Morgunblaðið - 17.05.1962, Side 23

Morgunblaðið - 17.05.1962, Side 23
Fimmtítdagur 17. maí 1962 MORGUNBLAÐIÐ £3 Kaupfélag Hafnflrðinga stefnir bæjarútgerðinni FJÁRHAG Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar er nú svo kom- ið undir stjórn kommúnista og Alþýðuflokksins að hver dómurinn eftir annan fellur á Bæjarútgerðina og bæjar- sjóð vegna vaniskilaskulda. Þannig voru dæmdar rúmlega þriggja milljón króna van- skilaskuldir við Framkvæmda banka íslands á bæjarsjóð. Bæjarstjórinn, Stefán Gunn- laugsson, og forstjórar Bæj- arútgerðarinnar, sem eimnig eru forseti og varaforseti bæj- . arstjórnar, Kristinn Gunnars son og Kristján Andrésson, tóku á sig þá ábyrgð að leyna bæjarstjórn málum þessum, bæði samningsmöguleikum, sem hægt var að ná við Fram kvæmdabanikann, en hann var reiðubúinn að lána veru- legan hluta af þessu fé til þriggja ára, og málshöfðun- inni gegn bæjarsjóði. Hér er um fáheyrt ábyrgðarleysi að ræða. Nú hefur það gerzt, að stjórn Kaupfélags Hafnfirð- inga, sem að meirihluta er skipuð Aiþýðufiokksmönnum, þar á meðal einum bæjarfull trúa, Þórði Þórðarsyni, hefur samþykkt að fela lögfræðingi að ininheimta um 300 þús. króna vanskilaskuld Bæjarút- gerðarinnar við kaupfélagið. Upplýstist þetta á nýafstöðn- um aðalfundi Kaupfélags Hafnf irðinga. Þrátt fyrir allt þetta láta forstjórarnir engar upplýs- ingar í té til bæjarstjörnar um rekstur og efniahagsaf- komu Bæjarútgerðarinnar fyr ir árið 1961. Allt, sem bæjar- stjórni fær að vita, eru dóms- skuídir, sem á hana falla og nauðungaruppboð á eignum Bæjarútgerðarinnar, sem með naumindum fæst frestað fram yfir kosningar. — Herflutningar Framh. af bls. 1 austurhiuta landsins, sem kommúnistaherir frá Laos hafa sótt alla leið að landa- mærunum. Er þessari stað- setningu bandaríska liðsins ætlað að sýna, að engin sókn- aráform séu að baki liðsflutr ingum þessum. Áður eru komnar' tll Thai- lands 12 orustuþotur af F 100 Super Saber-gerð. Komu þær frá Clark-flugstöðinni á Filipseyj- um. Sömuleiðis höfðu áður ver ið fluttir loftleiðis til landsins um 1000 bandarískir hermenn. — Ekki mun liðsflutningum Ijúka, fyrr en um 5000 manna bandarískt herlið er í landinu. — Allir eru liðsflutningar iþessir í samræmi við óskir ríkisstjórn- ar Thailands, sem telur sjálf- stæði landsins hættu búna af innrás kommúnista frá Laos. Liðsstyrkur frá fleiri löndum Aðrir meðlimir SEATO-banda- lagsins hafa nú í athugun að senda liðsafla til Thailands, m.a. Nýja Sjáland. — Macmillan, forsætisráðherra Breta hélt í dag fund með ráðuneyti sínu og helztu mönnum flug-, landshers, og flota. Var þar m.a. rætt um, hvort senda skyldi brezkan liðs- styrk til Thailands. Niðurstöður fundarins hafa ekkj verið látnar uppi. Brezki utanríkisráðherrann, Home lávarður, aðvaraði í dag Sovétstjórnina við því, að kommúnísk innrásartilraun í Tahiland mundi stofna friðn- um í Suðaustur-Asíu í veru- lega hættu. Afhenti hann sovézka sendiherranum í Lundúnum, Soldatov, orðsend ingu um þetta efni, en sá síð- arnefndi er sagður hafa lýst yfir því, að Sovétríkin vildu umfram alli varðveita frið- inn. Taldl Soldatov