Morgunblaðið - 25.03.1962, Blaðsíða 10
10
TSBEBM
MORGVNBLAÐIB
Sunnudagur 25. marz 1961
MW
*
Oveðurshrollur í frönskum
stjórnmálum
i
PARÍS, 21. marz. — Hinn
opinberi' endir sjö ára
stríðsins í Alsír varð ó-
hjákvæmilega nokkuð lág
kúrulegur og allir stögluð-
ust á: „Vopnahlé er ekki
friður.“ Þótt rórra yrði í
fyrstunni spáði það stormi
en ekki góðviðri. Fyrstu
þórdunumar heyrðust fljót
lega — sprengjuvörpuárás
ir OAS í Alsír og alvaileg
vopnaviðskipti í vestur-
hluta landsins.
Agi FjLN hefur hjálpað til
að stemma stigu við skaðan-
um, en Frakkar líta til fram-
tíðarinnar fremur með. ugg
en létti. Hér fögnuðu engir
vopnahléinu og umræður
þingsins um samninga Frakka
og FLN byrjuðu heldur dap-
urlega. M. Michel Debré, for-
sætisráðherra, hélt hálfrar
stundar ræðu í hálfhryggum
tón og sagði, að á næstu
stundum yrði gert út um,
hvort vopnahléssamningamir
næðu árangri. Meðan á ræð-
imni stóð var lítið um fagn-
aðarhróp, og enginn greip
fram í. Umræðumar urðu
heitari síðar, þegar þingfull-
trúar hægri flokkanna, sem
vitað er að hafa samúð með
OAS, fordæmdu samningana
sem föðurlandssvik. En stuðn
ingsmenn vopnahlésins virt-
ust hafa hægt um sig.
Margir þingmenn, sem
kosnir höfðu verið vegna
stuðnings við „franskt Alsír“,
sátu vandræöalegir undir á-
rásum hinna róttæku hægri
sinna. Aðrir voru ekki ánægð
ir með kröfu de Gaulles,
hershöfðingja, um að fáfrjáls
ar hendur til að þvinga fram
hlýðni við vopnahléssamning
ana.
1 kosningunum 8. apríl
verða landsmenn beðnir um
að:
1) Samþykkja fransk-alsírsku
samningana.
2) Styðja stjómina til að
koma á náinni samvinnu
milli Frakklands og sjálf-
stæðs Alsírs.
3) Gefa forsetanum vald til
að grípa til hverraþeirra
ráðstafana, sem hann álít-
ur nauðsynlegar, til að
framfylgja samningunum,
jafnvel án þess að leita
álits þjóðþingsins.
Þetta mun gefa de Gaulle
hershöfðingja' einræðisvald
og um leið gera honum fært
að leysa upp þingið og hafa
nýjar kosningar ,ef hann ósk-
ar þess. Eigi að síður er ljóst,
að landsmenn munu játa
þessu öllu með miklum meiri
hluta.
Stjórnarandstöðumenn berj-
ast ekki með atkvæðum held
ur ofbeldi og bloðsuthelling-
ingum og hóta að eyðileggja
hið veikbyggða vopnahlé og
steypa bæði Alsír og Frakk-
landi í ringulreið. Allt veltur
á, að OAS, sem er grá fyr-
ir jámum, verði eyðilögð
sem fyrst. Ben Khedda, for-
sætisráðherra þjóðernissinn-
anna, sagði í útvarpsræðu, að
samvinnan við OAS innan
frönsku stjómarinnar og hers
ins yrði að hætta. Hann
sagði, að þjóðin í Alsír yrði
að líta á landið sem það væri
í hemaðarástandi, unz búið
væri að lýsa yfir sjálfstæði.
Áframhaldandi ofbeldisað-
gerðir af hálfu OAS gætu ef
til vill eyðilagt stjóm þá sem
FLN hefur á Serkjunum og
valda alvarlegum kynþátta-
óeirðum, en í þeim mundi
franski herinn draga taum
Evrópxunanna af hreinni eðl-
ishvöt.
