Morgunblaðið - 16.08.1962, Page 8

Morgunblaðið - 16.08.1962, Page 8
8 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 16. ágúst 196ii I I i I Um fyrsta fund Vínlands segir í sögunni, að Leifur heppni hafi verið á leið til Græniands frá Noregi, þegar hann „hitti á lönd þau,er hann vissi áðr enga ván til. Váru þar hveitiakrar sjálfsánir ok vínviðr vaxinn. Þar váru þau tré, er mösurr heita, ok höfðu þeir af þessu öllu nökkur merki, sum tré svá mikil, at í hús váru lögð“. Síðar segir, að í Grænlandi Þessa mynd tók Þórhallur Vilmundarson, prófessor, yfir svæðið, þar sem uppgröfturinn fór fram. — Rústirnar eru í nágrenni tjaldanna á miðri mynd, en þorpið Lance-aux-Meadows er úti við ströndina. í baksýn er Little Sacred Isiand (Straumey?). , „gerðist orð mikit, at menn myndi leita lands þess, er Leifr hafði fundit. Var þar formaðr at Þorsteinn Eiríks- son, fróðr maðr ok vinsæll“. Þorsteinn var bróðir Leifs. Síðart segir frá leiðangri, er gerður var út frá Grænlandi til landaleita, en hann mis- tókst. „Þá velkði úti lengi í hafi, ok kómu þeir ekki á þær slóðir, sem þeir vildu. Þeir kómu í sýn við ísland, ok svá höfðu þcir fugl af írlandi. Rak þá skip þeira um haf innan, fóru aftr um haustit ok váru allmjök væstir ok þrekaðir, koma við vetr sjálfan á Eiríks fjörð“. — xxx — Styttan af Þorfinni Karlsefni. Ekki gáfust Grænlendingar upp við svc búið. Nokkru síð ar segir: „í Brattahlíð hófust miklar umræður, at menn skyldi leita Vínlands ins góða, ok var sagt, at þangat mýndi vera at vitja góðra landkosta". Var nú gerður út fjö'lmennur leiðangur, sem 160 manns tóku þátt í. Fyrir leiðangrinum voru þessir helztir: Þorfinnur karlsefni, íslenzkur kaupmað- ur, Snorri Þorbrandsson, ís- lenzkur maður úr Álftafirði, Bjarni Grímólfsson, breiðfirzk ur að ætt, Þórhallur Gamla- son, austfirzkur maður, Þor- varður, sem átti Freydísi, dótt ur Eiríks rauða, laungetna, Þorvaldur. sonur Eiríks rauða, og Þórhallur veiðimaður, sem lengi hafði verið með Eiríki rauða. Skipin sigldu fyrst til Vestri byggðar „ok þaðan til Bjarn- eyjar. Þaðan sigldu þeir tvau dægr í suðr. Þá sá þeir land ok skutu báti ok könnuðu land it, fundu þar hellur stórar ok margar tólí álna víðar. Fjölði var þar ínelrakka. Þeir gáfu þar nafn ok kölluðu Hellu- land. Þaðan sigldu þeir tvau dægr, ok brá til landsuðrs ór suðri, ok fundu land skógvax- it ok rnörg dýr • á. Ey lá þar undan í landsuðr. Þar drápu þeir einn björn ok kölluðu þar síðan Bjarney, en landit Mark land. Þaðan sigldu þeir suðr með landinu langa stund ok kómu at nesi einu. Lá landit á stjórn. Váru þar strandir langar ok sandar. Þeir reru til lands ok fundu þar á nesinu kjöl af skipi ok kölluðu þar Kjalar- nes. Þeir kölluðu ok strandirn- ar Furðustrandir, því at langt var með at sigla. Þá gerðist landit vágskorit. Þeir heldu skipunum 1 einn vág“. Þá voru settir á land tveir menn skozkir, sem Ólafur kon ungur Tryggvason hafði gefið Leifi, og voru þeir dýrum skjótari. Hét karlmaðurinn Haki en konan Hekja. Voru þau látin hlaupa suður á land