Morgunblaðið - 05.04.1962, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 5. apríl 1962
MORGVNBLAÐtÐ
£3
Skarfur leggst á
lax við Botnsá
Laxar koma upp ur dauðum skorfum —
veiðibjalla réði niðurlögum 16 punda lax
I NÝÚTKOMNU hefti af Veiði-
mannimun er skýrt frá því að
nokkur brögð séu að því við
Botnsá í Hvalfirði að skarfur
legrg-ist á lax. Hafa verið skotnir
þar skarfar í rannsóknarskyni
og hafa þá komið upp úr þeim
3—4 punda laxar.
Helgi Eyjólfsson, húsasmíða-
meistari, héfur tjáð Veiðimann-
inum að undanfarin ár hafi þess
orðið vart að skarfur legðist á
lax í Botnsá, en ekki hafi mál-
ið verið rannsakað fyrr en í
vetur.
Jón Þorkelsson bóndi að Stóra
Botni skaut í vetur 4—5 skarfa
í fannsóknaskyni. Upp úr sum-
um þeirra komu laxar, 3—4
pund að stserð. Var hér að
sjálfsögðu um að ræða hóp-
laxa, en talið er sennilegt að
skarfurinn taki einnig nýgeng-
inn lax, enda sést „hann við
ána allt sumarið.
Mest muni vera af skarfi upp
með ánni í vestanátt og er tal-
ið sennilegt að það sé vegna
Þessi skarfur var kominn á held-
nr óvenjulegar slóffir fyrir nokkr
um dögum. Hann sat á barmin-
um á Veggjalaug í Stafholtstung
um einn góðan veffurdag, langt
uppi í sveit. Krakkarnir ráku
hann burt, en hann kom aftur og
þá tók Bjarni Helgason þessa
mynd af honum.
þess að þá hefur hann vindinn
á móti sér á leiðinni til baka,
en þegar skarfurinn hefur étið
mikið mun hann eiga erfitt með
að fljúga undan vindi.
Veiðimaðurinn segir að ótrú-
legt sé að Botnsá sé eina áin,
sem verði fyrir barðinu á skarf-
inum. Sé hann víðar við veiði-
— Fiskvinna
Framh. af bls. 3.
regluþjónn, sem myndirnar
eru af, er búinn að vera 5%
ér í lögreglunni í Reykjavík.
í fyrstu gekk erfiðlega að
fá löggæzlumenn hingað, en
nú gengur þetta all-t betur
©g má þakka það þeim mögu
leikum, sem menn hafa til
aukastarfsins. Ólafur er að
ljúka sinni veru hér. Hann
telur að hægt sé fyrir lög-
regluþjón að hafa með fasta-
kaupi sínu allt að 18000 kr.
ef lögð er nótt við dag, sem
hægt mun, ef menn verða
eér úti um £illa þá auka-
vinnu, sem í boði er. Lög-
tegluþjónarnir hafa flestir
unnið hjá Hraðfrystistöð
Vestmannaeyja.
Ólafur segir að lokum að
vertíðin í vetur hafi verið
róleg fyrir lögregluna, sér-
etaklega eftir að atvinnan
komist í eðlilegt horf. (
ár, og ættu menn að gefa meiri
gaum að ferðum hans en hing-
að til.
Tók 16 punda Iax
í þessu sama hefti Veiðimanns
ins er einnig rætt nokkuð um
veiðibjölluna, sem mun einn
versti vargurinn við sumar ár.
Étur hún einkum seyðin, en
ræðst einnig á fullorðinn lax. —
Haft er eftir Helga Eyjólfssyni
að hann viti dæmi þess að veiði-
bjalla hafi ráðizt á 16 punda
lax og farið með sigur af hólmi.
Segir blaðið, að þegar veiði-
bjalla ræðst á stóra fiska, noti
hún þá aðferð að læsa klónum
í síður laxanna og stýri þeim
síðan á land upp.
;en.
:ende
op$tmsi'
myntfunn i
Island
Reykjavlk, 1. aprll.
fUPI.) Omkrlng 30 myn->
ter som eíter alfc & dámme
er gravet ned av den be*
rómte Egil. SkaUagrlmsson.
er avdekkefc 1 en dal, 16 ki-
lometer fra Reykjavlk. Sa-
gaen forteller at Egll hadde
en stor íormue og afc han
Coins discovery
:may be ‘treasure’
REYKJAVIK. Sunday.—Thlrty-one
silver coins found in .a ravine 10
miles from Reykjavik may be
among iceland's mosl. valuabjc
ai'chéologlcal discoveries.
