Morgunblaðið - 25.07.1962, Síða 13
<
Laugar.dagur 21. júlí 1962 v
MORGUNBLAÐ1Ð
13
Svar trésmiða við
greinargerð meistara
STJÓRN Meistarafélags húsa-
smiða hefur sent frá sér greinar-
gerð, hina furðulegustu smíð, um
kjaradeilu Trésmiðafélags Reykja
yíkur við Meistarafélagið og
yinnuveitendasamband íslands.
í>ar sem í greinargerðinni er
ýmist farið rangt með, ellegar
þagað yfir staðreyndum til hag-
ræðis þeirra „málstað“ þykir
okkur rétt að fara um hana
nokkrum orðum, án þess að við
teljum slík blaðaskrif vænleg til
lausnar kjaradeilu, en skorumst
heldur ekki undan framhaldi
þeirra ef óskað er.
Áður en til auglýsingar kaup-
taxta kom, höfðu samningavið-
ræður staðið nokkuð á annan
mánuð, án þess að nokkuð þok-
aðist í samkomulagsátt, og hafði
Trésmiðafélagið veitt vinnuveit-
endum frest á aðgerðum af sinni
hálfu. Það er fyrst að þeim fresti
loknum, að okkur er tjáð
að framkvæmdanefndarfundur
Vinnuveitendasambandsins, ekki
Meistarafélagið, hafi samþykkt
að vísa deilunni til sáttasemjara,
og buðu Trésmiðafélaginu sam-
flot þar um. Til þess töldum við
ekki ástæðu, né vænlegt til lausn
ar meðan meistarar sýndu engan
vilja í samkomulagsátt. í greinar-
gerð sinni birta meistarar tilboð
sem þeir segjast hafa gert Tré-
smiðafélaginu meðan á samninga
viðræðum stóð, en hversvegna
að birta rangt boð, þegar bæði
Trésmiðafélagið og sáttasemjari
hafa rétta tilboðið í höndum, en
það er þannig.
25.66 x 46.28 = 1.187.54
1.187.54 x 110 = 1.306.29 (10%)
1.306.29 x 106 = 1.384.67
(lífeyrissjóður)
Verkfæragjald 1.20 + 10% = 1.32
1.32 x 46.28 = 61.09
Kaup og lífeyrissjóður 1.384.67
Verkfæragjald 61.09
1.441.76
Eftir þrjú ár, 1.369.77 + 6% =
1.451.96, + 61.09 = 1.513.05.
Eftir fimm ár, 1.401.51 + 6% =
1.485.61 + 61.09 = 1.546.70.
Tímakaup er 3.56% hærra.
Margföldun tímakaupsins, kr.
25.66 með 46.28 er boð um að
selja okkur helgidaga ársins
fyrir 1.72 klst. á viku, eða með
öðrum orðum að deila árslaunum
tímakaupsins á 49 vikur á ári.
Sömu aðferð nota þeir við út-
reikning á auglýstum kauptaxta
Trésmiðafélagsins, og verður út-
koman eftir því.
Meistarar leggja áherzlu á að
þeir vilji semja við okkur um
sömu hækkun í prósentu sem
samið hefur verið um við aðra,
og segja hana hæsta 8 og 10%.
Sjálfir vita þeir þó vel, að samn-
ingar hafa verið gerðir um miklu
meiri hækkun, og væri hægt að
birta tölur þar um ef tilefni
gefst.
Á sáttafundi á fimmtudag, og
í greinargerð sinni, hafa meist-
arar hækkað verkfæragjald úr
kr. 61.09 á viku í kr. 67.11. Sú
hækkun er fengin með því að
taka í krónutölu sömu hækkun
og samið var um við múrara, og
er það gott dæmi um þeirra róm-
uðu sanngirni, að ef prósentu-
hækkun er trésmiðum óhagstæð
vegna lægra tímakaups skal hún
ráða hækkuninni, en sé hún hag-
stæð, skal hækkun í krónutölu
ráða.
