Morgunblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 24
Fréttasímar Mbl — eítir lokun — Erlendar fréttir: 2-24-85 Innlendat fréttir: 2-24-84 Heimssýningin Sjá bls. 10. 98. tbl. — ÞriSjudagur 1. maí 1962 Neytendur fá aflafé bænda — segja Framsóknarmenn í SEINNI tíð hefur Fram- sóknarflokkurinn reynt að láta til sín taka í verka- lýðshreyfingunni og stund um meira að segja talið sig helzta málsvara laun- þega. Gömul ognýreynsla er þó af því, að a.m.k. Reykvíkingar, hverrar stéttar sem þeir eru, geta lítils góðs vænzt af Fram- sóknarflolcknum. — Það vakti því enga sérstaka furðu, þegar tvö aðalblöð Framsóknarflokksins, í Reykjavík og á Akureyri, birtu nýlega eftirfarandi, er þau ræddu framleiðslu aukningu landbúnaðarins: „En þessi framleiðslu- aukning hefur þó nálega ekkert aukið tekjur bænda. Þeim hafa verið skömmtuð launin í sam- ræmi við laun verka- manna. Hagurinn af fram leiðsluaukningunni hefur fallið í hlut neytenda. Bændur hafa um langa tíð sætt sig við „gerðar- dóm“ um tekjur, einir allra stétta. Hagur þeirra væri góður, ef neytendur hefðu ekki nær alveg not- ið framkvæmdanna, sem þjóðin öll og þó fyrst og fremst bændur eiga heið- urinn af.“ Slíkar fullyrðingar Fram sóknarmanna byggjast á tvennu. — í fyrsta lagi gleyma þeir alltaf annað veifið, að þeir eru að reyna að seilast til áhrifa í þéttbýlinu, og hins veg- ar er það árátta þeirra að reyna að efna til tor- tryggni og jafnvel fjand- skapar milli þeirra, sem búa í dreifbýlinu, og höf- uðborgarbúa. 1. maí er. full ástæða til að þeir, sem í bæjum bua, og ekki sízt Reykvíkingar, veiti þessum orðum Fram sóknarblaðanna athygli, því að sjálfsagt mim þenn an dag kveða við annan tón, þótt hugarfarið sé óbreytt. Göðviðri í dag Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi: Allt landið og miðin: Hæg- viðri og góðviðri, skýjað víð ast hvar. Næturþaka austan tends. Sjálfstæðisfélag Seltyrninga Stjóm og trúnaðarmannaráð heldur fund í Valhöll annað kvöld, miðvikudag, kl. 8:30. Varbarfundur annah kvöld Gatnagerð, íbúðabyggingar Borgorstjóri opnar Verka- mannahúsið í dag KL. 16 í dag mun Geir Hall- grímsson borgarstjóri opna hið nýja Verkamannahús og sjó- mannastofu Reykjavíkurborg- ar við höfnina. Síðan verður húsið opið almenninigi til sýn- is tol. 18—21. Húsið, sem er hið glæsi- legasta og vandaðasta, stendur við Tryggvagötu vestan Lofts bryggju Hefur það verið í byggingu nokkur undanfarin ár. í því er m. a. biðsalur fyrir verkamenn, sjómanna- stofa, gistiherbergi fyrir sjó- menn með samtals um 20 rúm- um og stór veitingasalur. Arki tekt byggingarinnar, sem er mjög nytízkuleg í útliti Og frá gangi, var Einar Sveinsson. Kosningaslkrifstofa Sjálfsrtæðis flokksins Kópavogi er í Sjálf- stæðishúsinu. Opin kl. 13—22 dag lega. Símar 19708 og 37314. Hvar ■em llttð er af sýn- ingarsvæðinu á heimssýn- ingunni í Seattle blasir þessi mkila súla við áhorf- endum. Bandaríkjamenn kalla hana „Space Needle“ — Geimnál — og hér á myndinni sést er verið var að þræða nálina. Það var sérstaklega gert fyrir frétta- ljósmyndara sem höfðu flykkzt til Seattie hvaðan- æva að, áður en sýningin var opnuð. Þessa mynd tök ljósmyndari Seattle Times, Josef Scaylea. — Sjá fleiri myndir frá heimssýning- unui á bls. 10. Geir Hallgrímsson Gisli Halldórsson Á fundi Landsmálafélagsins Varðar, sem haldinn verður ann- að kvöld, 2. maí, mun Geir Hallgrímsson borgarstj gera grein fyrir hinni nýju áætlun um fullnaðarfrágang gatna í Reykjavík- urborg. Á sama fundi mun einnig Gísli Halldórsson, arkitekt, sem er 3. maður á franr.hoðslista Sjálfstæðisflokksins vð borg- arstjórnarkosningarnar í Reykjavík, flytja ræðu um íbúða- byggingar í borginni. Fundurinn verður haldinn í Sjálfstæðighúsinu og hefst kl. 20.30. Þau mál. sem þarna verða tekin til umræðu, eru vafalaust Fundurinn á mivikudagskvöld er einn af nokkrum fundum, sem Vörður hefur gengizt fyrír á undanförnum mánuðum til kynn meðal hinna stærstu er nú liggja | ingar á starfi meirihluta sjálf- stæðismanna í borgarstjórn og hinna ýmsu stofnana borgarfé- lagsins. — Eru fylgismenn Sjálf stæðisflokksins eindregið hvattir til að mæta á fundinum. fyrir hjá borgaryfirvöldunum til úrlausnar. Hefur t.d. í marga mánuði verið unnið kappsamlega að undirbúningi gatnagerðar- áætlunarinnar sem nú er full- samin. Blíndaðist af tréspíritus AÐFARANÓTT laugardags var maður lagður inn á Landsspít- alann og var hann drukkinn og sjóndapur og bar einkenni þess að hafa neytt tréspíritus. Með- höndluðu læknar hann með til- liti til þess og er hann nú á batavegi. Um kl. 2 þessa nótt, sá kona ein drukkinn mann á ferli á Frakkastíg og þótti hann undar- legur í háttum. Er hún gaf sig að honum, kvaðst maðurinn allt í einu vera orðinn blindur. Bíl- stjóri ók honum í Landsspítal- ann, en þaðan var lögreglunni gert aðvart. Kvaðst' maðurinn hafa keypt pela af spíritus af bílstjóra, sem hann vissi ekki frekari deili á. Drakk hann að mestu elnn úr flðskunni, en varS ekki var við annað en að þetta væri venjulegur spíritus. Þrátt fyrir leit lögreglunnar að sölumanni þessa drykkjar, hefur ekki hafzt upp á honum. Kópovogui Utan kjörstaðakosning í Kóp» vogi. Bæjarfógetaskrifstoifan 2 Kópavogi er opin vegna utan* kjörBtaðakosninga alla virika daga á venjulegum skriifstofu* tíma og auk þess frá kl. 18—20 að kvöldinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.