Morgunblaðið - 08.04.1962, Page 10
10
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 8. april 1962
Saltsuða úr sjó við
jarðhita
Ít Saltnotkun tæplega
nógu mikil.
Síðan skýrir hann í stuttu
máli frá því hvernig salt er yfir
leitt unnið. Nú er mestur hluti
þess unninn úr neðanjarðarsalt-
lögum, sem stafa frá uppþornuð-
um sjó og ýmist náð með venju-
legum námugreftri eða með því
að skola því upp með vatni, og
vatnið síðan látið gufa burtu.
Einnig er salt unnið úr söltum
stöðuvötnum eða úr sjó, og >á
mest í heitum löndum, þar sem
sjórinn er settur í uppistöður við
ströndina og náttúran síðan látin
um eimingu. Aðalatriðin í sjálfri
saltvinnslunni úr þunnum upp-
lausnum eins og sjó eru því að-
eins tvö, þ.e. flutningur sjáv-
arins að verksmiðjunni og orku-
þörfin við vinnsluna. — Hér hef-
ur athyglin lengi beinst að jarð-
hita sem aflgjafa. segir Baldur,
Mikilvægur hráefnagrundvöllur
fyrir efnaiðnað
í GREININNI um hagnýt jarð-
efni, sem Tómas Tryggvason
skrifar í bókina Náttúra íslands,
stendur eftirfarandi klausa: Salt
mun hafa verið unnið á íslandi
með þarabrennslu frá því á land-
námsöld og lengi fram eftir öld-
um, Frumkvæðið að saltsuðu
við hverahita átti Skúli Magnús-
son, fógeti og lét hann gera til-
raun með hana að Reykhólum á
Barðaströnd. í kjölfar þeirrar til
raunar fylgdu fleiri svipaðar til-
raunir og 20 árum eftir tilraun
Skúla að Reykhólum vax svo haf
in saltsuða í allstórum stíl að
Reykjanesi við Isafjarðardjúp.
Saltsuðan fór þannig fram, að
sjór var eimaður við hverahita.
Suðan að Reykjanesi stóð í 10
ár, en var þá lögð niður vegna
framleiðslugalla. Við suðuna
voru notaðar blýpönnur, og varð
saltið blýmegað.
Saltsuðan að Reykjanesi var
mjög athyglisverð tilraun til að
hagnýta jarðhita, og er í raun-
inni ennþá athyglisverðari fyrir
okkur, sem nú lifum heldur en
hiún var á átjándu öld. Nú eru
öll tæknileg skilyrði til öflunar
og nýtingar jarðhita mun betri
en þá var, enda eru nú uppi ráða
gerðir um saltsuðu úr sjó við
jarðhita á nýjan leik.
Tvö hagkvæm
jarðhitasvæði
Hvaða ráðagerðir?
Eyru fréttamannsins sperrt-
ust við lestur þessarar síðustu
setningar. Og við eftirgrennslan
kom í ljós, að Baldur Líndal,
efnaverkfræðingur hefur haft á
hendi rannsóknir á því hvort
ekki væri vænlegt fyrir fslend-
inga að nota jarðhita sinn til að
vónna salt úr sjó, og ekki aðeins
salt heldur jafnframt önnur efni.
Hafa í því samibandi komið hér
tæknifræðingar, dr. Patel frá
Bandarísku tækniaðstoðinni og
Tobey frá Sameinuðu þjóðunum.
— Þessi rannsókn sem nú fer
fram, er ekki eingöngu miðuð
við líðandi stund, heldur beinist
hún beint að grundvallaratriðum
íslenzks athafnalífs í framtíðinni,
sagði Baldur er við gengum á
hann um þetta. Þetta er allt í
deiglunni og verður það fyrst
um sinn. En það hlýtur að koma
að því að framkvæmdir verði
timabærar.
Baldur Líndal.
og svo vel vill til að tvö mikil-
væg jarðhitasvæði hér á landi
liggja nærri sjó, Krísuvík og
Reykjanestá. Og þessi svæði
liggja einnig vel við aðalmarkað-
inum, sem er fiskvinnslustöðv-
arnar.