hið slæma ástand eiga rætur að rekja til tregðu hægri stjórnarinnar í Vientiane við að ganga til sam- starfs um stofnun þjóðlegrar einingarstjórnar í Laos. Horfur sæmilegar í Bretlandi virðist það álit málsmetandi manna, að gera megj sér vonir u-m að öldurnar lægi fljótlega o,g ástandið færist í samt lag. Fregnir frá Laos herma, að þar sé fremur kyrrt, en upp á síðkastið hefur herjum kommún- ista orðið talsvert ágengt í bar- áttu sinni við lið hægri manna. Engan veginn er þó ljóst, hvort vopnahlé er í svipinn ríkjandi tnilli deiluaðila í Laos eða ekki. frettir PARÍ'S, 16. maí (AP) — Fimm ráðherrar í frönsku stjórninni, þ.e.a s. allir ráðherrar kristilegra demókata eða MRP-flokksins í henni, hafa sagt af sér ráðherra- embættum Veldur því ágrein- ingur við de Gaulle u-m stefnu þess síðarnefnda varðandi sam- einingu Evrópu. Er hann fylgj- andi lausum tengslum ríkjanna í álfunni og hafði látið þá skoðun sína uppi í blaðaviðtali. Meðal ráðherranna 5 er Pflim- lin, fyrrum forsætisráðherra. — Þeir fimmmenningarnir komu í stjórnina í síðasta mánuði. PARfS, 16. maí (AP) — Rétt- arhöldin yfir Raoul Salan. hershöfðingja, héldu áfram fyrir herrétti í dag. I varnar- ræðu, sem Salan hélt, lýsti hann skýrt og skorinort yfir því, að hann væri æðsti leið- togi OAS-hreyfingarinnar og bæri fulla ábyrgð á öllum hennar verkum. Salan sagðist hafa þjónað Frakklandi í meira en 40 ár, og ei.ki fyrir- verða sig fyrir neitt; hann væri leiðtogi sigursæls hers en ekki uppgjafaliðs. Einnig veittist Salan nokkuð að de Gaulle forseta, sem er i hópi nálægt 100 mamua, sem sak- bornúngurinn hefur krafizt að komi fyrir rétt og beri vitni. Búizt er við að Salan verði dæmdur til dauða. - íþróttir Framh. af bls. 22. séu svo vissir um sigur þeirra í baráttunni um titilinn, leyn ist enn von með Englending- um er heima sitja um sigur Þeir telja að 7 lönd hafi — með heppni — möguleika á að sigra. Þcir telja sjálfa sig í þeim hópi. Á það er bent að keppnin sé mjög erfið. Öll löndin þurfa að leilka 3 svona þýð- ingarmikla leiki á 7—8 dög- um, og slíkt er ekki heiglum hent Þau lönd sem kömast í milliriðla þurfa að leika 5 leiki á tveim vikum. Þessi raun gæti fellt margt liðið sem möguleika á. ........'&*”*"* *»• k ^ % m C — .... nT' Myndin sýnir nef flugvélarinn ar og má glöggt greina hvernig hún hefur stungizt á nefið í jörðina. (Ljsm.: vig). Flugslysið Framh. af bls. 1 áburðardreifingu á túninu á K-orpúlfsstöðum, urðu flugvélar innar varir, og heyrðu að válar- hljóðið hætti skyndilega og síð- an tók vélin að steypast til jarð ar í hringjum. Viss-u þeir ek-ki fyrr en vélin steyptist á nefið í jörðin-a. Frétta-maður Mbl. kom á slys stað sköm-mu eftir hádegi og höfðu þá báðir þeir, er í flug- vélinni voru verið fluttir á brott. Haifði Atli verið fluttur í Landa- kiotsspítala, mi-kið slasaður. Var hann skorinn upp í gærdag vegna innvortist meiðsla, Og leið eftir atvik-um í gærkvöldi. Hefur hann haft fulla meðvitund síðan slysið varð. Loftferðaeftirlitið kannaði all ar aðstæður í gær áður en flug- vélin var flutt af staðnum, en það mun hafa gerzt í nótt. Erlingur