Morgunblaðið - 16.08.1962, Qupperneq 12
12
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmfudagur 16. ágúst 1962
isstMaMfr
tJtgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
VIKINGAR
A NÝFUNDNALANDI
r r
F'ornleifarannsóknirnar á
* Nýfundnalandi undan-
farið hafa að vonum vakið
mikla athygli. Fullnaðarsann
anir fyrir dvöl norrænna
manna á þessum slóðum
myndu stórauka áhuga og
álit útlendinga á forníslenzk-
um sögnum. Það er því at-
hyglisvert, sem fram hefur
komið í fréttum, að ekki sé
til yngri heildarútgáfa heim-
ilda um Vínlandsferðir en
frá 1837. Má af því sjá, að
útgáfur á þessum merka
þætti í landvinningasögu for-
feðra okkar eru svo úreltar
að ekki verður lengur við un-
að. Uppgröfturinn á Ný-
fundnalandi hlýtur að hrinda
í framkvæmd nýrri og
traustri útgáfu á handritum
um Vínlandsferðir, ekki sízt
vegna þess að handrit þessi
mimu koma í hlut okkar ís-
lendinga eins og bent hefur
verið á, þegar við fáum
handritin frá Kaupmanna-
höfn.
íslenzku vísindamennirnir,
sem til Nýfundnalands fóru,
hafa verið varkárir í því að
fullyrða að sönmmargögn
liggi fyrir um búsetu nor-
rænna manna á Nýfundna-
landi. Auðvitað er fyllsta
ástæða til að fara varlega í
sakimir, enda- virðist ekki
unnt að ákvarða aldur þeirra
mima sem nú hafa fundizt,
fyrr en gerðar hafa verið
frekari rannsóknir á koli og
jámi til tímaákvörðunar. —
Verðum við að bíða þessara
rannsókna, áður en stóru orð-
in eru notuð. Hins vegar er
því ebki að neita, að flest
virðist benda til þess, að
þama sé um stórmerkilegar
rannsóknir að ræða og jafn-
vel getur svo farið, að þær
verði taldar með tíðinda-
mestu fomleifarannsóknum í
sögu norrænna þjóða, þegar
fram líða stundir. í frásögn
Morgunblaðsins af blaða-
mannafundinum með ís-
lenzku vísindamönnunum
segir m. a.:
„I gær tjáðu þeir (þ. e. ís-
lenzku vísindamennimir)
blaðamönnum, að enn væri
of snemmt að fella heildar-
dóm um rannsóknirnar. Aug-
ljóst væri að þarna hefðu bú-
ið menn, sem höfðu bæði
járn og brons í höndum og
kunnu að gera viðarkol.“
Og ennfremur segir:
„Þeir félagar vom lengi
búnir að vonast eftir broti úr
bronsi, eins og ætíð finnst í
fornmannarústum hér, og
loks fannst fyrmefndur
bronsbútur. Þeir, sem þarna
hafa búið, virðast hafa ver-
ið lengra komnir en frum-
byggjar þessara landa. Þeir
kunnu til járngerðar og
þekktu brons, en næstu jám-
aldarþjóðir á þessum slóðum
em ekki fyrr en á 15. öld.“
Af þessum ummælum verð
ur ekki dregin önnur álykt-
un en sú, að mikilla og
merkra frétta sé að vænta,
þegar fyrir liggja niðurstöð-
ur Ingstads-leiðangursins. ís-
lenzka ríkisstjórnin veitti fé
til þessara rannsókna ogLoft
leiðir buðu þeim ókeypis
ferðir. Þannig var okkur
kleift að eiga aðild að upp-
greftinum og fer ekki milli
mála að það var vel til fund-
ið. íslendingar hafa varð-
veitt sögu Vínlandsferða nor-
rænna manna. Þær hafa
reynzt sá viti, sem bezt hef-
ur þótt að sigla eftir.
BLAÐ LEPPANNA
Cjíðastl. laugardag gat aðlíta
^ í Moskvumálgagninu for-
ystugrein, er bar fyrirsögn-
ina: „Sjálfstæð, íslenzk
stefna“. í ritstjómargrein
þessari var því haldið fram,
að kommúnistaflokkurinn
hér á landi væri eini stjórn-
málaflokkurinn, sem fylgdi
„sjálfstæðri, íslenzkri stefnu
í utanríkis- og viðskiptamál-
um“!
Hvaða menn eru það, sem
láta sér þessi orð um munn
fara?
Það eru Rússaleppamir,
sem alltaf taka málstað
Rússa og Sovétríkjanna fram
yfir hagsmuni íslendinga. —
Það em mennirnir, sem hi'ka
ekki einu sinni við það að
reyna eftir fremsta megni að
veikja aðstöðu íslendinga í
viðskiptasamningum við
Sovétríkin um sölu á ís-
lenzkri saltsíld. Það eru
mennirnir, sem vörðu á sín-
um tíma glæpaverk Stalins
og þakka nú Nikita Krúsjeff
fyrir að hafa hafið kapp-
hlaupið um tilraunir með
k j arnorkuvopn.
Þessir menn dirfast nú að
koma fram fyrir íslenzkan
almenning og þykjast fylgja
„sjálfstæðri, íslenzkri stefnu
í utanríkis- og viðskiptamál-
um“!
Svona hyldjúp er hræsni
umboðsmanna Moskvuvalds-
ins á íslandi.
LONDON. —
— (NTB-Reuter-AFP) —
S Ú skoðun gerist nú nokkuð
áleitin í stjórnarbúðum Bret-
lands, að Sovétstjórnin hyggi á
einhverjar meiri háttar ráðstaf-
anir í Berlínarmálinu. Er þessi
skoðun einkum hyggð á því, að
venjulega hafi verið samband
milli meiri háttar geimtilrauna
Rússa og meiri háttar aðgerða
þeirra í stjómmálalegum efnum.
