Morgunblaðið - 11.08.1962, Page 19
f t,augardagur 11. águst 1062
MORGUNBT AÐIÐ
19
EINS og frá var skýrt í Morg-
unblaðinu í fyrradag vann
Ármann K.R. í útihandiknaU-
leikskeppni kvenna í leik ís-
landsmótsins nú fyrr í vi'k- *
unni í marki K.R. var, eins
og skýrt var frá 13 ára gömul
telpa, Hansína Melsted, og er
það einkum góðri frammi-
stöðu hennar í __ markinu að
þakka, að sgiur Ármanns varð
ekki stærri en raun varð á.
En Morgunblaðið fregnaði
einnig, að Hansína hefði ný-
lega afrekað fleira en að
standa sig vel í marki K.R.,
því að um miðja síðustu viku f
bjargaði hún litlum dreng frá I
drukknun í flæðarmiálinu
vestur við Sörlaskjól. Dreng-
urinn, sem Hansína bjargaði,
heitir Ólafur Rósantsson og
er 6 ára gaimall.
Fréttamaður Mbl. og ljós-
myndari löbbuðu í gær með
þeim Hansínu og Óla litla nið
ur í flæðarmálið og báðuim
við Hansínu að segja okkur
svolítið nánar frá atburði
þessum.
— Ég var á gangi í fjör-
unni, sagði Hansína, rétt hjá,
Hótað a-þýzkri leyni-
lögreglu í Finnlandi!
8 a-þýzkir flóttamenn skýra frá
,,heimsmóti æskunnar" i Helsingfors
Hansina og Óli í flæðarmálinu
„Hansína komdu
Óli er að drukkna44
þar sem nokkrir krakkar voru
að veiða fiska, og þá heyrði
ég krakkana kalla Óli, Óli,
náðu í spýtuna, en þeir veiða
þannig, að þeir setja öngul
og band á spýtu.
Fyrst hélt ég bara, að krafek
arnir hefðu misst spýtuna í
sjóinn og væru að segja Óla
að sækja hana, en þá bölluðu
þeir, „Hansína komdu, hann
Óli er að drufekna.“
Auðvitað hljóp ég strax til
þeirra og óð út á milli stein-
anna og gat svo synt, þangað
til ég greip í Óla, og síðan
dró ég hann til lands.
— Varð yfekur efekert meint
af volkinu?
— Nei, nei, við fengum efeki
einu sinni kvef, en auðvitað
varð Óli dauðhræddur.
— Varðst þú ekkert hrædd?
— Það held óg ekki, svar-
aði Hansína og brosti.
— í hvaða skóla ertu, Hans
ína?
— Síðastliðinn vetur var ég
í 12 ára bekk í Melaskólan-
um, og næsta vetur fer ég í
Hagaskólann.
.— Hvað finnst þér skemmti
legast að læra í skólanum?
— Dýrafræðin er lang-
skemmtilegut, það “er lika svo
auðvelt að læra hana.
— Hvað starfa þú í sumar?
.— Ég gæti litlu systur
minnar, hennar Rutar, sem er
á 3ja ári og hjálpa mömmu.
— Áttu mörg syetkini?
— Við erum 6 talsins.
— Og í frístund'um æfir þú
handbolta?
— Já, og fer í sundlaug-
arnar.
— Hefurðu keppt oft?
— Ég keppti í öllum leikj-
um með 2. flotoki B á Reykja-
víkurmótinu síðasta, og svo
hef ég keppt með meistara-
flofeki á fslandsmótinu.
— Strax í Meistaraflokki?
— Já, það fá oftast þrjár
stelpur úr 2. flokki A að
keppa með meistaraflokki, og
ég varð ein af þeim, sem urðu
fyrir valinu.
Hansína er dóttir hjónanna
Elsu og Páls Melsted múrara
að Sólbafeka við Nesveg.
Bonn, 10. ágúst — NTB.
ÁTTA ungir A-Þjóðverjar,'
,sem beiddust hælis sem póli
tískir flóttamenn, meðan á
stóð friðarmóti kommúnista í
Helsingfors, skýrðu frá því í
Bonn í dag, að a-þýzkum
þátttakendum hefði verið
sagt, fyrir hrottförina, að
þýðingarlaust væri að heið-
ast hælis í Finnlandi. Finnar
myndu eikki veita neinum
flóttamönnum viðtöku, held-
ur senda þá aftur til síns
heima.
