Morgunblaðið - 04.05.1962, Síða 24
Fréttasimar Mbl
— eftir lokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
UM BARRTRE
Sjá blaðsíðu 13.
100. tbl. — Föstudagur 4. maí 1962
Utsvarsbyrðin eykst ekki vegna
gatnagerðarframkvæmdanna
Kommúnistar krefjast nær þrefaldr-
ar hækkunar fasteígnaskatta, sem
gæti gert láglaunafólki ókleift
að halda húsnæði sinu
• Við fyrri umræðu á borgarstjómarfundi í gær, um heildar-
áætlunina um fullnaðarfrágang- gatna í öllum skipulögðum hverf-
»m Reykjavíkurborgar, upplýsti Geir Hallgrímvsson borgarstjóri,
að aukin framlög til gatna- og holræsagerðar á næsta áratug muni
ekki leiða til hækkunar á útsvarsbyrði einstakra gjaldenda. Kvað
hann óhætt að hækka framlög borgarsjóðs til þessara framkvæmda
um 5 millj. kr. á ári hverju, þar sem eðlileg fólksfjölgun í borginni
sé um 2% á ári, og eðlileg aukning á tekjum manna sé um 4% án
þess að leiða til hækkaðs verðlags.
• Þá vakti það sérstaka at-
hygli á fundinum, að borgar-
fulltrúar kommúnista fluttú til-
lögu um fjáröflun til fram-
kvæmdar áætlunarinnar, sem
fól í sér hvorki meira né minna
en nær þrefalda hækkun fast-
eignaskatta í borginni. Benti
borgarstjóri á, að yrði sú leið
farin gæti hún haft mjög af-
drifaríkar afleiðingar fyrir alla
húseigendur í borginni, gæti vel
orðið «1 þess, að láglaunafólk
gæti ekki haldið þvi húsnæði,
sem það hefði komið sér upp af
litlum efnum en mikilli þraut-
seigju og dugnaði.
• BorgarfuIItrúi Framsóknar,
Þórður Björnsson, sem nú hverf
ur úr borgarstjóm, flutti af þvi
tilefni eins konar líkræðu yfir
sjálfum sér, en minntist hins
vegar naumast á það máJ, sem
fyrir lá.
Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri lagði nokkrar ályktunar-
tillögur fyrir fundinn til sam-
þykktar, sem vísað var til 2.
umræðu til endanlegrar af-
greiðslu. Meðal þessara tillagna
voru:
• Borgarstjórnin telur, að á
árunum 1962—72 beri að ljúka
fullnaðarfrágangi allra gatna og
gangstétta i skipulögðum hverf-
um Reykjavíkur og felur borg-
arverkfræðingi að hefja gatna-
gerðarframkvæmdirnar á grund
velli þeirrar heildaráætlunar,
sem hann hefur gert. Hún tek-
ur að svo stöddu ekki afstöðu
til þess í hvaða röð framkvæmd
ir eiga sér stað, umfram það,
sem segir í 1. lið fundargerðar
borgarráðs frá 30. þ. m.,(Inn-
skot Mbl. — Frá þessum fram-
kvæmdum var skýrt á forsíðu
blaðsins 1 gær, en það eru fram
Geir Hallgrímsson
Síldveiðarnar sunn-
anlands og vestan
MJÖG góð síld/veiði var vilkuna
22. apríl til 28. apríl sl. og var
landað úr 22 skipum samtals
87.2114 uppmældum tunnum.
Nokkur skip biðu þá losunar og
má gera ráð fyrir að vikuaflinn
hafi verið um það bil 84 þús.
tunnur. Heildarmagn á land
komið frá vertíðárbyrjun til laug
ardagsins 28. apríl var 1.072.850
uppm. tunnur.
Hæstu veiðistöðvarnar eru
þessar:
Vestmannaeyjar 118.612 um. t.
