Morgunblaðið - 08.04.1962, Page 6

Morgunblaðið - 08.04.1962, Page 6
6 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 8. aprfl 1962 Frá aðalfundi Fél. bifreiðaeigenda: Rítissjdðiir haföi 230 millj. kr. tekjur af bifreiöum 1960 Af þvi runnu 100 millj. til byggingar vega og brúa AÐAL.FUNDUR Félags ísl. btfreiðaelg- enda var haklinn 12. marz sJ. For- maður félagsins Arinbjörn Kolbeins- son læknir, setti fundinn og skipaði fundarstjóra Pál S. Pálsson hæstarétt- arlögmann, er stýrði fundinum. For- maður félagsins flutti ítarlega árs- skýrslu, og fara hér á eftir nokkur atriði hennar. • Tala félagsmanna 1 árslok 1961 var 1780, og hafði þá aukizt um 518 á árinu, eða nær 40%. Skrifstofa félags- ins var starfrækt í Austurstræti 14, eins og undanfarin ár. Annaðist skrif- stofan sölu alþjóðaskírteina, útgáfu ferðaskírteina fyrir bifreiðir til ferða- laga erlendis (carnet), sá um bréfavið skipti og almenna upplýsingastarf- secmi fyrir félagið. Á mánudögum og fimmtudögum voru þar veittar tækni- legar upplýsingar fyrir félagsmenn varðandi varahluta og viðgerðaþjón- ustu. Nokkrum sinnum var aðstoðað við bílakaup og leyst úr deilum, sem upp höfðu komið vegna þjónustu á viðgerðarverkstæðum og tókst að ná sættum I slíkum málum. Frá því um miðjan september var félagsmönnum gefinn kostur á lögfræðilegum upp- lýsingum og aðstoð. Voru þær upp- lýsingar veittar á skrifstofunni milli kl. 5—7 á þriðjudögum. VEGAÞJÓNUSTA. Á s.l. sumri var gerð tilraun með víðtækari og meiri viðgerðaþjónustu fyrir bifreiðir á vegum úti en áður hefur tíðkast. Var fyrirkomulag þjón- ustunnar með svipuðum hætti og ger- ist hjá erlendum bifreiðaeigendum. Þörfin fyrir þessa þjónustu reyndist meir en gert var ráð fyrir, og nutu 1032 bifreiðar hennar, eða um 140 bílar á dag. Þjónusta þessi var látin félagsmönnum í té ókeypis. VEGAMÁL. Eins og F.Í.B. hefur oft áður bent á, eru auknar og bættar framkvæmdir á vegamálum eitt mesta hagsmuna- mál bifreiðaeigenda og jafnframt eitt mesta hagsmunamál bifreiðaeigenda og jafnframt eitt mesta framfara og nauðsynjamál fyrir þjóðfélagið, því í þessum efnum erum við í flokki hinna vanþróuðustu þjóða. í tilefni fundarsamþykktar frá síð- asta fundi E.Í.B. ritaði stjóm félags- ins samgöngumálaráðherra bréf og beindi þeim tilmælum til ríkisstjóm- arinnar að hún notaði nú þegar heim- ild í lögum um Austurveg nr. 32, 6 gr. frá 1946 til þess að taka allt að 20 millj. kr. lán til framkvæmda við Þrengslaveg 1961. Bent var á að fjár- veiting til þessa vegar væri aðeins 2 millj. kr. árlega Samkvæmt lauslegri kostnaðaráætlun myndi vegur þessi koeta 180—200 millj. kr., að óbreyfct- um aðstæðum myndi það taka um 90 ár að leggja þennan veg. í sam- bandi við vegamálin telur F.Í.B. ein- kum þýðingarmikið að upplýsa bif- reiðaeigendur um þá sérstöku skatta, sem lagðir eru á þá og hversu mikið af því fé sé varið til vega og brúa. Samkv. upplýsingum frá Hagstofu ís- lands námu tekjur ríkissjóðs af bif- reiðum og helztu rekstrarvörum þeirra árið 1960 230 millj. kr. en það ár nam fjárveiting öll til vega aðeins 91 millj. kr., auk 8,5 millj. kr. úr brúarsjóði. F.