Morgunblaðið - 04.05.1962, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 04.05.1962, Qupperneq 3
Föstudagur 4. maí 1962 M O R G U N B LH ÐIÐ /fí ■ (r-Jorciin ohhcir í GÆR ákváðum við að bregða okkur á borgarstjórn- arfund og sjá hvernig hann fer fram án alis tíllits til málanna sem bar er verið að ræða, eða stjórnmálaskoð- ana þeirra, sem þar taka tíl máls. Laust fyrir kl. 5 síðdegis göngum við inn í anddyrið í Skúlatúni tvö. Þar hittum við Gásla Halldórsson borgar- stjórnarfulltrúa og verðum honum samferða í lyftunni upp á 4. hæð. ★ í hliðarherbergjum borgar- Hér sitja þeir og gæða sér á kaffinu, Páll L.índal skrifstofustjóri borgarstjóra, Magnús Jóhannsson, Guðmundur H. Guðmundsson og Einar Thoroddsen. — Ljósm.: Ól.K.M. Skyndimynd af borgarstjdrnarfundi stjórnarsalarins eru fulltrúar okkar borgarbúa að ræða saman. Guðmundur H. Guð- mundsson og Alfreð Gísla- son tala saman og er sýni- lega mikið niðri fyxir, enda væri ekki hægt að koma hnífs blaði á milli þeirra. í hliðar- herberginu er Georg starfs- maður borgarstjórnar í óða önn að raða niður málsskjöl- um fyrir fulltrúa og blaða- menn og aðra þá er sérstak- lega vilja kynna sér hvað til umræðu er á fundinUm. Höakuldur Ólafsson banka- stjóri kemur í flasið á okkur í þann mund er frú Auður Auðuns hringir til fundar. Hann situr sem varafulltrúi og gengur í salinn. Aðrir full- trúar flýta sér einnig til sæta sinna, skrafandi hver við annan og gæti ókunnugur með engu móti getið sér til um flokksstöðu þeirra, er hann sér þá taka sér sæti. Frú Auður les nú upp hverja fundargerðina af ann- arri frá borgarráði og þær eru samþykktar í einu hljóði, þar til kemur að þeirri sjö- undu. Þar er heljar mikU áætlun um götur og gatnagerð borg- arinnar og niú tekur borgar- stjóri Geir Hallrímssoe tíl máls. Þar sem við höfum ekkert vit á götum né gatna- gerð, nema hvað við viljum auðvitað öll fá þær steyptar eða malibikaðar og allsstaðar viljum við hafa gangstéttir. Við hlustum aðeins með öðru eyranu á Geir, en tökum nú að virða fyrir okkur hina virðulegu fuUtrúa. 1 þann mund er borgar- stjóri hóf mál sitt börðu þeir Guðmundur Vigfússon og Þórður Björnsson báðir í borð ið tU að gefa hæstvirtum for- seta það til kynna, að þeir vildu fá að tala mn málið þótt síðar yrði. Guðmundur mun þó heldur hafa orðið Þórði fljótari. Undir ræðunni róta fulltrúar í skúffum sín- um, draga fram skjöl og skýrslur. Þórður raðar upp blöðum og bæklingum, rífur skjöl og skrifar á önnur. Þá snarast Úlfar Þórðarson í salinn, hefir líklega orðið síðbúinn frá augnskoðun á einhverjum sjúklinga sinna. Hann tekur sér sæti og ræðst á skjölin. Guðmundur H. Guð mundsson tekur lífinu með einstakri geðspekt og ró, þar sem hann situr og snyrtir neglur sínar. Skyndilega vind ur hann sér að Magnúsi Jó- hannssyni og þeir taka hljóð- skraf saman. Okkur finnst fulltrúarnir ekki um of þaulsætnir í stól- um sínum, þótt þarna virðist hinir beztu stólar. En það þarf sjálfsagt að hyggja að ýmsu. Allt í einu er Gísli Halldórsson kominn með mik ið og litauðugt kort af borg- inni fyrir framan sig. Það sýn ir víst göturnar og ásigkomu- lag þeirra. Þórður er hættur að skrifa, Úlfar er búinn að raða plöggunum fyrir framan