Morgunblaðið - 28.09.1962, Side 1
I
2^* síJnr
49. árgangur
215. tbl. — Föstudagur 28. september 1962
t'rentsmiftja TVorgunblaðsins
Konungsfjölskyldan grófst undir rústunum •
Hæsta lánveiting Húsnæðismála
stofnunarinnar til þessa
MORGUNBLAÐIÐ hafði af
því spurnir í gær að Hús-
næðismálastofnunin hefði ný
lokið við stóra úthlutun lána
til húsbygginga. Það sneri
sér því til Eggerts Þorsteins-
sonar, formanns Húsnæðis-
málastofnunarinnar og spurð
Enn ein
stór- ■
sprengjan
Uppsölum, 27. sept. — AP
Ekkert lát er enn á kjarnorku-
sprengingum Kússa við Novaja
Semlja. Snemma í morgun
mældust .á tækjum jarðmæl-
ingastofnnnarinnar í Uppsöl-
um að enn ein stór kjarnorku-
sprengja hefði verið sprengd
á tilraunasvæðinu við Novaja
Semlja. Var afl hennar 32
megalestir — eða samsvarandi
32 milljónum lesta af TNX
sprengiefni. Sprengjan mun
hafa sprungið í 70 km f jarlægð
frá þeim stað, er síðasta stór-
/ sprengja var sprengd sl.
1 þriðjudag.
ist nánar fyrir um þetta mál.
Eggert sagði að nú væri lokið
afgreiðslu stærstu lánveitinga,
sem stofnunin hefði frá upp-
hafi veitt, eða alls 50 milljónum
króna. Hann sagði það lauslega
ágizkun sína að með þessum
lánveitingum hefðu milli 900 og
1100 íbúðir fengið einhverja úr-
lausn, ýmist byrjunarlán eða
fullnaðarlán.
Úthlutun lánanna stóð 10—15
daga. Með þessari fjárveitingu
hafa nú á þessu ári verið lánað-
ar alls 82 milljónir króna.
Fé til þessarar lánveitingar
var aflað þannig að félagsmála-
réðherra beitti sér fyrir sam-
komulagi við viðskiptabankana,
sem skipta á sig, eftir sparifjár-
aukningu hjá hverjum um sig,
alls 25 milljónum en hinsvegar
veitir atvinnuleysistryggingar-
sjóður og stærstu sparisjóðirnir
í nágrenni Reykjavíkur hinar 25
milljónirnar, þar af atvinnu-
leysistryggingasj óðurinn 22 mill-
jónir. Hér er um að ræðp skulda-
bréfakaup þessara peningastofn-
ana.
Með þessari lánaúthlutun hef-
ur Húsnæðismálastofnunin látið
frá sér fara jafn mikið fé og
veitt vaí á öllu sl. ári, en það
var þó hæsta lánveitingarárið
fram til þessa.
Auk þessa gengst félagsmála-
Framihald á bls 2.
I Þrengslavegurinn austur fyr-
ir Fjall er nú rétt að verða
samfelldur. A myndinni,
7 Ijósmyndari blaðsins, Ól. K.
Mag., tók fyrradag úr lofti,
Sést að aðeins vantar um 100
m spotta til að endar mæt-
ist á austurbrún Hellisheið-
ar. Er vinnuflokkur frá Vega-
gerðinni að aka í uppfyll-
ingu á þessum kafla, en
bílslóð er á milli utan til við
^ vegarstæðið. Sjá bls. 13.
Rosningar í apríl
Buenos Aires, 27. sept. — AP
Haft er eftir áreiðanlegum heim
ildum innan herliðsins, sem
studdi uppreisn Ongania, hers-
höfðingja í sl. viku, að áður en
langt um líði verði kunngjörð sú
fyrirætlun forsetans, Jose Maria
Guido, að láta almennar kosning
ar fara fram í Argentínu í apríl
n.k. Áður hafði verið fyrirhugað,
að kosningar færu fram í október
1963.