Keflavík 165.219 — -
Hafnarfjörður 128.086 — -
Reykjavik 335.946 — -
Akranes 189.125 — -
Vitað er um 30 sfcip, sem síld
veiðar stunda og fer hér á eftir
slkrá yfir þau, sem aflað hafa
20 þús. tunnur eða meira frá
upphafi síldveiðanna sl. haust:
uppm.
tn.
Bergvik Keflavík 27.329
Bjarnarey Vopnafirði 29.158
Eldborg Hafnarfirði 24.814
Guðm. Þórðarson Reykjav. 33.912
Halldór Jónsson Ólafsvík 22.893
Haraldur Akranesi 29.691
Höfrungur II Akranesi 39.031
Jón Trausti Raufarhöfn 29.285
Skírnir Akranesi 20.636
Víðir II Garði 46.671
(Skýrsla frá Fiskifélagi íslands).
kvæmdir til næstu áramóta.) en
telur eðlilegt, að fylgt verði
þeirri meginreglu, að fullnaðar-
frágangur gatna komi í kjölfar
hitaveituframkvæmda.
• Borgarstjórn felur borgarverk
fræðingi í samivinnu við Inn-
kaupastofnun Reykjavikurborg-
ar að undirbúa kaup á nýrri mal
bikunarstöð, svo og að u-ndirbúa
tillögur um endurnýjuin Og kaup
á öðrum tækjum til gatnagerðar,
sem nauðsynlegt er, að Reykja-
víkurborg afli sér til viðbótar
þeim tækjum, sem fyrir eru.
Framhald á bls. 17.
Óðinn við Græn-
landsströnd
VARÐSKIPIÐ Óðinn, sem fór
með þyrlu til að sækja sjúkan
mann til Grænlands, átti að
koma að ísröndinni 1 nánd við
Kitak eyju seint í gærkvöldi.
Var búizt við að hann mundi
bíða þar í nótt, en með birtingu
í miorgun átti þyrlan að gera til-
raun til að kornast til eyjarinn-
ar, þar sem sjúklingurinn er, ef
veður leyfðL
Undanfarin tvö kvöld hafa
þeir Ingi R. Jóhannsson og
Jónas Þorvaldsson keppt í
Breiðfirðingabúð um fjórða
sætið í landsliðsfl. Á mótinu
varð Friðrik Ólafsson efstur,
Björn Þorsteinsson næstur og
Ingvar Ásmundsson þriðji.
Þeir Ingi og Jónas voru í 4.
og 5. sæti og kemst aðeins
annar þeirra í landslið.
í fyrrakvöld tefldu þeir
fyrri s'kákina og sigraði þá
Ingi og í gærkvöldi tefldu
þeir seinni skákina. Um mið-
nætti sömdu þeir jafntefli og
tekur Ingi því 4 sætið í lands
liðsflokki.
-«>-
ísröndjn heldur nær
landi en venjulega
Jónas og Ingl I úrslita- »
skákinnL
1
Ikveikja á
Sigiufirði?
SIGLUFIRÐI, 3.‘mal. — í gær
kom upp eldur í húsi hér í bæn-
um. Er það lítið Og gamalt timbur
hús nr. 24 við Túngötu. í húsinu
bjó einn maður, sem ekki er eig
andi þess, en átti innJbú þar,
Leikur grunur á að kveikt haö
verið í húsinu og er fibúandinn
í varðhaldi og málið í rannsókn,
Eldurinn kom upp um 4 leytið
síðdegis. Slökkviliðið köm mjög
fljótt á vettvang og réði niður-
lögum eldsin*. Húsið brann ekki
mikið, en skemmdir hafa orðið
á þvi. — Stefán.
SJÁI.FBOÐALIDAR eru hvattir
til að koma á skrifstofuna í dag
og næstu daga og aðstoða við
ýmis konai vinnu.