Apríl-
gabbið
APRILGABB Mbl. hefur
vakið athygli víðar en á ís-
landi. Fréttir um það hafa
birzt í ýnisum blöðum, þeirra
á meðal Daily Express í Eng-
landi og Aftenposten í Noregi.
Af leiðréttingu Aftenposten
virðist blaðið taka því vel að
hafa orðið fyrir því að gína
Mynlfunnet pá IslanÍ
Var lare en aprilsp^k
Reykjavik, JT. aprll.
• (TJPD. Avisen Morgunbladld 1 Rey-
kjavik avslérte mandag at en be-
(retning den hadde bragt sondag om
; et skattefunn som en trodde kunne
skrlve seg íra EgU SkaUagrlmaeon
■ íor 900 ftr siden. var aprllsppk.
i Sppken var bUtt tatfc for god flsk
'av en rekke andre avlser og presse-
organer b&de 1 Island og uten-
/lands, bl. a. 1 Aftenposten, som
• Jgjengav en melding fra UPL
við gamninu. Á meðfylgjandi
mynd sést uppihaf fréttanna úr
Daily Express og Afenposten
og leiðréttingu úr Aftenpost-
en, sem hljóðar svo: Mörgun-
blaðið í Reykjavík upplýsti
það á mánudag, að frásögn,
sem það hafði birt á sunnu-
dag um fjársjóðsfund. sem
gæti vcrið frá tímuim Egils
Sikallagrímssonar fyrir rúmum
900 árum, hafi verið apríl-
gabb.
Grínið var telkið sem góð
og gild vara af ýmsum
öðrum blöðum og fréttastof-
um, bæði á íslandi og erlendis,
m. a. í Aftenposten sem birti
fréttina frá UPI.
Svavari Pálssyni svarað
í MORGNBLAÐNU 31. marz sl.
birtist athugasemd frá Svavari
Pálssyni endurskoðanda við grein
ar, er ég og Bjarni Bragi Jóns-
son sikrifuðum um hið svokall-
aða aðstöðugjald, sem gert er ráð
fyrir í frumvarpinu um tekju-
stofna sveitarfélaga. Báðar þess-
ar greinar birtust 29. s.m., mín
í Morgunblaðinu undir fyrirsögn-
inni „Aðstöðugjald“ en hans í
Vísi „Aðstöðugjald eða vinnslu-
virðisgjald".
í megin atriðum voru greinar
þessar sama eðlis, þó hans væri
á nokikuð breiðari grundvelli, og
báðar leiddu þær til sömu nið-
urstöðu, að álagningartilhögun
þessa gjalds væri óeðlileg og
legðist ósanngjarnlega á eftir
retkistursfyrirkomulagi og bók-
haldi, og gæti í mörgum tilfellum
komið fram sem margsköttun.
Svavar segir, að við misskilj-
um þetta ákvæði frumvarpsins,
því þetta gjald sé hámariksgjald,
sem ólíklegt sé að verði notað til
fulls. Einnig, að þeim sem leggja
þetta gjald á, sé í sjálfsvald sett
að átoveða upphæð þess í hverju
einstöiku tilfelli, og segir: „Ekk-
ert er því til fyrirstöffu, aff þeir
sem ákveffa affstöðugjaldiff geti
ákveffið þaff mishátt svo álögurn-
ar verffi þær sömu í heild, hvort
sem framleiffslustigin eru í einu
effa fleiri fyrirtækjum, allt inn-
an hámarks frumvarpsins". (Let-
urbreyting mín).
Við þetta vil ég gera eftirfar-
andi atlhugasemdir:
1. Frumvarpið gerir hvergi
ráð fyrir slíkri tilhögun, en 10.
gr. átoveður hámark mismunandi
starfsemi án tillits til verðmæta
sköpunar.
2. f aths. um 9. gr. segir í
greinargerð: „Réttlátt er að
miða aðstöðugjaldið við afnot-
in“. Þetta er rétt. En svo segir
aftur: „Því meiri útgjöld, vöru-
kaup og fyrningarafskriftir, sem
gjaldandinn hefur, því meiri eru
umsvif hans og afnot þeirrar þjón
ustu, sem honum ber að greiða
fyrir, og því hærra verður að-
stöðugjaldið". Þarna er ósam-
ræmi, því barna er fullyrt, að
gjaldið fari eftir umsetningu
(umsvifum).
