Morgunblaðið - 16.08.1962, Page 20

Morgunblaðið - 16.08.1962, Page 20
r 20 f MORCVyBLAÐlE Fimmtudagur 16. ágúst 1962 _ HOWARD SPRING:__ 15 RAKEL ROSING á Sinaifjalli, og hún bað innilega með sjálfri sér: Ó, guð! Láttu þetta haldast. En um leið og orðin urðu til í huga hennar, brosti hún að fánýti þeirra, vel vitandi, að annað en það, sem hún fram- kvæmdi sjálf, yrði aldrei fram- kvsemt. 3. Hún kveykti á öllum lömpum, til þess að horfa á sjálfa sig í háa speglinum. Jú, þetta var allt í lagi. Hún var í kjó'num, sem hún hafði verið í þegar hún borð- aði með Maurice, með rauða blómið yfir vinstra eyranu. Blá- svarta hárið var sléttgreitt, til beggja handa frá skiptingunni í miðjunni og undið í þéttan hnút undir hnakkanum. Hún brosti og fann til ánægju með glitrandi hvítar tennurnar milli rauðra varanna. Þú ert fallegri en nokkru sinni áður, sagði hún við sjálfa sig. Með örþunnan vasa- klút dinglandi í annarri hendi, gekk hún niður stigann og bar sig eins og henni fannst drottn- ing eiga að bera sig. Julian Heath stökk upp úr sæti í forsalnum, er hún gekk framihjá. Guð minn góður, sagði hann. Þér eruð stórkostleg! Hvílík opin berun! Það var rétt eins og hann vildi kasta sér fyrir fætur hennar. Hún varð hissa, Og sjálf varð hún ekki vör við þennan virðu- leika í eigin fasi, er hún sýndi, þegar hún leit niður á hann. Ekki bjóst ég við yður hér sagði hún. Ef ég mætti svo segja .... stamaði Julian, þá bjóst ég held- ur ekki við þessari fegurðar-opin berun, sem ég nú sé fyrir augum mér. Hún lét sem hún heyrði ekki gullhamrana. Jæja, hvað eigum við að segja um það? Julian togaði vandræðalega í 'hálsbindið sitt. Mér mundi líða betur ef ég hefði jafna aðstöðu Einmitt, svaraði hún drembi- lega. Nei, skrattinn hafi það, ung- frú Rosing, sagði hann hreinskiln islega. Líklega mundi mér ekki líða neitt betur. En það sem ég átti við var það, að ef ég hefði farið í skárri garmana .... Þér trúið því ekki, hvað ég er glæsi- legur í kjólfötum .... Hún gerði ekkert til að létta af honum áhyggjunum. Hann var af skaplega dauflegur á svipinn, og hélt áfram: Þér skiljið — ég vissi, að hr. Bannermann mundi ekki geta borðað með yður, svo að ég greip tækifærið. Charlie Roebuck fór með lestinni ti,l Preston og skildi trogið eftir hjá mér. Hann er góður drengur og skilur hvernig á stendur. En það geri ég ekki. Hún kunni vel við hann. Bæði var hann snyrtilega til fara og svo gat hann roðnað eins og krakki. En þá kOm skynsemin til sögunnar hjá henni og skipaði henni að fara sér að öllu var- lega. Maurice mundi ekki líka þetta vel. Hann mundi einhvern- veginn frétta það, og Julian Heath var þannig maður, að hann mundi ekki láta sitja við eitt kvöldverðarboð. Hann hafði verið fulkomlega hreinskílinn um fátækt sína: að hann lifði á fyr- irframgreiddum ritlaunum — hvað sem það nú kynni að vera. Nei,"það gæti ekki gengið, hvern ig svo sem því væri velt Og snúið. Hún ætti að þekkja land- ið eins og það var, og ekki reyna að fara kring um Maurice Bannermann, sem nú lá uppi með löppina eins og óbleiktan lérefts- stranga. Hún hélt því áfram að horfa