og leita landkosta. Þau komu aftur eftir þrjú dægur, og „hafði annat í hendi vínberja- köngul, en annat hveitiax sjálf sáit. Gengu þau á skip út, ok sigldu þeir síðan leiðar sinn- ar“. -- XXX ----- Síðan segir í sögunni: „Þeir tíigldu inn á f jörð einn. Þar lá ein ey fyrir útan. Þar um váru straumar miklir. Því kölluðu þeir hana Straumey. Svá var mörg æðr í eynni, at varla mátti ganga fyrir eggj- um. Þeir kölluðu þar Straum- fjörð. Þeir báru farm af skip- um sínum ok bjuggust þar um. Þeir höfðu með sér alls konar fénað. Þar var fagrt landslag Þeir gáðu einskis út an at kanna landit. Þeir váru þar um vetrinn, ok var ekki fyrir unnil um sumarit. Tók- ust af veiðarnar, ok gerðist illt til matar. Þá hvarf brott Þórhallr veiðimaðr. Þeir höfðu áðr heit it á guð til matar, ok varð eigi við svá skjótt sem þeir þóttust þurfa. Þeir leituðu Þórhalls um þrjú dægr ok fundu hann á hamragnípu einni. Hann lá þar ok horfði í loft upp ok gapði bæði munni ok nösum ok þulði nökkurt. Þeir spurðu, hví hann var þar kominn. Hann kvað þá engu þat varða. Þeir báðu hann fara heim með sér, ok hann gerði svá Litlu síðar kom þar hvalr, ok fóru þeir til ok skáru, ok kenndi engi maðr, hvat hvala var. Ok er matsveinar suðu, þá átu þeir, ok varð öllum illt af. >á mælti Þórhallr: „Drjúg- ari varð inn rauðskeggjaði nú en Kristr yðvarr. Hefi ek þetta nú fyrir skáldskap minn, er ek orta um Þór, fulltrú- ann. Sjaldan hefir hann mér brugðizt". Ok er menn vissu þetta, báru þeir hvalinn allan á kaf ok skutu sínu máli til guðs. Batnaði þá veðrátta, ok gaf þeim útróðra, ok skorti þá síð an eigi föng. þvi at þá var dýra veiðr á landinu, en eggver í eynni, en fiski ór sjónum". Nú er sagt frá því, að Þór- hallur veiðimaður vill fara norður fyrir Furðustrandir og fyrir Kjaiarnes en Karlsefni vill fara suður fyrir landið. Fór Þórhallur við níunda mann sína leið. Segir sagan, að hann hafi viljað beita vest- ur fyrir, er hann kom norður fyrir Kjalarnes. „Þá kom móti þeim vestanveðr, ok rak þá upp á írlandi, ok váru þeir barðir ok þjáðir, ok lét Þór- hallr líf sitt, eftir því sem kaupmenn hafa sagt“, -- XXX —. Næst segir sagan frá því, er Karlsefni og félagar hans bú ast í „Hópi“ og komast í kynni við „Skrælinga“. „Nú er at segja af Karls- efni, at hatn fór suðr fyrir landit ok Snorri ok Bjarni með sínu fólki. Þeir fóru lengi ok allt þar til, er þeir kómu at á einni, er fell af landi ofan ok í vatn eitt til sjóvar. Eyrar váru þar miklar, ok mátti eigi komast í ána útan at háflæð um. Þeir Karlsefni sigldu í ósinn ok kölluðu í Hópi. Þeir fundu þar á landi sjálfsána hveiti- akra, þar sem lægðir váru, en vínvið allt þar, sem holta vissi. Hverr lækr var þar fullr af fiskum. Þeir gerðu grafir, þar sem mættist landit ok flóðit gekk oftast, ok þá er út fell sjórinn, váru helgir fiskar í gröfnunum. Þar var mikill fjöldi dýra á skóginum með öllu móti. Þeir váru þar hálf an mánuð ok skemmtu sér ok urðu við ekki varir. Fé sitt höfðu þeir með sér. Ok einn morgin snemma, er þeir lituðust um, sá þeir mik- inn fjölða húðkeipa, ok var veift trjám á skipunum, ok lét því líkast sem í hálmþúst, ok var veift sólarsinnis. Þá mælti Karlsefni: „Hvat mun þetta hafa at teikna?