Morgunblaðið - 25.07.1962, Side 12
12
MORGHNBLAÐtÐ
Miðvikudagur 25. júlí 1962
Rennibekkur
Lítið notaður rennibekkur 1 metra til 1.50 rennilengd
óskast. Þeir sem kynnu að vilja selja slíkan bekk sendi
tilboð til afgr. Mbl. merkt: „Strax — 7586“.
Þakka skyldum og óskyldum gjafir, símskeyti og önnur
vinahót, mér sýnd á 75 ára afmæli mínu
Atli Guðmundsson.
Innilega þakka ég óllum þeim sem glöddu mig með
heimsóknum, gjöfum og skeytum á 75 ára afmæli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Kristjana Þorvarðardóttir,
Bárðarbúð, Hellnum.
Konan mín
SOFFÍA M. ÓLAFSDÓTTIR
Vesturgötu 26 B,
andaðist aðfaranótt 23. júlí í Farsóttarhúsinu.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Kristinn Sveinsson.
Föðurbróðir mxna
JÓHANN HENNING HAVSTEEN
andaðist að sjúkrahúsinu Sólheimum 23. júlí. Útför hans
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 27. þ.m. kl. 10,30
árdegis.
F. h. fósturdóttur og vandamanna.
Jóhann Hafstein, bankastjóri.
Jarðarför móður, tengdamóður og ömmu okkar
MARÍU GUÐNADÓTTUR
fer fram frá Fossvogskirltju, fimmtudaginn 26. júlí kl. 10,30.
Úndína Sigurðardóttir,
Jón Ólafsson,
Anna Hannesdóttir,
Guðbjörg María Hannesdóttir.
Maðurinn minn
BHtlSTJÖN JÓNSSON
trésmiður,
andaðist þriðjudaginn 24. þessa mánaðar.
Fyrir hönd vandamanna.
Guðrún Einarsdótlir, Skólavörðustíg 26.
Jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu
ANDREU GUÐNADÓTTUR
frá Þingeyri,
fer fram "rá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 26. júlí n.k.
kl. 3 e.h. — Blóm afbeðin, en þeim sem vildu minnast hinnar
látnu, er bent á Hknarstofnanir.
Böm, tengdabörn og barnaböm.
Útför
EGGERTS JÓHANNS JÓNSSONAP
bæjarfógeta í Keflavík,
er andaðist 18. þ.m. fer fram frá Dómkirkjunni, föstudaginn
27. júlí kl. 10,30 f.h. Kirkjuathöfninni verður útvarpað.
Blóm afþökkuð en þeim, sem vildu minnast hans er vin-
samlega bent á líknarstofnanir.
Sigriður Árnadóttir og börn,
Jónína og Jón Pálmason.
VEGNA ÚTFARAR
EGGERTS JÓNSSONAR bæjarfógeta, verður ferð frá
Sérleyfisstöð Keflavíkur kl. 9 f.h. föstudaginn 27. júlí.
BÆJARSTJÓRI KEFLAVÍKUR.
Eiginmaður minn
BJÓRN MAGNÚS ARNÓRSSON
verður jarðsunginn frá F ossvogskirkju föstudaginn 27. júlí
kl. 1,30 e.h.
Eiginkona.
Þökkum sýnda samúð við jarðarför
SVEINS ÞÓRÐARSONAR
fyrrverandi kaupmanns, Óðinsgötu 3.
Guðríður Tómasdóttir
Sigríður Benediktsdóttir
Venzlafólk.
Guðríður Tomasdóttir
Sigríður Benediktsdóttir
NOKKUR orð um mæðgurnar
frú Guðríði Tómasdóttur og
dóttur hennar, frú Sigríði Bene
diktsdóttur.
Frú Guðríður Tómasdóttir var
fædd 18. sept. 1840. Dáin 20.
jan. 1923.
Frú Sigríður Benediktsdóttir
var fædd 15. maí 1881. Dáin
10. maí 1962.
Frú Guðríður Tómasdóttir
var fædd að Brúsastöðum í Ása
hreppi í Vatnsdal. Faðir henn-
ar var Tómas bóndi Jónsson
Illugason Tómassonar bónda að
Hjallalandi og konu hans, Gróu
Tómasdóttur. Guðríður Tómas-
dóttir giftist 28. nóv. 1877 Bene
dikt Samsonarsyni, bónda og
járnsmið að Víðidal í Dýrafirði.
