Morgunblaðið - 05.04.1962, Blaðsíða 22
22
MORGVNBLÁÐIÐ
Fimmtudagur 5. apríl 1962
Þátttakendur í 100 m fjórsundi einstaklinga. Fjórsund er erfiðasta samdgrein, sem keppt er í og
ekki á færi nema frábærra sundmanna að vinna afrek í þeirri grein. (Ljósm.: Sv. í>.)
Þeir sem höfðu bikarana
fengu þá aftur
Ovænt keppni i 100 m skridsundi kvenna
ERLENDU sundmennirnir, sem
Ármann hafði boðið hingað til
lands brugðust félaginu og
simdmót félagsins bar nokkur
merki þess. Það var ekki um
keppni að ræða nema í ein-
töku grein, og fyrirfram hefði
mátt geta sér til um úrslit í
flestum þeirra. Þetta er ekki
sök Ármenninga, en sýnir enn
augljóslega hversu fátæk okkar
sundhreyfing er. ÖII verkefnin
sem hafa verið sköpuð sund-
fólkinu, er framtak einstakra
félaga. Sundsambandið virðist
alveg dautt fyrir slíku og er
það illa farið.
h• Beztu afrekin
Sundfólk ÍR, Guðmundur
Gíslason, Hörður Finnsson og
Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
unnu sínar greinar örugglega
og unnu þrjú beztu afrek móts-
ins. — Guðmundur það bezta í
100 m skriðsundi, sem gaf 878
stig og hlaut afreksbikar fyrir,
Hörður átti það naestbezta í 200
m bringusundi, sem gaf 820 st.
og Hrafnhildur í bringusundi,
sem gaf 809 stig.
Óvænt keppni
í ýmsum öðrum greinum
urðu úrslit tvisýn og ber þar
fyrst að nefna 100 m skriðsund
kvenna. Margrét Óskarsdóttir,
ung stúlka frá Vestra á ísafirði,
sem stundar nám í Reykjavík
og hefur keppt á undanförnum
mótum, kom mjög á óvart. —
Veitti hún Hrafnhildi keppni
þar til á síðustu metrum að
Hrafnhildur vann nokkuð örugg
an sigur. En afrek Maagrétar
er fordæmi öðrum stúlkum og
piltum. „Stjömurnar" eru ekki
yfimáttúrlegar verur, ef vel er
æft er hægt að nálgast þær og
jafnvel sigra. Margrét náði sín-
um bezta tíma og verður gam-
an að sjá hvort Hrafnhildur fær
ekki meiri og betri keppni á
næstu mótum en verið hefur.
★ Of hægt byrjað
Bringusund karla var steypt
í mót sams konar keppni og þeg
ar ekki em erl. sundmenn. —
Hörður og Ámi syntu samsíða
þar til síðustu 50 metrana. Þá
tók Hörður forskot og þó eink-
um á síðustu metrum. Hörður
féll þarna aftur í sinn gamla
farveg, að þora ekki að byrja
sundið á fullri ferð. Ef hann
* Enska knattspyrnan ■>
UNDANURSLIT ensku bikarkeppn-
innar fóru fram 5.1. laugardag og urðu
úrslit þessi:
FuXham — Burnley 1:1
Tottenham — Manchester U. 3:1
Úrslit leikja í deildarkeppninni urðu
þessi:
« 1. deild:
Arsenal — Aston Villa 4:5
Bolton — Chelsea 4:2
Ipswich — Wolverhampton 3:2
Manchester City — Sheff. U. 1:1
W. B. A. — West Ham 0:1
2. deild:
Derby — Bristol Rovers 4:1
Huddersfield — Brighton 2:0
Leyton Orient — Leeds 0:0
Luton — Liverpool 1:0
Middlesbrough — Sunderland 0:1
Newcastle — J^otherham 1:0
Plymouth — Scunthorpe 3:1
Southampton — Charlton 1:2
Swansea — Bury 0:1
í Skotlandi fóru einnig fram und
anúrslit í bikarkeppninni og urðu úr
sl-. þessi:
Rangers — Motherwell 3:1
St. Mirren — Celtic 3:1
Úrslit 1 skozku deildarkeppninni
urðu þessi:
Aberdeen — Kilmarnook 3:3
Dundee U. — Falkirk 4:1
Raith — Airdrie 1:1
Stirling — Dundee 2:3
Tottenham lék mun betur í leikn
um gegn Manchester United og var
sigurinn verðskuldaður. Greaves setti
fyrsta markið á 4. mínútu eftir að
Blanceflower hafði tekið ankaspyrnu
og gefið til Smith, og hann gaf mjög
vel til Greaves, sem var óvaldaður.
