Morgunblaðið - 04.05.1962, Síða 6

Morgunblaðið - 04.05.1962, Síða 6
6 MORGVNBL AÐ1Ð Fostudagur 4. maí 1962 Síldarlöndun Síldin ekki f lutt norðurvegna mikils flutningskostnaðar SR kaupir sildina komna til Siglu- fjarðar á sama verði og verksmiðjur við Faxaflóa FRÉTTAMAÐUR Mbl. hitti í gær að máli Svein Benedikts- son, form. stjórnar Síldarverk- smiðja ríkisins, og ræddi við hann um ýmislegt varðandi vinnslumöguleika á Suðurlands- síld á Siglufirði, sölu sildar til Noregs o. fl. Fréttamaður blaðsins spurði Svein hvort Síldarverksmiðjur ríkisins myndu ekki taka upp flutninga ó síld til Siglufjarðar líkt og gert var er síldin veidd- ist í Hvalfirði á sínum tíma. Sveinn Benediktsson sagði að kostnaðurinn við flutningana miðað við verðmæti síldarinnar væri nú svo mikill, að ekki hefði þótt fært að leggja út í síldarflutninga í stórum stíl frá Faxaflóa til Norðurlands. Vetur inn 1947—48, þegar Hvalfjarðar síldin veiddist, voru á aðra milljón mála af síld flutt til Siglufjarðar til vinnslu þar. — Kostnaðurinn við þé flutninga nam kr. 25,50 á mál miðað við síld, sem flutt var á milli skipa í Reykjavík, en var mun meiri á þeirri síld, sem flutt var í land til geymslu. — Þá var gengi sterlingspundsins kr. 26,22 en nú er kaupgengi pundsins kr. 120,88. Um sl. áramót áætluðu fram- kvæmdastjórar Síldai-verksmiðja ríkisins kostnað við flutning á vetrarsíld frá Reykjavík til Siglufjarðar um kr. 60 pr. mál, sagði Sveinn. Sl. sumar voru flutt 32 þúsund mál síldar frá Seyðisfirði til Siglufjarðar, og nam flutningskostnaður á málið 38 kr. Hins vegar tókst að lækka þann kostnað um 10 krónur pr. mál með því að nota leiguskip- in til flutninga á síldarmjöli er síldarflutningunum var lokið. Vegalengdin frá Seyðisfirði til Siglufjarðar og til baka er 386 sjómílur, en frá Reykjavík til Siglufjarðar og til baka 572 sjó- mílur. Komið hefur í ljós að sumt af þeirri síld, sem veiðist við Faxa flóa, hefur lítið geymsluþol og þegar hún verður fyrir miklu hnjaski er hætt við aukinni feiti sýru í lýsinu, sem fellir verð þess. • Elskurnar með krullupinna Einhvern tíma hefi ég á það minnzt í þessum dálkum, að íslenzkt kvenfólk hafi of- urást á krullupinnum og hiki ekki við að láta sjá sig á götum úti og á vinnustöðum með höfuðið þakið þessum apparötum. 1. maí fékk ég góða sönnun þess að þarna hefi ég sannarlega rétt fyr- ir mér. Eg kom við í sjávarþorpi einu á Suðurnesjum. Þar var yndislegt veður, eins og víða Útflutningsverðmæti úr hverju máli Suðurlandssíldar, miðað við það fitumagn. sem nú er í síldinni, er áætlað 180—190 kr. pr. mál. Síldarverksmiðjur hér syðra hafa greitt fyrir hráefnið 77 aura pr. kíló að viðbættum 3 aurum fyrir akstur, eða alls 80 aura fyrir kílóið, þ.e.a.s. 108 kr. fyrir málið. Augljóst er að flutningskostnaður til Siglufjarð ar er svo hár að þegar hann hef ur lagzt við hráefnisverðið, er svo lítið eftir af verðmæti hvers síldarmáls til þess að bera uppi vinnslukostnað síldarinnar á Siglufirði, að verksmiðjurnar myndu verða fyrir stórkostlegu tapi, ef þær legðu út í hina dýru flutninga. Síldarverksmiðjur ríkisins eru nú að skipta um suðutæki í tveimur stærstu verksmiðjunum um land, sólskin og blíða. Allir bátarnir lágu mannlaus ir í höfninni, enda hátíðis- dagur verkalýðsins. Útihé- hátíðahöld voru nýafstaðin, að ég held, og flestir senni- lega farnir heim í kaffi. Noikkrar manneskjur gengu þó um með prúðbúin börn. Á veginum út úr þorpinu mættum við tveimur ungum stúlkum á gangi með piltun- um sínum, sennilega sjó- mönnum. Þeir voru uppábún- ir i jakkafötum og stúlkurnar heldur vel klæddar — en hárið var vafið upp á stórar rúllur, gular og bláar. Senni- á Siglufirði, og unnið er að því að búa verksmiðjurnar undir rekstur í sumar. Engu að síður er ein af verksmiðjum SR á Siglufirði, SR 30, tilbúin að taka á móti síld og munu verksmiðj urnar fyrst um sinn veita mót- töku þeirri síld, sem til þeirra kann að berast að sunnan. Fyr- ir þessa síld munu verksmiðj- urnar greiða sama verð og verk smiðjur hér syðra. Að sjálfsögðu hafa Síldarverk smiðjur ríkisins enga aðstöðu til þess að geta greitt mun