I\lestu flóð í sögu Spánar
Talið að um 600 hafi farizt
Barcelona, 27. september AP
Varaforsætisráðherra Spán-
ar, Munoz Grande, hershöfð-
ingi, skýrði fréttamönnum
svo frá síðdegis í dag, að
ætla mætti, að sex hundruð
manns hafi týnt lífi í hinum
gífurlegu fléðmn í Katalóníu-
héraðinu.
Fundizt hafa 360 lík og meira
en 400 er enn saknað. Á sjötta
hundrað manns hafa slasazt
meira eða minma, þar af hafa
200 verið lagðir á sjúknahús.
Auk þessara mannskaða hafa gii-
urleg verðmæti spillzt — nemur
tjónið hundruðum milljóna ísl.
króna.
Flóðin eru talin hin mestu í
sögu Spánar. Sjálfboðaliðar gefa s -
sig stöðugt fram til björgunar-
starfsins, sem er víða hið erfið-
asta. Var í dag komið fyrir flóð-
Ijósum á ýmsum stöðum til þess
að unnt væri að halda áfram í
nótt leitinni að særðum og látn-
um.
Á lista yfir þá er látizt hafa
eru einungis spænsk nöfn. —
Nokkrir erlendir ferðaflokkax
munu vera í landinu, en ekki er
vitað til að neitt hafi hent þá.
í skotárás
á höllina
HershÖfðingjar
taka voldin í Yemen
Adeu 27. sept Ap—NTB
1 9 Stjórnarbylting hefur
verið gerð í Asíu-ríkinu Je-
men við Rauðahaf, þar sem
búa um 4.5 milljónir manna.
• Herinn hefur steypt af
stóli hinum nýja þjóðhöfð-
ingja landsins, Imam Moham
med Al-Badr, og grófst hann
undir rústum hallar sinnar
í skotárás, ásamt fjölskyldu
og nánustu stuðningsmönn-
um. —
• Imam Mohammed Al-Badr
tók við völdum af föður sínum
Imam Amhad, er lézt í síðustu
viku, 71. árs að aldri. Föðurbróð-
ir Imam Mohammed, Sail Al-
IsEam Al-Hassan prins, sem bú-
settur hefur verið í Bandaríkj-
unum og verið formaður sendi-
nefndar Jemen hjá Sameinuðu
Þjóðunum, hefur lýst því yfir,
að hann muni halda til Jemen
og gera tilkall til þeirra valda,
sem honum heri í landinu.
• Sennilegt er talið, að bylt-
ing þessi sé gerð að tilstuðlan
Nassers, forseta Egyptalands,.
í opinberri yfirlýsingu, sem
hiershöfðingjar í Jemen sendu
frá sér í morgun um útvarpsstöð
ihöfuðborgarinnar Sanaa, segir
að bundinn hafi verið endir á
konungdóm í Jemen og verði
komið þar á lýðveldi í framtíð-
inni, en þangað til verði völdin í
höndum hensins. Muni uppreisn-
armenn vinna að því að vinna
btig á hunigri, ótta og sjúikdóm-
um í landinu. Hershöfðingjarnir
segjast hafa vísan stuðning allra
fursta landisins og fólksins í báð-
uim aðalborgum landsins, Sanaá,
þar sem búa 100.000 manns og
Taiz, þar sem íbúar eru 15.000.
Ennfremur hafi stjórnir þriggja
•Sadct.
% %
... \:£
' ^VhdTnár'
Tais
nóclia
Rssab
ADEN
't
, w; iaeuvt'
•./'S0IMAUL, ,-*=
stærstu héraða landsins, Salef,
,Ibb og Hajja, og hafnarbæjarins
Hodeida, sent uppreisnarmönn-
um heillaóskaskeyti og lýst yfir
stuðningi við þá.
Uppreisnin var gerð í morg-
un. íbúum í Sanaa var gefinn
kluikkustundar frestur til þess
að hverfa af götum borgarinnar
ella m-yndi herinn skjóta á hvern
mann. Var fólk jafnframt hvatt
til þess að koma í veg fyrir flótta
konungs fjölskyldunnar, ef við
hann yrði vart.
u Framhald á bls. 23.