Morgunblaðið - 03.05.1962, Blaðsíða 22
22
MORCllS TtLÁÐlÐ
Húsmæður í leikfimi.
Friíarleikfimin vinsæl
ÍÞHÓTT AB A NDALAG Reyikja-
víkur hefur í vetur gengist fyrir
námgkeiðum í frúarleikfimi. Hafa
æfingar verið haldnar á ýmsum
gtöðum í bænum og æfingarnar
einkum verið fólgnar í mýiking-
ar- og afslöppunaræfingum Og
ýmiskónar leikjum. Æfingarnar
fóru í vetur fram í Miðbæjar-
skólanum, Laugarnesskólanum,
Bréiðagerðisskólanum og íþrótta-
húsi Jóns Þorsteinssonar.
Nómskeiðin í vetur, þó í
smærri stíl væru en ráð ^ar fyrir
gert í upphafi, tókust með mikl-
um ágætum. Alls tóku um 300
könur þátt í þeim, en þátttöku-
gjald var 200 krónur, yfir nám-
skeiðið.
Svo mikil aðsókn var að nám-
skeiðunum að eklki var unnt að
fullnægja eftirspurn um þátttöku.
N.k. vetur standa vonir til a
rýmri tími tii náimskeiða fáist
í íþróttahúsunum, og þé þannig
að allar konur sem vilja geti
tekið þátt í þessum ágætu nám-
skeiðum. Húsmæðurnar sem þátt
tóku í námskeiðunum á s.l. vetri
fundu hversu heilnæmt er og gött
að stunda létta íþróttaæfingu und
ir góðri tilsögn.
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa nú þegar
SÍLD & FISKUR
Bergstaðastræti 37
r.
THILMA SmiR BADFATATm
Thelma Ingvarsdóttii' er orðin með vinsælustu og
eftirsóttustu ljósmyndafyrirsætum í Kaupmannahöfn.
í nýjasta FÁLKA er heil myndaopna af henni þar sem
hún sýnir baöfatatízkuna 1962.
DULARFYLLSTA HÚS í REYKJAVÍK
Frá því að húsið að Höfða var reist, hefur það verið
í vitund manna eitt dularfyllsta hús Beykjavíkur.
Þar hafa frægir menn húið og kunnir menn gist. Þar
íinæddi Sir Winston Churchill og Dr. Carcot kom
þar oftar en einu sinni. Og þar bjó Einar Benedikts-
son um skeið. 1 nýjasta FÁLKA cr rætt um húsið og
búendur þess.
Fimn^tudagur 3. ma.í 1962
Knattspyrna
á sunnudag
KNATTSPYRNAN byrjar á
sunnudaginn. Og það eru
Þróttur og Valur sem eiga
fyrsta leikinn kl. 8,30 á
sunnudagskvöld. Sá leikur
er samkvæmt töflu 3. leikur
Reykjavíkurmótsins, e n
bleyta á vellinum hefur taf-
ið fyrir því fram að þessu,
að mótið gæti hafizt.
Mibl. átti tal við Baldur Jóns-
son vallarstjóra í gærkvöldi og
hann sagði:
Ég geri ráð fyrir að þetta
verði allt í lagi á sunnudaginn.
Völlurinn hefur tekið sig mjög
vel síðustu góðviðrisdagana. —
Hann verður án efa mjúkur og
það er alveg óvíst, hvað hægt
verður að gera fyrir hann með
vélum, en við vonum hið bezta,
og reynum að hafa hann eins
góðan og unnt verður.
— Hefur mikið verið æft á
völlum Reykjavíkurborgar?
— Ég veit að félögin hafa æft
vel hvert á sínu svæði, en það
hefur minna verið æft hjá okk-
ur en oft áður vegna aurbleyt-
unnar.
— Hvernig er umhorfs á Laug
ardalsvellinum?
— Mér finnst völlurinn koma
undravel undan vetrinum, Að
vísu má merkja á honum hin
hörðu frost síðla vetrar.
Við vorum þar innfrá í fyrra-
dag og þá mældist 29 cm niður
á klaka í jörð. En slíkur klaki
hverfur fljótt í veðri sem nú er.
— Lízt þér vel á knattspyrn-
una í sumar?
— Ég held að félögin hafi æft
vel, hvert fyrir sig, en með þeim
æfingum hef ég ekki fylgzt
vegna þess að lítið af þeim hef-
ur farið fram hjá okkur á Mela-
vellinum. En þetta skýrir sig
fljótt í fyrstu vorleikunum,
sagði Baldur að lokum.
Benefica vann
E vrópubikarinn
PORTÚGALSKA knattspyrnulið
ið Benefica vann Evrópubikarinn
í knattspyrnu í annað sinn í gær-
kvöid. Vann liðið Real Madrid
frá Spáni með 5—3 í leik sem
fram fór í Amsterdam.
Frá upþhafi leiksins áttu Pörtú
galir mikinn sóknarleik og það
kom greinilega í ljós að Spán-
verjarnir áttu í miklum erfið-
leikum. En er 10 mín. voru af
leik virtist Real Madrid-liðið
kömið í gang Og á 14. mín. náði
Real forystu. Á 23. min. skoraði
Real Madrid annað mark.
Puskas var að verki í bæði skipt-
in eftir laglegar sendingar í síð-
ara skiptið frá del Sol h. inn-
herja.
Benefica-menn gáfust ekki upp
og á 25 mín. tókst Agus að
minnka bilið. Sköraði hann eftir
aukaspyrnu af 30 m. færi, sem
Euseibo tók.
V. framv. Camen jafnaði síðan
fyrir Benefica á 34. mín. En
aðeins 4 min. síðar náði Real
aftur forystu öll framlínan vann
að markinu með gflæsilegum sam
leik og skiptingum en Puskas rak
endahnútirm og hafði þar með
skorað ,,hat-trick“. Þannig var
staðan í hálfíeik.
í síðari hálfleik var eins og
nýtt Benefiea-lið kæmi á völl-
inn. Upphlaupin komu hvert aí
öðru að Real markinu og mark-
vörðurinn var að yfirbugast.
Bftir 6 mín. jafnaði Coluna v.
innih. fyrir Benefica 12 mín síðar
fékk Benefica vítaspyrnu og
Eusibo skoraði. Fimm mín. síðar
skoraði Esibeio fimmta mark liðs
síns með fallegu skoti.
Real Madrid sótti án aflóts í
leilkslok ea tókst ekki að minnka
ósigurinn þó oft lægi nærri. Vörn
Benefica reyndist mjög sterk.
65000 manns sáu ieikinn. Mesta
athygli vöktu Puskas hjá Real
Madrid með sitt ,,hat-trick“ og
hjá Benefica var hinn 19 ára
gamli Euseibo hið mikla leyni-
vopn. Hann vakti atihygli allra
og var bezti maður Benefica, drif
fjöður sigursins.
Stúlka óskast
til afgreíðslustarfa
SÍLD & FISKUR
Austurstræti
Orðsending
frá Sjómannafélagi Reykjavíkur.
Fundur verður haldinn með togarasjómönnum í
Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu kl. 8,30 í kvöld.
Kynnt verður miðlunartillaga frá sáttasemjara
í togaradeilunni.
STJÓRNIN.
Stúlka óskast
til afgreiðsiustarfa í húsgagnaverzlun
Trésmiðjan Víðir
Laugavegi 66
Vinna
Ungur lagtækur maður óskast
Verkstæði Egils Óskarssonar
Ármúla 27