Morgunblaðið - 17.05.1962, Side 24
Fréttasímar Mbl
— eftir lokun —
Grletular fréttir: 2-24-85
Innlendat fréttir: 2-24-84
DJILAS
Sjá grein á bls. 15.
Fundur utanríkisráðh.
Norðurlanda í Rvík
NÆSTK. mánudag og þriðjudag
balda utanríkisráðherrar Norð-
urlanda fund í Reykjavík. —
Koma flestir ráðherranná til ís-
lands á sunnudag.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. fékk hjá Agnari Kl. Jóns-
syni, ráðuneytisstjóra, í gær,
munu ráðherrarnir einkum
ræða málefni þau, sem hafa ver
ið og verða til umræðu á Alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna, en það kemur næst sam-
an í september n. k.
Sunkomulag
náðist ekki
á Akureyri
i gærkvölcfi
UM 10 leytið í gærkvöldi
hófst á Akureyri fundur full-
trúa vinnuveitenda og verka-
manna um kaup og kjör. Á-
formað hafði verið að haldai
fundinn fyrr um daginn, en
úr því gat ekki orðið. Samn-
ingaviðræðumar stóðu fram
til kl. rúmlega eitt en lauk þá
— án þess að samkomulag
næðist. Ákveðið var að halda
viðræðum áfram strax að
morgni — og átti annar fund
ur að hefjast kl. 9 í morgun.
K'ÓPAVOGUR
Sjálfstæðisfélögin efna til
spilakvölds í Sjálfstæðishúsinu,
Borgarholtsbraut 6, n.k. föstu-
dagskvöld kl. 8:30 e.h.
Fundinn sækja Halvard
Lange, utanríkisráðherra Nor-
egs, Veli Merikoski, utanríkis-
ráðherra Finnlands, Kjeld Phil-
ip, efnahagsmálaráðherra Dana,
sem kemur í stað Jens Otto
Kragh, sem ekki á heiman-
gengt þar eð hann gegnir nú
forsætisráðherraembætti og Geij
erstam, aðstoðarutanríkisráð-
herra Svía, sem mætir fyrir
östen Undén, en hann gekkst
nýlega undir magauppskurð og
getur því ekki komið á fund-
inn.
Slæm skil á pósti
BREIÐDALSVÍK, 16. maí —
Skil á pósti eru afleit hér. I gær,
15. maí, barst okkur Morgunblað
ið frá 14. ápríl. Póst fáum við
einu sinni í viku, og hið sama
gerðist í s.l. viku að við fengum
blöðin ménaðargömul.
Veðrátta hér hefur verið þurr
og köild og snjóað hefur í fjöll.
Sauðburður er nú víða að hefj
ast 'hér. — Þá er þess að geta
að við sveitarstjórnankosningar
hér verða nú í fyrsta sirin við-
hafðar hlutfallskosningar, og
fara kosningar fram 24. júní.
— Páll ■
Skartgrip-
um stolið
í FYRRADAG var stolið skart-
gripum úr kassa í þvottaher-
bergi í húsi við Barónsstíg. Ver-
ið var að móla íbúð í kjallaran-
um og ýmsir munir, þar á með-
al skartgripakassi, voru geymd-
ir í þvottaihúsinu frá því kl. háítf
tíu um morguninn. Er vitjað var
um kassann um sexleytið kom í
Ijós að stolið hafði verið úr hon
um gullarmbandi, sem smeygt er
upp á hendina, silfurhálsmeni
með laufskurði Og silfurkeðju og
gullitu hálsmeni með grænum
steinum og fylgdi því gyllt keðja.
Vinstri vofurnar sœkja að Reykjavík
Takis'h okkur aÍ blekUja. Ftjkvíkinj
leiun* vít áhe/áan/eja. bráf/e**
toyncfaJ „fyiffy/kiny atstjótn /
já, hurr& f
k/ý/a vinstri-stjórn /
fbara a<S f>*tfa
\ fari mi akíi hja
jokker
0<j hja
Htrmannijl
Lambalát kemur upp
á bæ í Hreppunum
Á BÆNUM Núpstúni í Hruna-
mannahreppi hefur það borið við
að um 100 ær hafa láltið lömbum
sínum og er hér að ræða um
helming f járeignar bóndans þar,
Guðmundar Guðmundssonar,
sem hefur orðið fyrir tilfinnan
legu tjóni af þessum sökum.
