Morgunblaðið - 07.04.1962, Side 14
14
M O P C Tliv n T 4 010
Laugardagur 7. apríl 1962
Nýjung frá Alafossi
Nýjar gerðir af gardínuefnum, fallegir
litir og mynstur. — Skoðið í gluggann í
ÁLAFOSS
Þingholtsstræti 2
Vorbodinn!
Páskarnir nálgast
Eigum fyrirliggjandi þennan umtalaða vagn
Komið — Reynið — Sannfærist
Garðar Gislason h,f.
Bifreiðaverzlun
Sel'oss
og nágrenni
„Leiðin til lífshamingju“
nefnist erindið sem
Svein B. Jóhansen
flytur sunnudaginn 8. apríl
kl. 20:30 i Iðnaðarmanna-
húsinu.
Frú Anna Johansen syngur
Allir velkomnir
SssW 'tgt
Maðurinn minn
Séra LÁRUS ARNÓRSSON
Miklabæ,
andaðist fimmtudaginn 5. apríl. — Jarðarförin ákveðin
síðar.
Fyrir hönd aðstandenda.
Guðrún Björnsdóttir
Jarðarför systur minnar og mágkonu
HALLDÓRU EINARSDÓTTUR
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 9. april kl.
10,30 f.h. Blóm og kransar afbeðnir en þeim, sem
vildu minnast hennar er vinsamlega. bent á Barna-
spítalasjóð Hringsins. — Athöfninm verður útvarpað.
Vilborg Einarsdóttir, Páll Bóasson
Hjartans þakkir sendi ég þeim mörgu góðu vinum mín-
um, sem gerðu mér 70 ára afmælisdaginn ógleyman-
legan. — Starfsfólki Álafoss h.f. og Hreppsnefnd Mos-
fallshrepps, sendi ég einnig innilegar þakkir fyrir
gjafir og góðar oskir.
Sigurbjörg Asbjörnsdóttir
Hjartans þakkir til ykkar allra, sem sýndu mér
níræðri .vináttu með hlýjum orðum, heimsóknum, gjöf-
um, blómum, skeytum, símtölum og bréfum.
Eg þakka hverja hlýja hugsun og bið ykkur guðs-
blessunar.
Sigrún Sigurðardóttir. Alvirðu, Ölfusi
Þórður Guðmundsson
vélsmíðameistari — kveðjuorð
F. 22. 2. 1906. D. 1. 4. 1962
ÞAÐ var bjart yfir .Siglufirði á
sunnudaginn var. Frammi í firði
þreyttu margir Siglfirðingar 4
km skíðagönguna í sólskini og
fögru veðri .í þeirra hópi var
Þórður Guðmund.ssori, vélsmíða-
meistari Síldarverksmiðja riikis-
ins. Engan grunaði, að þetta væri
hans síðasta ganga. Um kvöldið
var hann dáinn.
Þórður fluttist 8 ára að aldri til
Siglufjarðar með foreldrum sín-
um, Guðmundi Björnssyni vél-
smið og koniu hans, Guðbjörgu
Þórðardóttur. Hann lærði vél-
smíði hjá föður sínum, sem var
dverghagur og rak eigin smiðju
á Siglufirði. Tvær vertíðir var
Þórður vélstjóri á bátum frá
Siglufirði, en annars var vélsmíði
ævistarf hans.
Fyrstu árin vann Þórður í vél-
smiðju föður síns, en ræðst sem
vélsmíðameistari og verkstæðis-
formaður til SR árið 1936. Þórð-
ur var völundur í sinni iðn, hug-
kvæmur, öruggur og skjótráður.
Að eðlisfari var hann þó rólynd-
ur og stilltur vel. Á þessa eigin-
leika reyndi oft, þegar hálfur
síldarflotinn kallaði á starf hans
og úrræði, og verksmiðjur í
landi þurftu skjótrar aðstoðar
við. Ég minnist ótal dæma frá ár-
um mínum á Siglufirði, er skipin
hafa streymt inn á höfnina í
byrjun vertíðar, mörg með bil-
aðan vélbúnað ,og beðið um hina
fljótustu afgreiðslu. Þótt skip-
stjórar og vélstjórar þreyttu
kapphlaup á fund Þórðar, þá
raskaði ekkert stillingu hans og
geðprýði. Þá reyndi oft á Þórð
að ráðstafa vinnuafli sínu og
manna sinna, svo að það kæmi
síldarflotanum og verksmiðjun-
um að sem mestu gagni. Veit ég
ekki annað en að hann hafi átt
vini á hverju skipi, sem við hann
skipti.
