Morgunblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 10
MORGVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 1. maí 1962 Heimssýningin í Seattle MYNDIKNAR hér á síðunni eru frá heimssýningunni í Seattle, sem -opnuð var laug- ardaginn 21. apríl með mikilli viðhöfn. Myndirnar voru teknar áður en sýningin var opnuð og á flestum þeirra sjáum við geim nálina miklu blasa við. Hún er 600 fet á hæð. Á pöllunum, sem snúast, eru veitingastöfur Og efst í kúlunni er útsýnis- salur. Og upp er vitaskuld farið með hraðgengri lyftu. Bogarnir, sem bera við geimnálina á 2. d myndunum eru rúm hundrað fet, ög fyrir neðan þá sem og víða annars staðar á sýningarsvæðinu, eru stórir gosbrunnar, þar sem vatnssúlur þeytast hátt í lotft upp. Sem fyrr segir, voru mynd- irnar teknar rétt fyrir opnun sýningarinnar og má sjá, að þar Iiefur verið mikið um að vera, enda margar hendur lagt hönd á plóginn við undir búning sýningarinnar. Sýning ársvæðið tekur yfir 72 ekrur lands Og verður sérstakur ,,MonoraiI“, sem mætti kannske nefna „Einteinung“, meðan ekki finnst annað orð betra, í förum til og frá sýn- ingarsvæðinu, auk sporvagna og annarra farartækja. Kostnaður við uppsetningu þessarar sýningar nemur um það bil eitt hundrað milljón- um dala.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.