Telja margir, að með hliðsjón
af þeim sigri, sem Rússar hafi
unnið með geimferð Nikolayevs
og Popovitsj, telji þeir sig geta
farið með Berlínarmálið eins og
þeim finnist mestur hagur að.
Mótmælaorðsendingar, sem
Sovétstjórnin hefur undanfarið
sent Vesturveldunum vegna
smávægilegra árekstra á mörk-
um Austur- og Vestur-Berlínar,
þykja líka renna stoðum undir
þessa skoðun — þær hafi verið
áróðursbragð, er miði að því að
lýsa ábyrgð á hendur Vestur-
veldunum, ef þeir grípi til rót-
tækra ráðstafana. Loks er til
þess tekið, að það var Dobrynin,
sendiherra Rússlands í Washing-
ton, sem á mánudag óskaði eftir
viðræðum við Dean Rusk um Ber
línarmálið — en viðræðurnar
sagði hann hafa snúizt um frið-
SH SNUPRAR
KOMMÚNISTA
'V'firlýsing sú, sem stjórn
Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna birti í blöðun-
um í gær um afurðasölumál-
in, felur í sér tvímælalausar
snuprur til kommúnista og
málgagna þeirra. SH telur,
að ekki sé skynsamlegt að
skrifa einhliða um þessi þýð-
ingarmiklu mál. En það er
einmitt það sem kommúnist-
ar gera ævinlega. Þeir halda
því blákalt fram, að vegna
þess að stundum hefur verið
hægt að fá hagstætt verð fyr-
ir íslenzkar sjávarafurðir í
löndum Austur-Evrópu, þá
sé sjálfsagt að selja þangað
arsamninga við Þýzkaland. —
Hefði málið verið tekið upp, þar
sem frá var horfið á fundi þeirra
Rusk og Gromyko í Genf.
Margir teíja, að þessar ráð-
stafanir Rússa, hin vel heppnaða
geimferð tveggja manna og e.t.v.
einnig sprenging 40 megalesta
kjarnorkusprengingarinnar miði
að því, að sannfæra hlut-
lausu ríkin um, að þeim sé fyr-
ir beztu að ganga í lið með
Rússum og styðja þeirra stefnu
í Berlínarmálinu og öðrum
stjórnmáladeilum.
—★★—
Það sem stjórnmálafréttarit-
Nýju Dehli, 14. ágúst.
— (NTB-Reuter) —
NEHRU, forsætisráðherra Ind-
lands sagði í viðtali við frétta-
menn í dag, að enn hefðu Kín-
verjum verið send harðorð mót-
mæli vegna síendurtekinna á-
rekstra í Ladakh héraði. Sagði
Nehru, að með yfirtroðslum sín-
um á landamærunum, væri Kín-
verjar að leika sér að eldinum.
Þeir mættu vita, að Indverjar
sem stærstan hluta fram-
leiðslunnar, eða jafnvel alla.
Morgunblaðið hefur hins
vegar rætt afurðasölumálin
frá fleiri hhðum. Það er
skoðun þess, að íslendingum
beri að afla sér markaða sem
víðast en gæta þess að verða
ekki um of háðir einstökum
viðskiptaaðila. Jafnframt hef
ur verið bent á það, að enda
þótt austurviðskiptin hafi
verið sjávarútveginum mik-
ilvæg, hafa þau þó byggzt á
vöruskiptaverzlvm, sem haft
hefur í för með sér ýmis kon-
ar óhagræði. í skjóli þeirra
hefur þjóðin oft orðið að
kaupa verri vörur en henni
bjóðast á hinum frjálsa mark
aði. Þetta er staðreynd, sem
útvegsmönnum er ekki síður
kunn e» öð>rum landsmönn-
um.
arar telja helzt koma til greina
af hálfu Rússa er:
1) að þeir boði til friðarráð-
stefnu með haustinu, sem miði
að því að undirritaðir verði frið-
arsamningar við Þjóðverja.
2) að Krúsjeff forsætisráð-
herra farið fcil New York og
skýri sjónarmið sín í Berlínar-
málinu fyrir Allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna.
3) að Rússar ákveði að undir-
rita friðarsamninga við Austur-
Þýzkaland sérstaklega, verði
undirtektir neikvæðar við til-
lögu þeirra um fyrrgreinda frið-
arráðstefnu.
myndu hvergi slaka til fyrir
körfum þeirra, og óhikað verj-
ast, ef á landið yrði ráðizt. —
Yæri mál þetta svo alvarlegt, að
jafnvel gæti það leitt til heims-
styrjaldar.
Nehru skýrði jafnframt frá
því, að hann hygðist fara í heim
sókn til Nígeríu og Ghana þeg-
ar lokið væri í London samveld-
isráðstefnunni, sem hefjast á 10.
september.
En kommúnistar hafa þrátt
fyrir þetta hamrað á því, að
beina ætti útflutningi sjávar-
afurða í sem allra ríkustum
mæli til landa Austur-Ev-
rópu, en helzt hætta öllum
viðskiptum annars staðar. —•
Tilgangur þessarar viðskipta-
stefnu er auðvitað ekki að
tryggja hagsmuni íslenzks
sjávarútvegs eða íslenzku
þjóðarinnar í heild. Það sem
fyrir kommúnistum hér
heima vakir er fyrst og
fremst að gera íslendinga
gersamlega háða viðskiptun-
um við Sovétríkin og önnur
lönd Austur-Evrópu. En í því
fælist vissulega stórkostleg
hætta fyrir alla afkomu
landsma r»na í nútíð og £vam-
tíð. —
Leika sér aS eldi