Morgunblaðið - 10.05.1962, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 10.05.1962, Qupperneq 12
12 MORGVNBLAÐIÐ Fimmfudagur 10. mal 1962 Otgefandi: H.f Arvakur Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (áTjm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. . Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: A.ðalstræti 6. Aug'iýsingar og argreiðsla: Aðalstræti 6. Simi 22480. Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. I lausasölu kr. 3.00 eintakið. FRAMTAKSSAMIR RORGARAR DUG- MIKIL BORGAR- STJÓRN Ý ágætri ræou, sem Geir * Hallgrímsson, borgarstjóri, flutti á hinum fjölmenna kjósendafundi Sjálfstæðis- manna sl. mánudag, komst hann m. a. þannig að orði, að þá fyrst þyrftu Reykvík- ingar að vera á verði, ef stjómmálasamtök, sem aldrei hefðu verið þeim vinveitt væru farin að hrósa þeim. Framsóknarmenn lýstu því nú ákaft yfir, að Reykvík- úigar væru framtakssamt fólk. Hins vegar væri „borg- arstjórnarmeirihlutinn dug- laus“. Borgarstjóri vitnaði þvi nasst í þessi ummæli Tím- ans: „Almennt er álitið, að enn verði stjórnartímabil Sjálf- stæðisflokksins framlengt um fjögur ár.“ . „En er það mögulegt,1* sagði borgarstjóri, „að fram- takssamir borgarar fram- lengi umboð duglauss meiri- hluta um næstu fjögur ár?“ Við þessi ummæli borgar- stjóra er ástæða til þess að bæta annarri spurningu: Getur það verið, að það þróttmikla og dugandi fólk, sem byggt hefur Reykjavík upp úr smáþorpi í stóraborg á nokkrum áratugum, hafi verið svo glámskyggnt ogfé- lagslega vanþroska að kjósa yfir sig ónýta og óstarfhæfa bæjarstjóm kjörtímabil eftir kjörtímabil? Nei, þetta getur ekki verið, og þetta hefur heldur ekki gerzt. Reykvíkingar, sem breytt hafa byggðarlagi sínu úr litlu fiskiþorpi í nýtízku borg á örskömmum tíma hafa skipað málefnum borg- ar sinnar af fyrirhyggju og ráðdeild. Þeir hafa jafnan gætt þess að fela samhent- um meirihluta víðsýnna og dugandi manna stjórn borg- ar sinnar. Verkin sýna merkin. Und- ir stjóm Sjálfstæðismanna hefur Reykjavík haft for- ystu um hagnýtingu auð- linda landsins og stórfellda uppbyggirigu og framfarir, sem orðið hafa þjóðinni allri til blessunar. Undir forystu framtakssamra og framsýnna stjórnmálamanna réðst Reykjavík í hagnýtingu vatns aflsins í þágu sveita sem sjávarsíðu. Sjálfstæðismenn í Reykjavík höfðu forystu um allar þær framkvæmdir. — Þeir tóku svo að segja jafn- hliða upp baráttu fyrir hag- nýtingu jarðhitans, semveitt hefur yl og lífsþægindum inn á heimili fólksins í Reykjavík og munu á næstu ámm ná til allra borgarbúa. ALHLIÐA UPP- BYGGING Darátta Sjálfstæðismanna í " Réykjavík fyrir hagnýt- ingu vatnsafls og jarðhita hefur haft stórkostlega þýð- ingu fyrir svo að segja allar byggðir landsins. Það vom einnig Sjáifstæðismenn í rík isstjórn, sem beittu sér fyrir hinni miklu rafvæðingar- áætlun, sem nú er langt komið og færir þúsundunw sveitabæja og öllum sjávar7 þorpum landsins raforku frá fossum og fljótum. Fullkomin höfn, fagrar skólabyggingar, glæsileg heilsuvemdarstöð, mikill fjöldi bamaleikvalla, dag- heimila og margvísleg þjón- usta í þágu bamanna í bæn- um bera einnig vott fram- taki og dugmikilli forystu Sjálfstæðismanna í Reykja- vík. Þróunin heldur stöðugt áfram, ný sjúkrahús eru reist, lýðhjálp aukin og al- hliða uppbyggingarstarfi haldið áfram. Allt þetta sannar, að hin- ir augmiklu borgarar Reykja víkur hafa valið sér þrótt- mikla og víðsýna