Morgunblaðið - 11.08.1962, Page 6

Morgunblaðið - 11.08.1962, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 11. ágúst 1962 Framleiðsla bónd- ans hefur aukizt Bændur munu njóta góðs af hinum trausta efnahag þjóðarinnair Spjallad við Einar / Lækjarhvammi TIÐINDAMAÐUR Mbl. hitti Einar bónda Ólafsson í Lækj- arbvammi að máli fyrir nokkrum dögum. Einar er öllum kunnur fyrir marg- háttuð störf sín í þágu bænda stéttarinnar, en hann hefur eins og alþjóð vei' átt far- sælan þátt í framgangi ým- issa nytsömustu mála land- búnaðarins. Talið barst m a. að samþykkt þeirri, sem gerð var á almenn- um bændafurdi í Víði'hlíð ekki alls fyrir löngu, þar sem gerð- ar voru tillögur um ýmsar breytingar á land' '"aðarlög- gjöfinni. Aldrei meiri framfari — Hvað segir þú um núgild- andi löggjöf á sviði landbúnað- arins og þörfina á breytingum? — Ég held því afdráttarlaust fram ,sagði Einar, — að þann tíma, sem Framleiðsluráð land- búnaðarins hefur starfað, og það er einmitt um þessar mundir 15 ára gamalt, hafi framfarir í land!búnaði verið meiri en nokkru sinni áður — og afkoma bænda borin saman við aðrar stéttir vart verið betri í annan tíma. Hins vegar tel ég, að vinna þurfi markvisst að því að köma landbúnaðarlöggjöfinni í það horf, að bóndastaðan verði sér- staklega eftirsóknarverð meðal • ungra manna. Lagabreyting óþörf — í>ví er stundum hreyft, þ. á m. í ályktun bændafundarins í Víðihlíð, að ekki sé tekið nægilegt tillit til vinnustunda- fjölda bænda í verðiagsgrund- vellinum. Hvað er að segja um það og launa- og samamburð við aðrar stéttir yfirleitt? — í lögunum er beinlínis tek- ið fram, að bændum skuli tryggð ar sambærilegar tekjur við aðr- ar stéttir — og þarf því ekki að breyta þeim, þótt einlhverjum þætti að svo væri ekki. Um til- Ktið til vinnustundafjöldans er avo það að segja, að árið 1961 eru vinnutekjur verkamanns í Reykjavík taldar vera usn 55 þúsund krónur — en launatekj- ur bænda eru í verðlagsgrund- velli frá haustinu 1901 reiknað- ar rúmlega 86 þúsund krónur. Eru þarna um 31 þúsund krón- ur, sem bændum eru ætlaðar fyrir eftir- og helgidagavinnu, umfram 8 stundir á virkum dög- iatnandi gögn — Það er amazt við því, að ögn þau, sem verðlagsgrund- völlurinn'er byggður á, séu ó- fullnægjandi. — Nokkuð er rétt í því. Ég er því sammála, að gögnin séu að nokkru leyti ófullnægjandi, þó að alltaf sé verið að bæta úr iþeim. Þarna er að sjálfsögðu við ýmsa erfiðleika að etja, sem halda verður áfram að reyna að vinna bug á. Hins vegar er það skoðun min, að telja megi eðlilegt, að hlunn- indatekjur, sem eingöngu eru leigutekjur af verðmætum en fela ekki í sér neinar vinnu- tekjur bóndans ,séu teknar með í hlunnindatekjulið. Vafasamur ávinningrur — I ályktununni úr Víðihlíð er gerð tillaga um að breytt verði til þess fyrirkomulags, að „ríkisstjórnin sé á hverjum tíma samningsaðili við bændur um verð á framleiðsluvörum þeirra“. — Ég tel mjög vafasamt, að sú breyting væri bændum til hags, því að með þessum hætti mundu þeir verða mun háðari hinum pólitísku viðhorfum ríkis stjórnarinnar, eins og þau eru á hverjum tíma. >að er mikið vafaatriði að slíkt mundi reyn- ast affarasælla en að hafa úr- skurðarvaldið í höndum hlut- lauss embættismanns, eins og nú er. Baráttumál framleiðenda — Er það eitthvað fleira, sem írW,y'/" ' ■'•■¥•• v Fyrir skömmu hittust fslenzka skipið María Júlia, kanadiska rannsóknarskipið A. T. Cameroi og brezka rannsóknarskipið Ernest Holt á Akureyri, en öll skipin taka þátt í rannsóknum til ákvörðunar á möskvastærð. Tók stýrimaðurinn á Maríu Júlíu þessa mynd af hinum skipunum tveimur. !