Morgunblaðið - 01.09.1962, Side 20

Morgunblaðið - 01.09.1962, Side 20
20 MOTtfíUFBLAÐIB * Laugardagur 1. sept. 1962 - HOWARD SPRING: _28 RAKEL ROSING — Aí hverju gáfuð þér ekki merki um að þér ætluðuð að stanzaT Já, en, frú, sagði Rose. I>egar þér farið að heimsækja manninn yðar á morgun, þurfið þér að líta eins vel út og þér getið. Hugsunin um farlama mann, sem liti hana girndar- og eig- anda augum fékk henni velgju. Farðu út, hvæsti hún. Rose hörfaði eitt eða tvö skref og horfði á húsmóður sína hugs- andi. Síðan lagði hún á eldinn, svo að hann entist í nokkrar klukkustundir, gekk svo að legu- bekknum og án þess að segja orð, lyfti hún fótunum á Rakel upp á bekkinn. Síðan setti hún kodda við bakið á henni, tók átoreiðu og lagði yfir hana og lyfti henni upp til þess að koma ábreiðunni fyrir. I>etta er betra, sagði hún. Góða nótt frú. Góða nótt. Slökktu á öllum lömpunum. Svona lá hún í bjarmanum frá arninum, klukkustundum saman, að henni fannst, en loksins varð hún vör við einhverja hreyfingu inni í herberginu, svo að hún hrökik upp. Hún var eins og dauð mann- eskja. f>essi svefn hafði alls ekki hresst hana neitt. Hún horfði á Chamberlain draga tjöldin frá gluggunum og leit með skjálfta á útkulnaðan arininn. Baðið yðar er tilbúið, frú. I>að hressir yður. Guð minn góður! Hvað er klukkan? Mig langar í tesopa. Klukkan er átta. I>að er bakki í svefnuherberginu yðar. Og það er hlýrra þar. Eg er búin að hafa ratfmagnsofninn á þar 1 hálftíma. Rakel dragnaðist yfir í svefn- herbergið og var fegin að fá heitt teið í þurran munninn. Baðið hressti hana líka. Hún lá og hvíldi sig í vatninu og hugsaði um allt það marga, sem hún ætlaðist fyrir. Hvernig var það með fötin? Hún þurfti að kaupa fatnað. Hún átti ekkert nema það, sem hún hafði komið með í ferðakistunni sinni. Maur- ice hafði enga peninga látið hana fá. Henni varð hugsað til þess, sem hún hafði svo oft séð í blöð- unum um að „láta skrifa hjá manninum sínum“. Gat hún gert það? Jú, líklega gæti hún það. Hún settist fyrir framan stóra spegilinn og málaði sig vand- lega. Allar þessar dollur og glös, sem hún hafði geymt í kistunni sinni í Blaekpool, komu nú fram Og hún raðaði þeim á glerhilluna. I>ær voru fallegar og uku sjálfs- traust hennar. Ef hún gleymdi baðinu, mátti næstum imynda sér, að hún væri í búningsher- bergi i leikhúsi. Klukkan var níu, þegar Rakel kom aftur inn í herbergið sitt, í bláu dragtinni. Eg ætla að borða morgunverð hérna, sagði hún. Og segðu hr. Hartigan, að mér þætti vænt um ef hann vildi borða með mér. Svo settist hún við arininn og beið. í>etta var dásamlegt, hvern- ig allt gekk af sjálfu sér, eins og einhverjir ósýnilegir púkar hefðu verið að verki. Fyrir einni klukkustund hafði stofan verið dauð og óvistleg, eldurinn slokkn aður Og allt á öðrum endanum. Nú suðaði vingj arnlega í eldin- um, og ofurlítil gola bærði gluggatjöldin. Blómin höfðu ver- ið endurnýjuð. Hún gekk yfir að glugganum og sá, að sólin skein og það var komið indælis veður. Úti í garðinum voru krókusar að stinga höfðinu upp úr sótugu grasinu. Guð minn góður, hugs- aði hún, hvað þetta hefði allt getað verið yndislegt, ef Maur- ice hefði ekki þurft að vera svona bölvaður klaufi. I>að var heill mannsöfnuður kring um morgunverðinn. I>jón- ustustúlka bar bakkann og svo snerist Bright gamli kring um hann, þegar hún hafði sett hann frá sér, til þess «ð sjá um, að allt væri í lagi. Hann