forystu. Öðm vísi gat þetta heldur ekki verið. Það er óhugsandi að þróttmikið athafnafólk velji sér óhæfa forystu, sem leiði kyrrstöðu og öngþveiti yfir fólkið. Mikill meirihluti Reykvík- inga vill að borg þeirrahaldi áfram að verða betri og feg- urri og stöðugt færari um að skapa fólkinu afkomuör- yggi og þroskavænleg lífs- skilyrði. Þess vegna gera Reykvíkingar sér það ljóst, við þær borgarstjómarkosn- ingar, sem nú era framund- an, að tætingsliðið, minni- hlutaflokkarnir og vinstri glundroðinn, má ekki kom- ast hér til aukinna áhrifa. Sjálfstæðisflokkurinn verður að halda öflugum meiri- hluta. Undir því er framtíð Reykjavíkur komin. Poiitísk embættisveiting vekur úlfaþyt í Færeyjum Loforð látins manns réð úrslitum FYRIR skömmu vitnaðist það í Færeyjum, að sýslumað urinn í Tveraa, Ejler Djur- huus, hefði verið skipaður í þá stöðu vegna þess, að H. C. Hansen, fyrrv. forsætisráð- herra Dana hefði árið 1959 heitið föður Ejlers því. Fað- ir hans, Kristián Djurhuus, hafði þetta embætti á hendi, en var jafnframt lögmaður Færeyinga um þær mundir. Hann tók það loforð af H. C. Hansen, sem nú er látinn, að sonur hans fengi embættið i Tveraa, næst er það yrði veitt. Núverandi forsætisráð- herra, Viggo Kam.pmann, og dóir.smálaráðherrann, Hans Hækkerup, sáu sér ekki fært að bregðast þessu heiti, þótt annar maður væri álitinn hæfari til þess að gegna em- bættinu. Hefur þetta valdið miklum úlfalþyt og deilum í Færeyí- um, því að urwboðsmaður dönsku stjórnarinnar í Fær- eyjum, M. Waihl og lögreglu- stjórinn í Tórshavn höfðu mælt eindregið með því, að Haakion Hansen lögfræðmgi og sýslumanni, yrði veitt staðan. Er Ejler Djuurhus var veitt emhættið, þótti Hansen því illilega fram hjá sér gengið og óskaði frekari skýringa á embættisveiting- unni. Kom þá hið sanna 1 ljós. Forsaga málsins er sú, að Kristian Djurhuus sem var sýslumaður í Tveraa til 1948, hætti þvl starfi vegna virkr- ar þátttöku í stjórnmálalífinu og var >á sonur hans Ejler settur til þess að gegna em- bættinu I hans stað til bráða- birgða. Djurhuus varð lög- maður Færeyinga frá 1954— 1958 og siðan varalögmaður. Á þessum tíma urðu miklar breytingar I sýslumannsem- bættum í Færeyjum, sem af- leiðing af Klakksvíkur-mál- inu svonefnda. Haakon Han- sen þávera»di sýslumaður í Klafcksvík kom þar mjög við sögu og var því fluttur í sýslumannsembættið í Tveraa en Ejler Djurhuus varð sett- ur sýslumaður í Vestmanna- havn. Sýslumaðurinn í Vest- mannahavn Gunnar Dahl- Olsen, var hinsvegar fluttur í embættið 1 Klakksvík. Árið 1959 var Klakksvíkur málið að mestu úr sögunni og var þá að nýju breytt til í embættunum þó þannig, að aðeins þeir Djurhuus og Ol- sen skiptu um embætti, en Hansen varð kyrr í Tveraa. Þegar Kristian Djurhuus sagði endanlega lausu sýslu- tnannsembættinu 1 Tveraa, sem var fyrst 1. marz s.l., lögðu þrir menn fram um- sóknir — Ejler Djurhuus, Haakon Hansen — og þriðji maður, sem ekki uppfyllti þær 'kröfur sem gerðar voru til umsækjenda. Sem fyrr Segir mæltu mik- ilsmegandi menn eindregið með Hansen í embættið, en forsætisráðuneytið í Kaup- mannahöfn tók endanlega ákvörðun og skipaði Djur- huus sýslumann í Tveraa. f bréfi frá ráðuneytinu til um boðsmanns Dana i Færeyj- um, er fallizt á, að Haakon Hansen muni vera bezt til þess fallinn að taka við em- bættinu ,en forsætisráðherra og dómsmálaráðherra hafi ekki talið sér fært að rjúfa heit H. C. Hansens. Færeyingar