Morgunblaðið - 03.05.1962, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 3. maí 1962
MORGUNBL'AÐIÐ
13
RÆÐUMENN á útifumdi Full-
trúaráðs verloalýðsfélaganna á
aLækjartorgi 1. maí víttu mjög
Vinnubrögð kommúnista í 1. maí
nefndinni, sem leiddu til þess,
að ekki náðist samstaða um há
tíðahöldin á þessum baráttudegi
verkalýðsins. Þá lögðu þeir m. a.
dherzlu á, að framleiðsla og
vinnuhagræðing ykist, laun hinna
lægst launuðu yrðu hækkuð og
lausn fengist í togaradeilunni.
Keppa bæri að raunhæfum kjara
bótum, svo að kaupmáttur launa
ykist en ekki að óraunhæfum
kauphækkunum sem leiddu til
víxlhækkunar verðlags og kaup-
gjalds, en leiddu ekki til kjara-
bóta. Mikið fjölmenni var á fund
inum, sýndi hann einhug og bar-
áttuvilja lýðræðissinna. Lúðra-
sveitin Svanur lék í uppliafi
fundar og á milU ræðnanna.
Getum ekki án togara verið
Um leið og J[ón Sigurðsson,
form. Sjómannasamtajkanna, setti
fundinn, lýsti hann nokkuð að-
draganda þess, að ekki náðist
samstaða um hátíðanhöldin. Aug-
ijóst væri af vinnubrögðunum, að
1. maí á Lækjartorgi.
Mikið fjölmenni og einhugur á fundi
lýðræðissinna á Lækjartorgi 1. maí
kómmúnistar ætluðu sér aldrei
samkomulag, heldur vildu þeir
vera einir um daginn sem að
undanförnu. — Þá ávarpaði Jón
Sigurðsson fundinn Og gerði að
umtalsefm togaraverkfaliið og
erfiðleika togaraútgerðarinnar.
Kvaðst hann neita því algjör-
lega sem hinni mestu firru að
ekki væri iengur grundvöllur
fyrir togaraútgerð hér á landi.
Krafa okkar í dag væri og kvaðst
hann vita, að mikill meirihluti
þjóðarinnar tsðki undir það, að
án tafar verði gerðir samningar
um verulegar bætur togaramönn
um til handa, svo að togararnir
verði leystir og geti sótt á miðin
é ný, sækjandi björg í bú.
Á lagalegan og siðferðilegan
rétt á inmgöngu í ASÍ
Sverrir Hermannsson, for-
maður Landssambands íslenzkra
verzlunarxnanna vék m. a. að því
í ávarpi sínu, er landssambandinu
var meinuð innganga í ASl, þótt
við lagalegan og siðferðilegan
rétt væri að styðjast, — þótt
samtök verzlunarfól'ks á íslandi
hafi fengið iýllstu viðurkenningu
gamalla og gróinna alþýðusam-
banda á Norðurlöndum sem full-
veðja verkalýðssamband og þrátt
fyrir það að verzlunarfólk þurfi
flestum óðrum fremur á öftugum
bakhjarli að halda í baráttunni
fyrir bættum kjörum sinna lægst
launuðu.
Unnt hefði verið að ná
samkomulagi
Öskar Haligrímsson, form. Fé-
!ags ísl. rafvirkjam. gerði m. a. að
umtalsefni vinnubrögð kommún-
ista í 1. maí nefndinni. Þeir hefðu
í blöðum sínum reynt að láta
líta svo út, að ágreiningur um
kjaramálin hefði valdið því, að
samkomulag náðist ekki. Hér
væri hlutunum snúið við eins og
venjulega á þeirn bæ. Enginn vafi
væri á, að unnt hefði verið að
ná samkomulagi um kröfur dags-
ins í kjaramálum, ef kommún-
istar hefðu haft nokkurn áhugaj
á því. Fulltrúar lýðræðissinna í
1. maí nefndinni legðu fram til-
lögu um að reynt yrði til hlítar
að ná samkomulagi um ávarp
dagsins eingöngu á stéttarlegum
grundvelli. Þá tillögu hefðu
kommúnintar fellt, þar eð stéttar
leg eining verkalýðsins þennan
dag hefði skipt þá minna máli en
flokkshagsmunir þeirra.
Guðjón Sigurðsson, form. Iðju,
kvað stefnu lýðræðissinna í kjara
mélurn að knýja fram raunhæfar
kjarabætur fyrir launþega, kjara
bætur, sein ekki verða teknar
aftur með hækkuðu vöruverði og
sköttum en einblína ekki á krónu
tölu kaupsins eingöngu. En til
raunhæfra kjarabóta teldist m. a.
næg Og örugg atvinna, betri
vörur og ódýrari; einnig þyrfti að
vinna að visinaalegri hagræðingu
vinnunnar á öllum þeim vinnu-
stöðum, sem unnt er að koma því
við, þar sem það sé grundvöllur
hærra kaups. Ákvæðisvinna, þar
sem henni verður við komið, Og
margs konar uppbótakerfi, þar
sem laun eru greidd eftir afköst-
um, er það sem hlýtur að koma
hér til framkvæmda á næstu ár-
um.
Á þessum hátíðisdegi verka-
lýðsins sameinuðumst við öll um
að bera fram kröfur um raun-
hæfar kjarabætur en létum
kommúmsta ekki kljúfa fylkingu
okkar í sóknmni til betri lífs-
kjara.
Hugsum til stéttarbræðra okkar
mn heim allan
Eggert Þorsteinsson,, form.
