Morgunblaðið - 07.04.1962, Síða 23
Laugardagur 7. apríl 1962
MORGVNBLAÐIÐ
23
Gamanleikurinn Taugastríð
tengdamömmu, sem Leikfélag
Reykjavíkur hefur nú tekið til
sýninga, er framhald af Tann
hvassri tengdamömmu, sem
var sýnt hvorki meira né
minna en 128 sinnum. Þessi
Ieikur gefur hinum sízt eftir,
með hnytnum setningum og
ekemmtilegum tilburðum. —
Þetta leikrit var sýnt úti á
landi í sumar við metaðsókn,
og frábærar undirtektir áhorf
enda. Þetta leikrit er fyrir
alla fjölskylduna, unga sem
aldna og verður enginn svik
inn á því að eyða kvöldstund
með tengdamömmunni. (Frá
Leikfélagi Keykjavíkux). —
Myndin er af Amdísi Bjöms
dóttur og Brynjólfi Jóhannes
syni í aðalhlutverkum sínum.
— Almannavarnir
Framih. af bls. 1.
mundi hann láta nægja að lýsa
þeirri skoðun, að margt það, sem
haft væri á móti frumvarpinu,
hvíldi á fullkomnum misskiln-
íngi um eðli málsins og tilgang
þess. Kvað hann sér ljóst, að þar
sem komið væri að þinglokum,
mundi erfitt> að afgreiða það
vegna hins mikla ágreinings, er
risið hefði, þótt hann að mestu
leyti væri á misskilningi byggð-
Ur.
Einnig væri það svo, að sam-
þykkt frumvarpsins er að því
leyti efeki aðkallandi, þótt um
mikið nauðsynjamál sé að ræða,
að ríkisstjórnin hefur þegar næg
ar heimildir til undirbúningsað-
gerða og raunar bein fyrirmæli
Alþingis þar um. — Framkvæmd
ir þurfa því ekki að tefjast, þótt
afgreiðsla frumvarpsins verði lát
in bíða til hausts, þar sem þær
þurfa töluverðan undirbúning,
sem hlýtur að taka marga
mánuði, og kvaðst ráðherrann
því mundu þegar í stað gera ráð-
stafanir til að undirbúningsstarf
ið hefjist, svo að framkvæmdir
geti hafizt, er frumvarpið verður
samþykkt á næst Alþingi.
Veldur ekkl töfum
á framkvæmdum.
Að svo mæltu lagði ráðherrann
til, að málið yrði afgreitt með
evohljóðandi rökstuddri dagskrá:
„Með samþykki fjárlagá fyryir
1962 lýsti Alþingi vilja sínum til
þess, að almannavarnir skyldu
upp teknar og treystir deildin
ríkisstj órninni til að hefja nú þeg
ar undirbúning þeirra í samræmi
við meginreglur þessa frum-
varps, meðal annars um þátttöku
eveitarfélaga í kosnaði, og afla
eér með bráðabirgðalögum heim
ilda til skyndiráðstafana, ef brýn
nauðsyn ber til og heimildir gild
andi laga um ráðstafanir til loft-
varna og annarra varna gegn
hættum af hernaðarráðstöfunum
verða ekki taldar fullnægjandi.
Þar sem nú er orðið áliðið þings
og sýnt er, að afgreiðsla frum-
varpsins muni taka verulegan
tíma, en frestun samþykktar þess
nú mun samkvæmt því, sem fyrr
greinir, ekki valda töfum á fram-
kvæmdum, tekur deildin fyrir
næsta mál á dagskrá, enda verði
írumvarpið lagt fyrir næsta þing
Ktrax og það kemur saman.
IÞROTTIR
Framh. af bls. 22.
ingur án efa veitt FH mönn-
um harðari keppnL
* FRAM — ÍR
Leikur Fram og lR var hörð
barátta og lengi vel tvísýn og
jöfn. Það var þó aldrei veruleg
spenna í leiknum. Fram hafði
lengstum forystu og í hálfleik
hafði Fram 6 mörk yfir, 20—14.
Náði Fram mjög góðum kafla
í lok fyrri hálfleiks.
Þetta forskot juku Framarar
ekki nema um eitt mark í síð-
ari hálfleik. Allan tímann höfðu
þeir heldur undirtökin. ÍR-ing-
ar gáfust aldrei upp og veittu
harða keppni en það kom fyr-
ir ekki. Varnir beggja liða voru
opnar og þó ÍR-vömin opnari
en það er galli ÍR-liðsins um
árabil og mörgum leikjum hafa
KR-ingar tapað gegn Fram á
þeirn galla.
Aðrir leikir þetta kvöld voru
í 3. flokki milli Njarðvíkur og
Kópavogs. Njarðvík vann með
12—2 og Fram vann FH með
15—10.
