Morgunblaðið - 09.08.1962, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.08.1962, Blaðsíða 8
8 MORGUNBL 4Ð1Ð Fimmtudagur 9. ágúst 1962. „Það hefði ekki líkzt Mari- lyn að fremja sjálfsmorð", segir Arthur IViiller, fyrrver- andi eiginmaður leikkonunnar „Ég er sannfærður um, að þetta var hræðilegt slys. Ég veit, að Marlyn svipti sig ekki lífi af ásettu ráði.“ Þannig fórust Arthur Mill- er, fyrrverandi eiginmanni leikkonunnar, orð við frétta- ritara „Scottislh Daily Ex- press“, Robin Stafford, í sim- tali, er frétzt hafði um anddét Marlyn Monroe. „Ég hef ekki staðið i beinu sambandi við hana í rúmt ár, eða frá því við skildum (Mill- er hefur gifzt á ný). Þetta var mikið áfaU fyrir mig. Eftir því sem ég hef les- ið, þá var tómt pilluglas við hlið hennar. Það kann vel að vera, að hún hafi tekið pill- urnar, en ég held hún hafi ekki stytt sér aldur af ásettu ráði. Þegar fólk getur ekki sofið, þá kemur það oft fyrir, að eftir að réttur skammtur hef- ur verið tekinn, þá ruglast það og heldur áfram að taka pillur. Þetta held ég að hafi gerzt. Það hefði ekki líkzt Marlyn að fremja sjálfsmorð. Sumir við hafa margþvæld orðatiltæki við slik tækifæri, en sjálfur veit ég ekki hvað ég á að segja. Ég fer ekki til Kaliforníu til að vera við jarðarförina. Ég reikna með, að hún muni mest líkjast sirkus. Hvers vegna ætti ég líka að fara — ekki verður hún þar. Ég vU minnast hennar eins og hún var í lifanda lífi, þeg- ar ég þekkti hana. Nú, á þessu augnabliki og undir þessum kringumstæðum, þá finnst mér ég ekki geta gefið ná- kvæma lýsingu á henni. Það væri hægt að fara þess á leit við mig, að ég lýsti henni sem rithöfundur, ókunn ugur áhorfandi eða einhver, sem hefði unnið með henni. En ég var einnig giftur henni. Þessar tvær hliðar er ekki hægt að skilja að. Raun- verulega þekkti ég hana allt- of vel, tU þess að segja nokk- ur „Iokaorð“ um hana. Ég get ekki dregið saman í fáeinum orðum neina lýs- ingu á henni. Síðustu endur- minningar mínar um Marilyn eru ársgamlar, og það eru minningar, sem ég vil eiga sjálfur.“ • Marilyn Monroe hafði verið undir handleiðslu sálfræðings undanfarið ár. Frægð hennar varð fyrir skakkaföllum síðustu árin. Tvær síðustu myndir hennar, „Let's Make Love“ og „The Misfits“ gáfu ekki þær tekjur, sem búizt hafði verið við. 8. júní sl. var hún rekin frá störfum, er verið var að taka myndina „Sometings Got to Give.“ Skömmu síðar var henni stefnt fyrir samningsrof, og þess krafizt, að hún greiddi 500.000 dali í skaðabætur. Síð ar beiddist hún þess af Twent iet'h Century Fox, að hún fengi að halda áfram vinnu við myndina. Síðast bjó hún í húsinu við 12305 Helena Drive, sem var mjög ólíkt því umhverfi, sem flestir hefðu talið, að hefði hæft henni — hótelin í Ber- verly Hills. Heimsblöðin hafa rætt and- lát leikkonunnar, og margir af vinum hennar og samstarfs mönnum hafa látið orð falla um hana. Predikarinn Billy Graham sagði: „Fólk er ekki skapað til að lifa því lífi, sem hún lifði. Það, að vera fræg og „kynbomba“, fullnægir ekki sálinni. Hún hefði getað fund- ið allt, sem hún leitað að, hjá Kristi.“ BiUy Wilder, leikstjórinn, sem stjórnað hefur noikkrum myndum hennar, sagði: „Lát um vera, þótt erfitt hafi ver- anlegir, þá held ég, að hún hafi hræðzt að vera leikkona. Það var erfitt að vinna með henni. Ég held ekki, að kast- að sé skugga á minningu hennar, þótt það sé sagt.“ Frankie Vaughan, meðleik- ari hennar í „Let's Make Love“: „Hollywood ein ber á- byrgðina. Hún var gerð að stjörnu, en persónuleg hlið hennar gleymdist. Veslings Marilyn. Hún lék alltaf einu hlutverki of mikið.