var af- skaplega umhyggjusamur um vellíðan Rakelar, sagðist vona, að henni liði betur og að allt kæm- ist bráðlega í lag. Mike Hartigan kom inn á eftir Bright og ýfði á sér hárið. Og kötturinn Ómar kom inn á eftir Mike. Rakel var vingjarnleg við Bright gamla og bað hann fyrir iþau skilaboð til konunnar sinnar, að blómin væru yndisleg. I>á var hún orðin ein með Hartigan. — Hún kinkaði kolli að stól. Seztu niður. Hann gerði svo og köttur- inn stökk upp á öxlina á honum, og hringaði sig utan um hálsinn á honum, en grænu augun horfðu á Rakel. Eg bauð þér til morgun- verðar, en hér er ekki nema handa einum. f>að er allt í lagi, Rakel. Eg er búinn að borða fyrir löngu. Hefur hr. Bannermann gleymt að segja yður, að við vær um gift? Æ, vertu nú ekki að setja það fyrir þig, sagði Mike. Eg var alveg að koma að því. Eg ætlaði að fara að óska þér til hamingju. Því var bara stolið úr mér í bili. Eg var nú ekki að hugsa neitt um hamingjuóskir, hr. Hartigan, heldur hitt. hvort þér vissuð ekki, að ég heiti frú Banner- mann. Hún leit á hann með hörðum glampa í svörtu augunum, en En löngu áður en hún komst að leikstarfsemi var hún farin að nota kynþokka sinn sem vopn í baráttunni fyrir bættum lífskjör um. Tólf ára gömul hafðí hún vakið eftirtekt í peysunni góðu, Og sumarið 1939 var hún tekin að stunda stefnumót. Nú á dög- um er það orðið algengt að þrettán ára stúlka, fer opinber- lega á stefnumót með pilti úr nágrenninu, en fyrir heimsstyrj- öldina síðari var slíkt óvenjulegt. Þessar skeytingarlausu aðfarir Normu Jean hneyskluðu vinstúlk ur hennar. Hún kom þrælmáluð í skólann. Etf að því var fundið, svaraði hún venjulega hvasst: ,,Ætli ykkur komi það mikið við? Eg veit ekki betur en ég eigi andlitið á mér sjálf“. Hún gekk í augun á strákunum og fór helzt á stefnumót með þeim, sem voru dálítið eldri — 17—18 ára. Hún fékk snemma fullþroskað vaxtar lag> og þrettán ára gömul hefði 'hún getað sýnzt átján ára. — Kjaftakindurnar sökuðu hana um að drekka sig fulla og taka þátt í lauslætissamkvæmum ' á strönd- unum þarna í nágrenninu. Henni þótti ekkert að þessum kjafta- sögum. „Eg gat ómögulega reiðzt þessum kjaftakindum. Þá vissi ég ,að hinar stelpurnar voru afbrýði samar. Hræddar um að missa þá, sem þær voru skotnar í, af því að ég var girnilegri. Þetta voru ekki lengur dagdraumar, skáld- aðir upp sér til afþreyingar í ein- verunni. Það var staðreynd“. Já, hún naut þess að vera girni legasta kvenpersónan á staðnum, og að láta karlmenn koma kurteis lega fram við sig — þar á meðal gamlan lostasegg — 22 ára að aldri! — sem hélt að hún væri fullþroskuð kona. Og hún bar sig líka sannarlega eins og veraldar- vön kona. Hún hafði þegar lagt sér til sérstakt göngulag, og tók nú að æfa reglulegar mjaðma- hreyfingar í þröngu pilsi. Þegar hún fór niður að bað- ströndinni, fékk hún lánuð sund- litlu hvitu tennurnar bruddu ofurlitla brauðskorpu. Mike rétti upp hönd til að strjúka kettinum, brosti breitt og sagði vingjarnlega: Þú verður að fara að skilja, að við erum öll vinir. Eg kalla Maurice alltaf Maurice og því ætti ég þá ekki að kalla þig.... Hr. Hartigan. Brosið hvarf atf Mike, við þessa ísköldu rödd. — Þér kallið hr. Bannermann ekki neitt annað en því nafni þegar ég heyrði til. En ég gerði boð eftir yður núna til að spyrja yður einnar eða tveggja spurninga. Mike ýtti stólnum sínum ofur- lítið frá. Gott og vel, frú Banner- mann. Hafið þér