Á 23. mín. bætti Jones öðru við eftir
mjög góða sendingu frá White utan af
kanti. Herd skoraði fyrir Manchest
er U. á 85. mín. eftir að Charlton hafði
leikið upp völlinn og leikið á nokkra
varnarleikmenn. Medvin setti þriðja
markið fyrir Tottenham á 88. mín.
eftr góða sendingu frá White.
Burnley lék mjög illa í leiknum
gegn Fulham og mátti þakka fyrir
jafntefli og aukaleik. Leggat setti
markið fyrir Fulham á 28. mín. eftir
að Haynes hafði leikið á vörnina og
gefið vel fyrir. Réttlátt hefði verið
að Fulham skoraði þrjú eða fjögur
mörk í fyrri hálfleik, en varð að láta
sér nægja eitt. Yfirburðir Fulham
héldust í seinni hálfleik en þrátt fyrir
það tókst þeim ekki að skora. Conn
elly jafnaði fyrir Burnley á 51. mín.
eftir glæsilegt upphlaup.
Þórólfur Beck, Fernie og Kerrigan
tryggðu St. Mirren sigur yfir Celtic og
voru öll mörkin sett í fyrri hálfleik.
Mikil ólæti voru á meðan leikurinn
stóð yfi og kom til átaka milli á-
horfenda og lögreglumanna.
Ipswich er nú efst í 1. deild með
48 stig eftir 36 leiki, en Burnley hef
ur 46 stig eftir 32 leiki.
gerði það fengi hann strax betri
tíma.
Á Unglingasund
Sérstök ánægja var að ungl-
ingasundunum, einkum vakti
þar athygli Guðm. Þ. Harðar-
son, sem virðist fjölhæfasti og
bezti sundmaður af yngri kyn-
slóðinni. í þeim hópi ber og
mjög á Davíð Valgarðssyni en
skriðsund hans er ekki nógu
stílhreinit. Með bættu sundlagi
gæti hann náð mun lengra í
þeirri grein.
Úrslit mótsins urðu annars
þessi:
200 m. bringusund karla.
1. Hörður B. Finnsson, ÍR 2.43.7
2. Ámi Þ. Kristjánsson, SH 2.44.6’
100 metra skriðsund unglinga.
1. Guðmundur Gíslason, ÍR, 57.8
2. Siggeir Siggeirsson, Á, 1.05.5
100 m. bringusund kvenna.
1. Hrafnh. Guðmundsd. ÍR 1.25.4
2. Sigrún Sigurðard. SH 1.27.7
3. Kolbrún Guðmundsd. ÍR 1.32.4
100 metra bringusund unglinga.
1. Erlingur Jóhannsson KR 1.18.4
2. Guðm. Þ. Harðars. Æ 1.18.6
3. Ólafur B. Ólafsson Á 1.19.2
50 m. skriðsund sveina.
1. Trausti Júlíusson Á 33.7
2. Gunnar Sigtryggss. iBK 34.4
3. Gísli Þórðarson, Á 35,4
50 m. bringusund sveina.
1. Gestur Jónsson SH 41.5
2. Guðm. Grímsson, Á 42.1
3. Kristján I. Helgason Á 42.6
100 m. fjórsund karla.
1. Guðm. Gíslason, ÍR 1.06.6
2. Hörður B. Finnsson ÍR 1.12.0
3. Guðm. Harðarson Æ 1.14.2
50 m. bringusund telpna.
1. Svanh. Sigurðard. UMSS 41,4
2. Kolbrún Guðmundsd. ÍR 41.6
3. Sólveig Þorsteinsd. Á 43,7
100 m. skriðsund kvenna.
1. Hrafnh. Guðmundsd. ÍR 1.07.5
2. Margrét Óskarsd. Vesta 1.09.0
3. Erla Lárusdóttir, Á 1.23.6
4x50 metra bringusund karla.
