Morgunblaðið - 05.04.1962, Blaðsíða 10
10
MORGVNBLAÐIB
Fimmtudagur 5. apríl 1962
|H. C. Branner
i heiðurslistamaður
DANSKI rithöfundurinn H.
C. Branner, hefur um langt
skeið verið í hópi þekktustu
rithöfunda Norðurlanda. Nú
fyrir nokkrum dögum var
hann kjörinn heiðurslistamað
ur Stúdentafélagsins danska,
við hátíðlega athöfn, og
krýndur lárviðarsveig í því
tilefni. Aðalræðuna við þetta
tækifæri hélt norski rithöf-
undurinn Johan Borgen, en
sjálfur ræddi Branner nokk-
uð um rithöfundaferil sinn.
„Ég hef oft óskaS þess“,
sagði Branner, „að ég væri
af þeirri kynslóð rithöfunda,
sem fyrsta heimsstyrj öldin
varð nokkur fjötur um fót,
svo að þeir hrösuðu í upp-
hafi. Nú er hins vegar of
hættulegt að hrasa.
f>egar ég var banginn og
þimglyndur, varð ég að segja
við sjálfan mig, að það væri
of seint að hræðast. Menn
verða að halda ótrauðir af
stað, þótt lárviðarsveigar sé
ekki að vænta.“
Branner skýrði frá því, við
þetta tækifæri, að leikhúsið
hefði verið sín óhamingju-
sama ást. Allt frá því á náms
árunum hefði sig dreymt um
að verða leikari.
„Það voru ekki hæfileik-
arnir sem ráku mig áfram,
heldur hinn venjulegi draum
ur unga mánnsins um að öðl-
ast frægð. Uppskeran varð í
samræmi við það, er ég
reyndi að láta drauminn ræt-
ast. Ég lagði upp sem nem-
andi, og það var hlegið að
mér í öllum dönskum sveita-
þorpum“.
Síðan vék rithöfundurinn
að því, hvers vegna leikhúsið
væri nú svo stór þáttur í lífi
manna.
^ „Það er vegna þess, að nú-
tímamaðurinn býr við erfiðar
aðstæður. Hann á í svo mik-
illi baráttu við samvizku
sína, að óbærilegt er.
Það er hlutverk skáldskap-
arins, ekki sízt leikritanna,
að draga fram það sem bælt
hefur verið niður, og gera
hið ómeðvitaða meðvitað. Öll
raunveruleg leiklist er raun-
veruleiki, í samþjöppuðu
H. C. Branner, er hann var krýndur lárviðasveig danska
stúdentafélagsins.
formi. Það er leikhúsið, sem
sýnir okkur hver við erum,
hvað við erum og hvernig
við erum.
Dómsdagur og hræðslan við
endalokin eru gamlar hug-
myndir, sem fylgt hafa
manninum frá þeim tíma, er
sögusögnin um syndaflóðið
varð til. í dag er þessi
hræðsla áþreifanleg, og mjög
hættuleg.
Þessar hugmyndir gera
endalokin að nýrri mynd í
augum okkar, en duga ekki
til þess að afstýra þeim. Að-
eins hluti af sjálfum okkur
verður okkur ljós. Þær fela
í sér flóttann frá raunveru-
leikanum, en flóttinn er ó-
mögulegur."
Um sinn eigin skáldskap,
sagði Branner, að hann áliti
það þýðingarmikið að skilja
eftir fastar hugmyndir handa
komandi kynslóðum.
„Skáldskapurinn, sem frá
manni fer, breytist nógu
snemma í bundnar bækur á
hillunni“
Norska skáldið Johan Borg
en, gat þess í ræðu sinni, hve
leikrit Branners, „Systkini"
hefði hlotið góðar viðtökur
í Noregi að undanfömu. —
Þjóðleikhúsið norska hefur
sýnt það víða um Noreg, og
við svo góðar undirtektir, að
lengja varð áætlaðan sýning-
artíma. Hann minntist þess,
hve vel bækur hans hefðu
selzt, og kvað það þeim mun
eftirtektarverðara, þar sem
Branner hefði aldrei neytt
bragða til að auka lesenda-
hóp sinn.
„Hver er þá leyndardóm-
urinn um þennan ljóðræna
leikritahöfund og rithöfund?“
spyr Borgen.