haft samband við sjúkrahúsið í morgun? Já. Hr. Bannermann er alveg eins. Eg spurði, hvort þér mætt- uð heimsækja hann og mér var sagt, að þér gætuð það ef þér krefðust þess, en þó væri betra, að þér gerðuð það ekki í dag. Þakka yður fyrir. En meðan hr. Bannermann er veikur, hvernig fer ég að með peninga? Peninga! Þér þurfið enga pen- inga. Þér hafið allt, sem þér þurf ið hér í húsinu. Rakel stokkroðnaði og þegar hún setti frá sér bollann, glamr- aði í honum. Hr. Hartigan, sagði föt hjá Bebe Goddard. (Hvað hefði komið eða ekki komið fyrir Marilyn ef fóstursystir hennar hefði ekki notað einu númeri minni föt en hún sjálf?). Marilyn minnist þess, hvernig hún hopp- aði og dansaði fyrir framan spegil í svefnherberginu og æfði sig í ýmsum girnilegum tilburð- um. Og uppnámið, sem peysan olli forðum, var hreinasta óvera, samanborið við áhrifin af sund- bolnum nú. Gamlir karlfauskar urðu frá sér numdir. Ungir menn veinuðu og blístruðu. Konur störðu og hneyksluðust. Norma Jean var að gera alla vitlausa. Hún var úti í bæ eða á baðströndinni sjö kvöld í hverri viku. Aðdáendur hennar voru allir einróma í hrósi sínu. Samt sem áður setti hún þesssa aðdáun ekki í samband við neitt kynlíf. „Sannleikurinn er sá, að þrátt fyrir allan minn varalit og augnabrúnalit og fullorðinsvöxt, var ég jafn ómóttækileg fyrir áhrif og steingervingur .... Eg var vön að liggja vakandi á nótt unni og brjóta heilann um, hvers vegna strákarnir sæktust svona eftir mér“. Grace frænka og Ana frænka, sem skildu ekki, að Normu Jean var jafnóhætt innan um dýrkend ur sína og Penelópu var, forð- um daga, og vissu ekki, að fóstur dóttir þeirra lét sitja við handa- þrýstingu og einn koss að skiln- aði, og leyfði aldrei aðdáendun- um meira en rétt að taka utan um hana og kannski fljúgast á við hana í gamni á ströndinni — voru áhyggjufullar. Norma Jean varð nú bæði fjórián og fimmtán ára og alltaf jókst aðsóknin að henni. Kon- urnar tvær ræddu málið daglega. Þær sáu í anda kyrrstæða bíla eða stefnumót í ómerkilegum vegagistihúsum. Ef nú Norma Jean væri farin að feta í fótspor móður sinnar — hvað þá? Grace frænka var að því leytl hún og gat létt aðeins stillt sig um að skvetta úr bollanum fram- an í hann. Það sem ég þarfnast, ákveð ég sjálf, en það er yðar að sjá um, að þarfir mínar séu uppfylltar. Hvernig fer ég að með peninga? Eg veit ekki, frú Bannermann, sagði Mike þrjózkulega. Eg er bara ritari hr. Bannermanns, og get ekkert gert nema samkvæmt skipun hans. Jæja, þér komið þessu í kring eins fljótt og þér getið. Og þá var það ekki fleira. Nema, hvað ég vil ekki sjá þennan kött. — Þér gerið svo vel að koma ekki með hann hingað inn. Mike stóð upp og Ómar stóð lík hinni frænkunni, að hún að- hylltist Christian Science, eins og Ana. Þær konurnar leituðu til rita Mary Baiker Eddy eftir fræðslu. Frú Eddy hafði einhvers staðar í þeim sagt, á sínu vand- aða bókmáli: „Hreinlífi er undir- staða menningar og framfara". Hún hvatti alla til að„leggja nýja fjötra" á holdslyst sína og „upp- ljóma tilveruna" með hjónabandi. Þegar Norma var orðin fimmtán ára, urðu þær frænkurnar ásátt- ar um, að þær yrðu að finna henni hentugan mann, til að „uppljóma tilveruna" hjá henni. Eftir að hafa athugað hina og þessa, komu þær sér saman um einn tuttugu og eins árs gamlan mann sem átti heima þarna í Van Nuys, og hét James Dough- erty. Doughertyfjölskyldan og Goddardfjölskyldan höfðu verið