Morgunblaðið - 10.05.1962, Side 8
8
MORGVNBLAÐ1Ð
Fimmtudagur 10. maí 1962
Sigríður Jónsdóttir kennari skoðar handaivnnu nemenda í sex ára bekk.
Fió Fulltrúuróði Sjúll-
stæðisfélagonno í Reykjnvíb
OPNAÐAR hafa verið á vegum Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag
anna í Reykjavík hverfaskrifstofur á eftirtöldum stöðum í Reykja
vík:
Kennarar í heimsókn
á Keflavíkurflugvelli
Fjöldi nemenda islenzkrar ættar
KEFLAVXKURFLUGVBLLI, 2.
maí. — Síðastliðinn þriðjudag
fcomu nálægt 30 kennarar frá
Ibama- og framhaldsskólum
Reykjavíkur í heimsókn til
starfsbræðra sinna á Keflavíkur-
flugvelli. Enn fremur voru ýms-
ir framámenn íslenzkra fræðslu-
mála með í förinni, svo sem
Helgi Elíasson fræðslumálastjóri,
Jónas B. Jónsson fræðslufulltrúi
og fleiri. Á Keflavíkurflugvelli
tók hr. Baldwin, skólastjóri
barnaskólans þar, á móti kenn-
urunum og bauð iþá velkomna.
Heimsóknir þessar hafa verið
gagnkvæmar á undanförnum ár-
um. Bandarísku kennararnir
hafa heimsótt skóla í Reykjavík
og rætt við islenzka starfsbræð-
ur sína um kennslumál. Hefir
samvinna þessara aðila jafnan
verið hin bezta.
Kennaramir dreifðu sér um
bekki barnaskólans, töluðu við
börnin og fylgdust með kennslu.
Það kom kennurunum skemmti-
lega á óvart, að oft, er þeir
ávörpuðu lítinn glókoll, sem
grúfði sig niðux í námsbækurn-
ar, þá var þeim svarað á góðri
Islenzku. Skýringin á þessu er
sú, að samkvæmt frásögn hr.
Baldwins eiga um 60 hundraðs-
hljitar barnanna íslenzka móður
og fjöldi þeirra er fæddur og
uppalinn á landi hér.
Góður bókakostur
Bamaskólinn á Keflavíkurflug
velli er til húsa í nokkrum óvist-
legum bröggum, sem eru varnar-
liðinu til stór-skammar. Hús-
gögn eru yfirleitt forngripir og
aðbúnaður barna og kennara
slæmur. En þrátt fyrir hinar ytri
aðstæður, þá töldu íslenzku
kennararnir þó eitt til fyrir-
myndar, en það var hinn mikli
og vandaði bókakostur, sem
nemendurnir höfðu yfir að ráða.
í 12 ára bekk, sem að vísu var
fámennur, höfðu nemendumir
hver sitt skrifborð og á það var
raðað heilu bókasafni af alls
konar heimildarritum, svo sem
orðabókum, lexíkonum, bókum
um vísindi, sögu og listir. Nem-
endur em látnir vinna mjög
sjálfstætt og er þeim kennt að
efninu, fram yfir það, sem er í
hinum venjulegu námsibókum.
290 nemendur
Skólanemendur á Keflavíkur-
flugvelli eru samtals um 2Ö0.
Við barnaskólann starfa 11 kenn
arar, en 7 kennarar starfa við
gagnfræðaskólann.
Sex starfsmenn
við sjónvarpsstöðina
Kennararnir heimsóttu hina
umdeildu sjónvarpsstöð á flug-
vellinum og nokkrir þeirra
komu fram í barnatíma, sem
sjónvarpað var og virtust þeir
jafn brattir, eftir sem áður.
Aðalþulur sjónvarpsstöðvarinn
ar sagðf m. a. frá því að sjón-
varpað væri í 60 klst. á viku, en
starfslið sjónvarpsstöðvarinnar
væri aðeins 6 manns. Til saman-
nota sér bókakostinn til að afla
sér viðbótar þekkingar á verk-
Ingólfur Noto, 12 ára, segir
frá bók um bandarískan
íþróttamann, sem hann hefir
nýlega lesið. Hann sagði
bekknum frá efni bókarinnar
á ensku og endurtók síðan
fráoögnina á íslenzku fyrir
gestina. Ennfremur sagðj hann
kennurunum frá náminu í
skólanum og kom þá í ljós að
hann var gæddur ósvikinni
íslenzkri kýmaiigáfu.
burðar gat hann þess að starfs-
lið danska sjónvarpsins væri
yfir 200, en sjónvarpstími þar
væri skemmri heldur en í Kefla-
víkurstöðinni. Þó bæri að gæta
þess að mest allt sjónvarpsefni
Keflavíkurstöðvarinnar kæmi á
filmum frá Bandaríkjunum, en
Iþó færi í vöxt að skemmtiatrið-
um væri útvarpað beint úr sjón-
varpssal. T d. hefðu ýmsir ís-
lenzkir listamenn komið fram í
sjónvarpinu, eins og Sigríður
Geirs, Haukur Morthens, hljóm-
sveitir Árna Elfar og Andrésar
Ingólfssonar og á lokadaginn
ætti að sjónvarpa kvikmyndinni
„Björgunin við Látrabjarg".