sig og nú sýnilega til í allt, en Alfreð Gíslason grúfir sig niður í skjölin sín, eins og hann væri að athuga bakterí- ur í smásjá. Gróa Pétursdóttir lítur mildum augum upp til okkar, en Guðmundur Vig- fússon skrifcu: athugasemdir á eitthvert plagg og skoðar það í bak og fyrir. Einar Thor oddsen situr hinsvegar sem fastast gegnt Alfreð og sýni- lega fær ekkert haggað hon- um. ★ Skyndilega stöðvar borgar- stjóri mál sitt, gefur ritara borgarstjórnar, Páli Líndal merki, þrífur vatnsglas, hljóð skrafar við Pál, sem yfirgefur salinn og borgarstjóri heldur áfram ræðu sinni. Okkur flaug rétt í hug hvort Geir Hallgrímsson hefði nú gleymt að kaupa í matinn, klukkan langt gengin sex, og því yrði að bjarga á síðustu stundu. En það stóð ekkert um þetta skráð á andlit Páls. Magnús Ástmarsson stend- ur upp snúðugt, lítur snöggt upp til okkar og hverfur svo inn í hliðarherbergið. Við lít- um yfir borðin og fylgjumst enn með viðbrögðum ein- stakra fulltrúa. Gróa er nú farin að teikna rósaverk á dagskrána og sýndist okkur helzt ofan af áhorfendai>öllun um að það muni vera krossa- saumsmynstur. Við erum nú búnir að vera þarna um hálfa klst. og enn stendur einn stóll Alþýðu- bandalagsmanna auður. Það vantar Guðmund J. Guð- mundsson. Hann virðist hafa STAKSTEINAR Rauði-Tími og rússneska sendiráðið Tíminn býsnast mjög yfir því í aðalfrétt á forsíðu i gær a9 rússnesk fiugvél hafi ekki feng- ið lendingarleyfi á Keflavíkur- flugvelli og sneri sér af því öt- efni ttí blaðafulltrúa sovézka sendiráðsins og fékk upplýsingar um málið hjá honum. Skýringin á þessu máli er sú að ísland hefir ekki loftferða- samning við Sovétrikin og því verður að sækja sérstaklega um lendingarleyfi fyrir hverja rússneska flugvél, sem hingað kemur. Ekki alls fyrir löngn lenti rússnesk flugvél tvisvar é Keflavíkurflugvelli á leið vestur og austur um haf. Þurfti þá að sjálfsögðu að fá leyfi fyrir lend- ingu og var það veitt. <► rrtíl öðrum hnöppum að hneppa en hugsa um gatnagerð borg- arinnar. Geir hefir lokð máli sínu meðan vð göngum inn í bakherbergi við áhorfenda- pallana og hingjum í símann þar og horfum á varúðann yfir Kleppsholtinu. Guðmund ur Vigfússon fær orðið og Páll Líndal styður á hnapp og ræðupúlt stígur hátíðlega upp úr borðinu, sem er á vinstri hönd forseta. Nú getur Guð- mundur óhikað byrjað að punda á borgarstjóra og meiri hluta borgarstjórnar. Augu okkar beinast að margflata kassa, sem er á borðinu fyrir framan forseta. 1 Við komumst að því að þarna er nafnakallaskrín, sem situr sinn fyrsta fund borgarstjórn ar, hinn smekklegasti gripur, prýddur skjaldarmerki borg- arinnar. Þórður er farinn að snyrta neglur sínar og hver fulltrú- inn stendur upp af öðrum og loks er svo komið að Gróa og Gísli sitja ein og skrifa með- an Guðmundur Vígfússon tal- ar um malbik og meira mal- bik. Við endum þessa heimsókn okkar á borgarstjórnarfund með því að fara fram í hinn glæsilega kaffisal fulltrúanna og þar sitja nokkrir þeirra fyrir og gæða sér á kaffi og kökum. Þeir bjóða okkur að neyta veitinganna með sér. Og við þiggjum það alls óviss ir um að þeir mimi bjóða okkur hið sama næst þegar við komum, eftir að hafa les- ið frásögnina. En þá verða kannske komnir