Frönsku og alsírsku samn-
ingamennimir gátu ekki úti-
lokað þessa hættu, þrátt fyr-
ir langar og harðdrægar
samningaviðræður.
1 aðalatriðum gera samn-
ingamir ráð fyrir þriggja til
sex mánaða tímabili til að
koma á friði, og síðan þrem
árum til viðbótar til að lag-
ast að breyttum aðstæðum,
en á þeim eiga þessi lönd
að hafa tækifæri til að leggja
grundvöll að langvarandi sam
vinnu.
Alsír verður undir franskri
stjóm, þangað til þjóðarat-
kvæði um sjálfstæðið er lok-
ið. Völd frönslcu stjómarinn-
ar verða að nokkru leytifeng
in tólf manna bráðabirgða-
stjórnamefnd, sem bæði Ev-
rópumenn og Serkir eiga sæti
í undir forsæti M. Abderrah
mane Farés, alsírsks lögfræð-
ings, sem látinn var laus úr
frönsku fangelsi nú í vik-
unni. Stjórnarnefndin mun
hafa sömu völd og stjóm
fullvalda ríkis og bera á-
byrgð á innanríkismálum. —
Aðalverkefni hennar verður
að undirbúa þjóðaratkvæða-
greiðsluna.
Utanríkismál, varnarmál og
önnur víðtæk völd verða í
höndum franska landstjór-
ans, M. Christian Fouchet,
gamalkunns gaullista, sem
hefur gegnt mikilvægu hlut-
verki í póitískri skipulagn-
ingu Efnahagsbandalags Ev-
■MSIWISwtovwíww
ví , c (y
„Fyrir börnin okkar, friffur í Alsír“ stendur á áróffurs-
spjaldi frönsku stjórnarinnar, sem límt er upp um allt
Frakkland og Alsír.
Frakkar búast við að þessi
reynslutími endi með vin-
áttu, því þeir álíta að Alsír
hafi hagnað af áfr-mhald-
andi samvinnu. De (___tal
aði um að „þarfir Serkja
væni miklar og framfara-
löngun þeirra enn meiri“. En
svo kynlega vill nú til, að
þessar þarfir og langanir
gætu leitt til þess, að þeir
segðu algerlega skilið -við
Frakka.
Hin mikla framtíðarspum-
ing er, hvort sú efnahags-
og þjóðfélagsleg bylting, sem
serknesku þjóðemissinnana
dreymir um, verður samrým
anleg áframhaldandi sam-
bandi við Frakka.
Alsír þjáist af stöðugu at-
vinnuleysi, sem er enn verra
vegna eins hæsta fæðinga-
hlutfalls í heiminum, sem
verður til þess að þjóðin mim
tvöfaldast á næstu 25 árum.
Bylting er ekki aðeins róman
tískur draumur, heldur blá-
köld nauðsyn. Það mun
krefjast geysilegra fórna að
lyfta Alsír úr fátækt til vel-
megunar. Og það er undra-
vert, ef Serkir eiga ekki eftir
að öfundast yfir áframhald-
andi velmegun evrópska þjóð
arbrotsins, sem á við miklu
betri lífskjör en þeir að búa,
á komandi árum.
Foringjar Alsír eiga eftir
að standa andspænis tveim
andstæðum áhrifum, þörfinni
á að Frakkar haldi áfram að
styðja landið efnahagslega og
kröfum almennings um skjót
ar, róttækar breytingar. Hvað
verður til dæmis um hina
miklu víngarða Alsír? Land-
ið getur ekki brauðfætt sig,
Múhameðstrúarmenn drekka
ekki vín. Eðlilegt. myndi
virðast að rifa upp vínvið-
inn og sá hveiti, ef ekki væri
vegna þess að vín og olía
eru til saman 75% af út-
flutningi Alsir.
rópu, meðan hann var sendi-
ráðherra í Danmörku.