Birgir Óla-feson, v-ar sonur Ólafs B. Gíslasonar á Siglu firði og bonu hans, Sigurbjargar Þorleifsdóttur. Hann lætur eftir sig unnustu. Erlingur lauik prófi einikaflug- manns í fyrra, og var í þessu flugi að æfa sig undir frarn- áald-snám. — Borgin okkar Framh, af bls. 3. við þarann í mjóalegg í Hafn- arstræti. Brimið náði alla leið upp að kirkju. — Hvar var Batteríið? — Batteríið var hér um bil þar sem Sænska frystihúsið er nú. Það var frá dögum Jörundar hundadagakonungs, var víst til að verjast ágangi annarra. Það var hlaðið upp í ferkant. Við gengum þangað stundum og sátum þar í góðu veðri. En nú er það horfið eins og margt annað. — Saknið þér þess? — Ég held ekki, held mað- ur hafi haft nóg af endur- minningum um Danskinn hér. Eyrarvlnnan var erfið — Menn reru 'héðan á opn- um bátu-m og einnig var gríð- ar mikið af kútterum hér um aldamót. En upp úr þvi fóru menn að 'hafa áihuga á togara- útgerð og 'hófst hún með Jóni forseta, sem Alliance-félagið átti, og svo með íslandsfélag- inu. — Hér hefur verið töluvert um verkamenn þá eins og nú? — Ég held það nú. Já, og eyrarvinnan var erfið, ákaf- lega erfið, hjá þeim körlun- um. Þeir urðu að bera allt á bakinu, og stundum kvenfólk ið líka, saltpoka, kolapoka og raunar alla sek-kjavöru. Að- eins kom þó fyrir, að notaður var handvagn, ef hann var til. — Því sagði maður við mig, að hér hefði verið þræia vinna, en nú orðið væri það þannig, að men-n yrðu að klæða sig við vinnuna, ef það gerði kalsaveður. H. Bl. — Hvatarfundur Framih. af bls. 2. byggingar helmingi hraðar og næsta haust myndi svo komið að ekki myndi þurfa að þrísetja í nokkra kennslustofu og tvísetn- ing myndi minnka. Siðast en ekki sízt ætti að benda á hinar risavöxnu, en raunhæfu áætlan ir um lagningu hitaveitu í hvert hús og gerð a-llra gatn-a úr var- anlegu efni, sem framlkvæmdar mundu verða án hækkunar á út svörum. Geir Hailgrím-sson minnti Hvatarkonur að lok-u-m á það, að hvert einasta atkvæði gæti ráð ið úrslitu-m um það hvort sam- hentur meirilhluti Sjálfstæðis- manna eða sundrungaröflin stjórnuðu Reykjavfk næsta kjör tim-abil, ef allir legðu sig fram þessa 10 d-aga, sem eftir eru til kosninga gætu Sjálfstæðismenn tryggt sér glæsilegan sigur. Að lokinni ræðu borgarstjóra voru fiutt 8 stutt ávörp og fer útdráttur úr þeim hér á eftir. Fyrst Hvatarkvenna tók ti-1 máls frú Gróa Pétursdóttir. Hún ræddi um hinar miklu fram farir sem orðið hefðu í vatns- veitumálum undir stjórn Sjá-lf- stæðismanna síðustu áratugi og myndu þeir það bezt, sem hefðu orðið að bera vatn í fötum frá ömlu vatnsbólunum. — Frú Gróa ræddi ennfremur um dag- heimilin og leikvellina, sem nú væru orðnir 44, til reksturs þeirra færu um 3 milljónir króna a ári. Hútt rríinnti 'einnig á hversu mjög hefur áunnizt í skólamálum borgarinnar. Þá tók til máls frú Helga Mar- teinsdóttir, veitinga-kona. Hún ræddi m.a. u-m hiha miklu fóllks flutninga til bæjarins, sem sýndu gleggst þá góðu stjórn, sem hér hefði verið á undanförnum árum. Hún lauk máli sínu á því að brýna Hv-atarkonur til þess að vinna a-f öllum mætti að sigri Sjálfstæðisflokksins N-æst