þú sérð ástæðu til að taka fram um ályktunina? — Ég tel annars að þessi fund arsamþykkt sé í aðalatriðum hógvær og að hún gefi ekki til- efni til neinna róttækra breyt- inga. Sumt af því, sem þar kem ur fram, eins og t. d. krafan um að bændum séu reiknaðir vextir af sfcofnfé og eðlilegar fyrning- ar af vélum og mannvirkjum, er að sjálfsögðu ekki annað en það, sem er og verið hefur bar- áttumál fulltrúa framleiðenda í sex-manna nefndinni. — Hvað vilt þú segja um kaup mátt framleiðsluvara bænda og afkornu þeírra og aðstöðu ai- mennt? Góðs að vænta — Ég tel að það muni rétt vera, að kaupmáttur h-verrar framleiðslueiningar hafi minnk- að — en þar kemur á móti, að framleiðslueiningunum hefur fjölgað. Ástæða er líka til að hafa það hugfast í þessu sam- bandi, að efnaihaglíf þjóðarinn- ar stendur nú traustari fótum en verið hefur um langa hrið — og munu bændur áreiðanlega njóta góðs af því í framtíðinni ekki síður en aðrir landsmenn. Nú hefur og sú breyting orðið á, að bændur geta fengið fyrir- varalaust allar þær vélar, sem iþeir þarfnast. Einnig a)la vara- hluti til véla sinna. Þetta er mikil breyting til bóta frá því sem áður var. Hálfrar aldar afmæli Vatnsfjarðarkirkju ÞÚFUM, 3. ágúst. — Áður hefur verið sagt frá afmæli Vatnsfjarð arkirkju. En við má bæta, að eft ir að guðsþjónustu lauk var sezt að myndarlegu veizluborði í sam komuhúsi sveitarinnar, er hús- freyjúr sveitarinnar sáu um og veittu. Undir borðum fluttu ræð ur próf. Sig. Kirstjánsson, sr. Baldur Vilhelmsson, sr. Þorsteinn Jóhannesson, Páll Aðalsteinsson, skólastjóri, Bjarni Hákonarson, gamall sóknarmaður, kom frá Reykjavík, svo og formaður sókn arnefndar Pál) Pálsson. Söng í kirkjunni annaðist góður kór sveitarmanna og fleiri undir stjórn kirkjuorganistans Ásgeirs Svanbergssonar, Þúfum. Við þessi tímamót bárust kirkj unni hlýjar kveðjur og gjafir. Þrír elztu sóknarbændur gáfu fal legan dúk á gólf kirkjunnar. — Áður höfðu kirkjunni verið gefn ir ýmsir góðir hlutir. Kvenfélag sveitarinnar hefur sýnt kirkjunni mikla rausn og hlýhug. Kirkjan Varsjó, 8. ágúst - NTB-Reuter í GÆR dæmdi hæstiréttur Varsjá borgar 25 manns til 1—6 árs fangelsisvistar og mikilla sekta fyrir að hafá prettað viðski-ptavini á veit- ingastofu í borginni er Prag nefnist, en þar var sjálfsaf- greiðslufyrirkomulag ráðandi. Allt starfsfólk véitingastofimn ar var bendlað við málið. var blómum skreytt við þetta tækifæri, öll máluð að utan og innan og er hið fegursta hús. — Var mikil ánægja ríkjandi meðal þeirra er þátt tóku í þessu af- mælishófi óg hátíðarguðsþjón- ustu. — P.P. Fundur Síálfstæðismanna á Bíldudal HINN 31. júlí var fundur hald- inn í Sjálfstæðisfélagi Arnar- fjarðar. Fundurinn var haldinn á Bíldudal. Hjálmar Ágústsson, formaður félagsins, setti fund- inn og stjórnaði honum; fundar- ritari var Jón Hannesson. Axel Jónsson, fulltrúi fram- kvæmdai’stj óra Sj álfstæðisflokks ins, flutti erindi um skipulags- mál flokksins; ræddi hann sér- staklega um flokksstarfið í