“ Dean Martin: „Ég skil það ekki. Hún var svo yndis- lega hlýleg stúlka. Ég hafði vonað, að við myndurn síðar ljúka við „Something's Got to Give“. (Martin átti að leika á móti henni, en myndinni varð ekki lokið — vegna þess, að Marilyn rnætti ekki til vinnu). Martine Carol, franska leiik- konan: „Hún var meira en leikkona, hún var „séní“. Izvestia, rússneska blaðið: f S jóstangveiðimót í Keflavík UM NÆSTU helgi, dagana 11. og 12. ágúst, verður haldið sjó stangaveiðimót í Keflavík á veg um Rod Fishing Club of Kefla- vík, sem er sjóstangaveiðifélag Ameríkumanna á Keflavíkurflug velli. Þátttakendur utan Keflavíkur flugvallar munu gista á Flugvall arhótelinu, en veitingar fram bornar í Civilian Club. Róið í verður laugardag og sunnudag kl. 10 að morgni til kl. 18 að kvöldi. Þátttakandur verða um 50 tals ins frá Keflavíkurflugvelli, Vest mannaeyjum og Reykjavík. — Keppt verður um marga fagra og eigulega verðlaunagripi bæði í einstaklings- og flokkakeppnL Reynt verður að útvega nýjum á hugamönnum fullkomin veiði- tæki að láni, en eins og kunnugt er þarf sérstök tæki til þvílíkrar sportveiði, sem sjóstangaveiði er. Öllum kostnaði er mjög í hóf stillt* Forstöðumenn mótsins eru þeir Stanley Roff í Civilian Club á Keflavíkurflugvelli og Halldór Snorrason, Aðalbílasölunni, — Reykjavík. Þessi mynd var tekin skömmu eftir giftingu þeirra Marilyn Monroe og Arthur Millers. ið að vinna með henni. Bara það, að fá þriggja mínútna, yndislega „senu“ með henni á léreftið, var þess virði, að erfiðað væri í heila viku. Það hefur verið reynt að skapa nýjar M. M. Það heppnast ekki. Það verður aldrei nein eins og hún.“ Sir Lawrence Olivier: Hún hræddist starf sitt. Þótt hæfi- leikar hennar væru óumdeil- „Hollywood skapaði hana til að drepa hana. Hún mun fljótt gleymast. Hollywood-vélin snýst áfram. Nýjar stjörnur munu koma og nýir harmileik ir.“ Útvarpsstöð Vatikansins (sem oft hefur fordæmt hana) „Fólk getur orðið fyrir eitur- áhrifum af umhverfinu, en frá því tekur það andlega og líkamlega næringu." Breytlng á innheimtu raf- magns- og hitaveitug jalda NÚ UM mánaðamótin verður breyting á ínnheimtufyrirkomu- lagi vegna rafmagns- og hitaveitu gjalda. Breytingin er í því fólgin að þeir, sem ekkí greiða reikninga sína við framvísun, geta nú greitt þá í Landsbankanum og öllum útibúum hans. en þurfa ekki að fara með greiðslu í skrifstofu Rafmagnsveitunnar. Þessi ráðstöfun nær aðeins til þeirra reikninga, sem koma til innheimtu eftir 1. ágúst, eldri ógreidda reikninga verður að greiða í skrifstofu Rafmagnsveit- unnar í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, vesturenda, neðstu hæð. Sérstaklega er bent á, að til þess að ur.nt sé að taka við greiðslum á þennan hátt, verða ógreiddir reikningar afhentir hlut aðeigandi, með viðfestum greiðsluseðli. ókvittaðir, og verð- ur að framvísa hinum ókvittaða reikningi á greiðslustað, til þess að gjaldkerar geti tekið við greiðslu. Reikningur gildir ekki sem kvittun fyiir gjöldunum, nema á honum sé greiðslustimpill. Frá 1. ágúst verður hægt að greiða hina nýju reikninga á þess um stöðum: Landsbanka íslands, Austurstr. Útbúi Laiidsbankans, Laugavegi 77 Útbúi Landsbankans, Laugaveg 15 Útbúi Landsbankans, Langholtsvegi 43 Sparisjóði Kópavogs, Skjólbraut 6 Innborgunarskrifstofu Raf- magnsveitunnar, Hafnarhús- inu, Tryggvagötu. Leiðbeiningar um þetta eru prentaðar á hina nýju reikninga, og er þess vænzt, að notendur rafmagns- og hitaveitu noti þann greiðslustað, sem hverjum hent- ar bezt. . Leiðréttíng í GREIN, sem Guðbrandur ís berg ritaði í Mbl. í gær um töku og sölu stóðhesta, slæddist inn sú villa að greinin var dagsett 3. júlí í staðinn fyrir 3. ágúst. Leiðréttist þetta hér með. — Síld Framh. af bls. 24. út með kvöldinu. Allt hefur geng ið eins og í sögu í þessari land- legu og ekkert borið til tíðinda. — Veður hefur verið hér kalt undanfarna