Morgunblaðið - 25.07.1962, Page 18

Morgunblaðið - 25.07.1962, Page 18
18 MORGVNBLAÐ1Ð Miðvikudagur 25. júlí 1962 2187 möguleikar * * ' ^nn í IslandsmÓtiaui Akureyri og Akraness í kvöld í KVÖLD fer fram síðasti leik gizka á lokaúrslitin, sem aldrei urinn í I deild fyrir sumarhlé. hafa verið tvísýnni en í ór. Leika Akurnesingar og Akur- ________ eyringar á Akureyri og hefst leikurinn kl. 19.00. Þátttakendur í námskeiðinu í Reykjadal. — Lengst t. v. er nýja viöbyggingin, svefnskáiinu. Enn eru eftir 9 leikir í mót- inu og hafa 5 — fimm — af sex liðum enn möguleika á sigri. Af þessum 9 leikjum eiga þessi 5 lið að leika innbyrðis 7 leiki, hinir 2 leikirnir eru leikir fsfirðinga hér í Reykja- vík gegn Fram og Val. Það eru því nokkuð margir möguleikar eftir enn og vel kann svo að fara að 2 lið verði eftir leik K.R. og Í.A. á Laugardals- vellinum hinn 23. sept. jöfn að stigum og verði að leika að nýju. Þess skal getið til gam- ans, að í 7 leikjum, sem efstu liðin eiga eftir innbyrðis, geta stigin skipzt á 2187 mismun- , andi vegu og því enn erfitt að Hinn umdeildi ástralski frjálsíþróttaþjálfari, Perey Cerutti, sem m.a. gerði Herb Elliott að heims- og Olympíu- meistara, sagði í gær að mjólk hefði hræðileg sálræn áhrif á drengi og menn, og að menn ættu að reyna að venja sig af mjóik sem allra fyrst á ævi- skeiðinu. Cerutti hélt fyrirlestur í há- skólanum í Adelaide. Þar i lýsti hann þeirri skoðun sinni að mjólkurneyzla knýtti menn um of til móður þeirra, og að slíkt markaði djúp spor í meðvitund mannsins. 1 „Sá sem venur sig á mjólk urdrykkju, nær aldrei þeirri þróun sem hann hefði getað náð að Öðrum kosti,“ sagði Cerúiti. Og hann lét í það skína að til mjólkur mætti rekja orsakir þess að ýmis lönd hneigjast' nú til kvenrík is. Hyggst synda frá Svalbarðseyri til Akureyrar AXEI. KVARAN, lögregluþjónn hefur ákveðið að synda frá Sval- barðseyri inn til Akureyrar n.k. fimmtúdag, ef veður leyfir. Er þetta um 9 km vegalengd. Eyj- ólfur Sjónséon hefur áður þreytt þetta ^sund, og var hann 3 klst. og 18 mín á leiðinni. Fylgdarmaður Axels verður Pétur Jónsson, hinn kunni sund koppi. ekki aoeins skóla heldur miðstöð viijum Sagöi Vilhjálmur Einarsson um ibrótfa- skólann i Laugardal ÍÞRÓTTASKÓLINN í Reykja- dal á ekki aðeins að vera drengja búðir, þó þær séu góðar. Við viljum að skólinn verði ekki síð- ur fyrir íþróttamenn og íþrótta- hreyfinguna yfirleitt. Þar eiga íþróttamenn að dvelja og æfa sig, njóta góðrar aðstöðu og búa sig undir stórafrek. Við viljum hafa Reykjadal í líkingu við „Bosön“ hjá Svíum, griðastað fyrir líkams- mennt í útjaðri höfuðborgarinnar. Á þessa leið fórust Vilhjálmi Ein- arssyni crð er við ræddum við hann um íþróttaskóla hans og Höskuldar Goða í Reykjadal, en þar hefur þeim félögum tekizt að bæta aðstöðu sína verulega og Vilhjálmur sagði: „Breytingin hefði ekki verið möguleg án hjálp ar þeirrar sem við fengum frá Reykjavíkurbæ". Og nú er skólinn að verða það sem við vonuðum. N.k. föstu dag er öllurn íþróttamönnum, fé- lögum eða einstaklingum heimilt að tilkynna komu sína í- Reykja- dal til dvalar. Það er mikill og Staðan EFTIR leiki helgarinnar er stað- an þannig í 1 deildarkeppninni í knattspyrnu' L U J T Mörk S Fram .... 7 3 3 1 13—5 9 Valur .. 7 3 2 2 9—4 8 Akranes 6 3 2 1 14—7 8 KR .... 