í samanburði við önnur félög
iðnaðarmanna, sem vinnukaup
hafa, treysta meistarar sér ekki
í samanburð á kaupi, heldur
bæta við það lífeyrissjóðshlunn-
indum, og greiðslu fyrir hand-
verkfæri, og bera útkomu þess
saman við kaup annarra. Slíkri
hundalógik efumst við um að
áður hafi verið beitt í samning-
um, eða myndu t. d. meistarar
telja leigu á vélum vera hluta
af sínu kaupi.
Að lífeyrissjóður og gjald fyrir
verkfæri er ekki kaup sést einnig
á því, að af hvorugu greiðist
orlof og sjúkrasjóður, þó skýr
ákvæði séu um, að hvorutveggja
reiknist prósentvís af öllu kaupi,
og í ákvæðisvinnu greiðist lífeyr-
issjóður aldrei af hærra en gild-
andi tímavinnukaupi í dagvinnu.
Það er staðreynd, sem reikn-
ingskúnstir fá engu um breytt,
að tilboð meistaranna hljóðar
upp á kr. 1 306.29 á viku, eða á
klst. kr. 28.18, sem er 9.8% hækk-
un frá kr. 25.66, sé alls ekki 10%.
Það er einnig staðreynd, að vinnu
vika trésmiða er í dag, og einnig
samkvæmt tilboðinu, 48 klst. en
ekki 46.28 klst. (hjá mörgum
stéttum er sumartími 43 V2 klst.
á viku).
Skrif þeirra um ákvæðisvinnu
og samþykkt Trésmiðafélagsins
frá 7. maí s 1. um að vinna ein-
göngu ákvæðisvinnu í nýbygg-
ingu er slík, að samþykktin er
slitin í sundur, og aðeins seinni
hlutinn birtur, svo hún falli
betur að efninu. Við teljum því
rétt að birta fyrri hlutann, sem
meistarar sleppa, og er þannig.
„Við gerð kaup og kjarasamn-
Fram/hald á bls. 19.
Viljum ráða
pressumann,
handsetjara
0 s.
vélsetjara
Góður handsetjari getur komizt að við
nám í véísetningu.
Prentsmiðja JÓNS HELGASONAR
Bergstaðastræti 27.
•íMitoiiíaBBgaaSiiiai llllllliliiUUaBBmMBBMBMBBBPBMMMI
VREDESTEIN
H0LLENZKU
HJÚLBARDARNIR
FYRIRLIGGJANDI
IP EF DIÐ GETIfl
520 x 13/4 kr. 582,20 520 X 14/4 — 654,75 640 x 15/6 999,20
560 x 13/4 — 651,00 560 X 14/4 — 712,70 670 x 15/6 — 1.039,00
590 x 13/4 — 707,10 590 X 14/4 — 765,60 670 x 15/6 hvít 1.230,80
590 x 13/4 hvít — 848,50 750 X 14/6 — 1.045,50 710 x 15/6 — 1.152,60
640 x 13/4 — 819,90 750 X 14/6 hvít — 1.235,45 710 x 15/6 hvít — 1.363,90
640 x 13/6 — 935,60 800 X 14/6 hvít — 1.376,00 820 x 15/6 — 1.573,75
640 x 13/6 hvít — 1.133,10 560 X 15/4 — 744,60 525 x 16/4 __ 720,50
670 x 13/4 — 842,75 560 X 15/4 hvít — 883,20 600 x 16/6 — 1.030,00
670 x 13/6 — 963,90 590 X 15/4 — 802,20 600 x 16/6 gróf — 1.076,50
670 x 13/6 hv:'t — 1.141,60 590 X 15/4 hvít — 949,40 600 x 16/6 Special — 1.092,40
650 x 16/6 — 1.170,40
900 x 16/10 gróf — 3.595,60
750 x20/10 Special — 3.267,15
825 x 20/12 Special — 3.791,85
900 x 20/14 Special — 4.824,25
1000 x 20/14 Special — 5.746,85
1100 x 20/16 Special — 7.278,65
Geymið auglýsinguna og
gerið samanburð á verð-
um.
Einkaumboð:
Brautarholti 20 — Sími 15159
H
F
Söluumboð í Reykjavík
Umboðia
KR. KRIST TÁNSSON H.F.
SuðuriandsDiaut 2 — Sími 35300
BÍLASALAN H.F.
Laufásgötu 5
Akureyri.