Mbl. átti í gær tal við dýra-
lækninn á Selfossi, Jón Guð-
brandsson. Sagði hann að slíkir
atburðir gerðust af og til, en
ástæður væru oft óljósar. Kæmi
þar stundum til sýklar og einn
ig fóðrun. Lambalét væri yfir-
leitt staðbundið við einn bæ, en
erfitt væri að eiga við það. —
Reynt væri að gefa ánum lyf en
oft væri eina ráðið að dreifa
fénu.
Tveir hreyflar
biluðu
f GÆRDAG gerðíst það að
um stundarsakir var saknað
einnar af fjögurra hreyflá flug
vélum Varnarliðsins. Kom þó
brátt í ljós að vélin hafði taf-
izt sökum þess að einn hreyf-
ill hennar hafði stöðvazt og
annar var ekki í góðu lagi.
Fyrir lendinguna voru venju-
legar varúðarráðstafanir gerð
ar, en lendingin tókst hið
bezta. Er vélin óskemmd með
öllu.
Byggingu hins veglega íþrótta- og syningahuss í Laugardal miðar nú óðfluga áfram. Er þegar
lokið við að steypa upp 1100 ferm. kjallara, forstofu og áhorfendarými fyrir 1200 manns.
Húsið verður fokhelt á þessu ári, og það verður tekið í notkun á næsta kjörtímabili. Á mynd
inni hér að ofan sést framhlið hússins og anddyri þess. M. a. verður í húsinu stærsti salur
landsins. Verður þetta glæsileg miðstöð íþróttalífs höfuðborgarinnar. — (Sjá bls. 1».
(Ljósm. Sveinn Þormóðsson).
Jón sagði að er hann hefði
síðast átt tal við bóndann að
Núpstúni, fyrir um vi'ku,
hefði um helmingur ánna látið
lömbum, en á Núpstúni eru um
200 fjár. Væri hér um að ræða
mjög tilfinnanlegt tjón fyrir
bóndann, og færi þarna mest af
vinnu hans og nær öll veltan af
búinu í ár. Sagði Jón að slæmt
væri að toændur gætu ekki tryggt
sig gegn tjóni sem þessu.
35 drepnir
ALGEIRSBORG, 16. maí —
(AP) — Síðdegis í dag höfðu
35 manns verið drepnir af
. OAS-mönnum í Alsír, sex létu
lífið í Oran en hinir í Algeirs
borg. Meðal hinna látnu var
barn, prestur og 5 starfsmenn
franska sjónvarpsins. Hryðju
verkin halda áfram.
Hitaveitubilanir
í FYRRADAG urðu tvær bilanir
á Hitaveitu Reykjavíkur, og
voru hlutar af hitaveitusvæðinu
vatnslausir um tíma. Um tvö
leytið bilaði þenslustykki í dælu
stöðinni að Reykjum og varð hún
óvirk um tíma. Viðgerð á stöð-
inni lauk um sjöleytið um
kvöldið og tók hún þá til starfa
á ný.
Síðar um kvöfdið bilaði annað
þenslustykki, að þessu sinni á
annarri aðalæðinni frá Reykj-
um. Varð bilunin skammt frá
Hafnarfjarðarvegi. Unnið var að
því í gær að lagfæra þá bilun
og var búizt við því að viðgerð
yrði lokið um kvöldmiatarleytið
í gær. — Járnsmiði þurfti til að
lagfæra bilanir þessar og fékk
Hitaveitan undaniþágu til þess
að járnsmiðir ynnu, en þeir eru
í verkfalli, sem kunnugt er.
Sjálfboðaliðar
ISJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN þarf nú á aðstoð sem
flestra sjálfboðaliða að halda við skriftir og þess
háttar. Vinsamlegast hafíð samband við skrtfstofu
flokksins í Sjálfstæðishúsinu í dag eða í kvöld.