir. Enska, danska, þýzka, spænska, ítalska, franska, rússneska, íslenzka fyrir útlendinga. Innritun alla þessa viku kl. 6—9 síðdegis. Málaskólinn Mímír Hafnarstræti 15 (sími 22865). m. Jón Sigurðsson. fót „Stofnun Árna Magnússonar •á íslandi" (iþví að annar hluti þeirrar stofnunar verður áfram í Höfn). Það ér líka óhjákvæmilegt, að handritin frá Danmörku verði látin vera sérstakt safn óg halda sínum gömlu númerum, sem áð- ur hefur verið vitnað til, hvort sem þau eru úr Árnasafni eða Konungsbókhlöðu. Þessu skilyrði er ekki fullnægt með nafninu Handritastofnun. Annaðhvort verður að kenna stofnunina alla við Áma Magnússon, sem flest- um mundi þykja ofrausn, eða hafa nöfnin tvö, og mundi þá ekki illa fara á því, að Íslending- ar notuðu tækifærið til þess að sýna nafni Jóns Sigurðssonar sömu ræktarsemi sem Danir nafni Árna Magnússonar. „Sýn- ist stjórn Félags íslenzkra fræða fara vel á þeirri verkaskiptingu, að þau útgáfu- og fræðistörf, er sérstaklega varða handrit Árna- safns, verði á vegum þeirrar deildar stofnunarinnar, er ber nafn Á. M., en önnur útgáfustörf verði á vegum Stofnunar Jóns Sigurðssonar. Með því móti yrði á veglegan hátt minnzt þeirra tveggja manna, sem íslenzk fræði standa í hvað mestri þakkarskuld við.“ 3) Það verður að telja ómet- anlegan styrk fyrir þessa stofn- un, bæði út á við og inm á við, að vera kennd við þann mamn, sem var bæði ástsælasti leiðtogi þjóðarinnar og brautfyðjandi um visindaleg vinnubrögð í íslenzk- um fræðum. Með því mundi ís- lenzka lýðveldið minnast 150 ára afmælis Jóns Sigurðssonar á þamn hátt, sem því væri sam- boðið, — eins og íslendingar und- ir heimastjórn minntust aldar- afmælis hams með stofnun Há- skóla íslands. Mig langar að lokum í sam- bandi við þetta mál að benda á eina ógreidda skuld við minn- ingu Jóns Sigurðssonar, sem fá- ir virðast muna eftir. Það var síðasta verk Ingibjargar Einars- dóttur, samkvæmt því sem hún vissi um vilja Jóns sjálfs, að stofna sjóð af þeim eignum þeirra hjóna, sem hún þóttist mega ráða yfir. Þessi sjóður, Gjöf Jóns Sigurðssonar, var talsvert fé á þeim tíma, 8500 krónur, — og það voru dýrar krónur, því að þetta var þriðj- ungur þess fjár, sem ísland hafði greitt fyrir hið ómetan- lega bóka- og handritasafn Jóns. Hvað mundum við í okkar krónum virða einungis eitt þess- ara handrita: Passíusálmahand- rit Hallgríms Péturssonar? En i nútímapeningum er gjöf Jóns Sigurðssonar orðin svo vesöl, að þau rausnarhjón mundu hafa roðnað yfir því að gefa Is- landi aðra eins smámuni, og þingmenn mega, hvert sinn sem þeir kjósa í stjórn þessa sjóðs, blygðast sín fyrir ráðsmennsku þjóðarinnar á honum. Það væri að vísu hugsanlegt að reyna að lappa upp á sjóðinn með sér- stakri fjárveitingu. En hér er annað og betra tækifæri til yfirbóta — og óvís.t, hvenær slíkt tækifæri kemur aftur: Endurreisum Gjöf Jóns Sigurðs- sonar sem Stofnun Jóns Sigurðs- sonar og búum svo að henni, að samboðið sé höfðingslund þeirra hjóna. Og trúum því og treyst- um, að gifta muni fylgja því nafnL Sigurður Nordal. Fatlaðir á Siglufirði framleiða vettlinga SIGLUFIRÐI, 20. marz. — Vinnuvettlingagerð hefur tekið til starfa á vegum Siglufjarðar- deildar Sjálfsbjargar, félags fatl- aðra og lamaðra, en það var fyrsta deildin úti á landi sem stofnuð var. í fyrra keypti félagskapurinn neðri hæð hú^eignarinnar Tún- götu 11. Hefur hæðinni verið breytt og gerð þar vinnustofa og keyptar fullkomnar vélar til að framleiða vinnuvettlinga. — Hugsar félagið sér að framleiða fyrst um sinn fyrir siglfirzkan markað. En að sjálfsögðu er seinna meir ætlunin að reyna Vantar vana aðgerðarmenn og flakara Sænsk-íslenzka frystitiúsið h-f. ÞVOTTADUFT ÓDÝRASTA PLASTPOKA ÞVOTTADUFTIÐ að vinna markað víðar. Og ef þetta gengur vel, að auka fjöl- breyttni framleiðslunnar. Hefur félagið fengið lán hjá Trygg- ingarstofnun ríkisins til þessarar starfsemi og 10 þús. kr. fjár- veitingu á ári í styrk frá Siglu- fjarðarbæ. Fatlað fólk situr fyrir um vinnu í vinnuvettlingagerðinnL Þar starfa nú 5 stúlkur. Verk- stjóri er Guðný Stefánsdóttir, en umsjónarmaður saumastof- unnar er Guðmundur Jónasson. Félag Sjálfsbjargar á Siglufirði er fjölmennur félagsskapur, sem hefur farið vel af stað og virð- ist starfsemi hans ætla að gefa góða raun. Formaður er Eggert Theodórsson. — Stefán. Kaup — Sala Schamongs minnisvarðar Biðjið um ókeypis verðskrá, 0. Farimagsgade 42, Kþbenhavn 0. I X. O. G. V. Stúkan Víkingur nr. 104. Fundur mánudag kl. 8,30 1 GT-ihúsinu. i Venjuleg fundarstörf. Sigurður Guðmundsson segir frá ferð sinni um Bandaríkin. Mætið vel. Stúkan Verðandi nr 9. Fundur þriðjudag kl. 8,30. Venjuleg fundarstörf. Bögglakvöld Systrasjóðsins. Félagar fjölmennið Æðstitemplar. Svava nr. 23. Fundur í dag. Margt til skemmtunar, svo sem: Danssýning, söngur og dana- að eftir fund. Gæzlumenn. Stúkan Framtíðin nr. 173. Fundur mánudag kl. 8,30. Kosning emibættismanna. Hagnefndaratriði. Góð fundarsókn er Góðtempl- urum til sóma. ÆT. Félagslíl Valur 2. og 3. flokkur. Knattspyrnuæfingin verður kl, 5 í dag (ekki kl. 2). íyálfarar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.