Múrarafélagsins, kvað okkur á
þessum degi hollt að hugsa til
stéttarbræðra okkar um heim
allan, þar sem fæstir eru komnir
lengra í bættum þjóðfélagshátt-
um en ailt oí margir skemmra
á veg. Okkur verður hugsað til
þeirra, sem búa við efnahagslega
Og andflega kúgun erlendra stór-
velda. Þess vegna sameinumst
við alþýðu ailra landa í kröfunni
um skoðanafrelsi og jafna að-
stöðu til mennta og aukinnar hag
sældar og óskinni um bræðralag
þjóða í milli.
Sækir fram til nýrra
o& stærri sigra
Bergsteinn Guðjónsson, form.
Frama, komst svo að orði, að um
leið og íslenzk alþýða fagnaði
því, er áunnizt hefði á liðnum ár-
um til bætíra kjara, aukinna rétt-
inda, menningar og öryggis,
strengdi hún þess heit, að efla
samtök sín og sækja fram til
nýrra og stærri sigra. Á degi sín
um, 1. maí, gerði alþýðan kröfur
sínar. Þær væru að sjálfsögðu
margar, en ræðumaður kvaðst
m. a. vilja ieggja mesta áherzlu
á, a ríkisvaldið tæki fullkom-
lega til greina réttlátar kröfur al-
þýðunnar Og sjái jafnframt um,
að ávallt verði næg vinna handa
öllum, er unnið geta; að hægt
verði að lifa mannsæmandi lífi
með því að vinna 8 stundir á
dag og að kauipmáttur launa
verði aukinn, að ríkisvaldið lækki
aðflutningsgjöld á samgöngutækj
um, sem notuð eru til almenn-
ingsþarfa og alit verði gert ti’l
að búa svo að æsku þessa lands,
að hún geti hlakkað til framtíðar
*
Islenzkt öl og súkkulaði í
skipum Eimskipafélagsins
Allsherjar tollvömgeymslu komið upp fyrir
rekstrarvömr skipanna
SAMKVÆMT lögum frá Iþví
í maí 1961 um tollvöru-
geymslur var heimild fyrir
skipa og flugfélög til þess að
eiga hér á‘ landi vistir, út-
búnað og annan forða. er
þurfti til farkosta þeirra,
sem eru í stöðugum ferðum
milli íslands og annarra
landa. Leyfi ráðherra þurfti
þó til að koma upp slíkum
geymslum.
Eimskipafélag fslands hefur
nú komið sér upp slíkri forða-
geymslu og spurðLst blaðið fyrir
um rekstur hennar hjá Guð-
mundi W. Vilhjálmssyni, inn-
kaupastjóra félagsins.
Nú keypt hjá framleiffendum
Neyzlu- og rekstrarvörur fyrir
skip og skipshafnir félagsins
voru áður keyptar hjá svonefnd-
um „skipshöndlurum“ erlendis.
Nú eru þær hinsvegar keyptar
beint frá framleiðendum og
fluttar hingað og varðveittar í
tollvörugeymslunni þar til
þeirra eru not. Þráfaldlega henti
að skipin urðu að kaupa vörur,
sem „skipshandlarar“ þeirra
höfðu ekkj sjálfir á boðstólum,
en gátu útvegað frá öðrum, en
að sjálfsögðu með aukakostnaði.
Flestar slíkar vörur eru nú fyrií
hendi í tollvörugeymslu félags-
ins.
Málning, sem er stór liður í
rekstrarvörum skipanna, er nú
keypt beint frá framleiðendum,
bæði hér og erlendis,
Sterkur bjór var keyptur hér
hjá ölgerðinni Egill Skalla-
grímsson og í fyrsta'sinn settur
um borð í Gullfoss í síðustu
ferð hans, en ekki er vitað
hvernig hann hefur reynzt fyrr
en eftir komu skipsins hingað.
Þá hafa íslenzk vín, svo sem
brennivín og ákavíti verið not-
uð um borð í farþegaskipunum
og þótt fyllilega sambærileg við
samkonar erlend vín, sem þar
hafa verið veitt. Auk bjórsins
og vínsins er íslenzkt súkkulaði
á boðstólum í skipunum.
Raunar er ekki hægt að segja
að vörur þær, sem í þessa toll-
vörugeymslu fara, séu fluttar
inn, því af þeim er aldrei greidd
ur tollur og þær eru aðeins not-
aðar um borð í skipunum. Sama
gegnir um framleiðslu innlendra
fyrirtækja. Af þeim er ekki
greitt framleiðslugjald og gildir
um þær hið sama og um útflutn-
ing væri að ræða.
Marg-háttaður sparnaður
Af þessu leiðir margháttaðan
spamað, fyrst og fremst fyrir
skipafélagið sjálft, ennfremur
er þetta gjaldeyrissparnaður og
raunar í sumum tilvikum auk-
inn útflutningur, þegar um ís-
lenzkar framleiðsluvörur er að
ræða, sem áður voru keyptar er-
lendis sökum þess að hinar ís-
lenzku vörur, þótt samkeppnis-
færar væru að gæðum, voru
ávallt dýrari.
í heild lét Guðmundur mjög
vel af framkvæmd þessa máls
það sem af er, en þetta fyrir-
komulag hefur nú gilt í tvo
mánuði.
Kjörskrá
Kærufrestur vegna kjör-
skrár er til 5 maí nk. Rétt
til að vera á kjörskrá í
Reykjavík hafa allir þeir sem
þar voru búsettir 1. des. sl.
Kosningaskrifstofa Sjálfstæð-
isflokksins, Aðalstræti 6, II.
hæð, aðstoðar við kjörskrár-
kærur.
Skrifstofan er opin daglega
frá kl. 10—10. Upplýsingar
um kjörskrá í síma 10129.