á Julian með kuldalegu augnaráði og sagði: Það var víst ákveðið mál, að við gætum ekki borðað saman, var ekki svo? Það er ekki nema satt, en þér vitið nú, hvernig þetta gengur. Hvernig vonin endist manni fram úr öllu valdi .... Hún gerði ekki annað en hrista höfuðið, en svo komst hún ofur- lítið við af neyð hans og sagði: Það var afskaplega fallega gert af yður að hjálpa okkur í dag, en ef yður væri sama, þá ætla ég að borða ein. Þér skiljið ekki, hvernig í því liggur. Julian tók upp hattinn sinn, sem hann hafði fleygt á stól og sagði: Jú, ég held ég skilji það. Ætli nú það? hugsaði Rakel. Hann lítur ekki út fyrir að vera nein bjáni. Jæja, sælar á meðan, sagði Julian. En þér munið eftir stefnu mótinu okkar í London. Og eftir að hafa séð yður aftur í kvöld, hlakka ég til þess meir en nokkru sinni áður. Hún rétti honum höndina. — Góða nótt. Þetta eigið þér að eiga, sagði hann. Hann lagði bók á borðið hjá henni, lyfti hendi eins og til að heilsa á hermannavísu, og var farinn út. Rakel gekk í hægðum sinum inn í borðsalinn, með bókina í hendinni „Súlur Heraklesar“. — Maurice hafði ekki svikizt um að skipa nákvæmlega fyrir. — Yfyrþjónninn stóð þegar bukt- andi við borðið hennar. Hann sagði henni hvaða vín Mauriee hefði bent henni á að drekka og hvaða mat eta. Hún lét kunnáttu mennina algjörlega um þetta hvort tveggja, en opnaði bókina hægt og rólega, en las um leið lesninguna á hlífðarkápunni. Þar stóð, að höfundurinn væri „yngri sonur Upavon lávarðar .... “ Hún lagði bókina frá sér aftur og alls konar efasemdir gripu 'hana. En þá mundi hún, að hún mundi bráðum koma til London, og þar var auðveldara að skjót- ast við og við úr öllu örygginu, sem Maurice gat veitt henni. — Nei, það var öllu óhætt. Hún hrósaði happi að hafa hagað sér eins og hún gerði. Hún horfði á vínið glitra er hvíthönzkuð hönd hellti því í glasið. IX. 1. Hver er Upavon lávarður? spurði Rakel. Maurice svaraði ekkp alveg strax. Hann hélt áfram að lesa bréfið — eitt úr heilli hrúgu, sem Mike Hartigan hafði sent frá Portmantorgi. Hann var í kon- unglegum skrúða. Sloppur úr hárauðu sliki með breiðu belti með svörtum skúfum í, utan yfir náttfötum, sem virtust vera úr gulldúk. Annar fóturinn var í hárauðum inniskó. Hinn var enn A ég að pakka honum inn? eins og óbleiktur léreftsstrangi. Legubekkur hafði verið dreginn upp að arninum í setustofunni í íbúð hans og hann hallaði sér út af á honum og fleygði jafnóð- um flestum bréfunum í eldinn, eftir að hafa lesið þau. Loks tók hann af sér hornspangagleraug- un og leit á Rakel. Upavon? O, hann er svo sem ekki neitt. Stjórnarlimur í hinum og þessum fyrirtækjum. Eg hef hitt hann á slíkum stjórnarfundum. Almenni legheita kall, en hálfgerður bjáni. Það má segja, að hann sé nafn, sem getur látið fyrirtæki líta vel út á pappírnum. Hvers vegna spyrðu? Hún rétti honum bókina góðu og benti á umsögnina á kápunni. Þessi bók er eftir annan unga manninn sem ók á okkur. Maurice setti upp gleraugun aftur. Hm! Hefurðu lesið hana? Já. Nokkurt gagn í henni? Ég veit ekki. Ekki þótti mér neitt í hana varið. Lánaðu mér