Í.B. hefur lagt áherzlu á, að hér er um mikla skattlagningu að ræða, en alltof lítið framlag til vegamála, skilningur á þessu máli hefur að vísu farið vaxandi að undanfömu en samt er mjög aðkallandi verkefhi óunnið, að láta öllum bifreiðaeigendum skiljast að hér sé um þjóðhagslega óheppilega ráðstöfun skattfjár að ræða. i ATHAFNASVÆÐI FYRIR BIF- í REIÐAEIGENDUR. l>á ræddi formaðurinn nofckuð um framtíðarfyrirætlanir félagsins, og drap m.a. á eftirfarandi. Um skeið hefur verið til afchugana að félagið sæki um lóð fyrir athafna- svæði, þar sem reisa mætti bifreiða- geymslur, sjálfsafgreiðslu verkstæði, þvottastöð, og benzínstöð fyrir félags- menn. Verður reynt að hafa benzín- stöð þessa með nýtízku sniði þannig að unnt verði að fá benzín með mis- munandi octane-tölu eftir því sem hentar á hvem bíl. Margir hinna nýju bíla er gerður fyrir benzín með hærri octane tölu en hér er fáanlegt. BIFREIÐATRYGGINGAR OG TJÓN. Iðgjöld af bifreiðatryggingum I heild geta ekki lækkað nema að tjón- in minnki. Að þessum verkefnum vill F.Í.B. vinna með því að láta gera nákvæma athugun á tíðni, eðli og or- sökum slysa, og auka umferðafræðslu, sem af verulegu leyti byggist á upp- lýsingum um þessi atriði. Vinna að breyttu fyrirkomulagi á bifreiðatrygg ingum, á þann hátt að draga úr of- tryggingu og stuðla að því að &- byrgðin lendi meira á þeim, sem tjón unum valda, heldur en nú er. Vinna að því að reglum um veitingu og svipt ingu ökuleyfa verði breytt, og tekin upp sá háttur, sem víða tíðkast er- lendis, að ökumenn, sem títt brjóta ökureglur sökum kæruleysis eða van- kunnáttu I akstri, séu sviptir ökuleyfL Slík ökuleyfasvipting er ekki refsing, heldur nauðsynleg öryggisráðstöíun og er ekki timabundin. Hins vegar fær sá, sem ökuleyfi er sviptur á þennan hátt þá og því aðeins réttindi sin aftur að hann gangi undir mjög strangt próf og standist það. Fyrir- komulag sem þetta hefur gefið góða raun erLendis og mundi vafalaust fjar- lægja margan óhæfan ökumann af ísl. vegum. Þá hyggst F.Í.B. virma að því, að unnt verði að tryggja ísl. bifreiðir hér heima til ferðalaga er- lendis, og sömuleiðis að erlendar bif- reiðatryggingar verði teknar í gildi hér á landi. NÝ AÐFERÐ VIÐ VEGA- GERÐ -- NÓG FÉ TIU FRAMKVÆMDA. Bifreiðaeigendur leggja nóg fé fram með sínum sérstöku sköttum til að unnt sé að byggja góða vegi á öllum fjölfömum leiðum á fáum árum. En þvi miður er of litlum hluta þess fjár, varið til vegagerða eða tæpum helm- ing. í>á hefur verið bent á nýja og til- tölulega ódýra aðferð við gerð slitlags á vegum, sem sennilega mundi henta vel hér á landi. Aðferð þessi er fund- in af sænskum vegaverkfræðingi og hefur reynzt vel þar 1 landi. Nauð- synlegt er að halda áfram að kynna þessi mál, fyrir almenningi og stjóm- málamönnum. í þeim tilgangi meðal annars er ætlunin að auka og breyta útgáfu Ökuþórs, þannig að hann komi út 4 sinnum á ári. Einnig er gert ráð fyrir að hann flytji meiri fræðslu um tæknileg efni, en hingað til hefur tíðkast. Félagið á 30 ára afmæli 6. maí n.k. er ætlunin að breyta útgáfu Öku- þórs um það