Aftur á móti er saltmarkaður-
inn hér það lítill og einkum
dreifður, eitthvað milli 50—60
þús. lestir á ári, að ef einungis
er um hann að ræða, þá er hægt
að slá því nokkurn veginn föstu,
að ekki er ástæða til að leggja
áherzlu á saltvinnslu. Kostnaður
inn við að flytja saltið í smá-
skömmtum út um land, yrði of
mikill eins og er. Og við höfum
ekki eins og stendur komið auga
á leið til að framleiða svo lítið
magn af salti þannig að það verði
ódýrara en innflutt. Þó erum
við vissulega ekki langt frá því
marki. Hins vegar finnst mér
ástæða til að halda að breyting
verði á þessu og við munum
þurfa í meira mæli salt til efna-
iðnaðar. Og þá breytast viðhorf-
in.
★ Sjóefnaverksmiðja
hugsanleg.
Eitt af þeim atriðum, sem gæti
verið málinu hagstætt, er að
vinna fleiri efni en saltið eitt úr
sjónum með jarðhitanum, og
reisa sjóefnaverksmiðju. — Þó
magnið sé mest af solti í sjónum,
þá er ekki mesta verðgildið í
því.
— Hvaða efni eru helzt unnin
í sjóefnaverksmiðju, fyrir utan
saltið?
— T.d. gips, magnesumoxið,
kalíumklórið, kalsíumklórið og
bróm. Til þess að fá þessi efni
fram þarf ekki annað viðbótar-
hráefni en kalk, sem hægt er að
afla hér. Með því gæfist mikil-
vægur hráefnagrundvöllur fyrir
efnaiðnað, sem hér mætti reka.
— Þarf stóra og dýra verk-
smiðju til að vinna salt og önnur
efni úr sjónum?
— Ég veit ekki hvað segja
skal. Varla má nefna lægri tölu
en 3—4 milljónir dollara, til að
koma henni upp.
Síðan skýrir Baldur okkur í
stuttu máli frá tæknilegri hlið
málsins. Saltvinnsla úr sjó skipt
ist í tvo meginþætti. Sá fyrri er
sá að nema burtu það mikinn
hluta vatnsins, að eftir verði því
nær mettuð saltupplausn, og er
það frumvinnsla. Síðari þátturinn
er að iáta fara fram uppgufun á
mettuðu saltlausninni og skilja
frá saltið, sem myndast við það,
og er það hin eiginlega salt-
gerð. Sá hluti hefur reynzt auð-
leyst viðfangsefni og krefst, þrátt
fyrir aukaefnin í sjónum lítils frá
viks frá venjulegum margþrepa
eimingartækjum, sem notuð eru
almennt við saltvinnslu. En til
að spara orku, er gufan í þeim,
notuð koll af kolli við lægri
þrýsting í einum katli eftir ann-
an og eru minnst fjórir
katlar tengdir saman á
þennan hátt. Þessi tæki kallast
margþrepa eimar og geta þeir
sparað gufu í hlutfalli við fjölda
þessara eiminga í röð, þannig að
í stað 4—5 kg. af gufu á móti
hverju kg. af salti þarf e.t.v.
aðeins um eitt kg. af gufu. Voru
gerðar tilraunir hér sem sýndu,
að unnt væri að ná mestum
hluta saltsins á þennan hátt.
Gróft salt í fiskinn.
Aftur á móti segir Baldur að
annað vandamál hafi vafizt fyr-
ir sér í mörg ár. Þessir venju-
legu margþrepa eimar gefa fínt
salt, en vegna fisksöltunar hér
er nauðsynlegt að geta framleitt
gróft salt. í fyrstu beindist athygli
hans að samsvarandi aðferð við
þá sem náttúran hefux við fram-
leiðslu stórra einstakra kristalla,
en hún er alltof hægfara, því
kristallamir eru margar vikur
að myndast Hægt er að visu að
flýta þessu, en hæpið að lögun
og stærð kxistallanna yrði þá
fuUnægjandi. En þá datit hann
ofan á lausn . Ég var á gangi með
dr. Patel um saltverkunarstöð í
Reykjavík, segir Baldur, og vildi
þá svo til að verið var að saita
með steinsalti, þ.e. salti sem
hafði verið brotið 1 námu, en
ekki með sjósalti frá Miðjarðar-
hafinu, sem er hið venjulega
innflutta salt hér. Handfylli af
steinsaltinu gaf þá nýjan hug-
mynd. Þetta salt leit ekki út fyr-
ir að vera kristaUað heldur
pressað saman. Okkur datt þá í
hug að alveg eins mætti pressa
smáu kristallana frá venjulegum
saltgerðtækjum saman og mala
þá síðan á sama hátt og gert
hafði verið með þetta salt Eftir
að farið var að grennslast fyrir
um þetta, kom í ljós, að verk-
smiðja í Kanada, vinnur salt til
fisksöltunar á þennan hátt og
hefur kanadíska saltið verið
reynt hér við fisksöltun og
reynzt vel. Saltgerðin sjálí yrði
því ekki vandamál hér.