hana. Eg hefði gaman af að líta í hana. Jæja, maður ætti víst að fara að svara þessum bréfum. Hann tók að lesa fyrir og Rak- el settist við lítið borð og tók að skrifa eftir honum. Daginn eftir slysið, hafði Maurice viljað senda til London eftir einkarit- ara og vélritara og guð má vita ihverju fleiru. Þú getur fengið allt þetta hérna á staðnum, hafði Rakel bent hon um á, og með réttu. En þarftu þess? Get ég ekki gert þetta? Eg efast um, að þú getir það, hafði Maurice svarað. Og hvers- vegna ættirðu líka að vera að þræla í því. Af því að þá hef ég eitthvað fyrir stafni, sagði Rakel. Mér skildist, að þegar þú ákvaðst, að ég skyldi búa hérna, þá ætti það að vera til þess að ég gæti hjálp- að þér eitthvað ef með þyrfti. Það var eins gott, hugsaði hún, að leggja strax fyrir hann spurn inguna, sem hann mundi bráð- lega verða að svara hvort sem var. Maurice sjálfur sá þetta einnig glöggt og til þess að draga ákvörðunina á langinn í stað þess að ljúka henni, lét hann það gott heita, að ungfrú Rosing væri 'honum nauðsynleg — sem einka- ritari. 2. Þannig leið hálfur mánuður og veturinn skall á snögglega. Gest- irnir þyrptust frá Blackpool. ■— Jafnvel skrautlýsingarnar hættu að gera borgina að einu ljóshafi á kvöldin. Það kom rok og rign- ing og þá sjaldan Rakel hætti sér út fékk hún hroll af kuldan- um, blautu götunum og dimmu skýjunum. Sjórinn var farinn að ganga yfir Strandvegginn og HETJUSÖGUR íslenzkt myndablað fyrir börn 8 - 80 ára HRÓI HÖTTUR og kappar hans ahefti komið \ blaðsölur og kostar aðeins 10 krónur. X- X- >f GEISLI GEIMFARI >f >f >f rr's no use, FLEMIN6/ , PRACO'S GOT TOO MUCH OF A HEAD _ STA KTJ -- ATTEHT/ON, PUBSU/T SQUAPPON// SCUAMBLE/ OVEgTAKE KARZ SPACE . I'VE THOUöHT OF THAT, DR. HUERAND THERE /S i WAV TO STOP HIM pepmanentl y/ ONE BUT, PROF SENölN ,,, DRACO OBVIOUSLY HAS THE COMPLETE SECPET OF YOUR MISSILE' > NO TELLINÖ WHAT HE'LL k DO ONCE HE öETS HOME/ 6>COkV TtfSk* — Hlustið, eltingasveitH Allir um borð. Eltið uppi geimfarið frá Karz. — T>að þýðir ekkert, Fleming ofursti. Draco hefur fengið of mikið for- skot. — En, próf. Gengin. Dracco hefur allt leyndarmálið um eldflaugina og ekki þarf að fara í grafgötur með hvað hann ætlar sér, þegar hann kemst heim. — Ég hef hugsað um það, dr. Hjalti, og aðeins ein leið er fær til að stöðva hann .... uxn aldur og ævi. spýttist nú alla leið upp í lágu skýin, sem vindurinn feykti á land, svo að hvein í. Þetta varð að stórkostlegum ljósmyndum 1 dagblöðunum, en Rakel var mein illa við það. Hún var farin að hata Blackpool og allt, sem þeim stað tilheyrði. Nú voru ekki einu sinni svitugir öskuraparnir frá sumrinu til tilbreytingar og til þess að vekja meðaumkun henn- ar. Hún óskaði þess heitast, að Maurice gengi nú eitthvað að láta sér batna, en svo þegar hún sat alein við kaffi í veitingasal, sem var að öðru leyti manntómur, skammaði hún sjálfa sig fyrir þessa óþolinmæði. Flýta sér þó, Iþó! Nei, það var ekki allt unnið við flýtinn, ef eitthvað skyldi framkvæma. Þolinmæði og þraut seigja og vinna, það var þetta sem gaf árangur. Jafnvel þessi bölvaða Blackpool