“ Snorri Þorbrandsson svar- aði honum: „Vera kann, at þetta sé friðarmark, ok tökum skjöld hvítan ok berum at móti“. Og svá gerðu þeir. >á reru þeir í mót ok undruðust þá, sem fyrir váru, ok gengu á land upp Þeir váru svartir menn ok illiligir ok höfðu illt hár á höfði. Þeir váru mjög eygðir ck breiðir í kinnum. Dvölðust þeir of stund ok undruðust þá, sem fyrir váru, ok reiu síðan brott ok suðr fyrir nesit. Þeir Karlsefni höfðu gert búðir sínar upp frá vatninu, ok váru sumir skálarnir nær vatninu, en sumir firr. Nú váru þeir þar þann vetr. Þar kom engi snjór, ok allt gekk fé þeirra sjálfala fram“. í næsta kafla segir frá því, að Karlsefni og menn hans eiga kaupstefnu við Skræl- ingja, sem koma til þeirra á húðkeipum. „Vildi þat fólk helzt hafa rautt skrúð. Þeir höfðu móti at gefa skinnvöru ok algrá skinn. Þeir vildu ok kaupa sverð ok spjót, en þat bönnuðu þeir Karlsefni ok Snorri“. Lyktaði þessum kaup um með því, að griðungur, er þeir Karlsefni áttu, hljóp úr skógi „ok gellr hátt. Þetta fæl- ast Skrælingar“ og reru þeir í burtu. — X X X --- Þremur vikum síðar komu þeir aftur, og þá ekki í frið- samlegum erindagerðum. Komu þeir margir saman „ok ýla upp allir mjök hátt“. Tókst þarna hörð orrusta, en hjátrú og hræðsla við óþekkta hluti virðist helzt hafa stjórnað gangi hennar. Fyrst urðu hinir norrænu menn ótta slegnir vegna þess, „at Skrælingar færðu upp á stöng knött stund ar mikinn . . . ok fleygðu af stönginni upp á landit yfir lið þeira Karisefnis, ok lét illi- liga við, þar sem niðr kom“. >á þótti þeim lið Skrælinga drífa að sér öllum megin og flýðu „til hamra nökkurra ok veittu þar viðtöku harða“. >á breytir kvenskörungur- inn Freydís gangi orrustunn ar: „Freydís kom út ok sá, at þeir Karlsefni heldu undan, ok kallaði: „Hví rennið þér und- an þessum auvirðismönnum, svá gildir menn sem þér eruð, er mér þætti sem þér mættið drepa niðr svá sem búfé? Ok ef ek hefða vápn, þætti mér sem ek skylda betr berjast en einnhverr yðvar“, Þeir gáfu engan gaum henn ar orðum. í’reydís vildi fylgja þeim ok varð seinni, því at hon var eigi heil. Gekk hon þó eftir þeim l skóginn, en Skræl ingar sækja at henni. Hon fann fyrir sér mann dauðan. Þar var Þorbrandr Snorrason, ok stóð hellusteinn í höfði honum. Sverðit lá bert hjá hon um. Tók hon þat upp og býst að verja sik. >á kómu Skræl- ingar at henni. Hon dró þá út brjóstit undan klæðunum Framhald á bls. 14. EINS OG kunnugt er af frá- sögn frá leiðangri Helge Ing- stads til Nýfundnalands og uppgrefti við þorpið Lance- aux-Meadows, þykir ýmislegt benda til þess, að fundizt hafi minjar um vist norrænna manna á þessum slóðum. Er þá hel/.t haldið, að hér sé um að ræða Straumf jörð eða Hóp, sem Eiríks saga rauða (Þor- finns saga karlsefnis) nefnir svo. Verða hér á eftir raktar lýsingar sögunnar á þessum stöðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.