Frumvinnslan sjálf, þ.e.a.s. að
skilja mesta vatnsmagnið frá í
upphafi, til að flytja ekki aUt
iþetta magn af sjó í verksmiðj-
una, gæti orðið erfiðari. I full-
söltum sjó eru 28 kg. af salti í
hverjum rúmmetra og við góð
vinnuskilyrði yrði að nást 25 kg.
þar af.
Til að flá kg. af salti, þarf að
nema burt 34 kg af vatni I
frumvinnslunni, ef gert er ráð
fyrir að í saltgerðarþættinum séu
numin burtu 4 kg. vatns.
★ Saltið íslenzkt hráefni.
Varðandi seltuna hafa farið
fram selturannsóknir í sjónum
á svæðinu frá Þorlákshöfn til
Akraness. Eðlileg úthafsselta við
Suðvesturland reyndist 34—35%c.
Sumsstaðar var sel.tan mjög mis-
munandi yfir daginn eða eftir
árstíma, en það skiptir auðvitað,
máli í sambandi við vinnslu, sem
yrði að sjálfsögðu miklu dýrari
þar sem nema þyrfti burtu
meira magn af vatni til að fá
kg. af salti. Varðandi staðsetn-
ingu á verksmiðju þarf því að
taka slíkt til greina.
Þannig stendur nú málið. Víð-
tækar .ranmsókjiir hafa farið
fram á því hvort saltsuða úr sjó
með jarðhita sem aflgjafa yrði
hagkvæm og hvernig hún yrði þá
hagkvæmust. — Afstaðan til
slíkra mála breytist ár frá ári,
segir Baldur Líndal. Tæknilegar
athuganir standa fyrir sínu, en
markaðurinn getur breytzt og
öll aðstaða. Fá mál tel ég grund-
vallarlega mikilvægara að leysa
með tilliti til kemisks iðnaðar og
rannsóknir þær sem gerðar hafa
verið benda eindregið til þess að
salt megi þegar telja ielenzkt
hráefni, a.m.k. ef um efnaiðnað
er að ræða.
— E. Pá.
Heiídsölu- eða
skritslofuh úsnæ ði
3 herbergi, við miðbæinn, er til leigu frá 14. maí
Tilboð merkt: „Verzlunarstaður — 9090“, sendist
afgr. Mbl.
hnUtalausar síldarnætur
m JOM MSENS SÖOINIR BERGEN
Við bjóðum yður hnútalausu næturnar frá JOHAN HANSENS SÖNNEB
í Bergen.
Þessi tegund af hnútalausum nótum er amerísk uppfinning. sem Bandaríkja-
menn hafa notað síðan 1950. JOHAN HANSENS SÖNNER voru þeir fyrstu,
scm hófu framleiðslu á hnútalausum nótum á Norðurlöndum árið 1960 og
hefir þessi nýja framleiðsla á skömmum tíma rutt sér óðfluga til rúms í Noregi.
Næturnar eru framleiddar úr 100% nælon þræði í öllum möskvastærðum og
4 garnþykktum.
Siðan vélarnar voru settar upp í Noregi, hafa þær starfað dag og nótt, til þes«
að fullnægja eftirspurninni.
Hnútalausar nætur hafa eftirfarandi kosti framyfir hnýttar nætur.
1. Léttara að draga þær í sjónum.
2. Hafa meira slitþol.
3. Auðveldara að gera við þær, þar sem þær rifna á leggnum
á sama hátt og bómullarnætur.
4. Stærðin á möskvunum er alltaf jöfn. Engir dragmöskvar.
5. Það fer minna fyrir nótinni, og þessvegna þægilegri fyrir
notkun í kraftblökk.
6. Ódýrari en hnýtt nót.
Johan Hansens Sönner er ein af elztu og traustu veiðarfæraverksrmðjum
Noxegs og hefir selt veiðarfæri hingað til lands í heilan mannsaldur. Þessi
verksmiðja selur aðeins vandaðar vöiur.
Allar upplýsingar gefa:
Umboðsmenn:
Þórður Sveínsson & Co. hf.
Síml 18—700.
%