eru hinsvegar sárir mjög yfir þvi, «ð það skuli látið viðgangast, að forsætisráðherra Dana geti gefið slíkt loforð um em- bættisveitingu um mörg ár fram í tímann. Auk þess eru menn ekki á eitt sáttir um hvað gera skuli við Haakon Hansen. Að öllu eðlilegu ætti hann nú að taka við sínu fyrra emibætti — sýslumanns embættinu i Klakksvfk, en þ& þykir viðbúið að þar fari aft ur allt í bál og brand. Starfsemi „IMafiunnar44 skal nú upprætt ífalska þingið fœr beiöni Sikileyinga FUAFEN 17" ommúnistaflokkurinn áís- landi er eitt fúafen að innan. Það sannast greini- lega á skýrslu þeirri, sem birtist hér í blaðinu í gær, og samin er af harðsoðnum Moskvukommúnista. — Hún ber það greinilega með sér, að kommúnistar hér á landi skiptast nú í margar klíkur, sem berast á banaspjótum innbyrðis. Leiðtogar flokks- ins sitja á svikráðum hverir við aðra. Enginn treystir öðmm, allt logar í tor- tryggni og illindum. Það er þessi flokkur, sem krefst þess nú, að Reykvík- ingar feli honum forystu í vinstri stjóm borgarmál- efna. Finnst Reykvikingum líklegt að hann og Fram- sóknarmenn séu líklegir til þess að tryggja borg þeirra framtakssama og dugandi stjórn? Sannarlega ekki. Hver einasti hugsandi mað- ur hlýtur að hafna stjórn vinstri glundroðans og hinn- ar botnlausu kommúnísku spillingar í höfuðborg ís- lands. Héraðsstjórnin á Sikiley hefur nú stigið skref, sem enginn hefur þorað að stíga, undanfarin 160 á.r. Það hefur sent þinginu í Róm beiðni um að setja á laggnmar nefnd, sem taki sér fyrir hendur að binda endi á starfsemi hins al- kunna glæpahrings, Mafiunnar. Telur héraðsstjómin, að ekkert annað geti orðið atvinnuvegum á eyjunni til bjargar, þar eð tollar glæpahringsins af afurðum em nú svo háir, að vörurnar standast ekki samkeppni annars staðar frá. Em það vonir manna, að með þessu takizt einnig að binda endi á morðöld þá, sem staðið hefur, og kostað þúsundir lífið. Mafiian rekur nú starfsemi sína aðallega á norðvesturhlu ta eyjar- innar, þar sem starfa á hennar vegium vel skipulagðir glæpa- hringir — og hefur þeirra eink- um gæfct í Palermo. Þar í borg er einnig að finna höfuðstöðvarn ar, undir nafninu „L ’Onorata Societe", þ.e. „Heiðrað Félag“. Starfsemin í dag á Sikiley, skiprtist einkum i þremnt. Hún stjómar grænmetissölu, sigling- um frá Palermo og hönd félags- skaparins er allsráðandi innan fangelsa eyjarinnar. Auk 'þess. eru hin sterku bönd Mafiunnar í undirheimum stór- borgar vesturheims, alkunn. Mafian átti í upphafi að bæta k.’ör aiþýðunnar é Sikiley, er hún var stofnuð. Brátt snerist starf- semin upp í það að ræna land- eigendur, og skipta síðan af- rakstrinum milli hinna fátæku. Eftir að frelsidhetjan Garibaldi gat efcki staðið við loforð sín um betri kjör til ihanda íbúunum, tók Mafian á sig nýjan svip, og befur siðan haft tekjur sínar af því að arðræna almenning eyjar- innar, í formi talla af framileiðsl- uhni, auk eiturlyfjasmygls og annarrar ólöglegrar verzlunar. Morð hafa verið tíð, og þúsund- ir manna hafa verið myrtir vegna 'þess, að þeir hafa slitið tryg'gð við glæpahriniginn, eða reynt að stunda aitvinnu sína án hennar afskipta. Svo er nú komið, að ógerlegt hefur reynzt að koma upp nýjum, samkeppnisfærum fyrirtækjum þar, og er Sikiley nú kallað „fáfcækrahverfi Ítalíu“, Mafian hefur myrt um 200 manns þar si. 2 ár, meðal annars oft skotið fólk á götum ÚU. ^

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.