einhverjir aðrir, sem ekkert hafa upp á okkur að klaga. I ganginum hittum við Guð mund J. þegar við erum að fara. — Maður þarf ekki síður að hugsa um verkalýðinn en göturnar, svaraði hann okk- ur, er við spurðum af hverju hann kæmi klukkustund of seint. RabbaS saman í hliðarherbergl. Frá v. Höskuldur Ólafs- sou baukastjóri, Þorbjörn Jóhannesson í Borg og Gunn- laugur Pétursson borgarritari. Gyldendal gaf út Heims- Ijós á afmæli Kiljans í TILEFNl af sextugs afmæli Halldórs Kiljans Laxness, sendi Gyldendals bókaforlagið frá sér bókina Heimsljós í danskri þýð- ingu Jakobs Benediktssonar. Áður hafði útgáfufyrirtækið gef- ið bókina út í fernu lagi, Ljós heimsins í tveimur bindum, Höll sumarlandsins og Fegurð himins- ins. Nú er verkið aftur á móti í einni bók, sem er 525 bls. að stærð. Dönsku blöðin segja frá út- komu þessarar bókar, og fara mörgum orðum um söguhetjurn- ar Ólaf Kárason ljósvíking og Pétur þríhross, og eru mjög hrifnir af báðum svo og bók- inni í heild. Áður hefur Gyldendal gefið út í danskri þýðingu þessar af bókum Kiljans Laxness: íslands- klukkuna, Hið ljósa man, Eldur 1 Kaupinhafn, Salka Valka, Atom stöðina, Ungfrúin góða og húsið, Gerplu, BrekkukotsannáJ og Paradísarheimt. [l|f P Titoff banngð ad lenda á íslandil >Í|ÉfJÍg||. 60 ÁRA SVÍIHEFUR ÞREK'jM^ A VIO 20 ÁRA iSLINOIHG WÉM. Hfi ?:“ Framtakssamir borgarar en duglaus meirihluti Forsiða Rauða-Tíma í gær. En það eru ekki lendingar rttaa neskra flugvéla á Keflavíkurflug velli, sem athygli vekja heldur hitt að Þjóðviljinn hefir ekkert birt um mál þetta. Tíminn er jafnvel farinn að hneyklast meira á „meðferðinni" á Rússunum en sjálft Moskvumálgagnið! Ekki er annað að sjá en þetta aðalmái- gagn Framsóknarflokksins sé jafnframt orðið aðalmálpipa rússneska sendiráðsins á Islandi. Svo langt er nú Rauði-Timi leiddur í kommúnistaþjónkuu sinni. „Daginn eftir“ Aiþýðublaðið ber þess. merki, ekki síður en önnur blöð, að tíminn til kosninga styttist nú óðum. Þetta má m.a. merkja af þvi, að blaðið er nú allt í einu farið að kalla Sjálfstæðisflokk- inn „ihaldið", eins og í gamla daga, a.m.k. þegar það talar um meirihluta Sjálfstæðis- manna í borgarstjórn Reykja- víkur, þó að ráðherrar Alþýðu- flokksins séu auðvitað yfir það hafnir að sitja með „ihaldinu** í ríkisstjórn. Þeir sitja í stjóra með Sjálfstæðismönnum. Undanfarin 3 ár hefur líka Alþýðublaðið talað um sam- stöðu lýðræðissinna innan verkalýðshreyfingarinnar sem eina aflið, er komið geti mál- efnum verkalýðsins áleiðis. Nú virðist sem nokkra eftirþanka hafi sett að stjórnmálaritstjóra blaðsins, því að ekki verður annað skilið á forystugrein þess í gær en að það telji Kommúnistaflokkinn og AI- þýðuflokkinn hina einu sönnu verkalýðsflokka, og það varar „Moggann" við því að „taia atvinnurekendarödd, þegar hann klæðist verkalýðsfötum". Þeir pólitísku timburmenn, sem virðast hafa heltekið rit- stjóra Alþýðublaðsins, lýsa sér vei í yfirskrift forystugreinar blaðsins í gær: „Daginn eftir", og verður önnur ályktun naum- ast dregin af þessum skrifum en sú, að Alþýðuflokkinn sé nú farið að langa til að reyna „vinstri stjóm" með kominúnist um og framsóknarmönnum í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.