1. ÍR ........... 2.22.5
2. Ármann ....... 2.22.6
3. Ægir ......... 2.27.5
jEngland vann
Austurríki, 3:1
ENGLAND vann Austurriki í
Iandsleik í knattspyrnu í dag með
3—1. Leikurinn fór fram á
Wembley leikvanginum. í hálf-
leik var staðan 2—0.
Tottenham-menn
vongóðir um sigur
I DAG verður leikinn síðari leik
ur Benefica og Tottenham í und-
anúrsliitum bikarkeppni Evrópu.
Fyrri leikinn vann Benefica með
3—1. í dag fer leikurinn fram á
heimavelli Tottenham.
Það er ekki ófróðlegt að minn-
ast þess sem forstöðumenn lið-
anna sögðu eftir fyrri leikinn.
— Ég sagði fyrir leikinn að
við yrðum að vinna með minnst
3 marka mun til að eiga góðar
sigurhörfur gegn Tottenham,
sagði hinn frægi þjálfari Bene-
fica.
Framlkvæmdastjóri Tottenham,
Nioholssön sagði. „Ég held við
höfum góða möguleika á að
vinna í' London með 3 marka
mun, þegar við mætum í síðari
leiknum 5. apríl. Við áttum slak-
an fyrri hálfleik í þessum fyrri
leik. En í þeim síðari voru liðin
jöfn. Með heppni hefði lyktað
með jaf ntefli".
Liðsmenn Benefica hafa verið
í London undanfarna daga. Þeir
hafa skoðað leikvanginn og telja
að vatni hafi verið í hann dælt
— og sé það til hags fyrir Totten
ham. Þessu neita Tottenham-
menn eindregið.
Minnt skal á það að Totten-
ham hefur haldið áfram í bikar-
keppninni fyrir sigra á heima-
velli. Tottenham tapaði út fyrir
Gornik en vann heima 8—0 sem
heimsfrægt varð. Þeir töpuðu úti
fyrir Dukla Prag en unnu heima
4—1. Enskir íþróttafréttamenn
trúa því að áhorfendur geti hjálp
að Tottenham til sigurs.
Beneficamenn hafa lýst sig
mjög andvíga vali dómarans, en
hann er Daninn Áage Poulsen
Telja þeir hann óhæfan til að
standa gegn brútölu spili Totten
ham og hrópum áhorfenda.
BY GGIN G ARS AM VINNUFÉL AG
STARFSMANNA REYKJAVÍKURBÆJAR
Framhalds-aðalfundur
félagsins verður haldinn í samkomusalnum, Skúla-
túni 2, föstudaginn 6 þ.m. kl. 8,30.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Lagabreytingar.
STJÓRNIN.
Aðalfundur
ÍSFÉLAGS KEFLAVÍKUR H.F., verður haldinn
laugardaginn 7. apríl kl. 2 e.h. í Matstofunni Vík,
uppi. — Venjuleg aðalfundarstörf og tekin ákvörðun
um framtíðarrekstur eða félagsslit og ráðstöfun á
eignum félagsins.
Stjórnin
Uppboð
Opinbert uppboð verður haldið að Vesturgötu 45,
hér í bænum, fimmtudaginn 12. apríl n.k. kl. 1,30
e.h. Seld verða til slita á sameign alls konar verk_
færi til silfursmíði.
Greiðsla íari fram við hamarshögg.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Tilkynning
Frá og með 8. apríl n.k. verður Brauðsalan lokuð
á sunnudögum og öðrum helgidögum.
JÓN E. GUÐMUNDSSON
Hverfisgötu 93.
Lögfrœðingur
óskar eftir starfi hálfan daginn, helzt fyrlr hádegl.
Hverskonar skrifstofustörf koma til greind. — Þeir,
sem vildu sinna þessu, leggi nafn og heimilisfang
til afgr. Mbl. merkt: „Skrifstofustarf — 4378“.
SKÍÐAFÓLK
Ármenningar halda skemmtifund í Klúbbnum,
fimmtudaginn 5. apríl n.k. kl. 9 e.h.
Verðlaunaaf.hending — Skemmtiatriðl —- DANS
Skíðadeild Ármaniu