tók til máls frú Ingi- björg Guðmundsdóttir. Hún minnti m.a. á það til m-arks u-m góða stjórn Sjálfstæði-sflokksins í borginni, hve vel hefði verið unnið að fegrun borgarinnar, og ekki væri síður mikilsvert hve vel væri hlúð að æsku borg arinnar. Næsta ávarp flutti frú Ólöf Sigurðardóttir, hjúkrunarkona. Hún ræddi einkum um það hve lífskjör væru hér góð og lí-klega á fáum stöðum betri, sjúklingar gætu yerið áhyggjulausir um efnalega velferð sína þrátt fyrir s j ú'kdómslegur. Frú Guðrún Erlendsdóttir, lög fræðingur, sem skipar -18. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins hóf mál sitt á þ.ví. að. ræða um það hve fjölskyldutengslunum væri hætt á tímum hraðvaxatidi tækni og efnalegra framfafáv Þess vegna væri það mikið' fagnaðar- efni, að í stefnuskrá Sjálfstæðis- flokksins væri einmitt gert ráð fyrir leiðbeininga- og hjálpar- starfsemi í þessum efnum. Frú Jónína Guðmundsdóttir tók næst til máls. Hún ræddi m.a. hið nána sam§tarf Framsóknar og kommúnista og minnti sam- ' band þeirra allt á villisvínin í lygasögu Múnohausens baróns, er tvö villisvín gengu þétt saman í skógi og baróninn skaut á milli þeirra og fyrra svánið flúði og hafði það þé teymt seinna 9vínið, sem var gamalt og blint og mátti sig hvergi hræra léiðsagnarlaust svo hægt var að leiða það til slátr- unar, slík væri afstaða Framsókn armanna nú til kommúnista. Hún hvatti fundarkonur til að duga sem bezt í baráttunni gegn slíkri fylkingu Frú Ragnhildur Helgadóttir, alþingismaður, talaði næst. Hún ræddi um það m.a. að í Reykja- ví-k væru um 21500 konur á kjörskrá og atkvæði þeirra skiptu miklu. Hún sagði ennfrem ur að nú væri kosið u-m það hyort borginni yrði stjórnað á igrunidvelli einstaklingsfram- taks eða sósíalisma og hve feyki -lega áhrif úrslit kosninganna hefðu á a-lla þjóðmálabaráttuna. Kosningamar nú stæðu einnig um það hvort sú viðreisn sem hér hefur farið fram sku-li halda áfra-m, en svo yrði að vera ef við ætluðum að lifa sem sjálfstæð þjóð í þessu landi. Síðust tók til máls frú Auður Auðuns, forseti borgarstjórnar. Hún hóf mál sitt á þvi að ræða um það, að sá m-aður sem skip- aði efsta sæti lista kommúnista hefði í 'haust setið á flokksþingi austur í Moskvu og klappað þar fyrir atómsprengjum Rússa. Að þessi sami maður skuli skipa efsta sæti á lista til borg- arstjórnarkosninga í Reykjavík sýndi annað tveggja, algjört öng- þveiti við skipun listans, eða beina forherðingu. Hún minntist á það að eini kvenræðumaðurinn á fundi kommúnista á dögunum hefði sagt, að nú væri þrísett í 5. hverja kennslustofu, sannleikur- inn væri hins vegar sá, að aðeins væri þrísett í 10. h-verja kennslu sbofu barnaskólanna og munaði um minna en að ljúga um helm- ing. Hún brýndi fyrir fund- arkonum að láta ekki ósig- uráhjal andstæðinganna svæfa sig á verðinum og lauik má-li sínu á þessa leið: Látum okkur efeki detta í hug, að við getum leyft okkur að slaka á, við ákulu-m fella andstæðingana á þeirra eig in bragði og standa vörð um borgina okkar og tryggja henni samhentan meirihluta næsta i kjörtíma-bi'

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.