Flóttamennimir 8, sem eru á
aldrinum 18—23 ára, komu í
gær fram á blaðamannafundi í
Bonn. Þeir eru fyrstu flótta-
mennirnir frá A-Þýzkalandi,
sem koma til V-Þýzkalands, eft-
ir að hafa flúið af mótinu í
Finnlandi. Alls munu um 37 af
550 a-þýzkum þátttakendum
hafa leitað hælis á Vesturlönd-
um. Allir munu hafa tekið á-
kvörðun um að flýja löngu áður
en þeir komu til Finnlands.
Flóttamennirnir skýrðu svo
frá, að eftir að Berlínarmúrinn
var reistur, fyrir tæpu ári, hefði
þeim verið Ijóst, að eina leiðin
til undankomu hefði legið um
Finnland.
Þátttakendum frá A-Þýzka-
landi var sagt, að a-þýzk leyni-
lögregla myndi hafa stöðugt
eftirlit með þeim, meðan á mót-
inu stæði, þannig að hver flótta-
tilraun væri fyrirfram dauða-
dæmd.
Þeir 8, sem nú eru komnir til
V-Þýzkalands, leituðu allir til
v-iþýzka verzlunarfulltrúans í
Finnlandi, þar sem Finnland og
V-Þýzkaland hafa efeki stjórn-
málasamband. Sögðu flótta-
mennirnir, að ef þess ótta hefði
ekki gætt, að finnsk yfirvöld
myndu senda þá til baka til
A-Þýzkalands, er reyndu flótta,
þá hefði tala þeirra, sem flúið
hefðu, orðið miklu hærri.
Flóttamennirnir lýstu von-
brigðum .yfir mótinu í Helsing-
fors. Þeir kváðust hafa verið
neyddir til að sýna alls konar
gleðilæti, s. s. að klappa saman
höndunum og syngja, til þess
að móti fengi á sig svip af gleði
æskumanna.
Danskir fiskframieiðendur undir-
búa stofnun heildarsamtaka
— Tel/o stíkt nauðsynlegf, vegna fyrir-
sjáanlegrar þróunar í markaðsmálum
Kaupmannahafnarblaðið
„Berlingske Tidene“ skýrir
frá því, að uppi séu í Dan-
mörku áform um að sameina
alla fiskframleiðendur lands-
fns í ein stór samtök. Segir
blaðið, að yngri menn í röð-
nm fiskútflytjenda hafi for-
göngu um málið.
Danskir fiskframleiðendur
hafa til þessa einungis haft með
»ér mörg fámennari samtök, í
einstöfeum greinum fiskfraxn-
leiðsiunnar.
Yngri fiskframleiðendur eru
nú, að sögn „Berlingske Xid-
ene“, eindregið þeirrar skoð-
unar, að þörf sé stærri og öfl-
ugri samtaka, ekki hvað sízt
vegna Sameiginlega ir.arkað-
arins og breytinga, sem hann
mun fyrirsjáanlega hafa í för
með sér á næstunni.
Áætlanir þær, sem nú eru á
döfinni í þessu efni, fela í sér,
að „Danmarks Fiskehandels- og
Havfiskeriformening", sem eru
gömul og lótgróin samtök,
verði stækuð og þau gerð að
aðaltökum fiskiðnaðarins. —
Mun þessi hugmynd verða rædd
á landsfundi samtakanna, sem
fram á að fara í Esbjerg hinn 1
september nk.
Algeirsborg, 10. ágúst — NTB.
4 MEÐLIMIR Frönsku útlend
ingahersveitarinnar voru í
dag drepnir í Suður-Alsír,
segir í fréttum í dag. Munu
serkneskir hermenn valdir að
dauða þeirra. Atburðinum
hefur verið mótmælt sem
broti á Evian-samningnum.
Rekkjuflokkur-
inn fyrir vestan
Stykkishólmi, 10. ágúst.
f GÆRKVÖLDI heimsóttá
Rekkjuflokkurinn úr Reykjavík
Stykkishólm. — Sýndi hann
„Rekkjuna" með Herdísi Þor-
valdsdóttur og Gunnari Eyjólfs-
syni. Sýningin var vel sótt og
hin ánægjulegasta. Henni var vel
fagnað af áhorfendum. — Héðan
fer flokkurinn til Grafarness og
sýnir þar í kvöld, en í Ólafsvík
verður sýning á laugardag og á
Logalandi í Reykholtsdal á
i sunnudag. .— Fréttaritari. i
— Austurvibskipti
Framhald af bls. 11.
einnig þráfaldlega fyrir að svikn
ar eru afgreiðslur sem lofað hef-
ur verið. Þannig eru þess dæmi,
að afgreiðslur hafa dregizt upp
undir tvö ár.