í FYRRADAG flaug flugvél
Landhelgisgæzlunnar, Rán yfir
Grænlandshaf 1 könnunarferð,
eins og skýrt hefur verið frá í
blaðinu. Blaðið leitaði í gær
frétta af ísnum hjá Garðari Páls-
syni, stýrimanni. ísbrúnin hafði
reynzt vera um 80 km norðvest-
ux af Straumnesi og liggur það-
an til suðvesturs frá 67 N og 24
V og til 66,38 og 25,40 V. Mun
iþetta vera heldur nær landi en
venjulegt er á þessum tíma.
Rán flaug síðan suðvestur og
sá engan frekari ís á sinni leið,
sem sýnir að ísröndin beygir
meira til vesturs en að ofan
greinir. Lélegt skyggni var og
var flogið fremur lágt.
Isrekið var þétt á þessu svæði,
áætluðu flumenn að um 7/10 af
sjónum væri þakinn ís. Á ísnum
sáu þeir víða blóðflekki frá sel-
veiðunum, en selveiðimenn gera
að aflanum úti á isnum.
Keypti brennivín
af bílstjóra
Maðurinn, sem drakk tréspirann,
orðinn heill heilsu
MAÐUR sá, sem skýrt var frá
að lagður hefði yerið inn í
Landsspítalann, blindaður af
dryikkju, tréspíra aðfaranótt s.I.
laugardags, er nú kominn af
sjúkrahúsinu, og er talinn heill
heilsu.
Rannsóknarlögreglan hefur
haft upp á bílstjóra, sem hefur
Skógareldur
við Hafravatn
REYKJUM, Mosfellssveit, 2.
maí. — Um kl. 15 í gær kom
drengur til mín á skellinöðru.
Sagði hann, að hann og félagi
hans hefðu verið að fikta við
eld í Hafrahlíð við Hafravatn.
Kveiktu þeir bál, sem þeir ætl-
uðu að slökkva aftur, en þeim
tókst ekki að ráða við eldinn,
svo að hann breiddist óðfluga
út um sinuna. Sunnanvindur var
á, og varð piltunum ljóst, að
skógræktargerði Magnúsar Finn
bogasonar, menntaskólakennara,
sem er í svonefndu Hlíðarhorni,
I var í hættu. Ég hringdi á slökkvi
liðið og sendi það einn bíl og
þrjá menn upp eftir. Þeir höfðu
meðferðis nóg af slökkvitækjum,
og dreif að fjöldi fólks, sem var
í skemmtiferðum um nágrennið,
til þess að hjálpa við slökkvi-
starfið. Eldurinn komst inn fyrir
skógræktargirðinguna, og mun
um fjórðungur hrislnanna hafa
brunnið. Eftir um hálfan annan
tíma hafði eldurinn verið drep-
inn. Hafði vindur þá snúizt til
norðurs, og auðveldaði það
slökkvistarfið.
Einnig varð eldur laus í landi
Hjaltastaða í Mosfellsdal. — jón.
viðurkennt að hafa selt mannin
um flösku af brennivíni um-
rædda nótt, en sannað þykir að
hér hafi verið um brennivíns-
flösku frá Áfengisverzluninni að
ræða. Maðurinn hefur hins veg-
ar engar viðhlítandi skýringar
getað gefið á því hvar hann hafi
fengið spírann, sem hann telur
sig hafa drukkið.
Ný malbik-
unarstöð
í TILLÖGU þeirri, sem Geirí
Ilallgrímsson, borgarstjóri
flutti á fundi borgarstjómar í
gær um afgreiðslu heildará-
ætlunarinnar um fullnaðarfrá
gang allra gatna í skipulögð-
um hverfum Reykjavíkur á
næsta áratug, er gert íáð fyr 1
ir, að borgarverkfræðingi
verði falið í samvinnu við Inn
kaupastofnun Reykjavíkur-
borgar að undirbúa kaup á
nýrri malbikunarstöð, svo og
að undirbúa tillögrur um end
urnýjun og kaup á öðrum
tækjum, sem fyrir eru.