„Það er sama, hvaða verk-
efni Branner velur sér, og
hverjar persónurnar eru, bar
áttan stendur alltaf milli
hinna vondu og góðu afla.
Hann leitar djúpt eftir sál-
fræðilegum skýringum, en
lyftir með stílbrigðum sínum
frásögninni á ljóðræn svið,
og glímir ætíð við þau öfl
sem valdið hafa óróleika
mannssálarinnar frá upp-
hafi.“
Branner er mörgum Is-
lendingum kunnur fyrir rit-
störf sín. Hann kom hingað
til lands fyrir nokkrum ár-
um, og flutti þá fyrirlestur
við Háskóla Islands.
TIL SÖLU
Eignarlóð við
Laugaveg
Lóðin er 558 m (19.1 m. meðfram götu). Á lóðinni
er snyrtilegt, tvílyft timburhús, sem auðvelt er að
flytja.
TKYGGINGAR & FASTEIGNIR
Austurstræti 10 5. hæð sími 13428.
TRÚLOFUNAR
ULRICH FALKNER
AMTMANNSSTÍG 2
HNÚTALAUSAR SÍLDARNÆTUR
O. NILSSEN & SÖN A.S., sem eru stærstu framleið-
endur veiðarfæra i Noregi bjóða yður hnútalausar
síldarnætur. Tvö hundruð norskir síldveiðibátar nota
nú hnútalausar nætur. Hnútalausar nætur eru
ódýrari, sterkari og auðveldari í allri notkun, jafn-
fram því, sem þær verða seinna fyrir sliti eru
hnýttar nætur.
Fulltrúi O. Nilssen & Sön hr. Svein Brekke er nú
staddur hjá umboðinu O . JOHNSON & KAABER HF.
Hann gefur allar frekari upplýsingar og kynnir
sýnishorn og verð.
O.NILS5EN&S0N Ys
BERGEN
0. Johnson & Kaaber hf.
Sími 24000.
Afgreiðslustúlka
Stúlka vön afgreiðslu í vefnaðar eða snyrtivöru-
verzlun óskast nú þegar allan daginn.
Upplýsingar (ekki i síma) í dag kl. 5—6,30.
ASalbúðin
Lækjartorgi.
Umsóknir til
heilbrigðisnefndar
Athygli er vakin á því, að samkvæmt ákvæðum Heil_
brigðissamþykktar Reykjavíkur þarf löggildingu heil-
brigðisnefndar á húsakynnum, sem ætluð eru til:
Tilbunings, geymslu og dreifingu á matvælum og
og öðrum neyzluvörum.
Matsölu, veitinga- og gistihúsastarfsemi.
Skólahalds.
Reksturs barnaheimila, ennfremur sjúkrahúsa og
annarra heilbrigðisstofnana.
Reksiturs rakara-, hárgreiðslu- og hvers konar
snyrtistofa.
Iðju- og iðnaðar.
Umsóknir skulu sendar heilbrigðisnefnd áður en
starfrækslan hefst, og er til þess rnælst, að hlutaðeig.
endur hafi þegar i upphafi samráð við skrifstofu borgar-
læknis um unöirbúning og tilhögun starfseminnar um
allt, er varðar hreinlæti og hollustuhætti Óheimilt er að
hefja starfsemina fyrr er. leyfi heilbrigðisnefndar er
fengið.
Úmsóknir skulu ritaðai á þar til gerð eyðublöð, er fást
í skrifstofu borgarlæknis.
Ennfremur skal bent á, að leyfi til ofangreindrar starf-
semi er bundið víð nafn þess aðila, er leyfið fær. Þurfa
því nýir eigendur að fá endumýjuð eldri leyfi, sem veitt
kunna að hafa verið til starfseminnar.
Þess má vænta að rekstur þeirra fyrirtækja, sem eigi
er leyfi fyrir samkvæmt framanrituðu, verði stöðvaður.
Reykjavík, 3. apríl 1962.
HEILBRIGÐISNEFND REYKJAVÍKUR.
öfe£?S)í=aS)í=PISí))5=SS>®. JS»=9S'>s=21Ss=2S>!^JS>'=2'Sí=£'S>5£2S>=á'Sí5£'S:'=2>S!s=2JS>ss2í&>S