Morgunblaðið - 08.04.1962, Blaðsíða 24
Fréttasímar Mbl
— eftir iokun —
Erleudar fréttir: 2-24-85
Innlendat fréttir: 2-24-84
Reykjavíkurbréf
Sjá bls. 13
83. tbl. — Sunnudagur 8. aþríl 1962
Hekla sigldi niður
fiskibát
' ’
KLUKKAN 20.30 í fyrra-
kvöld sigldi strandferða-
skipið Hekla niður vélbát-
inn Pálma II frá Litla-Ár-
skógssandi, skammt innan
við Hrísey. Fimm manna
áhöfn Pálma bjargaðist ó-
meidd í gúmbátinn og
síðan upp í Heklu. Bátur-
inn sökk á fimm mínút-‘®>
um. —
VéXbátnrinn Pálmi II. var
að koma úr róðri, hafði ver-
ið á þorskanetum út af Eyja-
iirði. Hann var með góðan
afla. Kom hann siglandi sitefn
una frá Gjögrum og á Litla-
Árskógssand og fór því álinn
austan við Hrísey. Hekla var
að koma frá Siglufirði og fór
álinn vestan við Hrísey.
Siglingaleiðir skipanna sker-
ast skammt sunnan við Hrís-
ey og Pálmi hefur Hekluna
á stjórnborða. Það skiptir
engum togum að skipin sigla
saman og lendir stefni Heklu
aftarlega á Pálma.
Björguðust í gúmbátinn
Fimm manna áhöfn Pálma
bjargaðist í gúmmíbátinn og
Hekla reyndi að taka Pálma
á síðuna og var rétt búin að
koma böndum á hann er bát-
urinn sökk. Áhöfn Pálma var
tekin um borð í Heklu.
Gott veður var þegar slys-
ið átti sér stað og ekki orðið
full dimmt.
Gamall bátur
Vélbáturinn Pálmi er 10
tonna trébátur smíðaður á
Akureyri 1930. Hann er eign
Vigfúsar Kristjánssonar o. fl.
á Litla-Árskógssandi. Formað-
ur á Pálma var Gunnlaugur
Sigurðsson, Brattavöllum. —
Skipstjóri á Heklu er Guð-
mundur Guðjónsson.
Sjópróf í málinu hófust á
Akureyri í gærmorgun kl.
10.30 og stóðu enn yfir er
blaðið fór í prentun.
Á minni myndinn sést yfir
Kópavog, þar sem fimm ára
drengurinn festist í fyrradag.
Drengurinn, Blængur Bík-
harðsson, var kominn meira
Síðasti dagur
prófkosning-
anna í dag
í DAG er síðasti dagur
prófkosninganna um val
manna á lista Sjálfstæðis-
flokksins við borgarstjórn-
arkosningarnar 27. maí.
Kosið er í skrifstofum
flokksins á annarri hæð
Sjálfstæðishússins við
Austurvöll frá kl. tíu fyrir
hádegi til kl. tíu eftir há-
degi.
Verða því atkvæði að
hafa borizt þangað í sein-
asta lagi kl. tíu í kvöld.
Kosningarétt hafa allir
skráðir félagar Sjálfstæð-
isfélaganna, sem búsettir
eru í Reykjavík, svo og
allir aðrir, sem styðja Sjálf
stæðisflokkinn, og eru á
kjörskrá í Reykjavík. Þeir.
sem fengið hafa kjörgögn
send, eiga að skila atkvæða
seðlunum á skrifstofurnar.
en aðrir kjósa í kjörklef-
um þar.
Sæluvikan einn brandari
Sauðárkróki, 7. apríl.
í GÆR og dag hefur verið
mjög gott veður hér á Sauð-
árkróki, sólskin og logn og
margir innanhéraðsmenn og
einnig úr fjarlægjum byggð-
um hafa heimsótt þessa
gleðiviku Skagfirðinga.
Þeir sem koma á sæluvikuna
eru á öllum aldri eða frá 10—
90 ára. Gjarnan. hafa þeir eldri
Skagfirðingar á hraðbergi stök-
una, enda er hún þeim laus í
munni.
í gærkvöldi fæddist þessi
staka:
„Vínið æsir vesalt geð,
vínið hressir suma,
vín er ætíð velkomið,
vínið kætir guma“.
Sjópróf leiddu ekkert ■ Ijós
SJÓPRÓF vegna sjóslyssins á
Verði, er brann og sökk út af
Reykjanesi á fimmtudagskvöld-
ið, fór fram hjá borgardómara-
embættinu í Reykjavík á föstu-
dag. Blaðið spurðist fyrir um
það hjá Valgarði Kristjánssyni,
sem sá um sjóprófið. Sagði hann
að ekkert hefði komið fram sem
skýrði hvernig eldurinn kvikn-
aði né nákvæmlega hvar kvikn-
I aði í bátnum. Enginn af skip-
verjum vissi um ástæðuna fyrir
eldinum, enda urðu þeir hans ekki
varir fyrr en seint, er þeir sáu
að vélarrúmið var orðið fullt af
reyk. Þeir tæmdu handslökkvi-
tækin þanigað niður, en án ár-
angiurs og yfirgáfu bátinn. Skip-
stjóri og vélstjóri voru á vakt
uppi, og aðrir skipverjar vak-
andi.