Bæði stjómamefndin og
landstjórinn eiga að ber á-
byrgð á að halda uppi lög-
um og reglu, og einn veik-
leiki samningsins, eins og
hann hefur verið gefinn út
er, að ekki er ljóst hvemig
ábyrgðin skiptist. Landstjór-
inn mun verða æðsti yfirmað
ur öryggissveita undir stjóm
franskra liðsforingja, sem í
verða milli 40 og 60 þúsund
manns, sem ætlað er að skuli
halda uppi lögum og reglu
framan af. Landstjórinn mun
leggja til franskar hersveitir
ef öryggislögreglan á ein-
hverjum stað á við ofurefli
að etja. í rauninni er franski
herinn þegar reiðubúinn á
þeim tveim stöðum, þar sem
líklegast er að óeirðir brjót-
ist út, Algeirsborg og Oran.
Stjómarnefndin og hinar
staðbundnu # öryggissveitir
hennar eru enn ekki til. —
Þessar sveitir verða hvort
sem er ekki nógu fjölmenn-
ar til að hafa allt Alsír á
valdi sínu. Hver úrslitin
verða, ef hörð átök verða við
OAS, er undir franska hern-
um og dugnaði FLN við að
koma í veg fyrir ótímabær-
ar æsingar serknesks múgs
komin.
Ef ekki tekst að eyðileggja
samningana á þeim hættu-
legu mánuðum sem framund-
an eru, munu þeir viðhalda
flestum böndum milli Alsír
og Frakklands næstu þrjú
ár. Evrópsku landnemarnir
Eftir
William
IUÍIIinship
halda sínum franska borgara
rétti, en fá borgararétt í Al-
sír, þar á meðal skal þeim
tryggð hlutdeild í stjórn
landsins. Eignir þeirra eru
verndaðar og verði þær gerð
ar upptækar, skulu þeir fá
skaðabætur. Eftir þrjú ái
geta Evrópumennimir fengið
alsírskan borgararétt (án þess
að hætta að vera franskir)
eða haldið áfram að vera í
Alsír með forréttindi yfir
aðra útlendinga.
Frakkar munu minnka her
styrk sinn í AlSír úr 420
þúsundum í 80 þúsund innan
árs eftir að Alsír hlýtur
sjálfstæði en fá tvö ár í við-
bót til að ljúka við að flytja
her sinn úr landi. Og jafnvel
þá verða franskir hermenn
eftir við nokkra flugvelli og
hinni stóru flug- og flota-
stöð Mers el Kebir, inunu
Frakkar halda í 15 ár. En
ekki er ljóst af samningun-
um, hvort Frakkar hafa rétt
til að halda áfram tilraun-
um með kjarnorkuvopn í
Sahara.
Þessi tvö lönd munu vinna
saman að nýtingu olíu- og
gaslindanna í eyðimörkinni
og gefa framleiðsluvörum
hvort annars forréttindi. —
Serkir halda áfram að fara
óhindrað til Frakklands til
náms og vinnu. Frakkland
sér hinu unga riki fyrir
tækni-, menningar- og efna-
hagsaðstoð, á sama hátt og
nú, í þrjú ár.
Slík vandamál verða nógu
erfið, þótt ekki sé bætt við
því hatri, sem OAS stofnar
nú til. Það verður rúm fyr-
ir marga Evrópumenn í sjálf
stæðu Alsír, en aðeins ef þeir
sætta sig við að missa póli-
tísk forréttindi sín og taka
þátt í að byggja upp nýtt
land. Enn sjást engin merki
um að „lögmál friðarins"
leiði af sér hina nauðsynlegu
afstöðubreytingu.
Áróðursspjald frönsku
stjórnarinnar fyrir friði ÍAI-
' sír, mynd af evrópskum
dreng með handlegginn utan
um brosandi serkneskt barn,
táknar ekki meira en von.
(OFNS — öll réttindi áskilin)
^1%
N auðungaruppboð
verður haldið eftir kröfu tollstjórans í Reykjavlk
o. fl. í Vörugeymslu Skipaútgerðar ríkisins á Ing«
ólfsgarði, hér í bænum (Kveldúlfsskála) miðviku-
daginn 28. marz n.k. kl. 1,30 e.h.
Seldar verða 100 rafmagnseldavélar.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetinn i Reykjavík.
I
Friður og vinatta milli Frakka
ogSerkja er enn aðeins von