Thompson
ólram í Moskvu
Washington, 2. apríl —
(NTB — Reuter).
PIERRE Salinger, blaðafulltrúi
Kennedys Bandaríkjaforseta lýsti
því ákveðið yfir í dag, að allar
fregnir um, að Llewelyn Thomp-
son, sendiherra Bandaríkjanna í
Moskvu, léti af því embætti inn-
an skamms, væru gersamlega úr
lausu lofti gripnar. Sagðist Sal-
inger ekki vita betur en Thomp
son færi innan tíðar til Moskvu,
eða þegar að loknum viðræðum
sinum við stjórnina í Washing-
ton.
Samkvæmt umsögnum banda-
rískra blaða átti Thompson að
hafa óskað eftir því að fá að
koma heim til Bandaríkjanna, en
hann hefur dvalizt í Moskvu í
mörg ár. Voru bornar fram ýms-
ar tilgátur um eftirmenn hans
í embættið — en einkum þó tald
ir líklegir Jacob Beam, fyrrver-
andi sendiherra í Póllandi, og
Foy Kohler. háttsettur starfs-
J maður utanríkisráðuneytisins.
Vélaverkstæði SR var ungt og
ófullkomið, þegar Þórður tók við
því, en frá styrialdarlokum hef-
ur það stöðugt vaxið, og á síð-
ustu árum leyst af hendi flesta
þá vélsmíði og vélaviðgerðir, sem
þörf var fyrir á Siglufirði. Þannig
hefur Þórður annazt smiði á nýj-
um síldarvinnsluvélum, kyndi-
tækjum, vélum í hraðfrystihús
o. f 1., auk margskonar viðgerða
á síldveiðiskipum og togurum.
Á starfsárum sínum sem vél-
smíðameistari hefur Þórður lagt
mikla rækt við að kenna ungum
mönnum iðn sína, og eiga margir
'honum þakkir að gjalda fyrir
góða og nákvæma handleiðslu í
iðnnáminu og síðar.
Þórður var mjög kyrrlátur
maður og gerði sjaldan víðreist.
Það var helzt á sumrin, ef hann
unni sér einhverrar hvíldar, að
hann skauzt yfir fjallið til lax-
veiða í Fljótaánni. Eins og hann
jafnan glímdi ótrauður við nýj-
ungar í starfsgrein sinni fylgdist
hann vel með hverju, sem fyrir
augun bar, og varð aldrei hinn
einangraði fagmaður í afskekiktu
þorpi. Víðáttan einkennir ekki
útsýnið á Siglufirði, en Þórður
heitinn velti fyrir sér gátunni
miklu af mikilli skapfestu og
skynsemi. Hann las talsvert um
guðspeki og hafði yndi af góðri
tónlist. Fyrir fáum árum lagði
hann land undir fót og komst
suður til Rómaborgar. Ég hef
ekki hitt margfróðari mann
koma aftur úr stuttri orlofsferð.
Svo opnum augum hafði hann
farið um forna staði.
Þórður kvæntist árið 1933
Hólmfríði Pétursdóttur Hafliða-
sonar, beykis í Reykjavík. Þáu
eignuðust eina dóttur, Erlu, sem
gift er Ragnari Sveinssyni, vél-
stjóra. Hólmfríði missti Þórður
eftir 4 ára sambúð. Síðar kvænt-
ist hann Systur Hólmfriðar,
Maríu, sem lifir mann sinn.
Með fráfalli Þórðar Guðmunds-
sonar hafa Siglufjörður og Síld-
arverksmiðjur ríkisins misst einn
af sínum beztu starfsmönnum.
Við samsfarfsmenn Þórðar hjá
SR eigum á bak að sjá traustum
og góðum félaga. Það er bjart
yfir minningu bans.