daga og rigning. Hefur fólk því haldið sig inni við. Mjög imkið af aðkomufólki er nú farið héðan. — Einar. Néskaupstaður: — Bátarnir eru nú að tínast út héðan og er talið að flest skipin verði farin út í kvöld, en héi hafa legið 50—60 skip. Ekki bar mikið á ölvun, og var landlegan róleg. Veðrið er nú sæmilegt sér en kalt. Á rniðunum mun veðrið vera að skána og veðurspáin er góð. Sjólag er þar þó ekki gott ennþá, en batnandi, og munu mörg skipanna komin á miðin. — Svavar. Eskifjörður- — Eskifjarðar- bátar liggja ailir hér inni og eitt aðkomuskip. Bátarnir eru ekki farnir út ennþá en einhver hreyf ing er á þeim og má búast við að þeir fari að halda út. Hér hefur verið kalt og á dögunum snjóaði héi niður í miðjar hlíð- ar. — Gunnar. Vopnafjörður: — Átta skip liggja hér inni og eru ekki farin að hugsa ti: hreyfings ennþá, enda mun veður lítið batnandi, norðan sterkkingur úti fyrir þótt lygnara sé hér inni. Er óvíst hvort bátarnir halda út í kvöld. Á morgun verður lokið við bræðslu úr þrónum og hafa þá samtals 130,000 mál verið brædd hér. Eftir tvo sólarhringa verður nýi löndunarkraninn tekinn notkun og á þá að vera hægt að landa hér í þrærnar 20 þúsund málum á rúmum tveimur sólar- hringum. — Miklar skipakomur hafa verið hér. í síðustu viku var skipað út síldarmjöli fimm daga samfleytt, samtals 1850 tonnum og um helgina lestaði Askja hér 500 tonn. Einnig er búið að skipa út tveimur förm- um af lýsi, um 1100 tonnum en lýsisskip er væntanlegt innan skamms. Hefur þetta orðið til þess að ekki hefur þurft að flytja lýsi héðan til Hjalteyrar eins og undanfarin ót. Hér er nú búið að koma upp lýsisgeymi, sem tekur um 2,500 tonn, og hefur runnið í hann í þrjá sólarhringa. — Sigurjón. Reyðarfjörður: — Hér liggja 5—6 skip og eru ekki farin að hugsa sér til hreyfings enn. Veður er hér kalt, aðeins 8 stiga hiti og 5 stig í gær. Snjór er hér í öllum íjöllum. — Arnþór. Seyðisfjörður: — Veðrið er hér heldur að ganga niður og hafa skipin verið að tínast út eitt og eitt. Mörg skip liggja þó enn inni. Þau skip, sem út hafa farið, munu ætla að athuga með síld innan við biæluna í skjóli ef eitthvað væri að hafa þar, en ekkert hefur frétst um veiði. — vig. Erlendar fréttir I STUTTU MALI Washington, 8. ágúst. — (NTB — Reuter) — BANDARÍSKA kjarnorfeu málanefndin skýrSi fráþví í dag að Rússar hafi í gær sprengt kjarnorkusprengju — í þetta sinn í Siberíu. Sprengja þessi var lítil, á við nokkur þúsund lestir af TNT-sprengiefni. Helsingfors, 3. ágúst — NTB. í DAG hófust í Helsingfors viðræður Rússa og Finna um mögulega afhendinigu Saima- skurðarins til Finna, en mikill hluti hans er i höndum Rússa. Formaður finnsku nefndar- innar er Kauno Kleemola, og sagði hann í viðtali við frétta- menn í dag, að viðræður færu vinsamlega fram; hefði í dag verið rætt um ýmiss land- fræðileg atriði. Formaður sovézku viðræðunefndarinnar er V.G. Bakajev, ráðherra sá, er fer með málefni, er varða verzlunarflota Rússa. Wasihington, 8. ágúst — NTB - Reuter. • TILKYNNT var í Washing- ton í dag, að Lyndon John- sons varaforseti Bandaríkjanna muni í ágústok leggja upp í ferða lag til ftalíu, Grikklands, Tyrk- lands, Kypur og Iran, en ríkis- stjórnir þessara landa hafa boðið honum til viðræðna. Eiginkona Johnsons verður með í förinni. Haag, NTB, Reuter í gær. UPPLÝST var í Hollandia í Vest ur-Nýju Guineu í gær, að um það bil eitt þúsund konur og börn hefðu verið flutt til Hollands síðustu vikur og álíka margt biði fars frá eyjunni. London, 8. ágúst — NTB — Reuter. Sextki þingmenn brezJka veitkaimannafloklksina hafa sent Nilkita Krúsjeff for- sætisnáðherra Sovétníkjanna símskeyti *g mótmælt kjara- orkutilraunuim Rússa. +*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.