Þau fluttu til Reykjavíkur 1881,
keyptu þar húsið Skálholtskot
við Laufásveg, þar sem nú er
stórhýsið Glæsir og bjuggu þar
saman til 1896, að Benedikt
flutti til Selkirk í Manitoba í
Kanada. Þar andaðist hann 11.
nóv. 1925. Hann var vel gefinn
og merkur maður að mörgu
leyti. Heimkringla gat hans lof-
samlega er hún sagði lesend-
um sínum frá láti hans.
Þegar Benedikt Samsonarson
flutti til Ameríku, fór kona
hans ekki með honum. Guðríð-
ur Tómasdóttir bjó áfram með
dætrum sínum í Skálholtskoti.
Þær voru allar á ungum aldri.
Hún ól þær upp, frá þeim tíma,
ein og hjálparlaus, að kalla. En
En þá var hér hart árferði og
atvinnuleysi. Þá sýndi Guðríður
Tómasdóttir hvað í henni bjó,
og að hún var vandanum vax-
in. —
f ættarskrá frú Guðríðar
Tómasdóttur, er til lýsing af
henni og mun þó fágætt vera,
að slíkt finnist af konu, sem
ekki lét á sér bera utan heim-
ilis. En lýsingin er svona:
Guðríður Tómasdóttir var lít-
il vexti, fíngerð, vel greind,
glaðlynd, mjög dugleg, óeigin-
gjörn, hjálpfús og gestrisin.
Þetta eru falleg orð og at-
hyglisverð lýsing. 1 litla hús-
inu, Skálholtskoti við Laufás-
veg, bjó einstæð kona með fjór-
um dætrum sínum ungum. Þær
voru að vaxa upp og þurftu
sinna muna með. Faðirinn var
kominn til Vesturheims, af hon
um var engrar hjálpar að
vænta. Móðirin varð að vinna
— og vinna mikið — nótt með
degi, og það gjörði Guðríður
Tómasdóttir með heiðri og
sóma. Hún tók menn í fæði og
þjónustu. Það gaf að vísu eitt-
hvað í aðra hönd, en þó munu
misbrestir hafa verið á því. Það
var lítið um peninga í þá daga.
En hjá frú Guðríði í Skálholts-
koti léið öllum vel. í húsinu
hennar lágu tíðum sjúklingar,
sem komu til Reykjavíkur til
lækninga, en áttu þá ekki all-
ténd mikla peninga fyrirsjúkra
húsvist. Guðríði í Skálholtskoti
munaði um hvern eyririnn, sem
hún gat unnið sér inn sér og
börnum sínum til framfæris. —
Ekki var hún éigingjöm, segir
í ættarskrá hennar.
í hennar húsi nutu sjúkir og
særðir hjálpar hins mikla lækn
is, prófessors Guðmundar
Magnússonar. Hjúkrun og um-
hirðu annaðist Guðríður Tóanas-
dóttur undir eftirliti og umsjá
prófessorsins. En Guðríði mátti
treysta, hún var afburða dug-
leg, hreinleg, góð og skyldu-
rækin. Við þessar aðstæður, og
í þessu andrúmslofti, ól hún
upp dætur sínar. Hún vakti yf-
ir andlegri og líkamlegri vel-
ferð þeirra. Hún ól þær upp í
guðsótta og góðum siðum, og
guð blessaði störf hennar.
Dætur frá Guðríðar Tómas-
dóttur og Benedikts Samsonar-
sonar eru þessar: Guðrún, gift-
ist Pétri Ingimundarsyni slökkvi
liðsstjóra í Reykjavík, Svan-
laug, giftist Guðmundi Sigurðs-
syni, klæðskerameistara í Rvík,
Sigríður, giftist Stefáni Gunn-
arssyni, kaupm í Rvík, Kristín,
giftist Axel Meinholt, kaupm. í
Reykjavík.
Allar voru þær Skálholts-
kotssystur vel gefnar og á sín-
um tíma eftirsótt húsfreyjuefni.