7 3 2 2 14—7 8 Akureyri 7 4 0 3 17—12 8 ísaijörður 8 0 1 7 1—32 1 góður matur á boðstólum, kvik- myndir, frelsi til æfinga, en til- sögn beztu kennara ef óskað er eftir, aðstaða til sunds daglega. Þessi dagskrá stendur frá föstu- dagskvöldi til sunnudagskvölds og ætlunin er að halda slíkri starfsemi áfram fyrir íþrótta- menn. Frjálsíþróttamenn hafa pantað verzlunarmannahelgina frá föstu- degi til mánudags og verða eins margir og rúmast þar efra. Annars erum við núna „milli námskeiða" ef svo má segja. Námskeiði er nýlokið og hið síð- ara hefst 8. ágúst og er senn full- skipað. ★ Nýbyggingar Við lögðum áherzlu á að byggja við hús okkar, sagði Vil- hjálmur. Hefur verið byggðir við fyrri húsakynni, svefnskáli svo að eftir breytinguna getum við tekið á móti 40 dvalargestum. Þessi nýja viðbygging er 70 fer- metra hús og fellur vel við fyrri byggingar á staðnum. (Hið nýja hús er lengst t. h. á myndinni). í september tökum við upp aðra nýung í starfi okkar. Við ætlum að efna til námskeiðs fyrir leiðtoga í félagsstarfi. Og þó þar verði fyrst og fremst um íþróttir fjallað, mótsstjórn, starfsmenn á mótum og annað slíkt er það nám skeið ætlað öllum er vilja stjórna félagslegu starfi. Við vonum að íþróttafélög beinlínis sendi menn á þetta námeið, því mikill skort- ur er á slíkum mönnum, og stund um hafa áhugamenn ekki kjark til að fara á slíkt námskeið af eigin hvötum Við ætlum að vanda til. þess námskeiðs, sagði Vilhjálmur. ★ Framtíðaráform í Reykjadal eru annars að slétta völl, jafnvel malbika fyrir körfubolta, fá úti- sundlaug, þó laugin sem við fáum afnot af í Reykjahlíð sé góð, svo að fá fleiri leiktæki. Húsakynni eru orðin góð og hér blasir fram- tíðin við. Hér er ungur áhugamaður að reyna sig í þrístökki undir til- sögn meistarans. SVÍAR og Norðmenn byrjuðu landskeppni í frjálsum íþróttum í gær. Leikurinn er nokkuð ójafn, fyrirfram vitað, en það hefur óvænt skeð m. a. að Bunæs vann Norðurlandamethafann And ersen í 200 m hlaupi með 1/10 úr sek. Eftir fyrri daginn hafa Svíar 62 stig móti 48 í greinum kerla. En jafnframt keppir lið Suður-Svíþjóðar við kvennalands lið Noregs og hefur sænsku stúlk urnar yfir 34 stig ggen 21. Mótið fór fram á Bislett og mesta gleðin varð í fyrstu grein keppninnar er Bunæs vann 200 m hlaupið — stal bókstaflega sigr- inum af Norðurlandameistaran- um Ove Andersen. Bunæs hljóp beygjuna mjög vel og það nægði honum til sigurs, jafnvel með tímanum. Það ætluði allt um koll að keyra á Bislett við þennan fyrsta sigur. En síðar gekk Norðmönn- um ekki eins vel, en um það tala úrslitin skýru máli. Þrístökk: Hagfeldt Svíþj. 15.16, 2. Blomquist Svíþj. 14.93, 3. Bergh Nor. 14.80, 4. Jensen Nor. 14.56. 4x100 m boðhlaup: Svíþjóð 40.9, Noregur 41.1. Stangarstökk: Rinaldo Svíþj. 4.55 (sænskt met), 2. Hövik Nor. 4.45, 3. Carbe Svíþj. 4.35, 4. Schie Nor. 4.35. 5 km hlaup: Karlsson Svíþj. 14.12.4, 2. Kællevag Svíþj. 14.14.2, 3. Benum Nor. 14.17.6, 4. Teien Nor. 14.19 2. Kringlukast Haugen Nor. 54.87, 2. Haglund Svíþj. 54.74,3. Edlund Svíþj. 52.22, 4. Lislerud Nor. 48.62. Spjótkast: Rasmussen Nor. 75.89, 2, Pedersen Nor. 73.72, 3. Lageson Svíþj. 69.78, 4. Smidig Svíþj. 66.34. 1500 m hlaup: Holmestrand Svíþj. 3.46.6, 2. Larsson Svíþj. 3.46.8, 3. Helland Nor. 3.47.4, 4. Hammarsland Nor. 3.47.5. 110 m grind: Ove Andersson Svíþj. 14.5,2. Berland Svíþj. 14.8, 3. Holen Nor. 15.3, 4. Moland Nor. 15.3. 200 m hlaup: Bunæs Nor. 21.5, 2. Anderson Svíþj. 21.6, 3. Svii 21.8, 4. Svaar Nor. 22.3. Donir skoruðu 7 gegn 0 Ungir danskir knattspyrnu drengir heimsækja Þrótt um þessar mundir. Þeir léku í Vestmannaeyjum og töpuðu en fyrstu leikir þeirra í Reykjavík voru í fyrrakvöld. í 2. fl. unnu Dai.ir með 3—0 en í 3. fl. með 4—0. Myndii. hér er úr leik 2. fl. — Danirnir eru að skora. Lið þeirra var létt-leikand: og skemmtilegt. Övæntur sigur — en Sviar eru öruggir um sigur yfir Norðmönnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.