vinafólk árum saman. Dougherty ungi hafði góða atvinnu hjá Lockheed-verksmiðj unum. Hann ók stundum Normu Jean og Bebe Goddard heim úr skólanum. En hann hafði aldrei komið auga á töfra Normu Jean, af því að hann leit alltaf á hana sem smá- telpu. Ungi maðurinn var grannvax- inn, vingjarnlegur og snyrtileg- ur, og naut mikilla vinsælda hjá stúlkunum. í skólanum hafði hann verið bekkjarfélagsformað- ur í efri bekk. Um það leyti, sem konurnar frá báðum heimilum sátu að ráðabruggi sínu, var Jim stöðugt með ungri stúlku, sem hafði verið útnefnd fegurðar- drottning á ársihátíðinni í Santa Barbara. Nú hafa konur af fáu jafn- gaman og að kjafta fólk seman í hjónaband. Fyrsta skrefið var að sannfæra Normu Jean um, að hún ætti að „uppljóma tilveruna“ hjá sér. Eitt kvöld bar stúlkan sig upp við Grace frænku út af því, að allar stelpurnar kölluðu hana karimannagildru. Norma Jean sagðist alis ekki geta að þessu á öxlinni á honum og geispaði beint framan í Rakel. Já, vel á minnzt: Hvar er hundurinn minn? Mike stanzaði Og roði færðist upp í kinnar hans. Nú-nú? Eg lét skjóta hann. Rakel þaut upp úr sætinu, föl af reiði. Hvað gerðuð þér? Lét skjóta hann. 1 Hvaða leyfi höfðuð þér til þess. Eftir hvers skipan létuð þér gera það? Eg tók mig fram um það sjálf- ur. Mér fannst, að ef hundurinn þyrfti að vera á þessum sífelldu hlaupum, gæti hann verið hættu- legur fyrir Maurice. gert, þó að strákarnir hinna stelpnanna drægjust að sér. Hvað gæti hún eiginlega við því gert? Þetta var ágæt byrjun. „Það, sem þú þárft að gera, er að gitfta þig, sagði Grace frænka. „Já, en ég er alltof ung“ svar- aði Norma Jean. „Ekki nema að árurn", svaraði Grace frænka. Þú ert fullkom- lega þroskuð kona. Norma Jean tók að hugsa mál- ið. ,,En hver vill giftast mér?“ spurði hún svo, eins og eðlilegt var. „Það er nú til dæmis hann Jim“. „Hvaða Jim?“ „Nú, en hann Jim Dougherty. Lízt þér ekki nógu v®l á hann?“ „Mér lízt svo sem enganveginn á hann. Mér finnst hann alveg eins og hinir strákarnir, nema hvað hann er eldri og stærri og kurteisari". „Einmitt“, svaraði Graca frænká. „Það er einmitt einn höf- uðkostur á eiginmanni — að hann sé kurteis“, En það lá annar fiskur undir steini hjá frú Goddard, sem ekkj allir vissu um. Þau hjónin höfðu fyrirætlanir um að flytjast til Vestur-Virginíu. „Doktor“ Godd- ard vildi ekki taka Normu Jean með i þá för og Grace. sera „hélt, að hún væri með hjarta- sjúkdóm", þóttist ekki maður til að vernda svona piltatál. Frænkurnar gerðu nú frú Dougherty heimsókn og settust að henni til að telja henni trú um, að frænka þeirra mundi verða syni hennar ákjósanlegur ektamaki. Norma Jean væri heilsugóð, hreinleg, dugleg, lag- leg, samvizkusöm og skemmtileg í umgengni. Hún væri lífleg eins og unglingum væri títt, en hún væri góð stúlka og heimilisræk- in. Frú Dougherty fór eitthvað að nefna, að Norma Jean þætti heldur laus í rásinni, en frænk- urnar bara hlógu að því og sögðu, að þetta væri ekkert ann- að en æskufjör. En væri hún ekki otf ung til að fara að gifta sig? Alls ekki, svöruðu frænkurnar. Norma Jean væri þroskuð etftir aldri. Hún væri ekki ein atf þessura hringlandalegu imglingum. Hún væri stillt velsiðuð og greind og stæði báðum fótum á jörðu niðri. Og hún væri vaxin ein* og tvítug stúlika. Og síðast ea ekki sizt væri hún siðsöm stúlka. Marilyn Monroe eftir Maurice Zolotov

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.