Fengu og góða kosti. Nú eru
þær allar látnar.
Frú Sigríður Benediktsdóttir
giftist 28. júní 1902 Stefáni
Gunnarssyni. Foreldrar hans
voru Sesselja Jónsdóttir bónda
að Brunnastöðum á Vatnsleysu-
strönd og Gunnars bónda að
Litlabæ, Stefánssonar bónda að
Brekku í Biskupstungum, Gunn
arssonar bónda og hreppstjóra
að Hvammi í Landsveit og konu
hans Helgu Jónsdóttur hrepp-
stjóra og bónda að Vindási í
Landsveit Bjarnasonar, Halldórs
sonar að Víkingalæk og konu
hans Guðríðar Eyjólfsdóttur. —•
Frá þeim er Víkingslækjarætt
komin.
Föðuramma Stefáns Gunnars-
sonar var Oddbjörg Hákonar-
dóttir Vilhjálmssonar lögréttu-
manns í Kirkjuvogi í Höfnum.
Sigríður Benediktsdóttir missti
mann sinn 17. apríl 1948 eftir
tæpra 46 ára sambúð. Þau eign-
uðust 7 börn. Þrjú dóu ung, ein
stúlka, Kristín að nafni, mjög
efnileg, lézt um tvítugt.
Á lífi eru: Frú Guðríður, gift
Col. Kirby Green í USA, Gunn
ar stórkaupmaður í Reykjavík
og Sesselja, bæði í heimahús-
um.
Heimili Stefáns Gunnarssonar
og Sigríðar Benediktsdóttur að
Sóleyjargötu 31 var stórt og
gestakoma mikil, bæði inn-
lendra og útlendra og öllum
tekið af alúð og rausn. Heimil-
ið var eitt hið fegursta hér í
borg, utan húss sem innan. Frú
Sigríður var vel gefin kona,
bæði til munns og handa. Hún
las mjög mikið, einkum á efri
árum, og eingöngu úrvals bæk-
ur, hvort sem um var að ræða
bundið eða óbundið mál.
Á heimili hennar var gott
bókasafn og hafði hún því úr
góðu að velja, enda notaði hún
það óspart.
Hún las mikið fornar bók-
menntir, fslendingasögurnar,
Eddukvæði og Sólarljóð, sem
hún — ef fáir voru viðstaddir
,— vitnaði þá gjarnan í. Sagði
þá brosandi: „Æ koma mein
eftir munað“ og „Gott er vamm-
lausum vera.“ (Sólarljóð). Ég
held, að fáir hafi vitað hvað
Sigríður Benediktsdóttir var
bókhneigð, lesin og minnug á
það, sem hún las. Um margra
ára skeið háði henni heyrnar-
leysi, svo að hún fór oft á mis
við það, sem talað var í kring-
um hana, en það segir sína
sögu. Þó bjargaðist það furðan-
lega, fyrir atbeina barna henn-
ar, sem öll báru hana á hönd-
um sér. Sigríður Benediktsdótt-
ir var og mikið gefin fyrir
blómarækt, átti einn fegursta
blómagarð hér í borg. Þar
dvaldi hún löngum við að hlúa
að og rækta ný og ný blóm.
Þannig var frú Sigríður Bene-
diktsdóttir. — Nú er hún farin
á fund síns guðs, eiginmanna
og barna. Margir munu sakna
hennar, og lengi minnast, sakir
hjartagæzku, höfðingsskapar og
trygglyndis.
K. ó. Ij
Verkamenn
vanir byggingavinnu óskast.
Uppl. hjá verkstjóranum. Sími 35064.
Bygigmgariðjan b.f.
íbúðarhusið Jaðar í Dalvík
ásamt útihúsum til sölu. Tilboðum sé skilað fyrir
15. ágúsl til Sveins Jóhannssonar, Karlsrauðatorgi 16,
Dalvík, er gefur nánari upplýsingar.
Útboð
Tilboð óslcast í holræsalögn í Suðurbraut á Seltjarnar-
nesi. Útboðslýsing er afhent á skriístofu hreppsins
gegn kr. 500.— í skilatryggingu. Tilboðsfrestur er til
föstudags 3. ágúst n.k.
Sveitarstjóri Seltjarnarneshreppj.