leyti. AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ FÉLAGSMENN. Félagið hefur hug á að auka veru- lega vegaþjónustu á næsta sumri og verður hún veitt öllum félagsmönnum ókeypis, en aðrir greiða fúlit verð fyrir slíka þjónustu. Pá hefur félagið hug á að eignast viðgerðarbila, sem verði til taks að aðstoða félagsmenn I skyndi, þegar ó- væntar bilanir er að ræða. Þessi þjón- usta myndi ekki aðeins ná til Reykja- víkur og nágrennis, heldur er einnig fyrirhugað að hún verði á Akureyri, og vegum norðurlands. Vegna hinnar auknu starfseml, svo sem meiri vegaþjónustu, stækkunar Ökuþórs, áframhaldandi og vaxandi kynningarstarfsemi, á þvi mikla nauðsynja- og framfaramáli að byggja vandaða vegi á fjölförnum leiðum, þá var borin fram tillaga um hækkað ár- gjald og samþykkt samhljóða. ÖRUGGARI OG GREIÐARI UMFERÐ. Mikil nauðsyn er á aukinni um- ferðafræðslu til þess að vinna á móti hinum tíðu umferðaslysum og miklu tjónum af völdiun bifreiðaárekstra, en þau nema tugum miHjónum árlega. Hefur félagið þegar hafið þetta starf með kvikmyndasýningum og fræðslu- fundum. Einkum hefur verið lögð á- herzla á að kenna fólki akstur í hálku. Er þess sérstök þörf, þar sem snjódekk Steyping Miklubrautar boðar þáttaskil í gatnagerð. eru nú almennt notuð, en keðjur að hverfa. betta er framfaraspor í um- ferðamálum, en krefst meiri þjálfunar af ökumönnum. Hefur félagið stungið upp á því, að efnt verði til námskeiða í hálkuakstri svo sem tíðkast erlendis. Bent hefur verið á, að oft sé aðstaða til slíkra æfinga á Rauðavatni á vetr- um. Að skýrslu formanns lokinni ræddu fundarmenn um helztu áhugamál fé- lagsins. Á fundinum voru bomar upp eftirfarandi tillögur, er samþykktar voru einróma. A 1) Að ríkissjóður taki nú þegar 20 millj. kl. lán til Austurvegar, sam- kvæmt heimild í lögum um Austur- veg nr. 32/1946, og verði því fé varið í þann veg á þessu ári. 2) Að ríkisstjómin hlutist til um það, að á næstu fjárlögum verði 2/3 hlutum af tekjum ríkissjóðs af bif- reiðum og rekstrarvörum þeirra varið til vega og brúa, enda verði lögð megin áherzla á að leggja vanöaða vegi á fjölfömum leiðum. 3) Að vegamálaskrifstofunni verði séð fyrir nægu fé I sambandi við rann sóknir á vegagerð hér á landi, þar sem ekki er unnt að styðjast við er» lenda reynslu í þessu efni, nema að nokkru leyti. B) Aðalfundur F.Í.B. fagnar þeim markverða áfanga á viðskiptasvæðinu, er bílainnflutningur var gefinn frjála á sJ. ári, og þar með leyst nær 30 ára verzlunarhöft á þessu sviði. I>á lýsti fundurinn ánægju með þær framkvæmdir sem hafnar eru með nýjan veg til Ketflavíkur og væntir þess að því verki miði svo vel, sem beztu vonir standa til, þannig að lokið verði að leggja vandaðan veg um þessa fjölfömustu langleið lands- ins, innan fárra ára. Formaður félagsins var endurkjörinn til 2ja ára, ritari var kosinn Magnúa Höskuldsson skipstjóri, en gjaldkeri gekk ekki úr stjóm að þessu sinni. Stjórn félagsins skipa nú Arinbjörn Kolbeinsson formaður, Magnús Hösk- uldsson ritari, Valdimar J. Magnússon gjaldkeri. Meðstjómendur Haukur Pétursson verkfræðingur og Bárður Daníelsson verkfræðingur. Varastjóm