A/götunni í morgun rakst ég
I a 76 ára gamlan mann, Jón
[Jónsson frá Bessastöðum. Hann
hefur sótt sæluvikuna lengst af
frá því fyrir aldamót og segir
svo frá henni:
— Það fyrsta sem ég heyrði
frá sæluvikunni, eða sem þá
var kölluð sýslufundarvika, var
nokkru fyrir aldamótin, en þá
átti ég heima í Svartárdal. Það-
an fór miðaldra fcóndi til Sauð-
árkróks á sýslufundinn. Hann
sagði, er hann kom heim, og
taldi það til frétta, að kaup-
maðurinn hefði boðið sér á leik-
sýningu. Þá var leikið í gömlu
pakkhúsi, er Fopp-verzlunin
átti. Mér fannst þetta merkilegt
atriði og hugsaði næstu árin
hvemig leiksýning færi fram.
— Innan við tvítugsaldur
gafst mér færi á að vera á sælu
viku. Þá var ekki leikið í pakk-
húsi, því þá var nýbyggt gamla
templarahúsið á Sauðárkróki.
Það var Skugga-Sveinn, sem ég
sá, og mér fannst mikið til um
sýninguna. Ég er ekki viss um
að ég hafi sofnað rólegur um
kvöldið, því mér fannst ég sjá
útilegumenn á báðar hendur. Á
þeim árum var margt öðru vísi
á sæluvikunni en nú er og man
ég sérstaklega eftir mælsku-
fundunum.
— Einna skemmtilegast var
að hlusta á séra Amór í
Hvammi og séra Hallgrím
jThorlacius. Ég man eitt sinn eft
ir því að Hallgrímur sagði í
ræðu að það væri nú lítið að
marka sem hann Arnór segði,
sérstaklega í sambandi við
stærðfræðina, því hann hefði
miklu betra próf í henni en
Arnór. í svarræðu sinni gat
Arnór þess að það væri ekki
von hann Hallgrímur væri góð-
ur í stærðfræðinni, því það. var
lélegasta fagið mitt í skólanum,
en við fengum jafna einkunn.
Steindór Steindórsson er
Reykvíkingur, en fluttist fyrir
6 árum til Sauðárkróks. Hann
segir að um sæluvikuna hafi
hann heyrt af afspurn, en ekki
vitað hversu dásamleg hún
væri fyrr en hann tók þótt í
henni sjálfur.
— Þetta er einstæður viðburð
ur og engri skemmtun annarri
lík, sem ég hef þekkt, segir
Steindór, — fólkið er svo sam-
hent og allir leitast við að
skemmta sér án allra illinda.
— Geturðu ekki sagt mér ein
hvern brandara um sæluvik-
una?
Steindór lagar eldhússvuntu
konunnar, því hann er að þvo
upp fyrir hana í dag, en það
gera skagfirzkir hsbændur iðu-
lega á sæluviku, veltir vindlin-
um út í annað munnvikið, horf-
ir á mig með mesta spekings-
svip og segir:
— Sæluvikan er einn brand-
ari frá sunnudegi til sunnudags.
— St. E. Sig.
en hálfa leið yfir voginn og
ætlaði sér yfir í Arnames, þeg
ar hann tók að sökkva í leðj-
unni í f jörunni, eins og skýrt
var frá í Mbl. í gær. Þegar
háfjarað er, sýnist vogvrinn
auðveldur yfirferðar, en botn
inn er gljúpur og hættulegur.
Það varð Blængi til bjargar,
að hann hafði magasleða með
ferðist, sem hann gat setið á.
— Móðir hans sagði okkur í
gær, að hann hefði týnt af
sér bæði sokkum og hosum,
en stigvélunum tókst honum
að bjarga.
Á stærri myndinni er Blæng
ur (lengst til vinstri) ásam>t
leiksystkinum sínum fyrir
framan hcimili sitt. „Lögg-
an varð að hjálpa honum“,
sagði vinkona hans. — „Nei“,
sagði Blængur, „það var lög-
reglan“. (Ljósm.: Mbl. Ól. K.
Mag.).
Góð köst í
fyrradag
í FRRADAG fengu iþrjú skip
síld skammt frá Vestmanna-
eyjum samtals 1200 tumiur.
í fyrrakvöld fengu fimim skip
samtals 6500 tunnur flest um
10 sjómílur undan Selvogs-
vita. Hæstir voru Guðmundur
Þórðarson með 1700 tunnur,
VíSir II 1500, Höfrungur H
1400 og Jón Trausti 1300 tunn
ur. Leitarskipið Fanney var
með síldarskipunum. í gær
var komin brœla á miðunum
og ekki veiðiveður.
Samsöngvur
Karlokórs
Reyfcjavíkur
KARLAKÓR Reykjavíkur helð-
ur fimm samsöngva í Austurbæj-
arbíói á næstunrni. Fyrsti sam-
söngurinn verður n.k. miðviku-
dag kl. 7 síðdegis.
Á söngskrá eru íslenzk og er-
lend lög. Einsöngvarar verða
óperusöngvai-arnir frú Sigurveig
Hjaltested Og Guðmundur Jóns-
son, og syngja þau einnig óperu-
dúetta saman. Sigurður Þórðar-
son er söngstjóri og Fritz Weiss-
happel undirleikari.
Nýtt húsnæði
Karlakór Reyikjavíkur hefur
starfað í 36 ár og hefur nú fest
kaup á húsnæði, tveimur hæðuan
á Freyjugötu 14, og standa vonir
til þess, að hægt verði að flytja
þangað í sumar.
Hljómplötur
Að samsöngvunuim loíknum
syngur kórinn lög inn á hJjóim-
skífur hjá Monitor-fyrirtœkinu f
New York, því sama og kórinn
söng hjá árið 1960. Þær plötur
hafa verið til sölu hjá H.J. Fálk-
anum 1 Reykjavíik