AKRANESI, 6. apríl. — Nú er
blíðuveður á miðunum hjá bát
unum í dag. Alls fengu þeir í
gær 90 tonn og voru aflahæstir
Skagfirðingur með 21,6 lestir og
Sigurður AK með 11 lestir.
Hringnótabátarnir eru nú fyr
ir austan Vestmannaeyjar og
fékk Haraldur 100 tunna kast
þar laust fyrir hádegi. — Oddur
Virkjun Ijóssins
Ljósgeislinn: skæðasta vnpn
framtíðarinnar
NÝJASTA kapphlaupið milli
Rússa og Bandaríkjamanna
er uiTi virkjun Ijóssins. I
virkjun ljósöldunnar liggja
ótakmarkaðir mögulcikar. —
Nú þegar er svo komið að
ljósgeislar hafa verið notaðir
í stað skurðhnífa við hámá-
kvæma uppskurði og til að
skera sundur þynnur úr
hertu stáli. En í náinni fram-
tíð má búast við stórstígum
framförum á þessu sviði og
er sennilegt að ljósgeislihn
verði notaður mjög mikið
bæði í þágu vísinda og her-
vama.
Virkjun ljóssins er aðallega
í því fólgin að safna saman
ljósöldunum í einn þéttan
geisla, þannig að þær dreif-
ist mjög lítið á langri leið.
Bandaríkjamenn hafa fundið
upp tæki, sem þeir nefna
„laser“, til að safna saman
ljósöldunum. Tæki þessi eru
ekki tærri en meðal vasaljós,
en framleiða þó ljósgeisla,
sem er nægilega öflugur til
að skera sundur þynnur úr
hertu stáli. Sams konar geisl-
ar gætu að sjálfsögðu blind-
að menn í mikilli fjarlægð
og jafnvel drepið.
Laser tæki var fyrst reynt
í Bandaríkjunum árið 1960
og varð til þess að farið var
að ræða dauðageisla í fullri
alvöru. Það sem Laser gerir
er að magna ljósið á svipað-
an hátt og hátalarar magna
hljóðið. Aðalmunurinn er sá
að hljóðið dreifist í allar átt-
ir en Laser safnar ljósöldun-
um í einn samþjappaðan
geisla. Árangurinn er hár-
fínn geisli, áem er samsettur
úr 400 milljón milljónum ljós
alda á sekúndu. Einn vís-
indamaður líkir þessu við ljós
á stærð við fingurnögl en
jafn bjart og milljón 100
kerta rafmagnsperur.
Og geislinn dreifir sér lítið
á langri ferð. Ef geislanum
væri beint til tunglsins, sem
er í um 400 milljón km. fjar-
lægð, lýsti hann þar upp
blett, sem væri aðeins um
lí4 km í þvermál.
í framtíðinni er fyrirhug-
að að nota Laser til land-
geisli geti annað einni millj-
ón símtala í einu truflunar-
laust. Og fjarlægðin er tak-
markalítiL Ljósgeisli gæti
flutt skilaboð milli gervi-
hnatta, til tunglsins og til
stjama í 10 ljósára fjarlægð.
Til að senda skilaboð til
tunglsins þyrfti minni orku
en pera í jólatréskerti notar.
Þá er ljósgeislinn ætlaður
til stj örnur annsókna, oriku-
varna. Er unnið að rannsókn
um á þessu sviði og kemur
margt til greina. Með ljós-
geisla er t. d. talið að unnt
verði að granda eldflaugum
og flugvélum í mikilli fjar-
lægð. Og jafnvel á að vera
unnt að granda eldflaugum
óvinanna skömmu eftir að
þeim er skotið á loft, þvi
ljósgeislinn fer með um 300
þús. km. hraða á sekúndu.
í Bandaríkjunum eru rúfn-
lega 400 fyrirtæki að rann-
saka möguleika á beitingu
Laser til friðsamlegra nota.
Þar kemur einnig margt til
greina, en höfuðáherzla er
lögð á tilraunir, ervarðafjar
skipti. Talið er að einn ljós-
flutnings, skurðlækninga o.
fl. Ljósið getur einnig komið
að miklum notum í siglinga-
fræði, sérstaklega úti í geimn
um þar sem fjarlægðir eru
miklar, og gefið mun ná-
kvæmari staðarákvarðanir en
radar.
Laser er skámmstöfun á
enska heitinu „light ampli-
fication by stimulated emis-
sion of radiation." En aðferð
þessi til að virkja ljósið er
einnig oft nefnt optical mas-
er, eftir fyrirrennaranum
„maser“, sem byggist á ó-
sýnilegum radíóbylgjum. Um
hvort tveggja er nánar ritað
í þættinum „Tækni og vís-
indi“ í Lesbókinni, sem fylg-
ir blaðinu í dag.