hærra verð en aðrar verksmiðj- ur fyrir síldina, sem nemur flutningskostnaðinum. Varðandi hvaða verð Norð- menn hefðu boðizt til að greiða fyrir Suðurlandssíld til flutn- ings til Noregs, veitti Sveinn Benediktsson Mbl. eftirfarandi upplýsingar. Hingað munu hafa borizt a.m.k. tvö tilboð um kaup á Suðurlandssíld í norsk flutninga skip. Nemur annað tilboðið 15 aurum norskum pr. kíló fyrir síldina komna um borð í skip miðað við 9% fitumagn, en hitt tilboðið nam aðeins 7 aurum norskum pr. kíló. Síld sú, sem nú veiðist í Faxa flóa mun vera 5—6% feit, en Sveinn Benediktsson lega ætluðu stúl’kurnar að vera fínar á ballinu, sem aug lýst var á bleikum miðum um allt þorpið. Og hvað gerði það þá þó þær 'spásseruðu í sólinni með piltunum sínum, eins og broddgeltir um höf- uðin. Kannski þeir hafi líka haft lag á að loka augunum fyrir útliti þeirra, þangað til ballið byrjaði, og bær voru til búnar til að taka sig vel út. • Landakort í ferðalögin Þegar ég fer út úr bænum, síldin, sem veiðist við Vest- mannaeyjar, mun vera með um 8% fitumagn. Miðað við að 6% fitumagn væri í sildinni til jafn aðar, myndu Norðmenn greiða eftir hærra tilboðinu 12,75 aura norska pr. kíló. Frá norska verðinu dragast að sjálfsögðu útflutningsgjöld og ýmiss kostn aður við söluna, þannig að mið að við 9% fitumagn er líklegt að norska verðið verði svipað og verð það, sem verksmiðjurn ar við Faxaflóa hafa greitt fyr- ir hráefnið, og lægra fyrir magrari síld. Norðmenn hafa sérstaklega út búin skip til þess að flytja síld og loðnu milli landshluta 1 Nor- egi, en í vetur brást bæði síld- veiði og loðnuveiði þar. Eitt þessara skipa mun nú vera á leiðinni hingað til lands til að taka á móti síld til Noregs, en fyrir milligöngu Gunnars Peter sen hefur verið samið um sölu á 5000 tonnum af síld þangað. Norsku síldarverksmiðjurnar hafa undanfarin ár notið styrk« úr sérstökum sjóðum, sem safn- að var í á veiðiárunum miklit við Noreg, þar til síldveiðin fór að minnka þar 1958 og síðan. Einnig hefur norska ríkið stutt verksmiðjurnar með fjárframlög um. Þá hefur það mikla þýð- ingu fyrir norsku síldarverk- smiðurnar, að meðan góðærið var, voru flestar þeirra afskrif- aðar um 80—90% af stofnkostn- aði, þannig að. vaxta- og afborg anabyrði þeirra er tiltölulega lág, en útbúnaður allur mjög fullkominn. Til þess að nýta hinn mikla afla, sem farinn er að berast á land hér syðra, eftir að hin nýja veiðitækni kom til sögunnar fyr ir tveimur árum, þarf að hag- nýta síldina á sem fjölbreyttast an hátt, til frystingar, söltunar, súrsunar, niðursuðu, reykingar, niðurlagningar og bræðslu. Afköst síldarverksmiðjanna hér sunnanlands eru nú aðein* 12—14,000 mál á sólarhring og þó því aðeins að verksmiðjurn- ar vinni ekki jafnframt úr fisk- úrgangi. Þessi afköst þarf að auka að miklum mun, því að allar líkur benda til þess að sú leið, sem farin var fyrir 15 ár- um, þegar Hvalfjarðarsíldin var á ferðinni, verði tæplega farin aftur vegna hins mikla kostn- aðar, sem flutningarnir norður hafa í för með sér, sagði Sveinn Benediktsson að lokum. „Partakortin" með hlut- föllunum 1:250.000 þykja mér hreinustu afbragð, en þar sem pappírinn í þeim er það slæmur og stökkur í sér að þau hrökkva strax í sund- ur í brotunum, þá endast þau mér ekki lengi. Og mú hefi ég komizt að raun um, að ekki er nægilega vel séð um að þessi kort séu ávallt fyrir hendi í búðum. A.m.k. hefi ég ekki getað fengið þau kort, sem mig vamhagaði un> að undanfömu. • Kortaþjónustuna þarf að bæta Úr þessu þarf að bæta fyr- ir sumarið. Landakortin þarf alltaf að vera hægt að ganga að, á þeirri stundu sem ferða maður þarf á þeim að halda. Það nægir ekki að kortið sé væntanlegt löngu eftir að ferðin er farin, sem átti að nota það í. Vonandi verður kortaþjónustan bætt, áður en aðalferðatíminn byrjar, og vel þegið væri ef næstu upplög yrðu prentuð á betri pappír. hefi ég venjulega með m landakort af þeim leiðui sem farið er um, í von um ; eitthvað af því sem fyi augun ber verði skýrara i nöfn tolli betur í mér, ef fylgist með á kortinu og 1 nöfnin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.