3. f sömu greinargerð segir,
að umhoðssala sé laus við þetta
gjald af vörusölu, því „Hjá slíkri
stofnun er etoki um að ræða efnis
og vörukaup.“ Er ekki þarna um
áberandi misrétti að ræða, þvl
mér vitanlega er hægt að reka
heila verzlun með umboðssölu-
fyrirkomulagi og fullum „um-
svifum", ef vörurnar eru bók-
haldslega aðeins færðar sem um-
boðssala.
Eg ætla ekki að hafa um þetta
fleiri orð, en þykir ánægjulegt
að hafa að nokkru orðið til að
vekja opinberar umræður um
þetta mikilvæga mál, það skýrir
mörg atriði, sem óljós voru. Svav
ar Bálsson er vel að sér og glögg-
ur um skattamál og hefur oft
staðið í brjóstvörn hins frjálsa
framtaks gegn skattránsstefnu
undanfarinna ára, Hann hefur
oft verið kallaður til ráðuneytis
um skattamál, þegar mikið hef-
ur við legið, og mun svo hafa
verið hér, að hann hefur átt þétt
í að móta og byggja upp þau
frumvörp um skattamál, sem nú-
verandi rikisstjórn hefur lagt fyr
ir Allþingi. Sú yfirlýsing hans,
sem getið er hér að framan, mun
því verða skoðuð sem túlkun
þeirrar stefnu, sem liggur að
baki frumvarpinu, og að hún
muni þvi verða leiðarvísir þeirra
sem annast framkvæmd laganna.
Eg tel þó rétt, að ákvæði þetta
verði sett inn í lögin sjálf.
Með tilvísun til þess vil ég
þakka S. P. fyrir athugasemd
hans. Hitt þykir mér lakara, að
hann í lokaorðum sinum gefur
Oklkur Bjarna Braga Jónssyni
frekar lága einkun og einnig, að
hann Skuli lúra á enn meiri ann-
mörkum á frumvarpi þessu.
Haukur Eggerlsson
Tilraunasvæði Banda-
ríkjanna akveðið
Util samkomulagsvon í Genf
WaShington, 4. apríl (AP)
Kjarnorkumálanefnd og
varnamálaráðuneyti Banda-
ríkjanna gáfu í dag út til-
kynningu varðandi svæði
það, sem hugsanlega verður
notað til tilrauna með kjarn-
orkuvopn seinna í þessum
mánuði. Er hér um allstórt
svæði að ræða umhverfis
Jólaey á Kyrrahafi, 1600 kíló-
metrum fyrir sunnan Hawaii.
Svæðið er 1000 km breitt og
1250 km langt. Hafa skip og
flugvélar verið aðvöruð um
að halda sig fjarri þessu svæði
frá 15. apríL
VERÐUR TII.KYNNT NÁNAR
í tilkynningunni segir að enn
sé ekki endanleg ákvörðun tek-
in um það hvort kjarnorkutil-
raunir verði gerðar á Jólaey, og
fari það eftir gangi mála á af-
vopnunarráðstefnunni í Genf.
En gefin verði út tilkynning um
það ef ákveðið verður að til-
raunir skuli gerðar og þá sagt
hvenær þær hefjist.
Jólaey á Kyrrahafi lýtur Bret
um, en hinn 9. febrúar s.l. var
undirritaður samningur milli
Bandaríkjanna og Bretlands um
afnot Bandaríkjamanna af Jóla-.
ey til tilrauna. 1 samningnum
voru einnig ákvæði um afnot
Breta af tilraunasvæðum Banda-
ríkjamanna neðanjarðar í Ne-
vada.
LÍTILi VON
UM SAMKOMULAG
Kennedy Baindaríkjaforseti hef
uir lýst því yfir að Bandaríkin
séu fús til að hætta við fyrir-
hugaðar tilraimir á Kyrrahafi ef
samkomulag náist í Genf um al-
gjör.t tilraunabann. En í því
samkomulagi verði að vera
ákvæði um einhvers konar al-
þjóðaeftirlit með því að bannið
verði haldið.
Fulltrúi Rússa á afvopnunar-
ráðstefnunni í Genf, Valerian
2Sorin, ítrekaði hins vegar í dag
að Sovétríkin leyfðu aldrei al-
þjóða eftirlit innan landamæra
sinna, hvort sem það eftirlit væri
í höndum hlutlausra ríkja eða
ektoi. Sagði Zorin að alþjóða eftir
lit gæfi einungis aðstöðu til að
stunda njósnir.