Vest- fjarðakjördæmi. . i Á fundinum voru kjörnir full trúar í Fulltrúaráð Sjálfstæðis- félaganna í Barðastrandarsýslu í Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokks ins í Vestfjarðakjördæmi. Stjórn Sjálfstæðisfélags Arnar fjarðar skipa' Hjálmar Ágústs- son, formaður, Jón Hannesson og Sigríður Pálsdóttir. ^ Úrskurður gerðardóms Alfreð Steinar Rafnsson skrifar: í blaði yðar þann 2. ágúst birt ið þér skýrslu frá LÍÚ um kaup og kjör sjómanna á 12 síld- veiðiskipum. er sendu mótmæli sín til sjávarútvegsmálaráð- herra varðandi úrskurð gerðar- dóms. Er útgerðarmenn sögðu kjara samningum sinum lausum við sjómenn, var það á þeim for- sendum að þeir teldu sig ekki geta keypt nauðsynlegustu fisk leitartæki til síldveiða. (Er þar átt við sjálfleitara og kraft- blökk). Er úrskurður gerðar- dóms vai loks birtur, brá sjó- mönnum heldur en ekki í brún, er þeir sáu að hlutur þeirra hafði verið lækkaður úr 40% í 35,50%, en það þýðir að á bát, sem búinn er áð fiska 4.500 inál og tunnur, mun hlutur á hvern háseta kr. 4.447,00. Getur hver sá sem með réttsýni vill hug- leiða þetta séð, hve gífurleg lækkun á sér stað samhliða því, sem allar aðrar stéttir eru að fá kauphækkun. Eitt er það, sem sjómenn eiga erfitt með að skilja, var grein gerðardóms, sem hljóðaði upp á það að aðeins bátar, sem hafa kraftblökk og sjálfleitara, fái á sig kauplækkun. Og svo kemur það, að nóg sé að bátur hafi að eins annað nvort þessara tækja. En útgerðarkostnaður getur breytzt talsvert ef aðeins annað tækið er í bátnum eða um allt að 300 þús. kr. Svo virðist sem hæstvirtur gerðardómur hafi haldið að tæki þau sem hér um ræðir séu eingöngu gerð fyrir sjómenn og beri þeim einum að bera kostnað af þeim. Enda er svo komið að aflahæstu skipin í sumar eru komin langt með að fá upp í kostnaðinn af tækjum þessum, sem þeir svo geta notað í mörg ár. Háar tölur. Mörgum munu hafa blöskr að hinar háu tölur, er settar voru upp í biaðinu 2. ágúst. En ■Æpand y> ef tekin væru laun þessara manna sl. 10 ár og síðan væru reiknuð árslaun þeirra, hver væri útkoman? Einnig verður að taka tillit til þess að sjómenn verða að lifa á tekjum þeim er hér um ræðir, meiri hlutann af árinu, v því oftast eru talsverð hlé milli úthalda nema núna síðasta ár, sem er bezta aflaár sem komið hefur lengi. Er þá endilega nauðsynlegt að ráðast á sjómannastéttina í eina skipt ið, ,sem hún hefur haft mögu- leika á að afla sér tekna og draga bjóðinni björg í bú? Því spyr ég, er það aetlunin að hrekja sjómennina í land aftur? Hvernig fer þá þjóðarbúið? Ef gjaldeyrisstaða þjóðarinnar er það góð, að hægt er að flytja inn 444 lúxusbíla á mánuði, get ur ríkisstjórnin þá ekki lækkað innflutningatolla á nauðsynleg- ustu fiskleitartækjum, sem svo mikils virði eru þjóðarbúinu? Loks ætla ég að spyrja fyrir mig og hönd starfsbræðra minna hvort þið gætuð ekki líka birt álíka kaupskýrslu ráð herra okkar og aðalstjórnarer- indreka, eins og gert hefur ver ið um kaup sjómanna, og þá launin í aðalstarfi og öllum þeim nefndum, sem þeir taka laun hjá. Fastalaun þyrftu að hækka. Ekki er okkur kunngt um laun ofangreindra embættis- manna í nefndum, en oft hefur því verið haldið fram í blaðinu að fastalaun þeirra þyrftu að vera mun hærri en þau eru. -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.