Guðmundur Karlsson blaðamaður og Gísli V. Sigurðsson póstftr. (Frá F. f. B.) • Sunnudags- spurningin Stunduim hitti ég konur, sem eiga menn sína á sj ónum langtímum saman. Allir hafa saimúð með þeim, og spyrja hvort ekki sé óttalega þreyt- andi að sjá ekki eiginmanm- iinn nema með höppum og glöppum. l>að venjulegasta £ hjónaibandi er þó að maður- inn sé í vinnu 8 tíma á dag, burt frá heimilinu og komi svo heim til ástkærrar eigin- konu á mínútunni sex eða sjö á hverjum einasta degi. En til eru líka konur sem mega hafa það að eiginmað- urinn sé alltaf heima hjá þeim, vinnutíma sinn líka. Hvernig skyldi það vera? Eg hringdi til Steinunnar Briem, píanóleilkara eiginkonu Kristmanns Guðmundssonar, skálds og spurði: • Hvernig er að hafa eiginmanninn alltaf heima? Hún svanaði: Ja, ætli það fari ekki ofur- lítið eftir þvd, hivernig eigin- maðurinn er? Og þá kannske líka konan? Og hvernig þau eiga saman? Ég er svo heppin, að Ohris er allra manna skap- beztur og þægilegastur í um- gengni á heimili. Áður fyrr hélt ég, að skáld og svoleiðis fóLk væri meira og minna brjálað á taugum og mestu óhemjur í skapi, en til allrar hamingja get ég borið um af eigin reynslu, að svo þarf alls ekki að vera. Annars býst ég við, að það taki alltaf dálítinn tíma fyrir tvær mannverur að laga sig svo hvor að annarri, að hvergi sé um neina þvingun að ræða í náinm samibúð. Gott hjóna- band hlýtur ávallt að vera samruni tveggja einstaklinga, sem læra smátt og smátt að lifa, starfa Og gleðjast saman, þar til „ég“ er orðið að „við“ og *Wr'V V. .Bin hjónin eru eins og tveir helm ingar sem mynda eina heild, án þess þó að glata nokkru af persónulegum sérkennum sínum. Það hefur oft verið sagt, að eðli sannrar ástar sá að gefa og ríkasta hamingj- an í því fólgin að gleyma sjálf um sér, og ef til vill er ekkert jafngóð æfing í slíku og hjóna bandið. Ég gæti trúað, að hjón. sem eru saman flestum stund- um, eigi við meiri örðugleika að stríða í upþhafi, meðan þessi s.'tmruni er að verða að veruleika því að viss þvingun er óhjákvæmileg í fyrstu: við getum því miður ekki alltaf verið með spariandlitið, hversu fegin sem við vildum, og okkar ýmsu brestir bitna löngum k þeiim, sam við elsk um heitast — en sem betur fer er sönn ást ævinlega um- burðarlynd í eðli sínu. Þegar hjón eiu komin yfir byrjun- arörðugleikana og öll þving- un horfin, held ég hina vegar, að samband þeirra geti orðið enn nánara, ef þau eru mi'kið saman. Einhver aðskiln áður er auðvitað alltaf hollur, enda eykur hann bara gleðina við að koma saman aftur og deila öllu, sem gerzt hefur, hvort með öðru. Hamingju- samt hjónaband hlýtur ætíð að byggjast á félagsskap og vináttu. gagnkvæmu trausti og þarafleiðandi algjöru frelsL Persónutega get óg hiklausit svarað spurningunni þannig, að ég nýt þess af öllu hjarta að hafa Chris sem mest hjá mér. Ég er innilega þakklát forsjóninni fyrir hjónaband okkar, og mér er engin laun- ung á því, að ég er 1 rauu og sannleika það, sem ég hélt, að einungis væri til í ævin- týrum: fullkomlega hammgju- söm eiginkona.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.