Áður höfðu fulltiúar hlut-
lausra ríkja, þeirra á meðal Ind-
lands og Eþíópíu, borið fram til-
lögu um að skipuð verði eftir-
litsnefnd hlutlausra ríkja, sem
hafi heimild til að ferðast til
þeirra staða, þar sem grunur
leikur á um að verið sé að und-
irbúa tilraunir eða að tilraunir
hafi verið gerðar. En þessa til-
lögu felldu kommúnistaríkin.
Ritgerðasamkeppni
um „Friðarleit"
BANDARÍSKA útvarpsstöðin
Voice of America hefur átoveðið
að efna til ritgerðarsamkeppni í
tilefni af tuttugu ára starfsaf-
mæli sínu, ásamt tveimur stofn-
unum í Bandaríkjunum, Letters
Abroad Og The Readier’s Digest
Foundation. Heiti ritgerðarinnar
verður: Friðarheit.
Tilgangurinn með þessari rit-
gerðarsamkeppni er „ að hvetja
einstaklinga um heim allan til
að hugsa af alvöru og raunsæi
um þess mál... og kynnast stooð-
unum manna viða um (hei/m eins
og þær tooona fraun í ritgerðun-
um“.
Veitt verða verðlaun fyrir fjór
ar beztu ritgerðirnar, er berast —
eina frá hverjum eftirtalinna
I Dregið í
í happdrætti
f Frjálsrar
)) menningar
S)UM síðustu helgi var dregið i(|
- happdrætti Frjálsrar menn-’
ingar, en eins og kunnugt er,§
var vinningurinn fotohelt ein-i
býlishús, reist hvar á landinu, c
sem vinningshafi kýs. Þar sem (
allir hafa ekki enn gert skil á'
miðum, er þeir hafa fengið tils
sölu, verður vinningsnúmer-.
inu haldið leyndu næstu daga. c
'■ijEr því stoorað á alla, sem hafaiC
A-miða undir höndum, að gerao
x skil hið allra fyrsta í slkrifstofuí
)) Frjálsrar menningar í TjarnarJ
^götu 16, sími 1-59-20. ({
=^C^CF^Cb^<P*Q^(^Q^Ö=<Q=*SÖ=* 1«l==<i
heimShluta: Exrópu, Afriku, lat-
nesku Ameríku og Asíu. Verð-
launin eru ferð til Bandaríkjanna
og tveggja vikna uppihald í New
Yorkborg og Washington, þar
sem Hvíta húsið m. a. verður
Skoðað. Flogið verður með Pan
American ílugfélaginu, Og með-
an dvalizt er í Bandaríkjunum,
verða verðlaunahafar gestir stofn
unar noltokuirar í New Yorkborg,
er nefnist New Yorto’s Midtown
Internatiorial Center.
Ritgerðirnar skulu ekki vera
lengri en 500 orð og læsilega
ritaðar á enska tungu. Nafn og
heimilisfang höfundar verður að
fylgja ritgerðunum, ásamt upp-
lýsingum um þjóðerni, aldur, kyn
Og atvinnu. Dómnefnd, skipuð af
ofangreindum stofnunum, dæmir
um beztu ritgerðirnar.
Ritgerðirnar — mertotar:
PEACE, New York 21, New
York, USA — skal senda loft-
leiðis fyrir 31. maí 1962.
Frá úrslitum keppninnar verð-
ur sagt í útvarpi VOA, laugar-
daginn 1. sept. næstkomandi. Rit
gerðunum verður ekki skilað aft
ur til höfunda, heldur Skoðaðar
eign Letters Abroad. Verðlauna
hafar yngri en 18 ára verða að
vera í fylgd með fullorðnum,
sem sjálfur kiostar för sína til
Bandaríkj anna.
Frekari upplýsingar um rit-
gerðarsamkeppni þessa verða
veittar í ameríska bókasafninu,
Laugaivegi 13.
(Fréttatilkynning fiá USIS).
Félagslíl
íþróttafélag kvenna
Munið mynda- og kaffikvöldið,
föstudag 6. apríl kl. 8.30 í Aðal-
stræti 12 (uppi). Bögglauppboð!
Skíðadeild Í.K.
VI4LFLUTNTNGSSTOFÁ
Affalstræti 6, III hæff.
Einar B. Guffmundsson
Ghfflaugur Þorláksson
Guffmundur Péturssun
Knattspymufél. Fram
Knattspyrnudeild
Útiæfingar á miðvikudagskv.
á Framvellinum kl. 8, mfl. og
1. fl. Innanhúsæfing fimmtudags-
kvöld, 2. fl í Austunbæjarskól-
anum.