Vilhjálmur Guðmundsson.
Aðalfundur Prent-
nemafél. í Reykjavík
HINN 28. marz sl. var haldinn
aðalfundur Prentnemafélagsins í
Reykjavík í félagsheimili HÍP
við Hverfisgötu. Fundurinn var
vel sóttur, og voru mörg mál á
dagskrá, þar á meðal lýstifund-
urinn ánægju sinni yfir, hve
vel gekk að fá kauphækkun þá
er nemar fengu á síðastliðnu
ári. Ber þar að þakka félags-
mönnum HÍP, sem tóku þá
hækkun inn í siðustu samninga
sína við atvinnurekendur.
Kosin var ný stjóm. Hana
skipa nú: Ólafur Pálsson for-
maður, Steindórsprenti, Þor-
bergur Kristinsson, varaform.,
Prentsmiðju Mbl., Emil Ingólfs-
son, meðstj., Leiftri, Jörundur
Guðmundsson, meðstj., Odda,
Þorsteinn Marelsson, meðstj.,
Gutenberg. Varastjóm: Baldur
Garðarsson, Eddu, Hilmar Ey-
steinsson, Félagsprentsmiðjunni.
Ólafur Pálsson
De GauBle á ftalíu
Torino, Ítálíu, Jf. apríl.
DE GAIJLLE forseti Frakklands
og Amintore Fanfani forsætis-
ráðherra Ítalíu ræddust í dag
við um efnahags -og stjómmála
framtíð Evrópu. Fóru viðræð-
umar fram í einkabústað
skammt utan við Torino. Að
fundi þeirra loknum var gefin
út sameiginleg yfirlýsing þar
sem leiðtogarnir lýsa ánægju
sinni yfir þeirri þróun, sem orð-
ið hefur hjá aðildarríkjum Efna
hagsbandalagsins í efnahags-
málum.
1 sambandi við fund leiðtog-
anna var gripið til mjög mik-
illa varúðarráðstafana í ná-
grenni Torino. Nokkur þúsund
hermenn og vopnaðir lögreglu-
menn voru á verði við fundar-
staðinn og á leiðinni frá Caselle
flugvellinum við Torino til fund
Kosið í stjórn
SPRN
FYRIR FUNDI borgarstjórnar
Reykjavíkur í gær lá kosning
tveggja manna í stjórn Spari-
sjóðs Reykjavíkur og nágrennis
og tveggja endurskoðenda. Voru
þeir Bjarni Benediktsson dióms
málaráðherra og Baldvin
Tryggvason endiurkjörnir í stjórn
Sparisjóðsins, en endurskoðend
ur þeir Björn Steffensen og Ingi
mundur Erlendsson.
arstaðarins. Flugvél de Gaullea
kom snemma í morgun til flug-
vallarins og höfðu franskar or-
ustuflugvélar fylgt henni til
landamæra Ítalíu, en þar tóku
ítalskar orustuþotur við og
fylgdu flugvél forsetans á leið-
arenda.
Fundurinn var haldinn f stón*
einbýlishúsi, sem Luigi Medici
del Vascello markgreifi á
skammt frá Torino. Yfirlýsingin,
sem þeir de Gaulle og Fanfani
gáfu út í fundarlok, er stutt-
orð. En þar lýsa þeir yfirþeirri
von að samvinnan, sem náðzt
íefur á sviði efnahagsmála hjá
aðildarríkjum Efnahagsbanda-
lagsins megi eflast og aukast
einnig á stjórnmálasviðinu.
— Utan úr heimi
Frarnh. af bls. 12.
komið í ljós. 70% allra saka*
manna í fangelsum Ghicago
eru negrar, en þeir eru aðeina
23% af íbúum borgarinnar.
Negrar fremja 53% allra af-
brota í Los Angeles þar sem
hlutfallstala þeirra er miklu
lægri en í Ohicago, og sivo
mætti lengi telja.
Hér er um að ræða þjóðfé-
lagslegt vandamál, sem nær
lengra en til glæpanna, sem
framdir eru, og hafa yfirvöld
í stórborgum Norðurrfkjanna
miklar áhyggjur af þessu nýja
vandamáh.