Miklar ræktunarframkvæmdir
á Suðurlandi d sl. sumri
„SUÐURLAND" átti fyrir
skömmu tal við Kristin Jónsson,
jarðræktarráðunaut Búnaðar-
samjbands Suðurlands, og spurð-
ist fyrir um helztu framkvæmd-
ir í landbúnaði á sambandssvæð-
inu á sl. ári.
Hér á eftir fara upplýsingar
þær, er Kristinn lét blaðinu í té.
Til samanburðar eru, innan sviga,
tölur frá árinu 1960:
Nýrækt
Ámessýsla 599 ha (388)
Rangárvallasýsla 565 ha (381)
V-Skaftafellssýsla 175 ha (141)
Þurrheyshlöður
Árnessýsla 19 þús. m3 (14)
Rangárvallas. 14 þús. m3 (14)
V-Skaftafellssýsla 6 m3 (5)
Bæjarbíó hefur nú um skeið sýnt frönsku vcrðlaunamyndina
Ungur flóttamaður (Les qatre cents coups), sem hlaut gull-
verðlaun í Cannes og er sérlega góð. Hefur myndin hlotíð af-
bragðsdóma, enda vel leikin.
Votheyshlöður
Árnessýsla 2975 m3 (1467)
Rangárvallasýsla 387 m3 (431)
V-Skaftafellssýsla 843 m3 (639)
Súgþurrkunarkerfi
Árnessýsla 2044 m2 (3888)
Rangárvallas. 2177 m2 (2561)
V-SkaftafelLssýsla 970 m2 (569)
Vélgrafnir skurðir
Árnessýsla 217 þús. m* (405)
Rangárvallasýsla 710 m3 (317)
V-Skaftafellssýsla 219 m3 (213)
Nýrækt á vegum SÍS, í Hvol-
hreppi, Rangárvallasýslu, var um
138 ha árið 1961. f Austur-Land-
eyjum voru grafnir landamerkja-
skurðir milli flestra jarða í sveit-
inni, um 112 km að lengd, sam-
tals um 568 þús. m3.
— Drangajökull
Framih. af bls. 24.
honum, að nú sé „míla eftir í
Eyrina". Líða svo um 5 mínút-
ur, að því er skipstjóri telur,
þangað til hann kemur á stjórn-
pail. En þá segir hann að blasað
hafi við sér „framandi úbsýni".
Skipið strandar.
Segir skipstjóri, að skipið
sem þá átti skammt ófarið
inn í hópið, hafi þegar hér
var komið verið norður úr
innsiglingarljósunum þangað
inn. Lætur hann þvi strax
taka sjálfstýringuna úr sam-
bandi, setur bátsmann við
handstýrið og gefur fyrirmæli
um að sveigja á stjómborða.
Gengu þá ljósin mjög fljótt
saman og sundur hina leið-
ina. Þá hafi hann gefið fyrir
skipun um að setja stýri hart
í bakborða. Þegar skipið var
byrjað að snúast hratt tíl hak
borða rakst það í marbakk-
ann, en við það jókst snúing-
urinn, en brátt stóð skipið
fast að framan.
Þriðji stýrimaður mótmselir
því, að stefna skipsins hafi ver-
ið úit úr innsiglingarljósmerfcj-
um þegar skipstjóri kom upp,
enda hafi hann tekið stefnuna
samkvæmt þeim, strax og skip
ið vSr statt úti af Suðureyri. (Sú
er um 4 mílum utar en Sveins-
eyri). — Héldtu báðir aðilar faist
við sinn fraimburð í yfirheyrzl-
unum og bátsmaður, sem eins
og fyrr segir, var með þeiim á
stjórnpalli, segist ekki hafa veitt
þessu atriði athygli.
Eyrum ruglað saman.
Nokkur orðaskipti átfcu sér
stað í brúnni milli skipstjóra og
stýrimannanna beggja, aðallega
eftir strandið, um hvar skipið
hefði verið, þegar honum voru
gerð boð. Virðist af því, sem
fram kom um það aitriði við
réttarhöldin, að þar hafi eitt-
hvað farið á milli mála og m.a.
átt sér stað ruglingur á eyrun-
um Suðureyri, Sveinseyri og
Laambeyri. Taldi Skipstjóri, að
sér hefði verið gert viðvart
seinna en hann æfclaðist til.
Þegar „Drangajökull“ strand-
aði, mun siglingarhraðinn hafa
verið 12—13 sjómílur. Dýptar-
mælir var ekki í gangi, en aftur
á móti ratsjá.
Sjóprófi í rmálinu stjórnaði
Magnús Thoroddsen, fulltrúi yf-
irborgardómara í Reykjavík.
Guðlaugur Einai sson
málflutningsskrifstofa
Freyjugötu 3'.' — Símj 19740.