Framtakssamir bifreiðasalar I
Reykjavík hafa komið upp bíla-
sýningu á Keflavíkurflugvelli
fyrir varnarliðsmenn. Sýning
þessi er til húsa í skála einum
miklum og var kennurunum boð
ið að skoða gripina. Þetta mun
vera fyrsta sýning þessarar teg-
undar hér á landi. Alls eru til
sýnis yfir 30 mismunandi gerðir
af bifreiðum af árgerð 1962. Má
sjá þar opna sport bíla, kapp-
akstursbíla, stationbíla, fjöl-
skyldubila og lúxusbíla. Bifreið-
arnar eru jafn ólíkar að ytra út-
liti og þær eru margar, en allar
eiga þær iþó eitt sameiginlegt ef
talað er við umboðsmennina:
„Þetta er lang bezfi bíllinn á
sýningunni“.
Og kennararnir ganga um sal-
inn og líta á gripina, setjast und-
ir stýri og sumir gerast svo
djarfir að spyrja um verð. Hann
kostar um 700 þúsund þessi, er
svarið og þegar kennarinn fer
að leggja saman í huganum
hvað það taki hann mörg ár að
spara fyrir svona bíl af kennara-
launum, þá bendir góðhjartaður
náungi honum á annan bdl, sem
kostar ekki nema hálfa milljón.
BÞ.
65 nýjar kennslu-
stofur
í FRÁSÖGN af kjósendafundi
Sj álfstæðisflokkisins hér í Morg-
unblaðinu er haift eftir frú Auði
Auðuns, forseta bæjarstjórnar, að
85 nýjar kennslustofur hafi verið
teknar í notkun á þessu kjörtíima-
biili til viðbótar þeiim 175, er fyrir
voru, en 20 muni bætast við í
haust. Er þetta á misskiiningi
byggt. Frú Auður sagði í ræðu
sinni á fundinum, að 65 nýjar
kennslustofur hafi þegar verið
teknar í notkun, en 20 muni bæt-
ast við í haust. Þetta leiðréttist
hér með, um leið og beðið er
velvirðingar á mistökunum.
VESTURBÆJARHVERFI
Aðalstræti 6 (Morgunblaðshúsinu)
Simi: 20130
MIÐBÆJARHVERFI
Breiðfirðingabúð — Sími: 20131
NES- OG MELAHVERFI
K.R.-húsinu við Kaplaskjólsveg —
Sími: 20132
AUSTURBÆJARHVERFI
Skátaheimilið við Snorrabraut
Sími: 20133
NORÐURMÝRARHVERFI
Skátaheimilið við Snorrabraut
Sími: 20133
HLÍÐA- OG HOLTAHVERFI
Brautarholti 4 — Sími: 20134
LAUGARNESHVERFI
Hrísateig 1 — Sími: 34174
LANGHOLTS- OG VOGAHVERFI
Álfheimar 22 — Sími: 3832S
SMÁÍBÚÐA- OG BÚSTAÐAHVERFI
Breiðagerði 13 — Sími: 3832«.
Allar skrifstofurnar eru opnar daglega kl. S—7 «g 8—1«
e.h., nema laugardaga og sunnudaga kl. 2—6 e.h. og veita
þær aliar venjulegar upplýsingar um kosningarnac.
Vfi Kosnlngaskrifstofa
Sfálfstæðisflokksins
er í Morgunblaðshúsinu Aðalstræti 6 H. hæð. Skrifstofan
er opin alla daga frá kl. 10—10.
— • —
Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins er beðið að hafa sam-
band við skrifstofuna og gefa henni upplýsingar varðandi
kosningarnar.
— • —
Gefið skrifstofunni uppiýsingar um fóik sem verður fjar-
verandi á kjördag innanlands og utanlands.
Símar skrifstofunnar eru 20126—20127.
Utankjörstaðakosning
Þeir sem ekki verða heima á kjördegi geta kosið hjá sýslu-
mönnum, bæjarfógetum og hreppstjórum og í Rvik hjá
borgarfógeta. Eriendis er hægt að kjósa hjá islenzkum
sendiráðum og ræðism.tmnum sem tala íslenzku.
Kosningaskrifstofa borgarfóget-a | Reykjavík er í HAGA-
SKÓLA. Skrifstofan er opin sem hér segir: alla virka daga
kl. 10—12, 2—6, 8—10, sunnudaga kl. 2—6.
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins Aðalstræti 6 H hæð
veitir allar upplýsingar og aöstoð í sambandi við utan-
kjörstaðaatkvæðagreiðsluna.
Skrifstofan er opin daglega frá ki. 10—10. Símar 20126 og
20127. Upplýsingar um kjörskrá eru veittar í síma 20129.
D-listinn er listi Sjálfstæðisflokksins