Afgreiðslufrestur á skófatnaði
er t.d. í Vestur-Evrópu yfirleitt
6—8 vikur en fyrir austan tjald
5—7 mánuðir, og jafnvel þótt ís-
lenzkir innflytjendur hafi viljað
sæta því, hefur stundum komið
fyrir að sumarskór hafa ekki kom
ið til íslands fyrr en að hausti
og skóhlífarnar um vorið! Hug-
leiðingar um tízkuna skulu látn-
ar liggja á milli hluta.
Hreinlætistæki voru yfirleitt
flutt inn frá Tékkóslóvakíu, en
WC-kassar eyðilögðust yfirleitt
og ollu oft miklu tjóni. Tékkar
lofuðu að bæta ráð sitt, en gerðu
ekkert í því og nú er meirihluti
iþessarar vöru fluttur inn af
frjálsum mörkuðum.
Þilplötur,
múrhúðunarnet
og gólfdúkur
Eins og áður hefur tcííó skýrt
frá, hafa pnpioíur yíirleitt verið
fluttar inn frá Tékkóslóvakíu og
Póllanidi, en verðmismunurinn
hefur verið allt upp í 30% og
gæðin yfirleitt lélegri en í Vest-
ur-Evrópu. Enn er þessum við-
skiptum þó haldið áfram, en
„global-kvótinn“ hefur nokkuð
verið aukinn.
Múrhúðunarnet hafa verið
flutt inn frá Xékkósiovakíu og
Póllandi en hafa verið upp í
40% dýrari í þessum lömdum en
öðrum.
Frá Tékkóslóvakíu hafa verið
fluttir inn ,,golfdúkar", sem raun
ar eru þau ekki eiginlegt linole-
um, heldur nokkurs konar gólf-
dukslíki, sem naumast hefur ver-
ið notandi, þar sem mikið mæðir
á.
Pappir og gler
Frá Austur-Þýzkalandi hefur
verið fluttur allmikill pappír, en
erfiðleikar hafa fyrst og fremst
stafað af því að afgreiðslufrestur
hefur verið mjög langur, er nú
um 6 mánuðir, en hefur verið allt
upp í eitt ár.
Reynt hefur verið að kaupa
sem mest af gleri frá Tékkósló-
vakíu, en stundum hefur svo far
ið að ekkert hefur fengizt af-
greitt, en auk þess er þar einung
is um B-gler að ræða, sem ógjör
legt er að nota þegar um tvöfalt
gler er að ræða, því að það stend
ur langt að baki því gleri, sem
hægt er að fá í Vestur-Evrópu.
Afstaða kommnnista
skiljanleg
Fyrst eftir að viðreisnarráð-
stafanimar vom gerðar reynd
ust kommúnistaríkin Ul
viðskiptis. Erindrekar þeirra
trúðu því sýnilega ekki að
viðreisnin mundi takast, held-
ur mundi aftur síga á ógæfu-
hliðina fyrir fslendingum,
þannig að þeir væm tilneyddir
að kaupa vömr á hvaða verði
sem þær vom og hversu léleg
ar sem þær væru. í seinmi tið
hefur það haft nokkur áhrif
til bóta, að kommúnistaríkin
gera sér ljósara, að við eigum
annarra kosta völ en að binda
viðskiptin við þau, þannig að
á sumum sviðum höfum við
náð sanngjamari samningum.
En afstaða „íslenzkra"
kommúnista er skiljanleg með
hliðsjón af þessum staðreynd-
um. Þeir vinna fyrir hags-
muni kommúnistarikjanna en
gegn hagsmunum fslands. —
Þess vegna er beim mest í
mun að reyna að kollvarpa
viðreisninni, svo að við verð-
um áfram að sæta óhagkvæm
um viðskiptakjörum fyrir aust
an járntjald.
En að óreyndu hefðu menn
ekki haldið að Framsóknar-
flokkurinn styddi kommúnista
í þessari iðju, en sú hefnr því
miður orðið rauniib.