mátti ekki gera henni þungt í skapi eða um of óþolinmóða. Hún lagaði á sér andlitið, borgaði veitingarnar, fór í skjallhvíta regnkápu og sneri síðan aftur að þessu þolin- mæðiverki sínu: að bíða. Og næsta dag skánaði veðrið. Vindurinn gekk niður og himinn inn varð aftur blár og silkifagur. Rakel var í góðu skapi þegar hún fór upp til Maurice eftir morgunverð, með blöðin og póst- inn. N-ú verðurðu að fá þér ofur- lítið frí sagði hann. Horfðu bara á veðrið. Eg vil ekki hafa þig innan dyra í dag! Hvert viltu fara? Eitthvað verðurðu að fara. Hún hikaði og Maurice hélt áfram: Eg skal panta bíl handa iþér, þá geturðu farið eitthvað út x sveit. Þakka þér fyrir, Maurice, sagði hún, en mig langar ekkert út í sveit. En ég veit hvað ég vil. Eg vil skreppa til Manchest- er. SHUtvarpiö Fimmtudagur 16. ágúst. 8.00 Morgunútvarp (Bæn. — Tón« leikar — 8.30 Fréttir. — 8.35 Tónleikar — 10.10 Veðurfregnir). 12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar). 13.00 „Á frívaktinni" sjómannaþátt* ur (Kristín Anna Þórarinsdótt* ir). 18.30 Óperulög. — 18.45 Tilkynniíigar. 19.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. 20.00 Vísað til vegar: Um Eyjafjöll (Jón A. Gissurarson skólastj.). 20.20 Atriði úr ..Útskúfun Fausts** eftir Berlioz. — Nicolai Gedda, Rita Gorr og Gérard Souzay syngja með kór og hljómsveit Parísaróperunnar. — André Clut ens stjórnar. 20.40 Þýtt og endursagt: Maude Gonne; síðari hluti. (Sigurlaug Björnsdóttir kennari). 21.15 Aría og tíu tilbrigði í ítölskum stíl eftir Bach. — Rosalyn Ture- ck leikur á píanó. 21.35 Úr ýmsum áttum (Ævar R. Kvaran leikari). 22.10 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Kvöldsagan: „Jacobowsky og ofurstinn“ eftir Franz Werfel; V. (Gissur Ó. Erlingsson). 22.30 Harmonikuþáttur: Henry J, Eyland annast þáttinn. — Krist- inn S. Kristjánsson á Akureyri leikur. 23.00 Dagskrárlok. Föstudagur 17. ágúst. 8.00 Morgunútvarp (Bæn. — Tón- leikar — 8.30 Fréttir. — 8.35 Tónleikar. — 10.10 Veðurfregnir) 12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar), 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 13.25 „Við vinnuna': Tónleikar. 15.00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk, — Tónleikar. — 16.30 Veðurfr. — Tónleikar. — 17.00 Fréttir. -» Endurtekið tónlistarefni). 18.30 Ýmis þjóðlög. — 18.45 Tilkynn. 19.30 Fréttir. ingar. —• 19.20 Veðurfregir. 20.00 Efst á baugi (Björgvin Guð- mundsson og Tómas Karlsson), 20.30 Frægir hljóðfæraleikar; Xj Hornaleikarinn Dennis Brain. 21.05 Upplestur: Kristín Anna Þórar- insdóttir les Ijóð eftir Kristján Árnason. 21.15 „Helgun hússins' forleikur op. 124 eftir Beethoven. — Hljómsveitin Phiilharmonia leikur. — Otto Klemperer stj. 21.30 Útvarpssagan: „Fná vöggu til grafar" eftir Guðmund G. Haga- lín; III. Höfundur les. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Kvöldsagan: „Jacobowsky og of- urstinn" eftir Franz Werfel; VL (Gissur Ó. Erlingsson). 22.30 Tónaför um víða veröld: Kvöld við Miðjarðarhaf (ÞorkeU Helgason og Óla>vr B^gnar Grímseon). ^ 23.00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.